15.12.1948
Neðri deild: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1484 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)

99. mál, skattgreiðsla Eimskipafélag Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Þetta frv. er flutt af meiri hl. fjhn., þ.e.a.s. þremur nm. Ég vildi ekki gerast meðflm. að þessu frv., sökum þess að ég tel ekki rétt að framlengja þessi lög, er nú gilda um skattfrelsi Eimskipafélags Íslands. Ég hef hér í höndum síðustu. reikninga þessa fyrirtækis. Samkvæmt þeim virðist mér, að gróði Eimskipafélagsins á árinu 1947 hafi numið nokkru meiru en einni millj. kr., — rúmlega einni millj. og eitt hundrað þús. kr., að því er mér virðist, samkv. rekstrarreikningi félagsins.

Rétt er það, sem haldið er fram af hv. flm. frv., að samkvæmt reikningunum þá hefur orðið nokkur halli á rekstri eigin skipa félagsins árið 1947. En hins vegar hefur gróði á rekstri leiguskipa félagsins það ár orðið meiri en sem nemur tapinu á eigin skipum þess. — Nú er á fleira að líta í þessu sambandi. Eimskipafélag Íslands mun hafa fengið leyfi yfirvaldanna á þessu ári til þess að hækka verulega farmgjöld á aðfluttum vörum þrátt fyrir þessa góðu rekstrarafkomu 1947. Og þó að mér sé ekki kunnugt enn um afkomu félagsins á þessu ári, sem nú er bráðum liðið, þá liggur það í augum uppi, að einmitt þessi farmgjaldahækkun, sem félagið fékk samþ. nú á þessu ári, hlýtur að bæta verulega fyrir félaginu hvað reksturinn snertir árið 1948.

Ég sé ekki ástæðu til þess, eins og ég áður hef sagt, að framlengja þessi lög. Eimskipafélag Íslands er, eins og þegar hefur verið tekið fram og öllum er kunnugt, ákaflega vel á vegi statt fjárhagslega. Samkv. reikningum þess á það nú um síðustu áramót fimm skip, sem bókfærð eru á 5 þús. kr. hvert. Húseignir þess hér í Reykjavík eru bókfærðar allar á aðeins sjö þús. kr., og áhöld, bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn, á einar tvö þús. kr. En þrátt fyrir þetta, að þessar miklu eignir eru taldar í reikningum félagsins með aðeins þessum lágu upphæðum, þá eru eignir félagsins umfram skuldir um síðustu áramót 49,7 millj. kr.

Ég fæ heldur ekki séð, að það mundi verða til hnekkis starfsemi félagsins, þó að það nú væri látið greiða skatta, ef það hefði einhvern ágóða, með svipuðu fyrirkomulagi og önnur fyrirtæki. Með tilliti til þess, hve félagið er vel efnum búið, virðist ekki ástæða til þess, að það taki svo mikil farmgjöld, að ár hvert verði mikill gróði á rekstrinum. En einmitt þetta skattfrelsi, það getur, virðist mér, orðið til þess m.a. að hvetja félagsstjórnina til þess að hafa farmgjöldin hærri heldur en ella mundi verða, þar sem allur gróðinn er skattfrjáls.

Þá vil ég benda á það, eins og áður hefur verið gert í umr. um þetta mál, að þetta eru óeðlileg forréttindi, sem þetta fyrirtæki hefur fram yfir önnur fyrirtæki, sem hafa svipaða starfsemi með höndum.

Öllum hv. þm. er þetta mál kunnugt, bæði að fornu og nýju. Og ég sé ekki ástæðu til að eyða frekar tíma fundarins í umr. um það, nema tilefni gefist. Ég vildi aðeins láta vitnast, að ég var ekki í þeim meiri hluta fjhn., sem stendur að þessu frv., og mun því greiða atkv. gegn því.

Sigfús Sigurhjartarson: Herra forseti. Mér skildist á umr., sem fóru fram í gær um þetta mál, að það hefði verið samkomulag um það á milli hv. 2. þm. Reykv. og hv. frsm. þessa máls, að málið yrði athugað nokkru nánar í n. Nú er hv. 2. þm. Reykv. ekki viðstaddur hér, og ég vildi aðeins spyrjast fyrir um það hjá hv. frsm., hvort þetta samkomulag hafi farið fram, og ef svo er ekki, hvort ekki væri rétt að fresta málinu, svo að sú athugun geti farið fram um málið, sem um var rætt hér í gær.