02.05.1949
Efri deild: 92. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1660 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

164. mál, orkuver og orkuveitur

Frsm. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Ég hygg, að það gæti nokkurs misskilnings um undirbúning þeirra mála, er hér liggja fyrir. Þótt raforkumálastjóri hafi sett ýmis skilyrði varðandi allan undirbúning, þá held ég, að það sé aðeins vegna þess, að hann vill ekki sleppa valdi yfir því að ráða, hvenær verkið verði hafið.

Áætlanir um ýmislegt varðandi þessar virkjanir eru nú hjá n. í Nd., og getur sú n., sem hefur þetta mál hér, því auðveldlega komizt yfir þau gögn.

Svo stendur á um virkjanir þessar, að hægt er að framkvæma þær með tvennu móti. Fyrir 10 árum rannsakaði Árni Pálsson verkfræðingur þessi fallvötn og gerði vatnsmælingar. Fyrir nokkrum árum gerði Árni Pálsson ásamt öðrum verkfræðingi athuganir á því, hvor leiðin til virkjunar væri heppilegri. Einnig rannsakaði norskur verkfræðingur þetta og gerði kostnaðar- og rekstraráætlanir. Það háttar svo til þarna, að hægt er að setja stíflu í Þverá, þar sem hún rennur í Þiðriksvallavatn, og láta pípurnar liggja meðfram ánni. Þannig er hægt að fá um 1.400 hestöfl. En svo er hægt að auka virkjunina með því að stífla tvær ár þarna í grenndinni og veita þeim í vatnið. Þannig væri hægt að fá um 2.600 hestöfl, en þetta er svo dýrt, að útilokað er, að héraðið geti ráðizt í þetta á eigin spýtur. Svipað stendur á um virkjanir í Húnavatnssýslu, og það er reyndar staðreynd, sem allir vita, að þessi héruð, sem önnur, geta ekki ráðizt í stærri virkjanir nema með ábyrgð ríkisins.

Ég get ekki séð, hvernig framkvæma eigi meiri rannsókn, en búið er að gera þarna norður frá af færustu mönnum. Mælingar og áætlanir liggja fyrir um, hvar og hvernig eigi að framkvæma virkjanirnar og sama hefur verið gert í Húnavatnssýslu. En ég get auðvitað ekki um það sagt, hvort áætlanirnar standast eða ekki. Svo mikið er þó víst, að aðstaðan til virkjunar er talin alveg einstök við Þyrilshamar.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara miklu fleiri orðum um þetta mál. Ég vil þó taka fram, að ekki er hægt að segja, þótt þetta skref sé stigið, að neinu sé hætt, því að frv. eru aðeins heimildarlög með alls konar fyrirvörum. Sjálfsagt er að láta rannsaka allar aðstæður og gera áætlanir, áður en svona mál eru samþ., en ef peningar til framkvæmdanna ættu líka að vera til staðar, áður en svona samþ. eru gerðar, þá gætum við sparað okkur þær margar á Alþingi.

Það er alveg rétt hjá hv. 1. þm. Reykv. (BÓ), að þetta frv., ef að l. verður, er mjög svipað og samþykkt hafnarlaga, vegalaga o.fl., sem sagt, aðeins heimildarlög. Um rannsókn á afkomumöguleikum er það eitt að segja, er ég hef áður fram tekið. Ég ætla einnig, eins og ég minntist á fyrr, að fyrirvarar raforkumálastjóra eru settir af þeirri ástæðu, að hann vilji hafa tök á þessum málum áfram, frekar en því, að hann telji málið ekki nægilega vel undirbúið og rannsakað.

Ég tel eðlilegt, að aðrir hv. þm. vilji koma fram með mál af svipuðu tagi og þetta, en menn verða þó að gæta þess, að ekki sé farið með þessi mál eins og þjóðvegina, þannig að hnýtt sé svo mörgum virkjunarsamþykktum aftan í þessar, að ekkert komizt til framkvæmda. Það er alveg rétt hjá hv. þm. Barð., að þörf er margra slíkra virkjana á Vestfjörðum og víðar, og eigi skal standa á mér að fylgja slíkum málum, þegar þau eru álíka undirbúin og það, sem hér er til umr. Þó dylst mér eigi, að ekki er hægt að framkvæma allt í einu, við verðum að gera þetta í áföngum. Þetta er takmark okkar í baráttunni, og heimildarlög eru markmið og hvatning fyrir þá, sem þar eiga hlut að máli.

Ég er síður en svo að amast við brtt. hv. þm. Dal., en þó liggja ekki fyrir í sambandi við hana þær áætlanir og upplýsingar, sem hér eru til staðar ásamt meðmælum raforkumálastjóra, sem er mjög tregur á að gefa meðmæli, vegna þess hve mikið liggur fyrir. Hann taldi þó þetta mál, bæði í Strandasýslu og Húnavatnssýslu, nægilega rannsakað og undirbúið fyrir mörgum árum. Ég tel möguleika og aðstæður allar svo góðar þarna til virkjunar, t.d. í Þverá, að vart væri hægt að hugsa sér það betra, og þörfin er geysileg, þrjú frystihús og verksmiðjur, sem verið er að koma upp. Þarna eru ein eða tvær verksmiðjur, sem þurfa að nota rafmagn, og þarna eru miklir framkvæmdamenn, sem hugsa sér atvinnurekstur á þessum stað og eru að undirbúa hann, svo að þörfin er mikil fyrir rafmagn. Á Skagaströnd er mikið af mannvirkjum, sem þegar eru að komast á laggirnar, og aðstaðan til sjósóknar er þar ekki ólík og á Hólmavík.

Ég skal svo ekki ræða frekar um þetta mál. Ég taldi rétt að upplýsa þetta, sem nú hefur verið gert, en ég tel, að málið hafi fengið hér góðar undirtektir, eftir atvikum. Fyrir þá hv. þm., sem vildu kynna sér útreikninga og nákvæmar áætlanir um þetta verk, eru hér útreikningar um vatnsmælingar og áætlanir um rekstrarkostnað og annað slíkt, og þær rannsóknir eru mjög ýtarlegar.

Hannibal Valdimarsson: Herra forseti. Það er ekki vafi á því, að þessi raforkumál eru kannske allra stærstu málin, og er hörmulegt til þess að vita, ef hin minnkandi fjárgeta ríkisins segir fyrst og fremst til sín í því, að ekki er hægt að gera neitt í raforkumálunum, a.m.k. ekki fyrir aðra landsmenn en þá, sem búa á suðvesturhorni landsins, í Rvík og nágrenni hennar. Það virðist nú vera svo og hefur verið svo nokkur undanfarin ár, að hvar sem verið hefur ymprað á því að leita eftir heimildum til vatnsvirkjunar í öðrum landshlutum, þá er sagt að það strandi á féleysi. Hérna er til umr. að lögfesta eða veita heimildir í l. — því að heimildarl. eru þetta bæði að formi og efni — til þess að virkja Laxá í Austur-Húnavatnssýslu í 1.900 hestafla orkuveri og að virkja Þverá úr Þiðriksvallavatni í Strandasýslu í allt að 1.400 hestafla orkuveri. Samkvæmt áætlun raforkumálastjóra virðist virkjun Laxár í Austur-Húnavatnssýslu ásamt háspennulínu eiga að kosta 5 millj. kr., og virkjun Þiðriksvallavatns, ef fyrri till. er tekin, á að kosta 3,3 millj. kr., en væri virkjunin þar höfð helmingi stærri, ætti sú virkjun að kosta 5.678.000 kr. Það er ómögulegt að segja annað, þegar litið er á þessar áætlanir, en að mannvirkin líta út fyrir að verða fremur dýr. Öðru mannvirkinu er ætlað að vera orkugjafi fyrir tvö kauptún, Blönduós, Höfðakaupstað, og kannske einhverjar sveitir að auki og kostar,. eins og ég áðan sagði, 5 millj. kr. Hinni virkjuninni er ætlað að vera orkugjafi fyrir Hólmavíkurþorp og einhverja sveitabæi þar í kring. Raforkumálastjóri telur hagkvæmara, að þeirri virkjun sé hagað þannig, að sú dýrari komi til greina, sem kostar 2.600 kr. á hvert hestafl, en þá kosta þessar virkjanir 11 millj. kr. og eru fyrir þessi þrjú þorp aðallega. Það er að vísu rétt, sem kom hér fram áðan, að það vantar kostnaðaráætlanir yfir þessi mannvirki. Raforkumálastjóri hefur látið frá sér fara plögg um hvoru tveggja verkin og einnig það verk, sem fram er komin brtt. um, að bætt verði við frv. En í áliti raforkumálastjóra eru alls konar vangaveltur, og furðulegt þykir mér það, að hann virðist ekki vera búinn að gera upp við sig það viðfangsefni, hvort hagkvæmara sé að ráðast í þessar virkjanir eða byggja nýjar dieselstöðvar og flikka upp á þær, sem fyrir eru. Þetta virðist vera fyrsta reikningsdæmið, sem raforkumálastjóri ætti að leysa, áður en hann teldi sig færan um að segja nokkurn skapaðan hlut um, hvað ætti að gera í þessu máli. Ummæli raforkumálastjóra og vangaveltur eru á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú eru, að vísu nokkur atriði enn óathuguð, sem að mínum dómi þarf að rannsaka, áður en því er slegið föstu, hvernig Laxá skuli virkjuð. Enn fremur virðist mér orka tvímælis, hvort tímabært sé að verja 5 millj. kr. í nýja virkjun og veitu eða hvort heldur ætti að lagfæra gömlu vatnsaflsstöðina og setja upp dieselmótora til viðbótar. Loks er nú mjög slæmt útlit að því er við kemur fjáröflunarmöguleikum til rafveituframkvæmda.“

Með öðrum orðum, það er ekki búið að leysa úr þeim vanda, hvort hagkvæmara sé að ráðast í þessar vatnsvirkjanir eða að reisa mótorstöðvar eða dubba upp á þær, sem fyrir eru. — Að því er virkjun Þiðriksvallavatns snertir, þá er þetta eins óafgert frá hendi raforkumálastjóra. Hann segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þá gildir hið sama um virkjun handa Hólmavik sem um virkjun Au.-Hún., að telja má, að orki tvímælis, hvort tímabært er að verja allt að 5 millj. kr. í virkjun og veitu heldur en að auka um sinn mótorrafstöð Hólmavíkur, enda eins og fyrr er sagt mjög erfitt um fjárútvegun til rafveituframkvæmda.“ Það er einnig óuppgert dæmi hér, hvort hagkvæmara er að nota mótorstöðvar eða ráðast í vatnsvirkjun. Í þessari grg. raforkumálastjóra er það upplýst, að virkjunarkostnaður að því er snertir Þiðriksvallavatn er áætlaður 1.700 kr. á hvert hestafl. Það virðist ekki mjög há upphæð, en ég sé í plöggum hjá hv. þm. Dal. (ÞÞ) áætlun um virkjunarkostnað Þrándargils í Dölum, sem hann hefur borið fram brtt. um og mér hrýs hugur við, en sá kostnaður er 4.800 kr. á hvert hestafl. Það er náttúrlega gífurlegur kostnaður.

Nú hefur hér verið blandað inn í þessar umr. virkjunarmálum Vestfjarða, og get ég því ekki látið hjá líða að víkja dálítið að því máli. Vil ég þó ekki, eða er ákaflega nauðugur til, að tengja það mál við þetta mál, sem hér liggur fyrir, því að ég veit það með vissu, að sé 20 til 30 milljón kr. mál sett hér til viðbótar þessu, þá er það til þess að drepa þessi mál öll. Við fáum ekki þokað Vestfjarðavirkjuninni áfram með því. Það vakir ekki fyrir mér að tryggja, að bókstaflega ekkert sé gert í þeim málum, sem Ísendingum ríður meira á að leyst séu, en nokkur önnur mál. Það er alveg rétt, sem hv. þm. Barð. sagði áðan, að héruðin á Vestfjörðum stofnuðu fyrirtæki fyrir nokkuð mörgum árum, h.f. Orkuver Vestfjarða, sem lét framkvæma og bar kostnað af undirbúningi og rannsókn á virkjun Mjólkár í Arnarfirði og Dynjandafossa í Arnarfirði. Þessi undirbúningur, sem þá var unninn og kostaður af h.f. Orkuver Vestfjarða, var endurskoðaður af sérfræðingum, sem vegamálastjóri og raforkumálastjóri tilnefndu, þ. á m. sérfræðingi frá Hejgaard og Schults og síðan af Höskuldi Baldvinssyni. Þessar áætlanir voru svo prófaðar af Finnboga Rút Þorvaldssyni verkfræðingi og hafa legið lengi tilbúnar hjá raforkumálastjóra. Um þetta hafa verið gerðar kostnaðaráætlanir, og hafa þær verið margendurskoðaðar. Gerðar hafa verið mælingar um langt árabil á vatnsföllum, sem um er að ræða. Gerðar hafa verið áætlanir um kostnað og rannsakaðir möguleikar fyrir línustöðvar fyrir öll háspennulínukerfin og gerðir uppdrættir að öllum þeim mannvirkjum. Þessi mannvirki hafa legið fyrir að fullu undirbúin í mörg ár, en í mörg ár hefur staðið á því, að fé hefur ekki verið fyrir hendi til að byrja framkvæmdir. Það er ekkert smáatriði. Það er auðvitað meginatriðið og þröskuldurinn, sem þessi mál hnjóta um. Ég bað raforkumálastjóra í vetur að gefa mér allar upplýsingar um, hvernig þetta mál stæði, og gerði hann það fyrir nokkru síðan. Þykir mér leitt að hafa þau plögg ekki við höndina nú. Staðreyndin er sú, að það mál er að fullu undirbúið, og eins og hv. þm. Barð. upplýsti, hefur því verið marglofað, að sú virkjun skuli vera látin ganga fyrir öðrum virkjunum, sem ekki er byrjað á nú. Það loforð stæðist ekki, ef ný löggjöf yrði nú samþ. og þannig yrði litið á, ef til framkvæmda kæmi, að þá skyldi farið eftir því, sem dagsetning á afgreiðslu málsins hér segði til um. Ég mundi alveg mótmæla slíku. Ég teldi því Dynjandavirkjunina ekki í hættu stadda, þó að heimildarl. um virkjun Laxár í Austur-Húnavatnssýslu og Þiðriksvallavatns yrðu samþ., en um þær skortir upplýsingar, sem margar eru mikilvægar, svo að undirbúningi þessara síðastnefndu virkjana gæti aldrei orðið lokið á undan undirbúningi og rannsókn Vestfjarðavirkjunarinnar, því að hann liggur fyrir fullgerður nú þegar.

