22.04.1949
Neðri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1606 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)

60. mál, útflutningur og innflutningur á íslenzkum og erlendum gjaldeyri

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég hef áður gert grein fyrir afstöðu minni ti1 þessa máls. Ég get því verið stuttorður og látið nægja að vísa til nál. hv. frsm. minni hl. n., en þær skoðanir, sem fram koma í því nál., eru mjög líkar þeim, sem ég hef á þessu máli. Ég hef varað við samþykkt þessa frv. þegar af mörgum ástæðum. — Í fyrsta lagi er með því að samþ. frv. verið að sleppa fram af sér einum af hinum örfáu möguleikum til þess að reyna að finna inneignir íslenzkra manna erlendis, því að þeir mundu þá auðveldlega geta notað þær til uppihalds þar, því að það liggur manni nær að ætla, að þegar menn fara utan án þess að hafa gjaldeyri og geta ekki gert grein fyrir því, hvernig þeir ætla að sjá sér farborða, þá hafi þessir menn ráð á einhverjum duldum fjársjóðum: Það hefur legið orð á því, að ýmsir menn ættu fé erlendis, sem ekki hefði komið fram. Það ráðuneyti, sem ég veiti forstöðu, hefur þráfaldlega gert tilraunir til þess að afla upplýsinga um þetta, bæði í gegnum sendiráðin og eins í gegnum banka; en þessar tilraunir hafa borið heldur lítinn árangur, og viðkomandi aðilar hafa flestir neitað að gefa það upp. Það verður því ekki til þess að létta eftirgrennslunina, ef það á að fara að leyfa mönnum að fara utan án þess að hafa fé eða geta gert grein fyrir því, á hvern hátt þeir ætli að sjá sér farborða. Þetta er hjá mér aðalatriðið í málinu, að það dregur úr þeim fáu möguleikum, sem við höfum til þess að hafa upp á þessu fé, og að síðustu kippir það öllum möguleikum í burtu. Þetta er stærsta atriðið.

Annað atriðið er svo það, að ég get ekki betur séð, en að frv., ef það verður að lögum, skerði stórkostlega gjaldeyristekjur bankanna, því að í frv. er það nú heimilað að gera, sem í gömlu lögunum er bannað, að gera samninga við einstaklinga um gagnkvæma fyrirgreiðslu. Ef hverjum er nú í sjálfsvald sett að gera slíka samninga, þá hlyti það að leiða til þess, áð mikið af gjaldeyri, sem útlendingar annars koma með, gufar bókstaflega upp, því að þetta er tekið úr höndum gjaldeyrisyfirvaldanna og bankanna. Menn geta komizt ferða sinna án þess að hafa gjaldeyri, og auk þess get ég vel hugsað mér, að hér risi upp stétt manna, sem gerði það að atvinnu sinni að gera slíka samninga um fyrirgreiðslu um uppihald. Og ég veit ekki, hve mikil landkynning yrði að því, en í þessu sambandi hefur verið talað um landkynningu. Ég get ekki betur séð, en að þessi landkynning missi gildi, — hún missir sitt fjárhagsgildi, því að peningarnir koma þá ekki fram, heldur er þeim kippt úr umferð. Landkynningin getur haft sína kulturellu hlið, en fjárhagslega hliðin minnkar, þegar búið er að kippa þessum gjaldeyristekjum burtu.

Það má líka benda á það, áð í dýrtíðarl. er gert ráð fyrir því, að verulegur hluti dýrtíðarsjóðs sé skattur, sem Íslendingar verða að greiða af ferðalögum erlendis, og það er gefið, að þegar menn geta komizt til útlanda án þess að hafa gjaldeyri með því að semja við vini sína erlendis, þá missir dýrtíðarsjóður við það verulegar tekjur, hreint ekki svo fáar milljónir, á því er ekki nokkur vafi. Ég veit ekki, hvort hæstv. fjmrh. hefur lagt það niður fyrir sér, að það er allmikið fé, sem ríkissjóður missir af þessum ástæðum.

Um þann praxís, sem hafður hefur verið undanfarið, þá hefur raunverulega ekki verið um neitt bann að ræða, heldur hefur það aðeins verið heimtað, að menn gerðu grein fyrir því, á hvern hátt þeir ætluðu að afla sér lífsviðurværis erlendis, og ef þeir hafa getað gert það, þá hefur þeim verið leyft að fara. En nú er því ekki til að dreifa, — þeir eiga að geta farið án þess að spyrja með því að semja um gagnkvæma fyrirgreiðslu við einhvern.

Mig langar til þess að spyrja hv. frsm. meiri hl., hvernig eigi að fara með eina hlið á þessu máli, sem kallað hefur verið farartálmi og ekki er settur af viðskiptanefnd, heldur af öðrum, en mönnum hefur verið bannað að fara utan, ef þeir hafa ekki greitt skatta og útsvar, en Reykjavík og ríkissjóður hafa sett það að skilyrði fyrir utanferðum, að menn hafi greitt þessi gjöld. Mig langar nú til þess að spyrja, hvort þetta eigi að upphefjast, eða eiga Reykjavík og ríkissjóður að hafa heimild til þess að stemma stigu við ferðalögum? Ef menn eiga að fá að fara af landi burt með stóra skuld á bakinu, hvernig á þá að tryggja það, að þessar skuldir verði nokkru sinni greiddar? Mér er kunnugt um, að þetta hafa verið hlunnindi fyrir innheimtumenn ríkisins og bæjarins, og langar mig til þess að vita, hvort meiningin er að upphefja þau með því að aflétta þessu banni, sem í þessu felst, því að í sumum tilfellum álít ég, að þetta sé alveg nauðsynlegt, því að menn geta flutzt alfarnir af landinu. Þetta eru vitaskuld að vissu leyti höft á athafnafrelsi, en mér virðist, að þessi höft séu ekki síður hjá bænum en ríkinu. — Í þessu tilfelli er það viðskiptanefnd, sem setur það að skilyrði, að menn geri grein fyrir hvernig þeir afli sér gjaldeyris til uppihalds, og geti þeir það, þá fá þeir leyfi. Bæjarsjóður setur það skilyrði fyrir utanferðum, að menn hafi greitt gjöld sín til hans, og ríkissjóður setur það skilyrði, að menn hafi greitt skatta sína.

Þegar þessi lög voru sett, þá stóð öll ríkisstj. að setningu þeirra, en ekki sérstaklega það ráðuneyti, sem ég veiti forstöðu. Öll ríkisstj. var sammála um þetta mál, en ég ætla ekki að fara frekar út í það hérna. En ef Alþ. þykir rétt að gera nú ráðstafanir til þess að fella þessar reglur úr gildi, þá vil ég aðeins endurtaka það, að með því er verið að gera ráðstafanir til þess að draga úr tekjum dýrtíðarsjóðs og bankanna, og það er verið að draga úr þeim fáu möguleikum, sem fyrir hendi eru til þess að komast að gjaldeyrisinneignum manna erlendis, og tel ég, að þetta sé óheppilega og illa ráðið, ef gert verður.