04.03.1949
Neðri deild: 75. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)

54. mál, sjúkrahús o.fl.

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. Ég hef auðvitað í sjálfu sér ekkert á móti því, að Alþ. samþykki að styrkja sjúkrahúsbyggingar almennt að tveimur þriðju hlutum, síður en svo, ef það sér það fært. En heilbr.- og félmn. taldi sér ekki fært að mæla með svo háum styrk, ef kaupstaður væri í læknishéraðinu, því að þar, sem kaupstaður er, er meira fjölmenni, betri fjárhagsaðstaða og betri aðstaða til rekstrar sjúkrahúsa yfirleitt, og ég held, að það vegi fyllilega upp á móti því, sem styrkurinn er lægri. Á móti betri aðstöðu í slíkum héruðum kemur að vísu nokkru hærri stofnkostnaður við sjúkrahús en í öðrum héruðum, en í héruðum, sem hafa kaupstaði innan sinna vébanda, er líka miklu auðveldara með rekstur sjúkrahúsanna. Þetta vakti fyrir nefndinni. Út af fyrir sig sé ég ekkert á móti því, að ríkið greiði 2/3 af stofnkostnaði allra sjúkrahúsa og landið verði allt þar með sett í sama númerið. En með tilliti til fjárhags ríkisins er þó ekki hægt að horfa fram hjá því, að það getur verið varhugavert að samþ. slíkt, eins og nú standa sakir. Það er sótt mjög á með sjúkrahúsbyggingar, og það þarf að byggja sjúkrahús, en ríkið sér sér ekki fært að fullnægja kröfum um framlag til þeirra hluta samkvæmt núgildandi lögum, og hvað yrði þá, ef hækka ætti sjúkrahússtyrkinn almennt upp í 2/3 alls stofnkostnaðar? Nú bíða sjúkrahúsbyggingar upp á tugi milljóna, svo að ég sé ekki, að hægt sé að ganga lengra, en n. gerði, þó að óskandi væri, að það væri hægt.