04.11.1948
Neðri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1499 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)
40. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Ég hélt ekki fram, að hér hefði verið hnuplað uppástungum mínum í þessu máli. Ég tók skýrt fram, að mþn. í skattamálum hefði öll verið sammála um, að það þyrfti að stíga skref í þessa átt, sem frv. gerir ráð fyrir. Hins vegar hefur ekki verið fullt samkomulag um formið, sem hafa ætti á því. Ég held, að það sé af hroðvirkni gert að gera ráð fyrir því að setja þetta ákvæði, sem frv. er um, inn í 9. gr. skattal. Það á að koma við 10. gr. að mínu áliti.
Það er algerlega óþarfi fyrir hv. þm. Snæf. að segja eða gefa í skyn, að ég sé með mótbárur gegn framgangi þessa frv. Ég er alveg með því, að þessi skattívilnun sé leyfð. Og ég tók þetta skýrt fram. Og ég tók fram, að þetta væri allt of þröngt til tekið í frv. Mér finnst ekki rétt að binda þetta eingöngu við það, að menn vinni sjálfir að byggingu íbúða fyrir sig til eigin íbúðar. Og ég tók einnig fram, að ég teldi ákvæði 2. gr. ná til of langs tíma. Það er vitanlega hægt að taka til greina í því efni, sem sú gr. fjallar um, það, sem gerzt hefur í þessum efnum á mörgum árum, og láta endurborga skatt og útsvör, sem lagt hefur verið á of hátt. Og það er óeðlilegt gagnvart skattþegnunum að binda þetta aðeins við þann tíma, sem hér er gert ráð fyrir í 2. gr. frv., en láta það ekki ná einnig til þess, sem áður hefur verið gert í þessum efnum. Þess vegna er ég ekki aðeins hlynntur því, sem felst í þessu frv., heldur einnig því, að farið verði lengra í þá átt, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég var þess vegna ekki að benda á, að hér hefði verið gripið til eins hluta af hugmyndum, sem fram hafa komið í n., sem vinnur að endurskoðun skattalöggjafarinnar — ég var ekki að benda á þetta í þeirri meiningu, að ég vildi slá því á frest að samþ. efni frv. Ég er ekkert á móti því, að þessi mál verði að einhverju leyti afgreidd í pörtum, hvert atriði út af fyrir sig. Ég tók fram, að ég vildi, að þetta frv. væri samþ., af því að það væri aðkallandi. En það eru líka ýmis önnur mál á döfinni hjá mþn. í skattamálum, sem þarf að afgreiða fljótt. Og mér heyrðist á hv. þm. Snæf., að hann gerði hálfvegis ráð fyrir því, að það yrði ekkert úr störfum þessarar mþn., þannig að mjög litlar líkur væru til þess, að þær till., sem frá henni kæmu, yrðu lögfestar. Þetta eru náttúrlega nýjar upplýsingar, ef svona er. Og form. þessarar n. er sjálfstæðismaður, og n. er skipuð af ráðh. Sjálfstfl. Og nú talar einn af foringjum Sjálfstfl., sem er borgarstjórinn í Reykjavík. Getur verið, að það megi skoða þetta sem upplýsingar um það, að meiningin sé að gera ekkert úr þessu máli frekar, þ.e. endurskoðun skattal.? En nú um nokkurt skeið hafa störf þessarar mþn. alveg legið niðri. Það er kannske eitthvert samband milli þess og þessara upplýsinga hv. þm. Snæf. En mþn. er svo langt komin í störfum sínum, að hún getur á mjög skömmum tíma lokið við störf sín. En þau hafa legið niðri nú um tíma. En ef búast má við því, að ekki verði hugsað um, að það fáist afgreiðsla á þessum heildartill. mþn., þá er það enn frekari rök fyrir því, að það beri að afgr. þessi mál, breyt. á skattal., í pörtum. — En hvað sem því líður, tók ég skýrt fram, að ég væri mjög fylgjandi því, sem í þessu frv. er gert ráð fyrir. Og það er langt frá því, að ég hafi borið fram mótbárur gegn þessu frv. á nokkurn hátt. En ég fann að því, að það væri hroðvirknislega samið, og taldi, að það gengi of skammt. En þetta stendur hvort tveggja til bóta.
Hv. þm. Snæf. sagði það vera ósannindi, sem ég sagði um niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur. Ég ætla ekki að munnhöggvast við hann um þetta. En mér er vel kunnugt um þessi mál frá ýmsu fólki. En það kemur á daginn, þegar þetta frv. er orðið að l. og farið er að framkvæma þau, hvernig þarna er um hnútana búið og hvaða fólk hefur farið illa út úr þessu. Og við getum beðið með að rífast um það, þangað til við sjáum niðurstöður þess. — En ég skora á hv. þm. Snæf. að vinna að því, að hans flokkur aðstoði hann í því að fylgja þessu máli fram.