18.12.1948
Efri deild: 41. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (228)
66. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Fjárþörf ríkissjóðs er mikil og í raun og veru fram yfir getu þjóðarinnar. Og þó að deilt sé nú og oft hafi verið deilt á fjármálastjórn landsins fyrir þetta, þá má þó segja, að þetta sé eðlilegur hlutur. Við erum fámenn þjóð, en búum þó í töluvert stóru landi og höfum lifað miðaldalífi fram á allra síðustu tíma, en erum nú að reyna að taka upp nútíma skipulag í ýmsum efnum. Og þar af leiðandi er ákaflega eðlilegt, að þetta rekist á og það sé erfitt að útvega fé til allra þeirra hluta, sem gera þarf í landinu af hendi þess opinbera. Og það er þá einnig svo ástatt nú, að það er mikil nauðsyn á fjáröflun, eins og allir vita, m.a. í sambandi við stuðning við sjávarútveginn o. fl. Af öllum sköttum — ég held bara öllum sköttum, sem til eru í landinu, — þá er það mín skoðun, að benzínskatturinn sé lægstur og að það væri sá skattur, sem eðlilegast væri að hækka. Þegar ég segi þetta, miða ég vitanlega við það, sem annars staðar er, því að dómar okkar mannanna eru allir byggðir á samanburði við eitthvað annað.
Þegar ég var í fjhn. fyrir nokkrum árum, þá lá fyrir frv. um benzínskatt, og athugaði þó n., hvað benzínskattur væri hár í ýmsum löndum, og kom í ljós, að á Íslandi var benzínskatturinn lægstur af öllum þeim löndum, sem n. hafði upplýsingar frá, en hitt er vitanlegt, að þörfin til þess að leggja nýja vegi á Íslandi er margföld á við það, sem er hjá þeim þjóðum, sem við höfum skýrslur frá um þetta. Ég verð því að játa það, eins og hv. 1. þm. N–M., að í þeim miklu tekjuöflunarleiðum, sem nú eru farnar í sambandi við önnur mál hér, þá sakna ég þess, að benzínskatturinn skuli ekki vera hækkaður alveg sérstaklega. Ég get ekki verið hæstv. ráðh. sammála um það, þegar um svo sérstakan skatt sem benzínskattinn er að ræða, að þá eigi enga hliðsjón að hafa af því í löggjöfinni, til hvers hann er notaður. Mér finnst sjálfsagt að hafa benzínskattinn háan og jafnframt að nota hann til vegagerða og brúagerða. Nú hefur benzínskatturinn ekki verið hækkaður, þrátt fyrir það að töluvert fylgi sé fyrir því að hækka hann verulega í sambandi við það tekjuöflunarfrv., sem hér er á ferðinni í sambandi við stuðning við sjávarútveginn, og þótt farið væri að bæta 5 aurum við nú, þá álít ég það svo litla hækkun, að hún sklpti litlu máli. Ég lít því svo á, að þetta mál sé alls ekki útkljáð hér á þessu þingi með því frv., sem nú er samþ., heldur hljóti einmitt þetta mál um benzínskattinn að verða tekið upp í sambandi við afgreiðslu fjárl. síðar á þinginu. Frv., eins og það liggur fyrir, er í rauninni aðeins framlenging á því, sem áður hefur gilt, og úr því skrefið er ekki tekið eins og þarf að taka það, þá finnst mér ekkert unnið við það að fara að káka við þetta og breyta aðeins lítils háttar þeim l., sem hér eru til framlengingar. Ég held það sé réttara, að það bíði þá eftir endurskoðun l., sem ef til vill yrði þá látin gilda eitthvað lengur en 1 ár. Þess vegna vil ég lýsa þeirri afstöðu minni og gera þá grein fyrir atkv. mínu, að þrátt fyrir þessa skoðun mína, að ég vil hækka skatt af benzíni og verja honum til samgöngubóta, mun ég þó með tilliti til þess, sem ég sagði, greiða atkv. á móti þeirri brtt., sem hér liggur fyrir, og brtt. við hana, því að ég tel, að úr því sem komið er eigi framtíðarlausn þessa máls að bíða eftir fjárlagaafgreiðslu síðar á þinginu og þá verði gerð miklu gagngerðari breyt. á þessu en mundi fást með þessari brtt., sem fyrir liggur.