04.11.1948
Neðri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1492 í B-deild Alþingistíðinda. (2045)
40. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Varðandi þetta frv. get ég að mestu, vísað til grg., sem því fylgir. Meginefni þess er það, að eignarauki, sem stafar af aukavinnu, er menn leggja fram utan reglulegs vinnutíma til þess að byggja íbúð til eigin afnota, skuli ekki talinn sem tekjur og skattlagður á þann hátt. Ég þarf ekki að lýsa því, hversu ákvæði gildandi skattal., eins og þau hafa verið, vafalaust réttilega túlkuð af skattanefndum og skattstjórum, hafa komið illa og hart niður á mörgum, sem byggt hafa sér íbúðir, bæði í kaupstöðum, kauptúnum og til sveita. Eins mikil og húsnæðisvandræðin eru hér hjá okkur, er sjálfsagt að stuðlað sé fremur af ríkisvaldinu til þess, að menn leggi fram aukavinnu til þess að koma upp yfir sig íbúðum, heldur en að tálma þeim það, eins og nú er gert með gildandi skattalögum. Niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur hefur mjög tekið þetta til greina við álagningu útsvara, svo að þau hafa ekki komið svo tiltölulega hart niður á þeim mönnum, sem hér eiga hlut að máli.
Það má benda á það, að ef þessi aukavinna á að vera skattfrjáls, þá ætti önnur aukavinna, sem menn leggja á sig og fá greidda í peningum, einnig að vera skattfrjáls, a.m.k. ef arði af þeirri aukavinnu er varið til þess að koma upp eigin íbúðum. En þó er hér sá munur á, að þegar menn fá þessar tekjur í peningum, er möguleiki til þess að halda nokkru eftir af þeim fyrir sköttum. En hér er ekki um neina peninga að ræða, sem skattþeginn eignist, heldur eignarauka, sem er fast bundinn í eigninni. Þess vegna hefur reynslan verið sú, að ýmsir þeir menn, sem hér eiga hlut að máli, hafa ekki átt nema um tvo kosti að velja. Annaðhvort að taka lán, sem oft eru þá lítt fáanleg, til þess að standa skil á skattgreiðslum, eða, ef það er ómögulegt, þá að selja húsin, eftir að þeir með mikilli vinnu og sjálfsafneitun eru búnir að koma yfir sig þaki.
Það koma ýmis vandamál til greina í sambandi við þá löggjöf, sem hér er ætlazt til, að sett verði. En ætlazt er til þess, að fjmrh. setji um ákvæði þessi, sem í frv. er lagt til, að lögfest verði, nánari reglur. Það má búast við, að reynt verði að misnota þessar undanþágureglur, sem í frv. felast. En það á hins vegar að mega treysta því, að skattyfirvöldin gæti þess, að ekki komi undir þessi ákvæði fleiri en þeir, sem ætlazt er til, að njóti þessara hlunninda. Og með þeim heimildum, sem skattyfirvöldin hafa, ætti þetta að vera hægt. Og ekki ætti að vera meiri hætta á undanbrögðum eða skattsvíkum í sambandi við þetta ákvæði, en í sambandi við fjölda mörg önnur ákvæði skattal.
Skal ég ekki hafa fleiri orð um þetta mál að sinni. Ég hef, bæði áður og eftir að þetta frv. var flutt, borið mig saman við menn þaulkunnuga skattamálum hér í Reykjavík. Og þeir af þeim, sem ég hef talað við um þetta, hafa talið þetta, sem í frv. er farið fram á, bæði sanngjarnt og sjálfsagt og ekki erfiðara í framkvæmd, en mörg önnur ákvæði skattal.
Vegna þess, hve margir menn hafa þegar orðið hart úti af þessum ástæðum, með sköttum, sem á hafa verið lagðir nú í ár, er svo ákveðið í 2. gr. þessa frv., að tekjuskatt álagðan árið 1948 skuli ákveða að nýju í samræmi við ákvæði 1. gr. frv., ef skattgreiðandi krefst þess innan þriggja mánaða frá gildistöku þessara laga. Til greina gæti komið að stytta þennan frest, þannig að sem fyrst eftir gildistöku laganna fengist úr þessu endanlega skorið.
Það hefur komið fram sá misskilningur, m.a. í einu blaði hér í bænum, að þetta frv. eigi einungis við Reykjavík eða þá einungis við kaupstaðina, en nái ekki til sveitamanna. En ég hefði nú haldið, að sveitamenn væru einstaklingar, eins og aðrir þjóðfélagsborgarar. Það er skýrt tekið fram í frv., að það nær til allra einstaklinga í landinu. — Mér er kunnugt um, að Stéttarsamband bænda hefur haft þetta mál til meðferðar og gert ályktun, sem fer mjög í sömu átt og þetta frv.
Ég vænti, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.