09.11.1948
Efri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (23)
26. mál, happadrættislán ríkissjóðs
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Mér finnst ekki ástæða til að taka það fram í l., að bæjar- og sveitarsjóðir missi ekki eignarútsvar. Samkvæmt l. missir ríkissjóður tekjuskatt og bæjar- og sveitarfélög útsvör, en ríkið heldur eignarskattinum, og þá virðist sanngjarnt, að bæjarfélögin haldi eignarútsvarinu.