10.12.1948
Efri deild: 28. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
93. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Hv. 4. landsk. gerði nokkrar athugasemdir við þetta frv. frá sínu sjónarmiði. Ég vil benda á, að það er ekki hér lagt til, að þessi skattur verði festur um ófyrirsjáanlegan tíma, því að það er hér ekki farið fram á annað, en að hann gildi fyrir næsta ár, eins og hann var lögfestur til eins árs upphaflega. — Í öðru lagi, eins og hv. 4. landsk. benti á, þá eru undanþegnar matvörur, þar með kaffi og sykur og jafnvel tóbak. Hitt er svo allt annað mál, að það er ekki neitt skemmtilegt að þurfa að halda þessum gjöldum svo háum sem raun ber vitni um. En þjóðin virðist ekki enn vera ásátt um það að fara þá heilbrigðustu leið til lækkunar á þessu dýrtíðarástandi. Á það bendir t.d. sá sífelldi þrýstingur til hækkunnar á afurðaverði, sem kemur fram af landbúnaðarins hálfu. Og fleira mætti hér tilnefna, sem virðist frekar vera til þess að auka dýrtíðina en minnka hana. Það er að vísu rétt athugað hjá hv. 4. landsk., að hjá því verður ekki komizt, þegar farin er þessi svokallaða tollaleið, að það út af fyrir sig auki tilkostnaðinn hjá fólkinu við heimilishald og annað. En með þeirri fjárþörf, sem orðin er hjá ríkinu, er ekki vel hægt að sjá, að aðrar leiðir séu færar til tekjuöflunar, sem þá gefa raunhæfan árangur, heldur en þær, sem farnar eru, og þykja sumar þeirra, t.d. öflun tekna gegnum áfengissölu, ekki vera sem skemmtilegastar. Ég held, að öllum beri orðið saman um, að hinir beinu skattar á millistéttinni í landinu — og hún er langfjölmennust séu orðnir næsta þungir. Og hvað hina snertir, sem kunna að reiknast í öðrum flokkum, en millistéttinni, er það í fyrsta lagi takmörkuð tala, enda er skattstiginn þannig, að það sýnir sig við útreikning á skattinum, að harla lítið verður eftir af tekjunum, þegar menn hafa langt fyrir ofan þau laun, sem venjulegur millistéttarmaður hefur. Og ég hef sérstaklega orðið var við það í ár, að tollstjóri kvartar mjög undan því, að einkum þær hærri skattsummur gjaldist treglega. Á hinn bóginn linnir ekkert úr neinni átt á þeim kröfum, sem gerðar eru til ríkissjóðs af hálfu — ja, hvað á maður að segja — þjóðarinnar eða að minnsta kosti fulltrúa þjóðarinnar. Og hver sá maður, sem á þessum tímum á að semja fjárlfrv., lendir í hreinustu vandræðum með að koma því plaggi saman, svo að á nokkurn hátt sé frambærilegt, mestmegnis vegna þess, að það eru svo margir stórir útgjaldaliðir í fjárl., sem eru bundnir með annarri löggjöf og verður ekkert við ráðið. Fjmrh. eða rn., jafnvel Alþingi sjálft ræður ekki við það nema breyta þessari löggjöf.
Hv. þm., sem síðast talaði, er víst eins ringlaður og allir aðrir yfir dýrtíðinni og álögunum á landsfólkinu. En tökum t.d. eina löggjöf, sem hann hefur staðið að að þenja mjög mikið út, en þar á ég við fræðslulöggjöfina í landinu. Það mun hafa verið í hans stjórnartíð, sem lengst var gengið í því að efna til síaukins tilkostnaðar í sambandi við þessa blessuðu fræðslulöggjöf. Og hvað kostar hún orðið þjóðina? Um 35 millj. kr. Enda eru skólarnir fullir af námfúsu fólki og í mörgum tilfellum af vel vinnandi fólki, sem kannske stundum, að því er sveitirnar snertir, er tekið frá þörfum störfum á sveitaheimilum og sent hingað til Reykjavíkur. Ég sé t.d. á hverjum degi allmyndarlega fylkingu ungra manna og kvenna, sem sækja kennaraskólann. Þetta er allt fólk á bezta aldri, sem er að búa sig undir kennarastarf í landinu, sem er ekki heldur að furða, því að búið er að búa svo í haginn fyrir slíka menn, að það er eftirsóknarvert að komast í slíkar stöður, mjög sæmilega launaðar. Langan tíma ársins eru þessir menn algerlega frjálsir allra sinna ferða og geta unnið sér inn peninga á öðrum sviðum eða gert hvað sem þeir menn vilja gera, en þurfa ekki að bera áhyggjur fyrir komandi degi, því að launin eru þeim tryggð hvort sem er. Ég hef meira að segja heyrt eftir einum slíkum manni, að hann hafi sagt, að hann kærði sig ekkert um að fara í vinnu — hvað það eru nú margir mánuðir af sumrinu, sem þeir hafa frí, því að skattarnir yrðu bara þeim mun hærri, að hann teldi það ekki borga sig.
Ég hef áður bent á það og get bent á það enn, að það eru fimm útgjaldagreinar á fjárl. af eitthvað 23, sem þar eru taldar, sem eru svo stórvaxnar og fjárfrekar, að þær taka 2/3 af öllum ríkistekjunum. Á ég þar við dýrtíðarráðstafanir, fræðslustarfsemi, vegamál, landbúnaðarlöggjöf o.s.frv. Þriðjungur af ríkistekjunum á svo að halda uppi allri annarri starfsemi í landinu, öllum dómsstörfum, löggæzlu, tollgæzlu og öllu öðru, en þessum fimm liðum. Því miður er það svo, að þær tekjur, sem ríkissjóður hefur nú eftir þeim lögum, sem gilda í dag, endast ekki næsta ár, ef niðurgreiðslurnar eiga að haldast á sama hátt og verið hefur og fiskábyrgðin verður tekin. Þess vegna þarf engan að undra, þótt reynt sé að framlengja þetta frv. um eitt ár í viðbót. (HV: Hvað gefur þetta frv. ríkissjóði miklar tekjur?) Því get ég ekki svarað á þessari stundu, en það má upplýsa við 3. umr. málsins. Ég bara veit það og skal út af þessu gefna tilefni segja frá því, að verðtollurinn sem er nú meginþátturinn í þessu, var áætlaður í fjárl. s.l. ár 60 millj. kr. En sökum þess, hve innflutningurinn hefur verið skorinn við nögl hér, sérstaklega á vefnaðarvöru og ýmsum öðrum vörum, sem gefa ríkissjóði beztar tekjur, mun verðtollurinn, eftir því sem starfsmenn í ráðuneytinu halda, tæplega fara upp í meir en um 50 millj., í stað 60 millj. eins og áætlað var, og kemur það blátt áfram til af því, að innflutningur á þessum tollháu vörum hefur verið svo lítill, og hefur fjmrn. þó oft á árinu bent á þá hættu, sem ríkissjóði stafar af þessum stórfellda niðurskurði. — Ég man ekki, hvort vörumagnstollurinn er áætlaður 17 millj. í fjárlfrv. í ár, en hann mun ná sér betur en verðtollurinn.
Þessar aths. vildi ég gjarnan láta koma fram í sambandi við það, sem sagt var um þetta mál af hálfu hv. 4. landsk. þm.