Annars finnst mér nokkuð miklu máli skipta að upplýsa vangaveltur raforkumálastjóra um þetta mál, um það, hvort ekki sé hagkvæmara að slá vatnsvirkjuninni á frest, þó að hann að vísu í öðru orðinu telji, að það sé vegna peningaleysis fyrst og fremst, og ráðast heldur í að byggja mótorrafstöðvar fyrir lengri eða skemmri tíma. En mótorrafstöðvar eru í raun og veru heildarúrræði hans í þessum efnum. Til þess að slá á frest orkuveitunni fyrir Vestfirði, þá er það sama ofan á: Peningar eru ekki til, til þess að ráðast í vatnsvirkjun. Hins vegar eru til peningar til að leysa þetta mál í bili með mótorrafstöðvum. Það ráðlagði hann þar, og þetta var gert. Það voru byggð upp lágspennukerfi í Súðavík, Bolungavík, Suðureyri, Þingeyri, Flateyri, Bíldudal og Patreksfirði og settar upp mótorrafstöðvar á öllum þessum stöðum. Nú geta menn athugað, hvort það muni ekki kosta ríkið nokkurn gjaldeyri að setja upp slíkar mótorrafstöðvar í 9 sjóþorpum og setja þær upp einungis sem bráðabirgðaúrlausn. Ég hygg, að þessi kostnaður slagi hátt upp í 9 millj. kr., þegar frá öllu er gengið. Þessar stöðvar eru ásamt öðru fleiru að sliga þjóðarbúskapinn, sem ekki ber sig neitt vel í gjaldeyrismálum. Þær brenna gjaldeyri fyrir hundrað þús. kr. árlega allar saman í olíu, a.m.k. þegar með er tekin gjaldeyriseyðsla í varahluti og viðhald á öllum þessum stöðvum. Það furðulega er, að aldrei heyrist neitt kvak frá rafmagnseftirlitinu um útreikninga á því, hvernig þetta dæmi tekur sig út borið saman við það að ráðast í vatnsvirkjanir, jafnvel með lántökum. Raforkumálastjóri er alltaf að ympra á, að betra sé að leysa þetta í bili með alls konar mótorstöðvarusli, sem hrúgað er upp víðs vegar, jafnvel þó að til séu fyrir hendi hin beztu skilyrði til vatnsvirkjunar. Það sér hver maður, að ekki er hægt að vera án raforku í útgerðarbæjum eins og Ísafirði eða Patreksfirði. Það er ekki hægt að vera án raforku í þessum þorpum, sem öll eru búin að koma fótum undir hraðfrystiiðnað. Þungamiðja atvinnulífsins í öllum þessum þorpum byggist á sjávarútvegi og ein eða fleiri hraðfrystistöðvar eru á hverjum þessum stað. Ég hygg, að varla muni vera hægt að benda á nokkurn hluta landsins, þar sem ekki búa nema 7 þús. manns og framleiddur er annar eins gjaldeyrir og fólkið í þeim byggðarlögum gerir, sem Vestfjarðavirkjunin er ætluð. En þá er bara um þetta tvennt að ræða, hvort hagkvæmara sé fyrir þjóðina að sjá fyrir raforku til allrar þessarar framleiðslu, sem þarna fer fram, með mótorstöðvum, sem eru dýrari í rekstri og hindra vöxt atvinnuveganna. Hundruð þús. kr. verðmæti er í voða, ef ein eða fleiri þessara stöðva bíla alvarlega. Það er sjálfsagt bótin í málinu, að sá skellur kemur á fólkið í viðkomandi byggðarlögum, en ekki ríkissjóð, en það er í rauninni lítt verjandi fyrir því. Ef ætti að bollaleggja frekar um það, hvort væri réttlátara að veita 10 millj. kr. til vatnsvirkjunar fyrir þorpin á Skagaströnd, Blönduós, Hólmavík og Höfðakaupstað eða veita fé til Vestfjarðavirkjunarinnar, þó að bara væru virkjaðir Dynjandafossar, en ekki Mjólká, sem dygði fyrir allt svæðið frá Patreksfirði til Súðavíkur og virkjunin gefur 6.500 hö., og sú áætlun, sem um þetta hefur verið gerð, er margendurskoðuð, og mun verkið kosta 30 millj. kr. með orkugjafa, spennistöðvum, háspennulínu og innanbæjarkerfi, — þá er gefinn hlutur, að slíkt orkuver mundi þjóna fleira fólki og hlutfallslega meiri framleiðslu, en þær tvær stöðvar, sem um ræðir í þessu frv. Hitt er svo aftur hárrétt, sem hv. þm. Str. hefur sagt hér, að þorpin á Skagaströnd eru framleiðslustaðir, sem ekki geta án raforku. verið. Það verður að skera úr því af sérfræðingum ríkisins, hvort heppilegra sé að ráðast í vatnsvirkjun eða hvort bæta eigi úr raforkuþörfinni með því að setja upp mótorstöðvar, úr því að þær, sem fyrir eru, eru ófullnægjandi. Ég mundi því segja í þessu máli, að niðurstaðan yrði sú, að ég vil með engu móti bregða fæti fyrir það, að ráðizt sé í þessar tvær virkjanir, a.m.k. ef raforkumálastjóri kynni að komast að þeirri niðurstöðu við áframhaldandi athugun, — því hann virðist ekki vera búinn að athuga þetta til fulls, — að það sé forsvaranlegt fjárhagslega. Og þá er sjálfsagður hlutur að afla lánsfjár til þessara virkjana, en ekki að segja, að það verði að bíða og að ekkert fé sé fyrir hendi til þessara hluta. Það verður ekki hægt að biða með Vestfjarðavirkjunina, sem kostar 30 millj. kr., þangað til fé er til í ríkissjóði til að koma henni áfram. Ríkissjóður yrði þá fyrst að bíta í hið súra epli, að sjá af sjávarafurðunum frá Vestfjörðum, ef hann neitaði þeim um raforku þangað til svo er fjárhagslega um hnútana búið. Það er gefinn hlutur, að þarna hefur trúnaðarmaður ríkisins komizt að þeirri niðurstöðu, að vatnsvirkjunarskilyrðin séu góð, og raforkuþörfin er hins vegar ótvíræð. Þarna verður, þó að fé sé ekki fyrir hendi í ríkissjóði, að ráðast í lántöku og þó að það verði að vera erlendis frá og dugi ekki innlent happdrættislán, því að það má með engu móti slá raforkumálunum á frest. Það er ekki auðveldara reikningsdæmi til en það, hvort raforkuver hefur skilyrði til þess að bera sig eða ekki. Við erum búin að fá reynsluna í þeim efnum og vitum, hvað þarf til þess. Það vita fjölmargir leikmenn, hvað þá rafveitusérfræðingar ríkisins, sem ekki lifa né hrærast í neinu fagi öðru, en þessu. Raforkusérfræðingar ríkisins eiga ekki að gefa út svona vangaveltur, eins og hér liggja fyrir, sem sýna, að þeir eru ekki búnir að gera dæmið upp, heldur eiga þeir að gefa út skýringar um það, hver sé niðurstaðan af þeim dæmum, sem búið er að reikna. Er þetta fyrirtæki líklegt til að geta staðið undir sér? Er raforkunotkunin svo mikill fyrir hendi, að fórna beri ábyrgð ríkisins til lántöku? Ég vil líta svo á, að niðurstöður af ummælum raforkumálastjóra séu þær, að hann mæli með því, að heimildarl. séu sett, og ég mun ekki bregða fæti fyrir þessa heimild. Hins vegar vil ég taka það skýrt fram, að ég tel, að við fulltrúar Vestfjarða samþ. ekki þar með, að hinni margendurskoðuðu og vel undirbúnu Vestfjarðavirkjun verði skotið aftur fyrir þessa þar með. Ég hef áður stungið upp á því, að þó að ekki sé hægt að ráðast í Vestfjarðavirkjunina í heild, alla í einu, þá sé hægt að taka það mál í fleiri áföngum. Það má vel fara þannig af stað að byggja upp háspennukerfi og tengja saman vissa staði fyrst. Með því móti má losna við 1- 2- 3- eða 4 dieselmótorstöðvar, sem settar hafa verið til bráðabirgða, og síðan má feta sig fram, með nokkurra ára bili, þar til Vestfjarðavirkjuninni yrði komið í framkvæmd. Það væri alveg eins hagkvæmt og að hafast ekkert að í þeim efnum. Ég held, að ef við hv. þm. Barð. færum þá leið að skella hér inn í þetta frv. till. um Vestfjarðavirkjunina, yrði það ekki tii neins annars, en að kistuleggja öll þessi mál í einu vetfangi. Ég sé ekki, að við ynnum neitt við það, því að þetta er stórmál fyrir þessi héruð, en kjördæmum okkar gerðum við með því mikinn óleik. Niðurstaðan yrði því negatív, og ég vil ekki eiga hlut að því.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Það hefur við þessar umr. komið fram sá reginmisskilningur, að þetta frv., sem hér um ræðir, sé nokkuð áþekkt hafnar- og vegal. Sannleikurinn er sá, að frv. er algerlega sérstætt og á ekkert sameiginlegt með þeim l., og þess vegna vildi ég fá þetta mál rætt nokkuð nánar hér í hv. d. Eins og ég tók fram hér, var reynt að fyrirbyggja það, að sams konar kapphlaup yrði um einstakar raforkuveitur og hefur verið um vegi og hafnir, með því að setja 9. gr. í raforkul. Ég get sagt hv. frsm., hvers vegna það var gert. Það var gert vegna þess, að ákveðið er í l., að fyrst skuli þær rafveitur og þau raforkuver ganga fyrir, sem bezt geti borið sig fjárhagslega. Þegar þess er líka gætt, að ákvæði l. segir ákveðið til um það, að raforkusjóði skuli sérstaklega varið til þess að standa undir rekstrinum fyrstu árin hjá þeim rafveitum og raforkuverum, sem sett eru upp, þá var það meginskilyrði, að raforkusjóður yrði, ekki étinn upp fyrirvaralaust. Þess vegna var þetta ákvæði sett í 9. gr., að Alþ. skyldi taka ákvörðun um hverja raforkustöð fyrir sig, þegar sýnt væri, hvernig slíkt fyrirtæki gæti borið sig fjárhagslega,, einmitt til að fyrirbyggja að tekið væri fé úr sjóðnum til þess að standa undir slíkum orkuverum meira, en sjóðurinn á hverjum tíma þyldi. Nú er það alveg óviðunandi, að þetta mál skuli vera komið frá hv. Nd. og til 2. umr. hér án þess að þm. eigi þess kost að sjá þessar áætlanir. Það var að sjálfsögðu skylda hv. n. að láta fylgja sem fylgiskjal áætlanir frá raforkumálaskrifstofunni um þennan rekstur, til þess að þm. gætu gert það upp við sig, hvort þeir vilja mæla með því, að þetta verði tekið í l. eða ekki. Þetta hefur ekki verið gert, en nú hefur hv. frsm. sagt, að þetta eða hitt gætu þm. fengið að sjá hjá honum. Það hefði verið það minnsta, sem hefði mátt búast við af hv. fjhn., að hún hefði látið þessi gögn fylgja nál., og það hefði hv. iðnn. áreiðanlega talið sér skylt að gera. Þessi gögn liggja nú fyrir, og ég segi fyrir mig, að ég hef ekki hugmynd um, hvernig þessi rekstraráætlun er hugsuð. Ég hef ekki hugmynd um það, hvað er fyrirhugað að láta úr raforkumálasjóði til þessara stöðva, svo að þær geti borið sig fjárhagslega. Annað atriðið er svo það, hvað kostar að koma þeim upp og hvað hvert hestafl kostar og hvort hægt verður að fá nægilegt fé til þess að koma þeim upp. Hitt er svo enn annað atriði, hvaða skilyrði þessar stöðvar hafa til að geta borið sig fjárhagslega með tilliti til þeirra rafmagnsnotenda, sem eru í kringum þær. Áætlanir um þetta allt eiga að liggja fyrir, áður en ákveðið er, hvort byrja skuli framkvæmdir eða ekki. Nú er ljóst, að raforkumálastjóri álítur hagkvæmara að virkja Þverá í Steingrímsfirði. Þá kemur til greina, hvaða möguleikar eru á að geta selt allt það rafmagn. Þá kemur til greina að athuga, hvort hægt verður frá þessu orkuveri, sem yrði 3–4 þús. hö., að selja raforku til Ísafjarðar (HV: Það er engin leið.) Það hefur m.a. verið rætt um að virkja fallvatn á Snæfjallaströnd. Ég er ekki svo kunnugur, að ég viti, hvort hægt er að leiða raforku frá Hólmavík til Ísafjarðar eins og frá Snæfjallaströnd til Ísafjarðar. En ég er viss um annað: Það er ekki útilokað að leiða rafmagn frá Hólmavík yfir Steinadalsheiði yfir á Barðaströnd og kannske í Dali. Það gæti ef til vill kostað minna en að virkja í Dalasýslu sjálfri. Þetta er ekkert aukaatriði. Það má ekki taka þessar umr. sem neina andúð á málinu sjálfu, þó að menn vilji fá þetta upplýst, áður en menn ganga frá svo stóru máli, því að það er ætlazt til, að þessi gögn liggi fyrir, þegar Alþingi á að ákveða, hvort ráðast á í nýjar veitur eða ekki.

