04.11.1948
Neðri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)

40. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Áki Jakobsson:

Herra forseti. Það er nú starfandi mþn. í skattamálum, sem mér skilst, að fjmrh. hafi skipað. Þar eiga sæti tveir fulltrúar frá Sjálfstfl., einn frá Framsfl., einn frá Alþfl. og einn frá Sósfl. Störf þessarar n. fara fram í húsakynnum bæjarskrifstofanna vegna þess, að annar fulltrúi Sjálfstfl. er starfsmaður Reykjavíkurbæjar og undirmaður hv. 1. flm. þessa frv. Og ég býst við, að efnið í þessu frv. sé komið þann veg í frv. -form, að það sé einhvern veginn árangur starfs þessarar mþn. Þetta frv. hefur, a.m.k. að efni til, komið til umr. í þeirri n. Og allir nm. í þeirri n. eru sammála um, að gera þurfi eitthvað í þessu atriði. Og sú breyt. á skattal., sem er í undirbúningi hjá þessari mþn., sem ég gat um, getur maður þá sennilega búizt við, að fram komi bráðlega, fyrst till. um breyt. í þessu atriði er komin fram. Og ég verð að segja, að þessi órói, sem kemur fram í að hreyfa þessu máli á þingi, sem hér liggur fyrir, þegar vitað er, að á leiðinni er heildarfrv. um breyt. á skattal., sem fulltrúar allra flokka vinna að, hann minnir dálítið á aðferðir, sem hafðar hafa verið í sambandi við till., sem fram hafa hér komið um jeppabifreiðar og landbúnaðarvélar. Fleira hefur komið fram í sambandi við innflutning jeppabifreiðanna, sem virðist mest vera gert til þess að sýnast.

Ég er, eins og aðrir í mþn., á því, að þetta frv. eigi fram að ganga. En ég tel þessa breyt. ófullkomna. Þetta á að mínu áliti ekki að koma fram sem breyt. á 9. gr. skattal., heldur 10. gr. Þetta, sem menn vinna við eigin íbúðir, eru tekjur manna, sem koma strax fram sem peningur í hendi, þegar húsið er selt. En til þess að ýta undir það, að menn leggi vinnu sína í þessa hluti, er eðlilegt að veita þeim frádrátt í skatti, a.m.k. miðaðan við venjulega dagvinnu, fyrir því, sem menn vinna við að koma upp eigin íbúðum. Og ég lagði til, að þetta verði sett sem einn liður í 10. gr. skattal., greinina um frádrátt. Það er hins vegar ekki alveg búið að afgreiða þetta úr n. Þó var meiri hl. í því máli í n. ekki á því að fallast á till. mína í þessu efni, heldur vildi bæta þessu við 35. gr. skattal., sem er um ívilnun í skatti vegna sjúkleika, og þá þarf að sækja um þetta til skattstjóra. Ég held, eins og sakir standa, að þetta sé álit meiri hl. þessarar skattamálan., þótt eitthvað kunni að breytast afstaða sjálfstæðismanna í n. við það viðhorf, sem skapazt hefur við það, að hv. þm. Snæf. kemur hér með þetta mál í frv.-formi og tekur það út úr öðru, sem verið er að undirbúa í sambandi við breyt. á skattal.

Ég tel nú ekki svo mikinn mun á því, sem menn vinna sjálfir við eigin íbúðir, og hinu, sem menn leggja á sig í sama skyni í vinnu til þess að afla sér hærri peningatekna við annað. Til dæmis sjómenn geta ekki unnið að byggingu eigin íbúða sinna í yfirvinnu. En þeir leggja mikið á sig til þess að auka tekjur sínar sem mest, ef þeir eru að byggja íbúðir fyrir sig. Þess vegna álít ég, að það eigi að hafa hliðsjón af því, og álít, að þetta sé of þröngt ákveðið, eins og til er tekið í frv. Enn fremur álít ég, að þegar þetta er tekið sérstaklega, sem frv. er um, að ekki sé hægt að ganga frá því máli, svo að gagni verði, nema með því að taka þetta sérstaklega fyrir í sambandi við álagningu útsvara einnig, því þótt hv. þm. Snæf. segði, að niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur hefði tekið sanngjarnt tillit til þess, þegar menn hafa verið að koma á þennan hátt upp eigin íbúðum, þá held ég, að það hafi verið einmitt öfugt. Niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur, sem starfar undir stjórn hv. þm. Snæf., borgarstjórans í Reykjavík, hefur lengi sýnt mjög mikla ófyrirleitni í hækkun útsvara. Kvartanir hafa komið úr ýmsum áttum þessu viðkomandi, og menn standa varnarlausir gagnvart niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur í þessum efnum. Og það mundi ekki ná tilgangi sínum að samþ. þetta frv. sem lög, nema með því að gera svipuð ákvæði bindandi fyrir niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur. — Og það er mjög óeðlilegt líka, þegar um ákvæði 2. gr. er að ræða, að miða það, sem þar er ákveðið, aðeins við síðasta framtal. Hér er lagt til, að það ákvæði nái aðeins til þess misréttis, sem menn hafa verið beittir við síðustu skattálagningu. Og frv. er miðað einungis við skattálagningu, en ekki útsvarsálagningu. En þetta þarf að ná til lengri tíma aftur í tímann. Það er óhjákvæmilegt. Og ég vil sérstaklega beina því til þeirrar n., sem fær frv. þetta til meðferðar, að taka þetta atriði til sérstakrar athugunar.

Ég vil taka það fram, að ég er mjög hlynntur því, og Sósfl., að ívilnanir viðkomandi skattálagningu verði látnar gilda gagnvart þeim mönnum, sem leggja mikið á sig til þess að koma upp eigin íbúðum. Og ég vil leggja áherzlu á það, að Sósfl. verður fús til þess að hraða afgreiðslu þessa máls í þinginu. Og ég vænti þess, að flokkur hv. 1. flm. leggi fram sinn skerf til þess, að við getum afgr. frv. bara á mjög skömmum tíma, því að þetta er mjög aðkallandi, vegna þess að ýmsir, sem lagt hafa vinnu í að koma upp eigin íbúðum, eru að komast í þrot, vegna þess að krafizt hefur verið af þeim að greiða skatt af þessum yfirvinnutekjum, sem að vísu hafa aukið þeim eign, en hafa ekki gefið þeim neina greiðslumöguleika. Þetta er því mjög aðkallandi.