03.03.1949
Efri deild: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

126. mál, lax- og silungsveiði

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Það sér á hv. 1. landsk., að hér er ekki beinlínis verið að tala um sjávarfiska. Ég held, að tollatill. hefðu ekki komið fram, ef svo hefði verið. Annars skal ég nú ekki fara frekar út í þá sálma. Sjálfsagt beygi ég mig fyrir valdboðum hæstv. ríkisstj. Ég sé þó enga ástæðu til að draga málið og stöðva frv. við þessa umr. Það mun vera óumdeilt, að hver einasti hv. þdm. sé með frv. — Við eigum að finna hér nýjar tekjulindir til handa ríkissjóði. Ég held, að n. geti haldið fund um frv., þó að 2. umr. verði ekki frestað. Vil ég spyrja hæstv. fjmrh., hvort eigi megi taka til athugunar um tekjuaukninguna á milli 2. og 3. umr.