18.12.1948
Neðri deild: 46. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í B-deild Alþingistíðinda. (248)
66. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Ásgeir Ásgeirsson:
Herra forseti. Fjhn. hefur haft til meðferðar sams konar mál og hér liggur fyrir, og þá var um leið gert ráð fyrir, að þetta mál kæmi fram, og engar athugasemdir gerðar við það af nm. Og þar sem þörf er á að hraða þessu máli, sýnist ekki ástæða til að tefja það með því að vísa því til n., þó að það sé að vísu vel hægt, ef þess er eindregið óskað.