Þetta mál horfir allt öðruvísi við, en hafnarmál, þar sem héruðin sjálf bera hitann og þungann af hafnarframkvæmdunum, þó að ríkið styrki þær um 40 eða 60%. Þunginn hvílir allur á héruðunum heima fyrir. En hér er þess krafizt, að ríkissjóður leggi fram allan byggingarkostnaðinn og standi undir öllum rekstrarkostnaðinum. Sama er með vegina.

Ríkið lætur ákveðna upphæð í vegi á hverju ári, en það er annars eðlis en þetta. Þess vegna var 9. gr. sett. En þær reglur, sem þar eru, eru gersamlega brotnar með þeim reglum, sem hér eru, teknar upp. Og mér skilst á hæstv. ráðh., að það sé gert með vilja, því að hann segir, að ef þetta yrði ekki samþ., enda þótt yfirlýst sé, að þetta eigi að biða, þá mundi það samt tefja fyrir undirbúningi og rannsóknum. En hvað er það, sem hæstv. ráðh. vill gera? Er hann að lauma inn ákveðnum undirbúningi og framkvæmdum, sem byrjað yrði á, þ.e. að haldið verði áfram að byggja svona fyrirtæki, sem hafa ekki verið rannsökuð? Ég verð að segja, að eftir að hæstv. ráðh. lýsti þessu yfir hér, fór ég að hugsa mig um, hvort ég ætti að vera með frv. eða ekki. Ef það er meining hv. fjhn. og hv. frsm., að ekki verði byrjað fyrr, en rannsakaðar hafa verið allar hliðar málsins, eins og ber að gera samkv. 9. gr. l. og hæstv. ráðh. segir í öðru orðinu, að yrði ekki gert, hvers virði er þá yfirlýsing hæstv. ráðh. um það eða skoðun hans, að það tefji fyrir málinu, ef þetta frv. verður ekki samþ.? Ég get ekki skilið það. Það fyrsta, sem þarf að gera, er að leggja þessa rannsókn fyrir og útreikningar, hvernig þetta getur borið sig. Allt er þetta óafgert hjá raforkumálastjóra. Virkjunarskilyrðin hafa verið rannsökuð, eins og hv. þm. Str. sagði. Það er engin þörf að rannsaka þau nánar, en það eru fleiri atriði, sem þarf að athuga, en virkjunarskilyrðin.

Ég álít, að sú stefna, sem hér er tekin, að heimila út í bláinn að leggja út í milljónafyrirtæki, án þess að fyrir liggi þær rannsóknir og upplýsingar, sem eiga að liggja fyrir, sé óholl fyrir málið og verði til þess, sem m.a. hv. 3. landsk. (HV) vildi ekki verða til, að tefja fyrir málinu í heild.

Ég get í þessu sambandi bent á, að áður en þessi l. voru sett, voru samþ. þáltill. um að skora á ríkisstj. að láta rannsaka og undirbúa byggingu rafstöðva. Það var vegna þessara till., sem þessir staðir voru látnir ganga fyrir öðrum stöðum. Þar er einn staður þannig, að raforkumálasjóður varð að greiða 99% af öllum kostnaði, til þess að stöðin gæti borið sig. Það var búið að ákveða það með þál. Ég lít því svo á, að þegar búið er að setja þetta inn, sé búið að gefa loforð um, að þessir staðir gangi fyrir, þó að það kunni að sýna sig, að hagkvæmara sé að virkja annars staðar, án þess að ég segi, að þessir staðir séu óhagkvæmir, því að þær upplýsingar liggja ekki fyrir. Við erum að samþ. þetta í blindni.

Ég skal svo ekki tefja þessar umr. meir. Ég mun að sjálfsögðu fylgja þessu frv. til 3. umr., en ég tel, að sú stefna, sem orðin er í þessu máli, sé til stórkostlegs óhags fyrir raforkumálin og framkvæmd þeirra í heild í landinu.

ATKVGR.

Brtt. 613,1 samþ. með 10:2 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: BBen, BÓ, EE, GJ, GÍG, HV, JJós, PZ, SÁÓ, ÞÞ.

nei: HermJ, BSt.

BK, LJóh, ÁS greiddu ekki atkv. 2 þm.

(BrB, StgrA) fjarstaddir.

3 þm. gerðu grein fyrir atkv. sínu:

Gísli. Jónsson: Með því að hér er farið inn á nýja braut í raforkumálunum, að ákveða fyrir utan Alþingi, hvaða línur skuli lagðar án þess að farið sé eftir ákvæðum 9. gr., segi ég já.

Hermann Jónasson: Vegna þess, að það er fyrirsjáanlegt, að þetta væri sama og að stöðva málið, segi ég nei.

Páll Zóphóníasson: Þó að ég telji, að þetta mál allt, bæði þær linur, sem í frv. eru, og eins þessi lína, sem hv. þm. Dal. vill koma hér inn, sé óforsvaranlega undirbúið og maður vaði í villi og svima, hvað eigi að gera við þetta, þá vil ég ekki vera meinsmaður þess, að þessi merki séu dregin upp í Dölum, svo að það sé hægt að horfa á þau og skemmta sér við það í nokkur ár, og segi já.

1. gr., svo breytt, samþ. með 13 shlj. atkv.

Brtt. 613,2 samþ. með 10 shlj. atkv.

2. gr., svo breytt, samþ. með 10 shlj. atkv.

3.–4. gr. samþ. með 12 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 12 shlj. atkv.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Ég var hér með brtt. við þetta mál á þskj. 620, um það, að framkvæmdir samkv. 1. gr. megi ekki hefja, nema fyrir liggi kostnaðaráætlun og tryggt hafi verið nægilegt fé til framkvæmdanna. Ég áleit, að það stríddi e.t.v. á móti l. um rafveitur að samþ. frv. eins og það er, en verði brtt. samþ., færist það til samræmis við l. Það er hættulegt að samþ. mikið af slíkum lagaheimildum, nema setja varnagla eins og ég hef gert í þessari brtt.

ATKVGR.

Brtt. 620 samþ. með 12 shlj. atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 15 shlj. atkv. og endursent Nd.

Of skammt var liðið frá útbýtingu frv. Afbrigði leyfð og samþ. með 25 shlj. atkv.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 18:1 atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 661).

Frv. of seint fram komið. — Deildin leyfði með 19 shlj. atkv., að það yrði tekið til meðferðar.

Flm. (Áki Jakobsson): Herra forseti. Frv. þetta er flutt af mér, hv. þm. Ísaf. og hv. 2. þm. N-M., og það er flutt eftir beiðni bæjarstjórnar Siglufjarðarkaupstaðar, sem hefur á fundi sínum fyrir nokkru síðan ákveðið að leita þessarar heimildar og var öll sammála um það. Jarðirnar í Siglufjarðarbotni eru allar orðnar eign Siglufjarðarkaupstaðar nema þessar tvær, sem nú er farið fram á, að bærinn taki eignarnámi, sem eru jarðirnar Efri- og Neðri-Skúta, og svo Staðarhóll, sem er utar með firðinum. Þessar jarðir eru allar í eyði. Ég þarf ekki að fjölyrða um þetta frv., vegna þess að höfuðrökin, sem bæjarstj. færir fram fyrir þessari ósk sinni, eru prentuð á fskj. Það hefur fundizt heitt vatn þar, og hefur Siglufjarðarkaupstaður mikinn hug á að hagnýta það til sundlaugar a.m.k. og jafnvel til hitaveitu, ef tækist að fá það mikið af nægilega heitu vatni. Byrjað er að reisa hafnarmannvirki á svokallaðri Leiru innst í Siglufirði, og er þegar búið að starfa þar fyrir á aðra milljón króna. Má gera ráð fyrir, að þau lönd, sem að þeim mannvirkjum liggja, hækki vegna þeirra mjög í verði, einkanlega jörðin Neðri-Skúta, og yrði það að teljast ógeðfellt, ef slíkur gróði lenti í höndum einstakra manna.

Ég vildi leyfa mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til allshn.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 18 shlj. atkv. og til allshn. með 18 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá útbýtingu nál. — Afbrigði leyfð og samþ. með 20 shlj. atkv.

Frsm. (Áki Jakobsson): Herra forseti. Nefndin hefur athugað þetta frv. og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. Það, sem farið er fram á, er, að 2 af 3 jörðum á Siglufirði, sem enn eru í einstaklingseign, geti orðið eign bæjarfélagsins, þ.e.a.s. að bænum verði veitt heimild til að taka þessar jarðir eignarnámi. Bærinn telur þessa eignarnámsheimild nauðsynlega, bæði vegna þess, að gert er ráð fyrir að leggja í mikinn kostnað við að bora eftir heitu vatni á annarri jörðinni, en auk þess eru þessar jarðir að vaxa stórkostlega að verðmæti vegna framkvæmda bæjarfélagsins, og þykir eðlilegt, að sú verðmætisaukning komi bæjarfélaginu til góða. Af þessum ástæðum og fleirum hefur n. orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.

ATKVGR.

1. gr. samþ. með 22 shlj. atkv.

2.–3. gr. samþ. með 20 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 19 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 2. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 26 shlj. atkv.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 24 shlj. atkv. og afgr. til Ed.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 10 shlj. atkv. og til allshn. með 9 shlj. atkv.

Frsm. (Brynjólfur Bjarnason): Þetta frv. fjallar um það að veita Siglufjarðarkaupstað heimild til eignarnáms á tveimur jörðum fyrir botni fjarðarins, Efri-Skútu og Neðri-Skútu. Þetta frv. er flutt samkv. ósk bæjarstjórnarinnar á Siglufirði, og er þetta einróma ósk bæjarstjórnarinnar, sem telur nauðsyn á að fá þessa heimild, vegna þess að þetta land þurfi að vera í eigu bæjarfélagsins sökum hafnarframkvæmda. Þetta land er nú svo að segja það síðasta, sem er ennþá í einkaeign á Siglufirði. Það er aðeins ein jörð eftir fyrir utan þessar tvær, sem frv. er um.

