13.12.1948
Neðri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (2060)
40. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Einar Olgeirsson:
Ég hef áður lýst því yfir, að eigi hefði mikla þýðingu að vera að ræða þetta mál. Spurningin er aðeins sú, hve langt hið opinbera geti gengið í því að leggja á skatta. Ég tel og ástæðu til, að haldið væri lengra, en í brtt. felst, því að mjög margir þeirra, sem hafa verið að byggja yfir sig, standa eigi undir þeim kostnaði sem af viðhaldi íbúðanna leiðir. Erfitt er einnig um öll lánakjör. Vextir hafa verið hækkaðir, og bankarnir hafa gert mönnum erfiðara fyrir. Þeir hafa verið stöðvaðir og veðdeildinni lokað. Er þannig kreppt að þeim mönnum, sem eru að reyna að verða bjargálna. Í þeim efnum hafa kjör manna farið versnandi sökum ráðstafana ríkisvaldsins. Ég hef sýnt fram á, að þeir sérfræðingar, sem hæstv. ríkisstj. hefur leitað til, bera það, að kjör þessara manna hafa versnað um 8%. Enn fremur er það vitað, að eftirvinnan er minni. Því hefur sú bjartsýni manna, er menn ólu með sér í byrjun, þegar þeir byggðu yfir sig hæð, orðið að vonbrigðum mestmegnis fyrir sakir beinna aðgerða hæstv. ríkisstj., sem gerir mönnum æ erfiðara fyrir að standa við skuldbindingar sínar. Nú þegar er vitað um allmikið af mönnum, sem neyðast til þess að selja, m.a. vegna skatta- og útsvarsþunga. Ég leitaðist við að fá honum aflétt, t.d. með því að hækka persónufrádráttinn. Fannst mér meiri ástæða til að ítreka það, sem ég hef áður minnzt á. Ég vildi ekki gera mikinn ágreining, því að með frv. var nefnilega allmikilli bót til vegar komið. En eðlilegt er, að um þetta sé ágreiningur. Annars vil ég ekki stofna til umr. af því tilefni. Er nauðsynlegt, að mál þetta geti gengið í gegn bæði fljótt og vel. Því mun ég eigi orðlengja meira um það.