09.11.1948
Efri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (21)
26. mál, happadrættislán ríkissjóðs
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Það er enginn efi á því, að vinningarnir eru gjaldfrjálsir það ár, sem þeir falla. En segjum, að barn fái 200 þús. kr. vinning, og segjum, að þessum vinning sé komið vel fyrir og það fái vexti af honum. Barnið á þá 200 þús. kr. eign, og á þessa eign má leggja útsvar undir venjulegum kringumstæðum, allt upp í 6% þar, sem útsvör eru hæst. En nú stafar þessi eign frá vinningi í happdrættisláninu, og er þá leyfilegt að leggja útsvar á hana? Eins og 1. gr. hljóðar nú, er ljóst, að það má ekki. Þótt það hafi verið ætlunin, að þessir vinningar væru útsvarsfrjálsir á fyrsta ári, þá held ég, að það hafi ekki vakað fyrir neinum, að þeir yrðu útsvarsfrjálsir um alla tíð. Ég held því, að það þurfi að breyta þessu, þó að ég muni ekki bera fram neina brtt. um það. Því vitlausari sem þessi lög eru, því betra.