14.02.1949
Neðri deild: 64. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1539 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)

126. mál, lax- og silungsveiði

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Þetta litla frv. er flutt af landbn. eftir ósk veiðimálanefndar og veiðimálastjóra, en þessir tveir aðilar hafa gengið frá frv. og útbúið það til flutnings.

Í frv. felst sú breyt., að leyft verði að fiska göngusilung til 15. sept. í stað 1. sept. eins og verið hefur. Það má með sanni segja, að hér sé fremur um leiðréttingu að ræða, en breytingu, því að í upphafi, þegar l. um lax- og silungsveiði voru undirbúin af mþn., var ákveðinn sami tími, sem veiða mætti þessar fisktegundir, en það var miðað við 1. sept., en við síðustu umræðu um frv. í síðari deildinni var þessu ákvæði breytt varðandi lax og heimilað að veiða hann til 15. sept., en þá láðist að taka silungsveiðina með. Þar sem allir, sem um þetta mál hafa fjallað, telja sjálfsagt og rétt, að sömu ákvæði gildi að þessu leyti um lax og göngusilung, tel ég ekki þörf á að fara um málið fleiri orðum, en vænti, að hið háa Alþ. samþ. frv. Ég vil geta þess, að þó að l. um lax- og silungsveiði væru fullkomin smíði á sínum tíma, þá þurfa þau endurskoðunar við, en sennilegt er, að frekari breytingar verði látnar bíða eftir tveimur hæstaréttardómum varðandi viss atriði, er snerta laxveiðilöggjöfina, en þar bíða úrskurðar vafaatriði, sem miklu veltur á, hvernig hæstiréttur úrskurðar. En það má ætla, að ekki dragist lengi að fá þá úrskurði, og ætti því að vera óhætt að vænta endurskoðunar á þessum lögum eftir tvö ár. Hins vegar þótti ekki rétt að biða með þessa litlu en þó sjálfsögðu breytingu svo lengi.

Ég vænti svo, að málinu verði vísað til 2. umr., en þar sem málið er flutt af nefnd, geri ég ekki till. um, að því verði vísað til nefndar.