N. mælir einróma með því, að þetta frv. verði samþ., og þarf ég ekki að hafa um það fleiri orð.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Náttúrlega eru nú fleiri jarðir eftir í Siglufirði í einkaeign en ein, þ.e. Dalirnir og Siglunes, þó að Skúturnar verði eign bæjarins. En það er ekki eftir nema ein jörð í einkaeign, sem liggur að landi Siglufjarðarkaupstaðar og er að nokkru leyti að byggjast út frá Siglufirði, alveg eins og Skútujarðirnar. Og mér er það dálítið hulin ráðgáta, hvers vegna sú jörð er hér ekki tekin með, sem er Höfn, og það því fremur sem eigendur hennar eru ekki búsettir hérlendis nema að litlu leyti. Og það aukaverðmæti, sem stöðugt verður til, eftir því sem Hafnarland byggist, verður ekki aðeins eign eigendanna, heldur eign manna búsettra erlendis. Ég veit, að það hefur staðið til oftar, en einu sinni að gera kaupsamninga um Hafnarjarðirnar, og hafa þeir strandað á þeim eigendum, sem erlendis eru búsettir, og þess vegna tel ég ástæðu til að hafa þessar jarðir í frv. Og vil ég, að eftir þessa umr. verði það athugað gaumgæfilega, með því að tala við hv. þm. Siglf. og með því að athuga aðstæður þarna, hvernig þetta Hafnarland er að verða þarna að bæjarlandi og að bærinn þarf að fá það til eignar og að erfiðara er að kaupa þetta land af eigendum þess, af því að þeir eru fleiri en einn, og að miklu hentugra er að fá það með eignarnámi. Ég er sannfærður um, að ef bærinn fær þetta land nú með eignarnámi, fær hann það ódýrara, heldur en þegar lengra liður, og að það verður skaði fyrir bæinn, að þetta bíði.

Frsm. (Brynjólfur Bjarnason): Herra forseti. Mér er ekki kunnugt um, hvers vegna Siglufjarðarbær fer ekki fram á að fá heimild fyrir eignarnámi á þeirri einu jörð, sem er eftir í einkaeign í Siglufirði, í firðinum sjálfum, fyrir utan Skútujarðirnar, sem er Staðarhóll og er austan við fjörðinn. Það kann að vera, að það væri rétt að taka þessa einu jörð með í eignarnámsheimildina. En hins vegar er ómögulegt fyrir allshn. að gerast forsjá fyrir Siglufjarðarkaupstað. Og það, sem liggur fyrir í þessu máli, er einróma ósk bæjarstjórnarinnar á Siglufirði um það, sem frv. er um. Ég sé enga ástæðu til að fresta þessu máli, en legg til, að það verði afgr. núna.

ATKVGR.

1. gr. samþ. með 9 shlj. atkv.

2.–3. gr. samþ. með 9 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 11 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 2. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 11 shlj. atkv.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 10 shlj. atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 694).

Frv. of seint fram komið. — Deildin leyfði með 20 shlj. atkv., að það yrði tekið til meðferðar.

Flm. (Lúðvík Jósefsson): Herra forseti. Ég get verið fáorður um þetta mál, sem er flutt eftir ósk bæjarstjórans í Neskaupstað af okkur þm. S–M. Hér er um að ræða það að gera óljós atriði ljós og skera úr ágreiningi milli Neskaupstaðar og Norðfjarðarhrepps. Orðalagið í l. frá 1943 þótti ekki nægilega skýrt, en nú óska báðir aðilar eftir því, að úrskurður verði gerður, svo að þetta þurfi ekki að vera neitt deiluefni. Í grg. er einnig á það minnzt, að Ingvar heitinn Pálmason áleit það nauðsynlegt að flytja um þetta breyt. á l. Að öðru leyti skýrir grg. þetta alveg, og er því óþarfi að vera að fara um þetta fleiri orðum, en ég vænti þess, að hv. þm. vísi frv. til 2. umr. og allshn.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 22 shlj. atkv. og til allshn. með 22 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá útbýtingu nál. —Afbrigði leyfð og samþ. með 20 shlj. atkv.

Frsm. (Finnur Jónsson): Herra forseti. N. hefur athugað þetta frv. og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt, enda er hér aðeins um leiðréttingu á gildandi l. að ræða, sem enginn ágreiningur er um.

ATKVGR.

1.–2. gr. samþ. með 24 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 21 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 2. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 26 shlj. atkv.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 25 shlj. atkv. og afgr. til Ed.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr, með 11 shlj. atkv. og til allshn. með 10 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá útbýtingu nál. —Afbrigði leyfð og samþ. með 12 shlj. atkv.

Frsm. (Hermann Jónasson): Herra forseti. Það þarf ekki langa framsögu um þetta mál, Allir hv. nm. eru sammála um, að óhjákvæmilegt sé að bæta þessum skika við þetta lögsagnarumdæmi. — Það komu að vísu raddir til n. um, að ástæða væri til að stækka lögsagnarumdæmið enn meira, en gert er ráð fyrir í þessu frv. En allshn. sá ekki ástæðu til þess að taka þetta upp, þar sem frv. þetta er flutt af mönnum, sem þessum málum eru gagnkunnugir og fóru ekki fram á meiri stækkun, en gert er ráð fyrir í frv.

N. leggur til, að fallizt verði á þetta frv., eins og það liggur fyrir.

ATKVGR.

1. gr. samþ. með 11 shlj. atkv.

2. gr. samþ. með 12 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 12 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 2. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 12 shlj. atkv.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 11 shlj. atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 695).

Frv. of seint fram komið. — Deildin leyfði með 19 shlj. atkv., að það yrði tekið til meðferðar.

Flm. (Jón Sigurðsson): Herra forseti. Eins og kunnugt er, lá fyrir alllöngu síðan fyrir allshn. Sþ. þáltill. um innflutning jeppabifreiða. Við athugun þessarar till. virtist n. það engan veginn vera einhlítt að samþ. slíka till., af því að jafnframt yrði að gera ráðstafanir til þess, að sá innflutningur, sem um ræðir, kæmi að þeim notum, sem fyrir hv. flm. vakti.

Við nm. lítum svo á, að ekki væri hægt að tryggja það með þál. — ákvæðum einum saman. Það var líka svo, að þegar þessar jeppabifreiðar voru fluttar inn upphaflega, voru gerðar sérstakar ráðstafanir til þess, að þær kæmu að þeim notum, sem til var ætlazt. Með hliðsjón af þeirri reynslu, sem fengizt hafði við þá tilraun, taldi n. rétt að láta setja ákvæði um þetta í l., sem tryggðu enn betur, að svo yrði, en gert hefur verið hingað til. Og það, sem vakir þá sérstaklega fyrir n. með flutningi þessa máls hér, er að reyna að tryggja, að ávallt séu til fyrirliggjandi nægar birgðir af varahlutum til þessara bifreiða. Á því hefur verið, því miður, talsverður misbrestur. Í öðru lagi hefur n. viljað tryggja það, að jeppabifreiðarnar skiptist milli búnaðarfélaga um land allt, þannig, að einstök félög og búnaðarfélög, sem á annað borð geta notfært sér þessi farartæki, verði ekki afskipt. Í þriðja lagi vakir fyrir n., að þeir eigi fyrst og fremst að sitja fyrir kaupum á slíkum bifreiðum, sem hafa þeirra mest þörf, þeir, sem t.d. búa lengst frá alfaraleið og eiga þar af leiðandi örðugast með allar samgöngur. Í fjórða lagi er svo verið að tryggja, að bifreiðarnar haldist til frambúðar í sveitunum. Á þessu hefur orðið töluverður misbrestur, og það hefur sýnt sig, að þrátt fyrir þær hömlur, sem settar voru, notuðu einstaklingar sér það að selja bifreiðar sínar miklu hærra verði út úr sveitunum en þeir gáfu fyrir þær, til þess að hagnast á þeim. Slíkt viljum við flm. koma í veg fyrir og jafnframt koma í veg fyrir brask og okursölu á þessum samgöngutækjum sveitanna. — Þetta eru þau aðalatriði, sem fyrir okkur flm. vaka með flutningi þessa máls, og við teljum, að með þessu, sem hér hefur verið nefnt, ætti það að vera nokkurn veginn tryggt, að úthlutun bifreiðanna yrði réttlát og að þær héldust í sveitunum og yrðu að þeim notum, sem að er stefnt með þeim till., sem liggja fyrir Alþ., og þeim væntanlega innflutningi bifreiða, sem verða á nú á þessu ári.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál, en vildi leyfa mér að leggja til, að málið færi til landbn., þar sem það snertir sérstaklega sveitirnar.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 18 shlj. atkv. og til landbn. með 19 shlj. atkv.

Frsm. (Jón Sigurðsson): Herra forseti. Landbn. hefur athugað frv. þetta allrækilega og komizt að þeirri niðurstöðu að leggja til, að tveimur gr. þess verði breytt lítillega.

Fyrri brtt. er um að fella niður síðasta málslið 3. gr., en hann hljóðar á þá leið, að tala þeirra bifreiða, sem afhentar eru stofnunum og starfsmönnum þeirra, megi ekki fara fram úr 1/25 af úthlutaðri bifreiðatölu hverju sinni, nema úthlutunarn. gjaldi því samhljóða jákvæði. Það kom nefnilega í ljós við athugun, að til að byrja með mundi þetta ákvæði rekast tilfinnanlega á þörfina. Jeppar hafa ekki verið fluttir inn undanfarin ár, og er því tilfinnanleg vöntun á þeim til starfsmanna stofnana landbúnaðarins, sem ferðast um land allt erinda þessa atvinnuvegar. N. komst því að þeirri niðurstöðu, að eins og sakir stæðu a.m.k., væri rétt að fella þetta ákvæði niður og treysta á, að úthlutunarn. gætti hófs í þessu efni og úthlutaði ekki fleiri bílum í þessu skyni, en brýna þörf bæri til hverju sinni.

Síðari brtt. n. er við 6. gr., og eru tölul. hennar umorðaðir nokkuð. Þannig er t.d. gert ráð fyrir, að þeir einir komi til greina við úthlutun bifreiðanna, sem hafa þeirra full not, þ.e. búa við slík samgönguskilyrði. N. lítur svo á, að þar, sem ekki hagar svo til með vegi, að bifreiðar komi að fullum notum til fólks- og vöruflutninga, sé miklu heppilegra að fá léttar dráttarvélar á þá bæi og nota þær. Þær koma að fullum notum, þótt ekki séu vegir, og þeim er ætlaður dráttur, en jeppum ekki nema að litlu leyti. Þar, sem þannig hagar til, að hægt er að nota jeppana til ferðalaga og flutninga auk dráttar, eru þeir einkar hagkvæm tæki, en þar, sem lítil not eru að þeim til ferðalaga og flutninga vegna vegaleysis, er engin meining í að fá þá; þar er bæði ódýrara og miklu heppilegra að eiga litlar dráttarvélar. Á þetta vildum við benda.

Þá leggjum við til, að 4. tölul. 6. gr. falli niður, því að hann er raunverulega tekinn upp í 3. lið. — Loks vill n. gera smáorðalagsbreyt. á 5. lið, en annað hefur hún ekki að athuga við frv. og leggur til, að það verði samþ. með þeim breyt., sem ég hef lýst og tel ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir.

Skúli Guðmundsson: Það er aðeins eitt eða tvö atriði varðandi þetta frv., sem ég vildi rétt víkja að. Samkv. 5. gr. er lagt til, að stjórnir hreppabúnaðarfélaganna taki á móti umsóknum bænda um jeppabifreiðar, og síðan eiga stjórnir búnaðarfélaganna að gera till. um það til úthlutunarn., hverjir umsækjendur úr hverjum hreppi eigi að fá bifreið. Út af þessu vil ég beina því til hv. n. og hv. frsm. hennar, hvort stjórnum búnaðarfélaganna sé ætlað að sjá um úthlutun bílanna í samráði við Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda. Í þessu sambandi vil ég skjóta því að n., hvort ekki mætti láta stjórnir hreppabúnaðarfélaganna sjá um úthlutunina, hverja á sínu félagssvæði. Með þessu fyrirkomulagi yrði bílunum skipt á milli hreppabúnaðarfélaganna, en stjórnir þeirra úthlutuðu þeim svo til umsækjenda. Mér finnst orðið fullmikið um nefndavaldið hér í Rvík, en með þessu yrði þó eitthvað úr því dregið, en ég efa það ekki, að með þessu móti og þeim hætti, sem verið hefur á undanförnum árum í svipuðum málum, þá verði nú rétt ein nefndin skipuð, sem hefði aðsetur hér í Rvík. Svo er með flestar n.

Mér þætti gott, ef hv. n. vildi athuga þetta fyrir 3. umr. málsins.

Frsm. (Jón Sigurðsson): Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. V-Húnv. (SkG) sagði hér áðan, vil ég segja nokkur orð. Hann spurði, hvort n. hefði athugað þá leið, að úthlutun bílanna færi fram heima í héruðunum. Já, úthlutunin mun fara fram þar samkv. frv. eins og það nú liggur fyrir. Búnaðarfélagastjórnirnar munu taka á móti umsóknum og úthluta bílunum til umsækjenda, hafi ekki verið sótt um fleiri bíla, en úthluta skal. Nú er sótt um fleiri bíla, en úthluta á í héraði. Skal þá leitast við að láta þann aðilann fá bifreið, sem mesta þörf hefur fyrir hana. En það getur stundum verið erfitt að ná samkomulagi um hluti sem þessa. Það hefur stundum komið fyrir, að varpað hefur verið hlutkesti um það, hver skuli hljóta farartækið. Hefur þá oft svo brunnið við, að sá aðilinn, sem sýnilegt var, að hefði hvað minnsta þörf fyrir að fá bifreiðina, hlaut hana. Það þarf því til öryggis að hafa eins konar yfirúthlutun til að tryggja það, að deiluatriði, sem upp kunna að koma, verði leyst með meiri sanngirni og frekara öryggi, en verið hefur til þessa í þessum málum. Er þetta gert í þessu frv. samkv. grundvelli 6. gr. frv. — Um hitt atriðið, hvort 4 eða 5 menn skuli eiga sæti í n., skal ég ekkert um segja. Það varð samkomulag um þetta í n., og ég sé enga ástæðu vera fyrir hendi til að breyta þar nokkru um.

