04.11.1948
Neðri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (2050)

40. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég vildi með örfáum orðum lýsa afstöðu minni til þessa frv., sem fyrir liggur. Ég tel hiklaust, að frv. þetta stefni í rétta átt, og fagna þess vegna því, að það skuli vera fram komið. — Mér er kunnugt um, að fulltrúi Alþfl. í þeirri n., sem hefur undanfarið starfað að endurskoðun skattal., hefur verið því samþykkur, að svipuð breyt. og þessi verði tekin inn í það endurskoðaða skattalagafrv., þó að þar sé gert ráð fyrir nokkuð öðru formi á þeim skattfríðindum, sem hér er um að ræða, heldur en hér er gert ráð fyrir.

Ég get að vísu ekki leynt því, og vildi skjóta því til þeirrar n., sem fær þetta frv. til meðferðar, að æskilegra væri að láta þau skatthlunnindi, sem hér er um að ræða, geta náð til fleiri aðila en þeirra, sem hér er gert ráð fyrir, að njóti þeirra, því að eins og hér hefur verið bent á, geta menn með eigin vinnu stuðlað að sköpun slíkra þjóðfélagslegra verðmæta sem bygginga á fleiri hátt ,en þann að leggja fram eigin vinnu í sambandi við verkið. Menn geta auðvitað aflað sér tekna með margs konar vinnu og varið tekjunum til þess að koma húsi yfir höfuð sér. Hér er því ekki eðlismunur á, heldur formsmunur á þeirri vinnu, sem maður leggur á sig, til þess að koma upp eigin húsi. Mér er fullkomlega ljóst, að erfiðleikar eru í sambandi við það, og það kann að valda misferli, ef svo almenn heimild ætti að vera í skattal., að draga mætti frá við skattaframtal tekjur af aukavinnu, sem maður legði á sig til þess að koma upp húsi til eigin íbúðar. En vel kann að vera, að það fyndist form fyrir aðferð til þess að láta slíka skattfríðindaheimild ná til allra, sem leggja á sig sérstaka vinnu til þess að koma upp yfir sig húsi, og stuðla þannig að lausn húsnæðisvandamálsins í landinu. Og ef einhver leið til þess er tiltækileg, þá mundi ég vera því hlynntur, að til slíkra ráðstafana yrði gripið. Ég vildi skjóta því til þeirrar n., sem fær málið til meðferðar, að hún athugi, hvort ekki er unnt að gera þessa skattaívilnunarheimild víðtækari, en hér er gert ráð fyrir í frv., þannig að hún nái til allra auka. tekna, sem sannanlega er varið til þess að koma upp íbúð yfir viðkomandi skattgreiðanda.