28.02.1949
Efri deild: 67. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (2334)
60. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri
Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég get verið stuttorður. Ég sé nú ekki annað, en að hv. þm. Barð. sé að halda þýðingarlausa ræðu, þar sem hann les hér upp 4. gr. l. eins og hún er nú og hefur eiginlega mjög litið við hana að athuga, en í henni felst ekkert annað en það, sem hann benti á, þ.e. að viðkomandi menn verða að gera grein fyrir því, að þeir hafi gjaldeyri til sinna þarfa á ferðalaginu og á hvern hátt sá gjaldeyrir sé fenginn. Það getur skeð, að þessir menn uppfylli ekki ákvæði 4. gr., en undir því er það komið, hvort leyfi er veitt eða ekki. Þeir eru sennilega fáir, sem synjað hefur verið um fararleyfi, og það er útúrsnúningur, að ég hafi sagt, að það væru þriðja flokks menn. Ég sagði, að innan þessarar stéttar væru annars og þriðja flokks menn, en ég veit ekki, hvort þeir hafa lent í banni. Öll ræða hv. þm. Barð. var út í hött, því að hann er samþykkur ákvæðum 4. gr. Ég tek mér það létt, þótt hann segi, að flokksmenn mínir skipi mér fyrir verkum. Ég veit ekki, hvort því er svo farið með hann, að hann taki skipanir frá sínum flokksbræðrum, en ég get sagt honum, að ég læt ekki skipa mér fyrir verkum. Hitt er annað mál og ekki nema eðlilegt, að mínar skoðanir og skoðanir flokksbræðra minna fara oft saman. En það er ekki lengra síðan en á föstudag, að ég var ósammála flokksmönnum mínum hér. Hvað sem hæstv. viðskmrh. kann að draga að landi í þessu máli, álít ég, að 3. og 4. gr. eigi að vera í gildi áfram, ekki sízt með tilliti til þess, hve mikil misnotkun hefur verið á gjaldeyri.