Samgmrh. (Emil Jónsson): Herra forseti. Ég ætlaði mér ekki að fara að blanda mér inn í þessar umr., en ef það er vilji manna, að þetta mál nái fram að ganga, er allt útlit fyrir, að enn ein n. verði skipuð. Ég hefði samt haldið, að hægt hefði verið að úthluta nokkrum hundruðum jeppabíla, án þess að skipa þyrfti nýja n. til þess. Á meðan viðskiptanefnd og fjárhagsráð starfa, hefði verið hægt að fela þessum stofnunum að sjá um þetta. Það mætti binda úthlutunina við fastar fyrir fram gefnar reglur, sem ekki mætti víkja frá, en ef Alþ. vill endilega bæta enn einni n. við, þá er ekki annað, en að gera það. Ég vildi aðeins láta þá skoðun mína í ljós, að ég tel, að það mætti leysa þennan vanda án þess að enn ein ný n. komi til skjalanna.

Frsm. (Jón Sigurðsson): Herra forseti. Hæstv. samgmrh. benti á í ræðu sinni, að það væri skoðun sin, að leysa mætti þetta mál án þess að til þess yrði skipuð ný n., og benti í því sambandi á viðskiptan. og fjárhagsráð. Jú, það skal játað, að þessar n. eru til, og það hefði mátt fela annarri hvorri úthlutunina, en ekki munu störf þeirra n. minnka við það. En með þeirri skipan, sem hér er lagt til, eru valdir 4 fulltrúar bændastéttar landsins til að úthluta bændum bifreiðum þessum. Það þarf ekki að kosta ríkissjóð nokkurn hlut, því að ég býst ekki við, að þeir fái borgun fyrir starf sitt. Fimmti maður verður kosinn af sameinuðu alþingi. Sá maður mundi kannske fá einhverja þóknun, en þó þarf ekki svo að vera. Ég held, að það sé öruggara, að úthlutunin sé í höndum manna, sem vinna að landbúnaðinum, en í fjárhagsráði eða viðskiptanefnd. Hreppabúnaðarfélögin hafa einnig betra yfirlit yfir þörf, manna fyrir slíkar bifreiðar sem þessar, en þær n. sem hæstv. ráðh. benti á.

Samgmrh. (Emil Jónsson): Herra forseti. Ég tók fram áðan, að ég mundi ekki setja mig upp á móti skipun Alþ., en ég vildi draga í efa, að ekki mætti finna lausn á þessu máli án þess að setja nýja n. á laggirnar. Mér hefur verið tjáð, að Búnaðarfélag Íslands hafi úthlutað hluta þeirra bíla, sem nýbyggingarráð fékk til ráðstöfunar á sínum tíma, og hefur ekki verið mikið fundið að því. Yfirleitt vildi ég óska eftir því, að viðskiptan. úthlutaði leyfum yfirleitt, enda er það verk hennar að úthluta þeim vörum, sem koma til landsins, til kaupenda. Þessi nefndarskipun mun eflaust kosta eitthvert. fé fyrir ríkissjóð, t.d. laun þessa eina manns, sem Alþingi kýs. Nú, þótt Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda greiddu fulltrúum sínum í n. laun, fá þeir samt laun sín úr ríkissjóði óbeint. Vitaskuld verður þessi kostnaður greiddur beint eða óbeint úr ríkissjóði, sem úthlutunin mun kosta. Ég gæti einnig hugsað, að ef horfið verður að þessu ráði, að skipa sérstaka n., komi aðrir atvinnuvegir í kjölfarið, t.d. sjávarútvegsmenn, og heimti, að þeir skipi n. til þess að sjá um úthlutun á innfluttum veiðarfærum, og iðnaðarmenn vilji fá n. til að úthluta hráefnum til iðnaðarins. Ég trúi því ekki, að ekki sé heppilegra að losna við enn þá nýja nefnd.

Skúli Guðmundsson: Út af þeim umr., sem fram hafa farið, vil ég taka fram, að mér finnst það eðlilegt, að bílaúthlutunin sé í höndum félagssamtaka bænda. Hins vegar tel ég óþarft, að Alþ. kjósi mann í n. Það verður ekki um það deilt, að stjórnir búnaðarfélaganna eru kunnugri á hverjum stað, en þó að úthlutunarnefnd yrði skipuð, sem sæti ætti hér í Rvík. Þess vegna sýnist mér það vera hyggilegra að fela búnaðarsamböndunum úthlutunina á félagasvæðunum.

Hv. 2. þm. Skagf. talaði um hlutkesti. Ég sé nú ekkert hneykslanlegt við það, hafi umsækjendur sömu skilyrði til að bera til að fá bílinn. Úrslit hlutkestisins munu vart verða verri, en þó að málinu yrði skotið til úrskurðar einhverrar yfirnefndar suður í Rvík.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, en leyfi mér að vænta þess, að þetta verði athugað á milli umr.

Jón Pálmason: Herra forseti. Eins og hv. frsm. landbn. hefur lýst, eru þau ákvæði um innflutning jeppabifreiða, sem þetta frv. felur í sér, hér fram borin vegna þess samkomulags, sem náðst hefur milli flokkanna um þetta. Í frv. eru mörg atriði, sem sjálfsagt geta verið nokkuð deildar skoðanir um, og það kann að vera, að ekki þyrfti að skipa sérstaka n. til að sjá um dreifingu þessara vinsælu tækja.

Út af ræðu hæstv. samgmrh. vil ég segja, að það er alls ekki hægt að sætta sig við svipaða niðurstöðu og til þessa hefur verið á úthlutun bifreiða og nú síðast Renaultbifreiðanna, sem þó átti að tryggja, að úthlutað yrði með sanngirni. Það gæti því verið einhver bót að fela úthlutunina t.d. Stéttarsambandi bænda eða þá að sætta sig við þetta samkomulag, sem lagt er til í þessu frv.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson): Herra forseti. Það eru aðeins fáein orð. Það stendur til að veita leyfi fyrir jeppunum fyrir upphæð, sem nema mun um 3 millj. kr., en það eru nú aldrei mörg hundruð jeppar. Nú vantar ekki eftirspurnir um jeppa, því að vitað er, að sótt mun verða um margfalt fleiri jeppa en hægt verður að veita. Þess vegna tel ég, að það mundi verða erfiðara fyrir opinbera n. að skera úr, hverjir skuli hljóta tækin, og legg ég því eindregið til, að búnaðarfélögunum verði falin úthlutun þessara fáu stykkja, sem koma eiga. Það þarf því að leita hófanna að reyna að ná heppilegu samkomulagi um þetta.

ATKVGR.

1.–2. gr. samþ. með 17:1 atkv.

Brtt. 477,1 samþ. með 14:5 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: EOl, EystJ, HÁ, IngJ, JóhH, JG, JPálm, JS, JörB, PÞ, SG, SEH, StSt, StgrSt.

nei: KTh, SigfS, SK, SkG, ÁkJ.

EmJ, FJ, GÞG, HB, HelgJ, StJSt, BG greiddu ekki atkv.

9 þm. (ÁÁ, BÁ, GTh, HermG, JJ, LJós, ÓTh, PO, SB) fjarstaddir.

3. gr., svo breytt, samþ. með 19 shlj. atkv.

4.–5. gr. samþ. með 19 shlj. atkv.

Brtt. 477,2 samþ. með 18 shlj. atkv.

6. gr., svo breytt, samþ. með 18 shlj. atkv.

7.–13. gr. samþ. með 19 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 18:2 atkv.

Of skammt var liðið frá 2. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 21 shlj. atkv.

Finnur Jónsson: Herra forseti. Ég hef tekið eftir því, að í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að kostnaður við störf þeirrar n., sem eftir frv. er ætlazt til, að kosin verði, greiðist af hlutaðeigandi aðilum í réttu hlutfalli við þátttöku þeirra í n., en þessir aðilar eru Búnaðarfélag Íslands, stjórn Stéttarsambands bænda og landbúnaðarnefndir Alþingis. Ég tel þetta ákvæði ákaflega óeðlilegt um þessar sérstöku stofnanir, sem Alþ. gerir að skyldu að annast starf í þessu efni, að ákveða á Alþ., að þessi kostnaður skuli lagður á þær, og vil ég flytja brtt. um það, að þessi kostnaður við þessi störf, ef einhver verður, verði greiddur af þeim, sem fá jeppana flutta til landsins, og að hann verði greiddur með söluverðinu. Ég hygg, að það sé ekki óeðlilegt, en hitt sé óeðlilegra, að greiða þennan nefndarkostnað t.d. með alþingiskostnaði eða leggja hann á Stéttarsamtök bænda. Ég vona, að þessi brtt. valdi ekki ágreiningi, því að hún er eðlileg samkvæmt eðli málsins. Vildi ég mega fá augnabliksfrest til þess að skrifa hana upp.

Jón Sigurðsson: Herra forseti. Hv. þm. Ísaf. (FJ) hefur boðað þarna brtt., sem ég hef nú heyrt lýst. Þetta er náttúrlega ekki neitt stórt atriði í málinu., hvorki til né frá. Eins og ég gat um við 2. umr., gerðum við ráð fyrir, að þarna kæmi til greina sama og enginn kostnaður. Svo var það síðast, að starfsmenn Búnaðarfélags Íslands unnu að þessu án þess að taka nokkra sérstaka borgun fyrir það, og ég býst við, að það mundi verða eins nú og sömuleiðis hvað snertir Stéttarsamband bænda, svo að þetta skiptir engu. Ég hefði kunnað bezt við að hafa þetta atriði eins og það er í frv., því að ég býst ekki við, að þetta muni neinu til eða frá.

Forseti (BGI: Mér hefur borizt skrifl. brtt. frá hv. þm. Ísaf., sem hann hefur nú lýst. Leita þarf afbrigða fyrir henni. Hún er of seint fram komin og skrifleg.

ATKVGR.

Afbrigði um skrifl. brtt. (sjá þskj. 547) leyfð og samþ. með 18 shlj. atkv.

Brtt. 547 felld með 15:10 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: ÁÁ, EOI, EmJ, FJ, GÞG, JóhH, SigfS, SEH, StJSt, BG.

nei: BÁ, EystJ, HÁ, HelgJ, IngJ, JG, JPálm, JS, JörB, KTh, PÞ, SkG, StSt, StgrSt, ÁkJ.

10 þm. (GTh, HB, HermG, JJ, LJós, ÓTh, PO, SB, SG, SK) fjarstaddir.

1 þm. gerði grein fyrir atkv.:

Skúli Guðmundsson: Það mun vera innheimt gjald af öllum þeim, sem fá leyfi til innflutnings á vörum, til þess að mæta kostnaði við fjárhagsráð og deildir þess. Ég geri ekki ráð fyrir, að þeir, sem fá að flytja inn jeppabifreiðar, verði undanþegnir þessu gjaldi. En þarna skilst mér vera till. um að láta þá þar að auki greiða kostnað við úthlutun jeppanna, en það get ég ekki gengið inn á, nema eitt verði látið ganga yfir alla, að þeir greiði aukagjöld eins og þetta auk venjulega gjaldsins fyrir innflutningsleyfi, og segi nei.

Frv. samþ. með 18:1 atkv. og afgr. til Ed.

