15.12.1948
Efri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)
83. mál, almannatryggingar
Frsm. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):
Ég hefði ef til vill getað sparað mér að taka nokkuð til máls. Það var ekki neitt nýtt í ræðu hv. frsm. meiri hl. Hann sagði, að aðalástæðan til þess, að frv. hefði verið fram borið um frestun heilsugæzlukaflans, hefði verið ósamkomulag við læknastéttina, en jafnframt virðist honum, að þessa ástæðu sé ekki hægt að taka til greina. Nú skil ég ekki, hvernig hann getur ekki tekið aðalástæðuna til greina, en jafnframt lagt til, að frv. verði samþykkt, það virðist vera meira en lítið ósamræmi í þessu hjá hv. þm. En út af því, að sett yrði gjaldskrá með valdboði handa læknum til þess að fara eftir, til þess að fresta ekki framkvæmd laganna vegna ósamkomulags við lækna, þá er ég þeirrar skoðunar, að til þess beri ekki að grípa. Ég er ekki fylgjandi því, að menn séu látnir vinna þvingunarvinnu og allra sízt læknar. En þarna er þó ekki um neina þvingunarráðstöfun að ræða, því að læknar geta náttúrlega, þrátt fyrir það að gjaldskrá yrði sett og gjöld fyrirskipuð fyrir þeirra þjónustu, ég er þeirrar skoðunar, að þeir geti sett upp hvaða gjald sem þeir kæra sig um þrátt fyrir það. Nei, það kemur niður á sjúklingunum, því að þeir verða að greiða taxta þann, er læknarnir setja upp, og fá svo endurgreitt það gjald, sem er samkvæmt lögboðna taxtanum, en sjálfir þurfa sjúklingarnir að greiða mismuninn. Nei, ég vildi að ekki yrði gripið til þessarar heimildar fyrr en í síðustu lög. En það hefur ekki verið gerð tilraun til samkomulags við lækna í heilt ár.
Þá sagði hv. þm., að það væri ekki sök ríkisstj., að ekki væru komnar upp þær stofnanir, sem lögin gerðu ráð fyrir, því að það væri ekki ríkisstj., heldur fjárhagsráð, sem veitti fjárfestingarleyfi. En hann þarf ekki að halda því fram, að þetta leyfi mundi ekki hafa verið veitt, ef það hefði verið lagt fyrir ráðið. En þetta var bara ekki stefna stj. Nei, stj. hefur lagt allt kapp á að tæma þá sjóði, sem safnazt hafa hjá Tryggingastofnuninni, svo að það kæmi ekki að notum fyrir þessar stofnanir, enda er það í samræmi við stefnu stj., að þeim verði ekki komið upp. Það er því hreinasti óþarfi fyrir hv. þm. að vera að mótmæla því, að stj. ætti sök á því, að þessar stofnanir væru ekki komnar upp.