14.02.1949
Neðri deild: 64. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1552 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)
54. mál, sjúkrahús o.fl.
Jón Gíslason:
Herra forseti. Ég flutti á þskj. 107 brtt. við þetta frv., þar sem farið er fram á að létta undir með fámennustu héruðunum til þess að reisa læknisbústaði, sjúkrahús og sjúkraskýli. Fór ég fram á, að ríkissjóður greiddi 4/5 af kostnaðarverði þeirra bygginga. Það hefur verið þannig með aðstoð hins opinbera við embættismenn, að læknar virðast helzt hafa orðið á hakanum, en þeir eru embættismenn, sem ég og fleiri teljum sérstaklega brýna þörf að halda á í fámennum, strjálbýlum héruðum. Heilbr.- og félmn. hefur ekki gengið að fullu inn á brtt. mína, en þó það langt, að ég get sætt mig við það. Hún hefur gengið fyllilega til hálfs móts við mína till., og vænti ég þess, að brtt. hv. n. verði samþ.