Björn Kristjánsson: Herra forseti. Ég vildi aðeins, áður en frv. er vísað til n., benda á eitt, er þyrfti að leiðrétta. Í 3. gr. eru þeir taldir upp, sem afhenda má bifreiðarnar. Samkvæmt því má afhenda þær bændum eða mönnum, er starfa að búum þeirra og í félagi við þá og eru heimilisfastir í sveitinni og stofnunum landbúnaðarins, og starfsmönnum þeirra, — skógrækt og sandgræðsla meðtalin —, sem verða vegna starfa sinna í sveitunum að ferðast mikið með bifreiðum. Mér þykir þetta nokkuð þröngt og vildi, að héraðslæknar í sveitahéruðum gætu einnig komið til greina. Ég veit, að í sumum héruðum er nauðsynlegt, að þessar bifreiðar séu í eigu þeirra, þar sem þeir þurfa oft fyrirvaralaust að ferðast langar leiðir. Engum er eins mikil nauðsyn á þessu og þeim, ekki einu sinni bændum. Ég vildi benda n. á það að bæta héraðslæknum við. Ef hún getur ekki fallizt á það, mun ég bera fram brtt. í þessa átt

Þorsteinn Þorsteinsson: Herra forseti. Ég hefði ekki fundið þörf á því að lengja umr., en þar sem þetta frv. heyrir undir n., sem ég er form. í, vildi ég benda á, að hér er átt við, að þessum bifreiðum sé úthlutað til landbúnaðarþarfa. Eitthvað er flutt inn af jeppum til annars, en landbúnaðarþarfa. Verð ég að segja það, að héraðslæknar og ljósmæður verða nauðsynlega að fá þessar vélar, og verð ég líka að segja, að ef eitthvað er flutt inn til annars, en landbúnaðarþarfa, þá kæmu þeir til greina, sem leggja stund á heilbrigðismálin, og ýmiss konar læknar mundu þá ganga fremst. Það mætti athuga, og lofa ég að tala þá við hæstv. ríkisstj., en vara við, ef fara á að breyta þessu hér í d., þegar liðið er á þingtímann, og minni bara á, hversu erfiðlega gekk í Nd. að koma þessu í gegn. Það væri að brugga málinu banaráð, ef koma á í gegn breyt. þeirri, er hér um ræðir, og sá, sem flytur till., ber ábyrgðina. Og ég held, að við hv. þm. N–Þ. gætum fengið úrlausn fyrir héraðslækni þann, er hann á við, þótt þetta væri ekki sett inn í frv. Ég er tregur til að stofna málinu í vanda með því nuddi, sem verið hefur um, hvernig úthluta eigi vélunum, þegar samkomulag virðist vera að komast á nú, og vil því ekki hætta við hálfgert verk og verða að byrja aftur á næsta þingi.

Björn Kristjánsson: Herra forseti. Ég vil ekki tefja frv. Ég átti því tal við hæstv. viðskmrh., hvort hann sæi sér fært að veita leyfi fyrir bílum til lækna, en hann kvað nei við og sagði, að yrði frv. þetta samþ., þá væri aðeins um að ræða jeppabifreiðar til bænda. En ég yrði ánægður, ef hv. form. landbn. gæti fengið yfirlýsingu frá stj. þess efnis, að hún teldi héraðslæknum heimilt að fá jeppabíla. Að öðrum kosti sé ég mér ekki annað fært, en flytja brtt. mína.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson): Herra forseti. Ég hef ekki fjallað um málið í stj., en mér finnst frv. verða þýðingarlítið, ef hægt á að verða að úthluta utan við það. Ég held nánast, að það yrði þýðingarlaust, og tel eðlilegt, að tekið sé fram í því sjálfu um meðferð allra innfluttra jeppa. Það er vitað, að jepparnir munu verða leyfðir sem landbúnaðarvélar. Og ef taka á út úr og segja, að þetta og þetta séu eigi landbúnaðarvélar, þá finnst mér, að grafið sé undan megintilgangi frv. Áður var úthlutunin í höndum nýbyggingarráðs, Búnaðarfélagsins o.fl. aðila. Nú á að koma í veg fyrir þennan tvískinnung. En eigi að tiltaka lítinn hluta jeppanna, sem koma á undir stofnunina, þá verður tilgangurinn með frv. lítill. Ég vil því hvetja hv. þm. N-Þ. til að flytja brtt. sína, því að mér finnst hún vera bæði eðlileg og sanngjörn, og mun greiða henni atkv.

Þorsteinn Þorsteinsson: Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir góðan hug hans til málefnisins. En það þýðir ekki að eyða tímanum hér í eintómt mas. Hér er átt við jeppa til landbúnaðarþarfa og ekkert annað,. og þá verður að útvíkka þetta til allra bíla, að þeim skuli vera útbýtt af n. Ég sé ekki annað, ef flytja á inn þessa bíla til landbúnaðarþarfa, en þá megi og flytja inn jeppa til einstakra manna eins og drossíur. Hin háa Þingvallan. hefur þurft jeppabíl, þó að það sé eigi til landbúnaðarþarfa. En þetta er svo, að eigi að fara að breyta þessu, þá á að koma óreiðu á málíð, og bera þeir þá ábyrgðina, sem með brtt. fara.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson): Herra forseti. Ég vil nú bara leiðrétta misskilninginn varðandi jeppann til Þingvallan. Skv. frv., sem flutt var í Nd., átti hann eigi að fara til Þingvallan., heldur umsjónarmannsins á Þingvöllum. Ég held ekki, að neinn úr n. hafi hugsað sér að nota hann til eigin ferðalaga. Eftir ummælum hv. þm. Dal. á að vera tvískinnungur í þessu. Stj. á að hafa þann skilning, að lítið eigi að fara til landbúnaðarþarfa. En ég ætla, að með frv. eigi að forðast þennan tvískinnung. Og ástæða er til að breyta frv. og gera það ótvírætt, fremur en að frv. verði samþ. með slíka tvöfeldni fyrir augum. Ég lít svo á og verð því fylgjandi brtt. hv. þm. N–Þ.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Ég vil nú fá upplýsingar um ýmis atriði þessu frv. viðvíkjandi. Frv. gerir ráð fyrir innflutningi á jeppum og setur reglur um, hversu þeim eigi að úthluta. Innflutningsáætlunin gerir ráð fyrir 3 millj. kr. til innflutnings á jeppum, og þá nemur útflutningurinn 417–418 millj. kr. alls. En auk þess ætlar hún aðeins 750 þús. kr. til innflutnings á öðrum bifreiðum. Og það þekkjum við, að nokkrir læknar hér í bæ hafa fengið bíl á hverju ári og sumir tvo. Er það andskoti hart, að héraðslæknar hafa eigi fengið einn bíl á sama tíma og sumir læknar í Rvík hafa fengið tvo, en svo eiga héraðslæknar að þurfa að notast við jeppa, er fluttir eru inn í allt öðrum tilgangi. Vil ég biðja hæstv. dómsmrh. o.fl. að athuga þetta.

Svo er það annað, sem ég vil fá upplýst. Hér hef ég í vasanum bréf, er gefur upplýsingar um nöfn á 96 mönnum, sem allir hafa í höndum leyfi frá nýbyggingarráði fyrir jeppa, bæði innflutnings- og gjaldeyrisleyfi. 41 þeirra hafa greitt 12 þús. kr. hver upp í jeppaverðið. Nú vil ég spyrja hæstv. dómsmrh., sem er góður lögfræðingur: Hafa eigi þessir menn siðferðislegan og lagalegan rétt til að fá bíl? Geta þeir ekki fengið hann dæmdan sér? Ráðið, sem var skipað með l., lætur í té leyfi fyrir bíl og segir, að hann verði borgaður af þeim 300 millj. kr., sem landsmenn áttu inni erlendis og ætlaðar voru til hinnar svo kölluðu nýsköpunar. Mennirnir hafa leyfin í vösunum, fara til innflytjandans, og hann geymir hinar 12 þús. kr. upp í jeppaverðið. En þeir fá engan bíl. Nú spyr ég: Ef fara á að flytja inn jeppa til bænda, hvað á þá að verða um þá 41, sem eigi eru bændur, stráklingar og aðrir hér í Rvík, sem sumir aka lúxusbílum, þó að þeir vilji líka fá jeppa? Hvað á að gera við þá? Ef þeir hafa rétt, á þá að sniðganga þá með frv.? Þetta vildi ég fá upplýst. Þó hafa einhverjir spurt um þetta í n., og mun hún víst athuga málið. En mér skilst, að hér geti orðið árekstrar. Ég mundi í sporum þessara manna ekki hika við að fara í mál við hæstv. ríkisstj. Ef ég hefði gjaldeyris- og innflutningsleyfi og peninga í sjóði, þá mundi ég fara í mál. (BÓ: Það er ekki víst, að þú ynnir það.) Ég held, að þetta hafi verið gert í umboði stj. Ég vildi gjarna fá þetta upplýst, og því fremur sem hér eru nú viðstaddir fyrrv. form. nýbyggingarráðs, hæstv. fjmrh., dómsmrh. og fleiri lögfræðingar.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Það er vitað mál, að þegar nýbyggingarráð hætti störfum, voru útistandandi allmörg leyfi. Ég veit ekki um tölu þeirra á þessu tímabili. En alloft munu þeir, sem leyfi fengu, hafa verið búnir að borga umboðsmanni fabrikkunnar upp í bílinn, en það kom nýbyggingarráði auðvitað ekkert við. Ráðið hafði ekki með það að gera. En það mælti með við viðskiptan., að leyfin væru gefin út, eins og háttur var á. Ráðið gat sent meðmæli um innflutningsleyfi til hennar, sem alloft voru tekin til greina. En jepparnir voru eitt af því, sem viðskiptan. gekk fram hjá, og lét þá mæta afgangi, án þess að hún gæfi skýringu á því. Ég kvartaði undan þessu við hæstv. viðskmrh. og þótti þetta leitt, því að ég hafði veitt forstöðu þessari stofnun, sem gaf út leyfin, en hann hefur eigi séð sér fært að uppfylla loforðin. Ég hef fengið bréf frá nokkrum bændum, sem tjá mér, að þeir hafi leyfi í höndunum frá nýbyggingarráði, sumir hafa greitt þau, og spyrja um, hver þeirra hlutur muni verða, og ég hef eigi getað veitt þeim nein fullnaðarsvör, en það verður að leysa þetta mál. En úr því að nú hefur verið stigið það spor að flytja inn jeppa, hljóta þeir, a.m.k. bændur í sveit, að hafa forgangsrétt til að fá fullnægju fyrir þeim leyfum, er þeir óréttilega hafa verið dregnir á tálar með. Ég hef verið óánægður með þessa aðferð og finnst fullkomið sanngirnismál, að í fyrsta lagi fái þeir bændur úrlausn, sem þarna eiga hlut að máli, og í öðru lagi er svo hitt, að það er siðferðisleg skylda, ef eigi lagaleg, en af því að jepparnir eru ætlaðir til landbúnaðarþarfa, þá er hærri réttur sveitanna eftir frv. Mér þykir leitt, að hæstv. viðskmrh. er eigi viðstaddur hér í d., því að hann mundi geta svarað þessu og lýst skoðun stj. En ég hef margoft bent á, að þeir, sem haft hafa innflutningsleyfi í höndum og enn eigi fengið þau afgreidd, hefðu forgangsrétt til hins nýja innflutnings, ef til kemur.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson): Herra forseti. Ég vildi segja nokkur orð vegna spurningar hv. 1. þm. N–M. (PZ), hvort þeir menn, sem hefðu leyfi í höndum og jafnvel hefðu borgað það, ættu eigi siðferðislegan og lagalegan rétt til að fá jeppa afgreiddan. En hér er í rauninni um tvær spurningar að ræða, og vísa ég hinni fyrri heim til föðurhúsanna. Ég veit, að svo vandaður og góður maður, sem ég veit, að hv. 1. þm. N–M. er, hefur eigi síður vit siðferðislega en ég. Minn dómur er því eigi fremur markverður en hans. Svo er nú hæstv. fjmrh. á sömu skoðun og hv. þm., og það má gleðja þennan hv. þm. En ég er ekki málunum kunnugur og læt mér nægja umsagnir þessara tveggja ágætu manna. En eigi væri óeðlilegt, þegar hafður er í huga jeppinn, sem gekk til umsjónarmannsins á Þingvöllum, að úrskurða mætti þá líka um aðra jeppa. Varðandi hinn lagalega rétt þá er eðlilegast það, sem hv. þm. N-M. sagði, að þessir menn höfði mál gegn stj., ef þeir telja sig hafa hann, verði skorið úr þessu með málsókn. En ég verð að telja litlar líkur til, að þeir telji hinn lagalega rétt fullöruggan, þegar ekki einn þeirra hefur enn, þó að svo sé um liðið, höfðað mál gegn ríkisvaldinu, þótt þeir telji sig órétti beitta, því að hv. þm. N-M. er eigi málsjúkari en aðrir, en telur þá hafa rétt til þess, og þeir höfðu tækifæri. En ef þeir vissu, að þeir mundu vinna málið, þá mundu þeir höfða það. Annars er eigi ástæða til að svara þessu frekar, því að þessum aðilum er opin leið til að fá skorið úr þessu hjá dómstólunum. Og sízt er ástæða til þess fyrir mig.

