21.02.1949
Neðri deild: 68. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

54. mál, sjúkrahús o.fl.

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég hef að gefnu tilefni leyft mér að flytja hér brtt. við þetta frv., og er hún á þskj. 351. Í tilefni af því, sem hér kom fram við fyrri umr. þessa máls, vildi ég gera örlitla grein fyrir brtt. minni og því, hvernig mér sýnist, að mál þetta muni koma út í reyndinni fyrir þá, sem hér eiga hlut að máli, ef sú framkvæmd ætti að verða, sem hv. frsm. lýsti hér við síðustu umr. um þetta mál, að hans skoðun væri í þessu efni.

Þessum málum er nú þann veg komið, að það er búið að velja úr sennilega þrjú til fjögur sjúkrahús á landinu, sem kölluð eru fjórðungssjúkrahús, þ.e. sjúkrahús á Akureyri og á Ísafirði, og talað hefur verið um sjúkrahús á Seyðisfirði í þessu sambandi. Þessi sjúkrahús eru talin fjórðungssjúkrahús og fá 60% af stofnkostnaði greitt úr ríkissjóði, en önnur sjúkrahús hafa fengið 40% stofnkostnaðar úr ríkissjóði. Auk þess hafa þessi sjúkrahús notið sérstaks rekstrarstyrks úr ríkissjóði á hverju ári. Nú er því bætt hér við, að fjöldi annarra staða er tekinn hér út úr og ætlazt til þess, að þeir fái hækkun á ríkissjóðsframlagi úr 40% í 67%, þ.e. öll sjúkrahús og læknisbústaðir, sem byggðir eru í hreppum, en ekki kaupstöðum. Þegar menn athuga, hvernig þá er komið, sjá menn, að eftir verða aðeins örfáir staðir á landinu, sem hægt er að telja á fingrum sér, sem eiga að fá aðeins 40% af stofnkostnaði úr ríkissjóði, þ.e. hinir stærri kaupstaðir landsins, sem ekki falla undir það að vera hreppsfélög og ekki heldur eru. Í þeim flokki að vera með fjórðungssjúkrahús. Þessir staðir eiga ekki að fá nema 40% stofnkostnaðar úr ríkissjóði, og svo eiga að dragast í dilk með þeim að þessu leyti þau sveitarfélög, sem eru læknishéruð með þessum bæjum. Ég hygg, að svo standi á um t.d. Ólafsfjörð, og þannig stendur á um Neskaupstað, sem er með sveit í læknishéraði. Þessir hreppar, sem eiga að byggja yfir sinn lækni, eiga að halda áfram að fá 40% stofnkostnaðar sem styrk úr ríkissjóði, á sama tíma sem aðrir nákvæmlega eins hreppar eiga að komast í þá aðstöðu að fá 67% stofnkostnaðar sem styrk úr ríkissjóði, meðan sumir kaupstaðirnir eru með 60% styrk úr ríkissjóði. — Þetta virðist mér ekki hafa verið vel hugsað af n., sem um málið hefur fjallað. Og þetta mundi skapa ranglæti, ef þessu ætti að beita svona. Ég vildi helzt, að allir þessir aðilar færu í sama skala um styrk úr ríkissjóði í þessu efni. En algert lágmark virðist mér vera það, sem mín brtt. á þskj. 351 felur í sér, að þau bæjarfélög, sem eru saman í læknishéraði með öðrum hreppsfélögum, að þeir aðilar allir fái að njóta hins sama um styrk úr ríkissjóði til stofnunar sjúkrahúsa og læknisbústaða eins og um aðra hreppa væri að gera, sem eftir frv. komast í þennan betri flokk. Ég skaut þessu hér fyrr í umr. til hv. n. með ósk um, að hún athugaði málið betur. Frá henni hefur ekkert komið annað en það, að hv. frsm. hefur látið það uppi sem sína skoðun, að hann vildi framkvæma þetta eins og ég nú lýsti. En ég veit, að hv. þdm. er ljóst, að það yrði hið herfilegasta misrétti, ef þetta yrði framkvæmt þannig, að ekki fengist leiðrétting að þessu leyti á frv. Og þó að ég hefði viljað hækka styrk til þessara aðila allra til jafns við þá aðila, sem hér eiga að njóta styrks að tveim þriðju hlutum stofnkostnaðar, hef ég í brtt. minni farið millileið í þessu efni og vildi því vænta þess, að mín brtt. yrði samþ.