28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

148. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða verulega um frv. sjálft, en vil benda hv. deild og sérstaklega hæstv. ráðh. á, að ég tel mjög óviðeigandi að samþykkja á sama þ. heilan bunka af l., sem öll eru brtt. við sömu l. Það er nóg, að ein slík brtt. komi fram, þó að eigi sé útungað 3–4. Á sama þ. er breytt einu og öðru í sömu l. og útbýtt aftur og aftur slíkum frv. Hér liggja nú fyrir tvö frv. til l. um breyt. á l. um tekjuskatt og eignarskatt. Þau eru ekki sameinuð í n., heldur fer annað í sjútvn., og hitt kemur frá fjhn. Því ekki að færa þau saman og afgreiða málið til ríkisstj. í heild? Við höfum nú á þessu þ. samþ. fjórar breyt. á l. um benzínskatt, og búast má við þeirri fimmtu. Þetta gerir þeim mönnum, sem þurfa að hagnýta sér l., erfiðara fyrir, og við eigum ekki að gera okkur leik að þessu. Tel ég þetta mjög illa farið og mjög illa unnið að afgreiða mál svona frá Alþ.