Varðandi þau ummæli hv. 1. þm. N-M., að ég leggi kapp á, að héraðslæknar fengju jeppa þá, sem bændunum væru ætlaðir, þá vitna ég til hv. dm., að ég hef ekki sagt neitt svipað í þessa átt, og ég veit, að ég hef enga ástæðu til þess. En eðlilegt er og sjálfsagt, ef á að tryggja læknum jeppa, að taka það fram í frv., því að óvist er að, að öðrum kosti væri það hægt. Þetta voru ummæli mín, en hv. 1. þm. N-M. vill snúa þessu upp í fjandskap minn við málið. En hitt er annað mál, að ég geri ráð fyrir, að meginþorri héraðslækna landsins hafi nú þegar einhvern bílakost og þurfi því eigi bíl. Yrðu, því ekki of margir, sem þyrftu að keppa við bændur í þessu efni, en eðlilegt er, að opin leið yrði fyrir lækna að fá jeppa. Nú eru ætlaðar 3 millj. kr. til jeppainnflutnings, en aðeins 750 þús. kr. til innflutnings annarra bifreiða. Halda menn þá, að það veitti ekki af þessum 750 þús. kr. til ýmissa endurbóta eða nokkuð yrði afgangs til innflutnings á jeppum? Ég held ekki, að hægt sé að skoða till. hv. þm. N-Þ. sem fjandskap við bændur, þótt læknar fengju jeppa, sem hægt væri að kaupa fyrir þessar 3 millj. kr. Og eftir eftirsókninni eftir fólksbílum að dæma held ég, að ekki yrði mikið eftir af þessum 750 þús. kr. til annars innflutnings. Hv. 1. þm. N-M. beindi til mín fsp. varðandi lækna í Rvík. En sé það rétt, að einhverjir þeirra hafi fengið bíl ár eftir ár og sumir marga og síðan selt þá með okurverði, þá verð ég að telja það hneyksli, er eigi megi liggja í þagnargildi. Og ég vil enn skora á hv. 1. þm. N-M. að láta uppi hér í hv. d., hverjir þessir læknar eru og hvenær þeir hafa fengið þessa mörgu bíla á árinu og fyrir hversu mikið þeir hafa selt þá og hve mikið þeir hafa á því grætt. Ef hann hefur fengið þekkingu sína á þessu sem ríkisskattanefndarmaður, þá ætti hann að snúa sér til ríkisstj. til þess að reyna að sjá um, að svona hneyksli verði upprætt.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson): Herra forseti. Ég vil aðeins benda á í sambandi við þetta frv., að það er gert ráð fyrir 3 millj. kr. í leyfisveitingum fyrir jeppabifreiðar. Ég veit ekki fyrir víst, hve margir jeppar fást fyrir það. Þeir eru ekki margir. Auk þess er ekki hægt að vita, hvenær gjaldeyrir verður til fyrir þessum innflutningi á árinu. Og eftirspurnin eftir þessum bifreiðum er óskapleg nú úr svo að segja hverjum hreppi á landinu, og spurt er eftir fleiri, en einum jeppa úr hverjum hreppi og sums staðar mörgum fleirum. Úthlutunin á þessum jeppabifreiðum verður þess vegna mikið vandamál. Og ef það ætti eftir að koma fyrir, að þessum tiltölulega fáu jeppum væri úthlutað af viðskiptanefnd eða einhverri undirnefnd frá ríkisstj. og sú n. sæti hér í Rvík, þá er augljóst, að það yrði algerlega óvinnandi verk nema af fullkomnu handahófi, og í kringum það yrði slíkt írafár og erfiðleikar, að það er eiginlega ómögulegt að hugsa til þess, að þannig ætti þetta að vera. Ég tel þess vegna skynsamlegast að fela búnaðarsamtökunum að úthluta þessum jeppum meðal bændastéttarinnar. Ef hægt væri að koma þessu fyrir svona lagað og að slíkt væri tryggt, þyrfti ekki um þetta atriði neina löggjöf, ef t.d. innflutningsyfirvöldin vildu fela þetta Búnaðarfélagi Íslands. En enn þá hafa ekki verið teknar ákvarðanir um þetta, og ég veit ekki, hvort slík ákvörðun hefði byr hjá innflutningsyfirvöldunum, og þess vegna tel ég, að þótt ekki þyrfti um þetta atriði löggjöf, ef þetta væri tryggt, að innflutningsyfirvöldin vildu hafa þetta svona, — að þetta liggi fyrir á þann veg, að það þyrfti að setja þessa löggjöf, til þess að fyrirbyggja þau ósköp, sem því yrði samfara, að einhver ríkisnefnd færi að úthluta þessum jeppum. Það væri helzt hægt að vonast eftir því, að þetta gæti gengið eftir einhverri allsherjar reglu með því að fela þetta þeim samtökum, sem gert er ráð fyrir í frv. Þess vegna mæli ég með því fyrir mitt leyti, að þetta verði gert að lögum.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Ég vil bara benda hæstv. dómsmrh. á það, að hér í landinu er til stofnun, sem mun heita bifreiðaeftirlit ríkisins, er skrásetur allar bifreiðar og hæstv. dómsmrh. á ákaflega góðan aðgang að. Þar munu vinna milli 10 og 20 menn, og þeir munu geta gefið þessum hæstv. ráðh. upplýsingar um það; hverjir hafa átt vissa bíla á ýmsum tímum. Skrifstofustjórinn í fjmrn. er í yfirskattanefnd Rvíkur og hefur orðið að bæta við skatta hjá einstökum mönnum vegna bílasölu á svörtum markaði. Svo að það eru hæg heimatökin hjá hæstv. ríkisstj. að vita um þetta, ef hún vildi — ef hún vildi.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson): Er það þá svo að skilja, að hv. 1. þm. N–M. vilji hvorki segja hv. þd. frá þeirri vitneskju, sem hann hefur um þetta, né heldur vilji hann segja ríkisstj. frá því, ekki í heyranda hljóði? Það er mikilsvert, ef þessi hv. þm. situr inni með vitneskju, sem hann telur fullkomið hneyksli og jafnvel lögbrot, og þá trúi ég því ekki á svo grandvaran mann, að hann vilji gerast yfirhylmingarmaður þess.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Það stendur hér í 1. gr. frv., að meðan innflutningur og gjaldeyrisviðskipti séu háð ákvörðunum ríkisvaldsins, þá ákveði ríkisstj. eða sá aðili, sem fari með þessi mál fyrir hennar hönd, tölu þeirra jeppabifreiða eða annarra slíkra bifreiða, sem heimilt er að flytja til landsins til landbúnaðarþarfa ár hvert. Mér skilst, að á meðan þessi gr. er höfð svona óákveðin, þá sé hægt að hafa framkvæmdina á þessu slíka, að þó að þetta sé samþ. svona, eins og gr. er, þá fái landbúnaðurinn ekki nema lítinn hluta af þessum bifreiðum, heldur sé það á valdi fjárhagsráðs að ákveða, að af þeim 3 millj., sem flytja á jeppabifreiðar inn fyrir, skuli t.d. aðeins fyrir 500 þús. vera fluttar inn bifreiðar til bænda. Ég hygg, að það sé ekki tryggt, að allar þessar bifreiðar fari til bænda, heldur sé þetta á valdi innflutningsyfirvaldanna. (Menntmrh.: Já, það er á valdi innflutningsyfirvaldanna.)

Í 2. gr. frv. þykir mér einkennilegt, hverjir eiga að greiða kostnað við störf n. Kostnaðurinn á að skiptast niður á þessa aðila, sem skipaðir eru í n., og það eru fyrst og fremst aðilar frá Búnaðarfélagi Íslands, sem er ríkisstofnun, síðan frá Stéttarsambandi bænda og loks einn skipaður af landbúnaðarnefndum Alþ. Hvar á að taka það fé, sem á að skipta sem kostnaði niður á fulltrúann frá landbn. Alþ.? Af alþingiskostnaði? Mér þykir þetta ákaflega einkennilega til tekið. Brtt. kom fram í hv. Nd. á þskj. 547 um, að kostnaður við störf n., ef einhver yrði, greiddist af þeim aðilum, sem fengju bifreiðarnar, en sú till. var felld þar. Mér finnst þetta ákaflega einkennileg ráðstöfun. Hvers vegna er ekki sagt beint, að þetta skuli greiðast úr ríkissjóði, því að Búnaðarfélagið sækir peninga sína þangað? Og ég heyri, að hv. þm. Dal. (ÞÞ) segir, að landbn. sæki líka sína peninga þangað. Annars þykir mér einkennilegt, að ekki skuli vera hægt að koma þessu öðru vísi fyrir. Það kostaði 36 þús. kr. að úthluta Renaultbílunum. Ef þeir hefðu verið fluttir inn eftir venjulegum reglum um innflutning, hefði viðskiptanefnd orðið að gera það án sérstakrar þóknunar. Og af þessum 36 þús. kr. fóru 16 þús. kr. til form. úthlutunarn., sem sagt er, að hafi byrjað á því að úthluta sjálfum sér bíl. — Það er ekki séð við öllum meinbugum á þessu máli, þó að þetta frv. verði samþ. Annars mun ég ekki setja fót fyrir þetta frv., þó að það sé gallað.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 11 shlj. atkv. og til landbn. með 11 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá útbýtingu nál. –Afbrigði leyfð og samþ. með 9 shlj. atkv.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson): Herra forseti. Landbn. hefur athugað þetta mál og þær brtt., sem lágu fyrir hér í d., bæði frá hv. þm. N-Þ. og hæstv. fjmrh. Það virtist vera, að hér væri komið í dálítið óefni, og n. velti því fyrir sér, hvernig helzt mætti komast út úr þeim erfiðleikum, sem búnir eru að mæta þessu frv. Við vitum, að það hefur verið mesti vandi að útbýta þessum áhöldum og skipta þeim milli manna, og fáir hafa viljað gefa sig í þetta, en með þessu frv. er mjög mikil bót ráðin á því með þá jeppa, sem eiga að fara til landbúnaðarins; hvernig á að koma því fyrir, og reglur settar um það, sem setja þetta í fastar skorður. N. sá það, að ef losað væri um böndin í þessu frv. með því að gefa undanþágur eins og kom fram í Nd., þá væri vafasamt, hvernig færi um þetta. Ef héraðslæknar fengju sérstaka undanþágu, þá var ekki hægt annað, en veita hana einnig ljósmæðrum, og gátu þá komið fleiri koll af kolli. Því var það, að n., þeir 4 nm., sem á fundi voru, var sammála um að ráða bót á þessu með því, að nefnd tæki að sér að útbýta jeppum, sem til landsins kæmu eða slíkum bifreiðum, sem geta heitið öðru nafni, en eru þó af sams konar gerð og þeir. En það er ekki ætlunin, að landbúnaðurinn hirði allt, þó að það sé meginstefnan, að jepparnir séu einkum hæfir til þess að vera í sveitum, hvort sem er til jarðyrkjustarfa eða til að vera á vegum þar, en drossíurnar aftur hæfari til að vera á hinum betri vegum í bæjunum, heldur þótti rétt, að jeppa fengju einnig þeir menn, sem hafa þörf fyrir þær bifreiðar. Varð það ofan á, að nm. gengust undir það, að það yrði 20%, sem gengi til annars, en landbúnaðarins af þessum tækjum, sem innflutt væru. 3. brtt. skýrir enn betur, hvaða bifreiðar heyra undir þetta hugtak, sem til skipta koma fyrir þessa n., og er þar ekki eingöngu hugsað til þess, að það sé aðeins til ferðalaga, heldur til annarra heimilisnota, og var því sett hér í staðinn, að það væri til annarra heimilisþarfa, en aðdrátta. 3. brtt. voru menn alveg sammála um og var það talið leiða af sjálfu sér, að 4. brtt. kæmi hér inn. — Og svo er það 5. brtt. N. leit svo á, að nauðsynlegt væri að fylgjast með sölu þessara bifreiða ekki aðeins frá fyrstu hendi, heldur áfram og líta eftir, að þær væru ekki seldar á svörtum markaði, heldur væru þær yfirleitt seldar þeim mönnum, sem helzt þurfa á þeim að halda. En eftir upplýsingum, sem hér komu fram, fyrst frá hv. 1. þm. N–M. (PZ) og síðan frá hæstv. fjmrh., þá var þannig komið, að margir voru búnir að fá leyfi fyrir bifreiðum þessum og ýmsir búnir að borga þar að mestu eða öllu leyti. En til þess að ekki væri hætta á því, að menn færu nú að hlaupa í að borga þær og ná sér í réttindi á þann hátt, var sett hér það bráðabirgðaákvæði frá n. hendi, að þeir aðilar, sem áður hafa fengið gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir þessum bifreiðum og búnir eru að borga þær að mestu eða öllu leyti fyrir árslok 1947, skuli ganga fyrir að öðru jöfnu. N. vildi gera nokkra úrlausn þeim mönnum, sem hafa látið peninga í þetta, og finnst sanngjarnt, að þeir gangi fyrir þeim, sem ekki hafa lagt fram neitt fé til þessara kaupa. — Ég vona, að þessi brtt. frá n. geti gert það að verkum, að hv. þm. N–Þ. (BK) geti tekið till. sína aftur, og sömuleiðis geri ég ráð fyrir, að hæstv. fjmrh. muni einnig geta gert það, ef þessi brtt. yrði samþykkt.

