02.05.1949
Efri deild: 92. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)
164. mál, orkuver og orkuveitur
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Eins og flestum þm. er kunnugt, hafa þessi mál verið nokkuð lengi í undirbúningi heima í héraði, hvort á sínum stað, undirbúningur að virkjun í Strandasýslu og viðbótarvirkjun í Austur-Húnavatnssýslu. Mun upphaflega hafa verið til þess ætlazt, að þetta yrði kostað af viðkomandi héruðum. En nú hefur það sýnt sig, að þau hafa ekki til þess fjármagn og hafa því snúið sér að því að óska að fá um þetta löggjöf, þannig að þetta verði virkjað af ríkinu og verði ein af rafveitum þess. Þegar ég fékk í haust erindi frá þessum héruðum, lagði ég málið fyrir raforkumálastjóra, svo að hann gæti athugað nákvæmlega, á hvaða vegi málin væru stödd heima fyrir. Eins og kemur fram í áliti hans, taldi hann, að ýmislegt vantaði til þess, að nú þegar yrði unnt að hefjast handa um þessi mál, og gæti komið til mála að bíða með löggjöfina í bili. Að lokum skilaði hann áliti á þann veg, að hann teldi, að það væri tímabært að setja um þetta lög, en með þeim fyrirvara, sem byggist á 9. gr., að því yrði yfirlýst um leið, að framkvæmdir yrðu ekki hafnar í þessum málum, fyrr en séð hefði verið fyrir öflun lánsfjár og að fullu gengið frá kostnaðarhlið málsins, að því er snerti báðar virkjanirnar, bæði í Austur-Húnavatnssýslu og í Strandasýslu. Þegar þetta kom til umræðu og afgreiðslu í Nd., lýsti frsm. n. því yfir fyrir hönd n., að hún mælti með þessu frv., að því tilskildu þó, að fullnaðar athugun færi fram á því, áður en hafizt yrði handa um virkjunina samkv. till. raforkumálastjóra, hvernig fjár yrði aflað til fyrirtækisins. Og ég lýsti því yfir að gefnu tilefni, að yrði þetta frv. samþ., mundi ég, meðan ég væri ráðh. og þá sennilega hvaða atvmrh. sem væri, reyna að sjá svo um, að ekki yrði hafizt handa um framkvæmdir fyrr en þessum skilyrðum væri fullnægt, og var litið þannig á, að með þessum fyrirvara væri fullnægt anda og ákvæðum 9. gr., þannig að þessu verði ekki hreyft, fyrr en þessi rannsókn liggur fyrir. Annars liggur fyrir áætlun um reksturinn, þó að þar sé nokkuð stiklað á stóru, og liggur hún hjá iðnn. Nd. og getur vitanlega gengið til þessarar d., svo að hún kynni sér það betur.
Ég hef ekki viljað leggja á móti því, að þetta yrði samþ., því að þótt nokkuð skorti á þann undirbúning, sem nauðsynlegur er, til þess að framkvæmdir geti hafizt í málinu, þá er það þó gefið, ef frv. yrði samþ., að ástæða væri til þess bæði heima í héraði og af hálfu ríkisstj. að gera gangskör að því að ljúka því, sem á vantar til þess, að framkvæmdir geti hafizt, og það mun verða gert, ef frv. þetta verður samþ. En eins og ég hef sagt áður, mundi ekki verða ráðizt í framkvæmdir fyrr en aflað hefði verið til þess fjár. (GJ: Er ekki bezt að setja ákvæði um það í frv.?) Það ætti að vera óþarfi, þar sem búið er að taka það skýrt fram, m.a. af frsm. Út af því, sem hv. þm. Barð. sagði um Dynjanda, vil ég taka fram, að ég hef oft rætt um það við raforkumálastjóra, hvað liði rannsóknum í sambandi við virkjun fallvatna á Vesturlandi, og óskaði eftir, að hann hraðaði þeim athugunum eins og hann gæti. Vinnur raforkumálaskrifstofan stöðugt að þessum athugunum, en hann hefur tjáð mér, að hann gæti ekki mælt með því, að virkjanirnar væru hafnar á grundvelli hinna eldri áætlana, sem um þetta hafa verið gerðar. En inn í málið hefur spunnizt annað, og það er umráðarétturinn yfir þessum fossum. Eins og vikið hefur verið að, er það íslenzkur maður, en danskur ríkisborgari, sem á vatnsréttindin, og hefur hann hvað eftir annað gert tilboð um að selja ríkinu þessi vatnsföll. Í vor, sem leið, voru þeir erlendis raforkumálastjóri og rafmagnsstjóri Reykjavikur, og fól ég þeim að leita tilboða um málið. Er rafmagnsstjóri kom heim, lagði hann fram plögg sín. Hygg ég, að hv. þm. Barð. ætti að vera um þetta kunnugt sem form. fjvn., því að fyrir hana var málið lagt.
Hins vegar er rétt að láta það koma fram, að gefnu tilefni, að ríkisstj. hafa borizt tilboð frá eigendum vatnsréttinda í Þjórsá, en þeir eru norska félagið Titan, um kaup á þeim réttindum. Hingað til lands munu þeir koma næsta sumar, og þá fara fram umræður um málið. Þegar trúnaðarmenn ríkisstj. í raforkumálum fengju vitneskju um þetta tilboð frá Titanfélaginu, lögðu þeir til, að framkvæmd hinna fyrrnefndu mála yrði frestað, þar til gengið hefði verið frá samningum við Titan, því að annars gæti komið fram eitthvað, er Títan gæti notað sér í væntanlegum samningum.
Í sambandi við hitt atriðið, sem hv. þm: var að tala um, þá þarf ríkið á raforku að halda víðsvegar um landið, t.d. á Suðurlandsundirlendinu, og þarf að tryggja sér hana á einhvern viðunandi hátt. Þess vegna var alls ekki óviðeigandi, að ríkið gerðist meðeigandi í Sogsvirkjuninni. Það hefði hvort eð er alltaf orðið það raunverulega vegna ábyrgða þeirra, sem það hefði orðið að veita Reykjavíkurbæ.
Í sambandi við Akureyrarvirkjunina er það að segja, að næstu virkjun framkvæmir Akureyrarbær sjálfstætt, en í þeirri þarnæstu er gert ráð fyrir, að ríkið verði meðeigandi. Það hefur sem sé sýnt sig, að ómögulegt er fyrir bæjar- eða sýslufélög að ráðast í virkjanir svo nokkru nemi, nema með aðstoð eða ábyrgð ríkissjóðs.
Þetta vil ég láta nægja viðvíkjandi aukaatriðum þeim, er fram komu í ræðu hv. þm. Með skírskotun til þess, er ég hef að framan sagt, mæli ég eindregið með samþykkt þessa frv., en vil jafnframt taka fram, að engar framkvæmdir verða hafnar fyrr en fengnar hafa verið nákvæmar áætlanir og tryggður traustur grundvöllur til fjáröflunar samkv. raforkumálal. Það mundi hins vegar tefja mjög fyrir framkvæmdum málsins, ef Alþ. synjaði um samþykkt frv.