28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)
148. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Vegna þessa vildi ég benda á, að það er rétt hjá hv. 1. þm. N–M., að viðkunnanlegra væri, að brtt. við sömu l. væru í einu frv. En það er ekkert einsdæmi um þetta mál, því að m.a. í sambandi við frv. til l. um innflutning og útflutning á íslenzkum og erlendum gjaldeyri sótti ég það mjög fast, að breyt. við sömu lög væri tekin með í það frv. Þó þótti það eigi gerlegt. Gat 1. fim., hv. 1. þm. Reykv., ekki fengið n. til að fallast á að sameina þetta tvennt í eitt frv. Hér er líkt ástatt. Hér er um ekkert skattamál að ræða, og því bar frv. að vísa til sjútvn. Get ég því ekki fallizt á að fresta málinu og setja það saman við 7. dagskrármál. Annars vil ég, að atkv. séu látin ganga um það í d. Frv. á aðeins eftir 1 umr. og enginn ágreiningur er um það í sjútvn., og get ég ekki fallizt á þessa meðferð málsins. En ég vil leyfa mér að leiðrétta það, er ég tók fram við 2. umr. um innstæður í nýbyggingarsjóði. Ég fór þar eftir grg. á þskj. 393. En nú hef ég fengið nýjar upplýsingar á þskj. 478, þar sem gefið er upp, að innstæður togaraeigenda hafi verið kr. 2.846.202.52 um síðustu áramót. Þar er og upplýst, .að togarainnstæðueigendur séu búnir á þessu ári að ráðstafa um kr. 1.900.000.00 til nýbygginga, og þá eru eftir um 900 þús. kr. í sjóðnum. En þó hefur Nd. séð ástæðu til að fella burt, að þessum aðilum sé skapaður sami réttur og þeim, er gera út báta, þótt innstæða þeirra sé lægri, en hjá bátaútveginum. Mér finnst einkennilega skipt milli aðila. Hvers vegna eiga ekki þeir, sem eiga 900 þús. kr., að njóta sama réttar? En ef þetta er rétt um innstæðurnar, þá mun ég vera eigandi að um helmingi þess fjár, er eftir er, og kann ég þá ekki við að bera sjálfur fram till. um að fella þetta brott úr l. Munu félög mín eiga um 500 þús. kr. af eftirstöðvunum. Ég mun því fylgja frv. óbreyttu, en mun ekki fella mig við það, að málinu verði frestað, og hef engra hagsmuna að gæta í því efni. Hins vegar er mér ljóst, að þetta eru svo smáar upphæðir, að aldrei verður byggt neitt fyrir þær.