25.02.1949
Efri deild: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1508 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)
40. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég skal strax taka það fram, að ég held, að till. þessi sé heldur til bóta og verði hún samþ., þá nái frv. betur tilgangi sínum, en án hennar. Það er megintilgangur frv. að ráða bót á ranglæti því, sem talið er, að þeir einstaklingar verði fyrir sérstaklega, er lagt hafa fram mikla vinnu umfram venjulegan vinnutíma til að koma upp þaki yfir sig og sína. Ég fellst og á, að frv. ráði bót á þeirri skattlagningu, sem slíkir menn verða fyrir nú. Mér er þó ljóst, að jafnframt því sem frv. bætti úr misréttinu, mundi það engu siður koma ranglega niður á öðrum mönnum. Setjum nú svo, að tveir menn ynnu jafnmikið fram yfir venjulegan vinnutíma og legðu jafnmikið að sér. Annar gæti lagt það á sig að byggja sér hús sjálfur. Hinn gæti það ekki, en ynni á hinn bóginn að öðrum nauðsynlegum störfum, en keypti mann til að vinna að húsi sínu. Annar þessara tveggja manna hlyti þá fríðindi, en hinn fengi engin, þótt hann keypti sér vinnukraft. Að þessu leyti gæti glundroði skapazt af lagasetningunni. Ég er þess vegna ekki ánægður með þessa löggjöf og teldi eðlilegast, að þetta mál yrði leyst á betur fullnægjandi hátt. Þetta er eins og grá bót á svörtu fati og fer illa. Ég býst annars við, að betur verði um þetta rætt, þegar málið verður nánar athugað á næsta þ. Ég held, úr því að farið hefur verið út á þessa braut að undanþiggja tekjur skatti, að þá væri t.d. eðlilegast, að verkamenn þyrftu engan skatt að borga af þeirri vinnu, er þeir inni af hendi eftir venjulegan vinnutíma. Ég sé ekki betur, en lagabreytingin gangi í þá átt.