Eiríkur Einarsson: Það er nú búið að geta þessa máls í framsögu af n. hálfu, og vissi ég náttúrlega, að framsagan mundi verða í samræmi við þær brtt., sem fyrir liggja frá n., og frv. sjálft. En í nál. hef ég áskilið mér rétt til þess að fylgja brtt. eða fylgja þeim ekki, eftir því sem mér sýndist, eins og málið horfir nú við, þar sem ég er ekki alls kostar ánægður með það. Ég vil láta þess getið, að mér finnst frv. í sjálfu sér vera réttmætt og verðskulda, að það verði lögfest, en vil jafnframt, að því fylgi sem minnst lagaboð um ráðstöfunina. Það er nú aðalatriðið fyrir mér. — Það, sem þarna fer helzt í taugarnar á mér, er bráðabirgðaákvæðið. Ég er hræddur um, að þegar gefið er slakt á með lagasetningunni sjálfri um úthlutunina og búið að rétta einum fingurinn, þá komi fleiri til sögunnar. Ég veit, að þeir, sem hafa greitt fé fyrir þessa væntanlegu bíla, eiga rétt á að fá fé sitt endurgreitt. En að þeir, þótt þeir slæddust inn á þessa skrá, eigi rétt á því að fá jeppa nú, tel ég allt öðru máli gegna. Bændur, sem þar eru komnir á skrá eiga vitanlega forgangsrétt, því að ég sé ekki ástæðu til að vera að þessu basli, nema það sé gert í ákveðnum tilgangi, þ.e. í þágu landbúnaðarins.

Að því er snertir brtt. hv. þm. N-Þ., um læknabifreiðar, er það að segja, að þar er um fá tilfelli að ræða. Ég tel, að frv. eigi að vera til þarfa bænda yfirleitt, og tel það sýna frámunalega þröngan skilning á frv. að telja ekki, að héraðslæknar bænda í hinum dreifðu héruðum eigi sama rétt. Ég álít, að þeir eigi að hafa forgangsrétt, því að það, sem bændum er brýnust nauðsyn, er að fá héraðslækni til sin. Við erum of grónir ofan í bókstafinn sjálfan, eigi þetta að vera nokkurt álitamál.

Ég er sem sagt í rauninni fylgjandi þessu frv., en vildi láta þessar aths. koma fram varðandi þau atriði, sem ég er ekki ánægður með.

Guðmundur Í. Guðmundsson: Herra forseti. Hv. frsm. tók réttilega fram, að þegar málið var endanlega afgr. frá n., var ég ekki viðstaddur á fundi. Hins vegar lét frsm. n. mig sjá nál. og brtt., þegar hann hafði frá því gengið, áður en það var afgr. í prentun. Ég fyrir mitt leyti er sammála nál. og brtt. og mun fylgja þeim við atkvgr. hér í d. Þó er ein þeirra þannig, að mér þætti gott að gera til öryggis nokkurn áskilnað í sambandi við hana, en brtt. er um það, hverjir eigi að vinna það vandasama verk að úthluta þessum jeppabifreiðum. Brtt. gerir ráð fyrir því, að n., sem kosin er af sérhagsmunasamtökum bænda, úthluti öllum jeppabifreiðum, bæði þeim, sem bændur fá, og eins hinum, sem ekki er ætlazt til, að fari til þeirra. Má að sjálfsögðu um það deila, hvernig n. þessi eigi að vera skipuð, og sýnist vera dálítið álitamál, hvort rétt sé að leggja allt í hendur þessarar bændanefndar. Ég gæti kannske hugsað mér aðra skipun á þeirri n., að svo miklu leyti sem um er að ræða úthlutun til annarra en bænda. Mér er þetta þó ekki svo fast í huga, að ég vilji bera fram við það neina brtt. á þessu stígi málsins, en vil áskilja mér rétt til þess við 3. umr. að hreyfa um þetta brtt., ef ég kynni að sjá ástæðu til þess.

Mér þótti aðeins rétt að láta þetta koma fram.

Björn Kristjánsson: Herra forseti. Landbn. hefur nú lagt hér fram brtt. við frv., og vil ég segja, að ég tel þær vera til bóta, nema e.t.v. bráðabirgðaákvæðið. Í brtt. við 3. gr. hefur n. lagt til, að 20% af jeppainnflutningnum verði hægt að úthluta til annarra, en bænda og þeirra aðila, sem taldir eru upp í 3. gr. frv. Ég tel þetta vera til mikilla bóta og vænti þess, að sú n., sem væntanlega verður skipuð verði frv. þetta samþ., muni fyrst og fremst eftir því, að það er bændunum sjálfum jafnvel meiri þörf, að héraðslæknar þeirra í víðlendum sveitahéruðum eigi bíl til umráða, en nokkurn tíma bændurnir sjálfir. Og ég treysti því, að sú n. muni skilja þetta og setja þá ekki hjá við úthlutun á þeim 1/5 af jeppainnflutningnum, sem úthluta má til annarra, en bænda. Ég er því ánægður með þessa brtt., og sé brtt mín borin upp á undan till. n., mun ég taka hana aftur til 3. umr., þar til ég hef séð, hvort þessi till. n. verður samþ. En komi till. n. fyrr til atkvæða, mun ég haga mér eftir því, hvernig fer um hana.

Ég tel, að þessi hluti, sem úthluta má til annarra en bænda, sé fullstór. Ég býst við, að þeir héraðslæknar í landinu, sem kæmu til með að öðlast rétt samkv. þessum lögum, séu örfáir og einnig aðrir aðilar, sem ég veit varla, hverjir ættu að vera. Ég hefði getað fallizt á, að úthluta mætti 15% til annarra en bænda, en um þetta geri ég engan ágreining.

Bráðabirgðaákvæðið er ég ekki fullkomlega ánægður með. Þar sem gera má ráð fyrir, að jeppainnflutningur á þessu ári a.m.k. verði mjög takmarkaður, finnst mér þetta ákvæði nokkuð varhugavert, þar sem þessi innflutningur er fyrst og fremst ætlaður til landbúnaðarþarfa. Mér finnst, að ákvæðið hefði mátt standa, ef í upphafi gr. hefði staðið: Þeir bændur — en ekki „Þeir aðilar“.

Ég mun svo ekki fara um þetta fleiri orðum að sinni.

Gísli Jónsson: Við 1. umr. um þetta mál benti ég á, að mér þætti eðlilegt, að þessu yrði breytt að einhverju leyti. Nú hefur hv. 7. landsk. (GÍG) áskilið sér rétt til að bera fram brtt. í sambandi við skipun n. Í frv. er ætlazt til, að þetta sé 5 manna n. Ég sé ekki, hvers vegna á að setja 5 menn í þetta. Ég man, að þegar „Hagamúsunum“ svo kölluðu var úthlutað, kostaði það yfir 36 þús. kr. að úthluta þessum fáu bílum, og formaðurinn sjálfur fékk 16 þús. kr. fyrir það. Þetta er árangurinn af þessum nefndarstörfum, sem verið er að setja upp á þennan hátt. Ég held, að það sé nóg að hafa þarna einn mann frá Búnaðarfélaginu, annan frá stéttarsambandi bænda og þriðja manninn skipaðan öðruvísi og hafa þannig aðeins þrjá menn. Ég benti einnig á, að mér þætti dálítið óeðlilegt, að kostnaður við nefndarstörfin væri greiddur af hlutaðeigandi aðilum, þannig að landbn. ættu að borga kostnaðinn fyrir sinn fulltrúa. Vildi ég beina því til hv. landbn., hvort hún sæi sér ekki fært að breyta þessu þannig, þar sem ætlazt er til, að 4 nm. séu kosnir af Búnaðarfélagi Íslands og stjórn Stéttarsambands bænda, að þeir ynnu kauplaust hjá n. Mér óar við að sjá á landsreikningnum svona upphæðir eins og 36 þús. fyrir úthlutun á 125 bílum á örfáum dögum. En annars geri ég það ekki að neinu kappsmáli.

Í 1. gr. hefur verið sett ný mgr., sem mun eiga við, að undir þetta komi einnig þeir bílar, sem byggðir eru í Evrópu, aðrir en jeppabílar. Mér finnst þetta vera ákaflega víðtækt. Geta þá komið undir þetta form alls konar bifreiðar hentugar til flutninga. Og geta þá ekki, ef þessi gr. stendur svona, komið undir þetta allar vöruflutningabifreiðar, sem fluttar eru til landsins til landbúnaðarþarfa? Hvað fer nú mikið af flutningabifreiðum til landbúnaðarþarfa? Ég held, að erfitt yrði að greina á milli, hvað mikið færi til landbúnaðarþarfa og hvað til annarrar notkunar, þannig að mér finnst þessi brtt. hafa skemmt þetta.

Í 2. mgr. 1. gr. hefur verið sett í stað orðanna, „sem heimilt er að flytja til landsins til landbúnaðarþarfa“: „sem heimilt er að flytja til landsins ár hvert“. Það er ákveðið með lögum, hverjir það eru. Það er fjárhagsráð. Í sömu mgr. stendur: „Með innflutningi þessum skal að því stefnt að fullnægja svo fljótt sem verða má þörfum landsbúa....“ — í stað orðanna „þörfum bænda“, sem hafa þá ekki lengur afskipti af því, hvernig bifreiðainnflutningur yfirleitt er til landsins. Þetta verður því að teljast breyt. heldur til hins lakara.

Í 3. gr. eru í stað orðsins „Bifreiðar“ sett orðin: Fjóra fimmtu hluta þeirra bifreiða. Þannig að bændum er ætlað að sitja að 4/5 allra þessara bifreiða, sem fluttar eru inn. Það er sannarlega til landbúnaðarþarfa, að fluttar eru inn mjólkurbifreiðar, sem flytja mjólk á milli. Það eru orðnir stórir tankbílar. Og það er kannske til landbúnaðarþarfa að flytja inn sérleyfisbifreiðar, sem fara eingöngu um landbúnaðarhéruðin.

Þó finnst mér verst brtt. við 4. gr. Þar er sett inn, að í stað orðanna „að og frá heimilum sínum meiri hluta ársins“ komi: og annarra heimilisþarfa. Verður upphaf gr. þá þannig:

„Nefndin aflar sér árlega svo áreiðanlegra upplýsinga sem föng eru á um tölu þeirra býla á landinu, er geta haft full not jeppabifreiða til flutninga og annarra heimilisþarfa.“

Verða það ekki hér um bil öll héruð landsins, sem geta haft þess full not? Það hefur víst verið meint áður, að þeir væru látnir ganga fyrir, sem hefðu einhverja vegi og gætu notað þetta meiri hluta ársins. Mér skilst, að undir þetta eigi að koma allir, sem geta haft not af bifreiðum 3–4 mánuði. En þá eru hér í 7. gr. — og það er athugaverðast af þessu öllu — felld niður orðin „samkv. þeim reglum, er um ræðir í 6. gr.“, og þar með er niður felldur leiðarvísir um það, hvernig eigi að úthluta bílunum. Þetta finnst mér versta brtt. frá n. Áður bar n. að fengnum upplýsingum að úthluta bifreiðunum samkv. fyrirmælum 6. gr., og þau eru hér í 5. lið hennar. En verði þetta samþ., á hún bara að úthluta bifreiðunum án þess að hafa nokkurn leiðarvísi og þarf ekki að fara neitt eftir 6. gr. Þetta finnst mér vera til hins miklu lakara. Virðist það hafa verið gert af ásettu ráði að láta n. ekki vera bundna af ákvæðum 6. gr. um úthlutun bifreiðanna og stafar af því, að vald það, sem n. er gefið, er miklu meira, en það var áður. Áður hafði n. aðeins vald til að úthluta jeppabifreiðum, en nú öllum bifreiðum, sem koma inn undir 1. gr., þegar búið er að breyta henni. — Ég verð þess vegna á móti þessum brtt. yfirleitt og kýs heldur að fylgja frv. eins og það liggur fyrir hér, nema eitthvað komi fram í umr., sem ég get sannfærzt um, að sé til bóta.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Við verðum fyrst að gera okkur ljóst, hvað við er átt með „til landbúnaðarþarfa“. Við höfum ekki nefnt flutninga, heldur aðeins til landbúnaðarþarfa. Farmal og dráttarvélar eru ekki bílar. Bílar til landbúnaðarþarfa eru með útbúnaði til að draga landbúnaðarvélar á eftir sér eða við hliðina og eru sumar vélar útbúnar til að festast aftan í jeppa. Landrovers er byggður til að draga vélar, svo sem sláttuvélar, rakstrarvélar, snúningsvélar o.s.frv. Aðrir bílar eru aftur til flutninga og ferðalaga, og ef menn hugsa sér að taka venjulega bíla og plægja með þeim, þá verður fyrst að setja sérstakan útbúnað á þá og svo spólar bíllinn, því að hann er ekki ætlaður til slíks. Við þekkjum enn aðeins tvær tegundir bíla, sem ætlaðir eru til landbúnaðarþarfa, — hvort þeir verða fleiri, vitum við ekki, — þ.e. jeppar og Landrovers. Aðra bíla verður að útbúa sérstaklega. Landbn. gekkst svo inn á að láta þessa n. úthluta bílunum, 4/5 til landbúnaðarþarfa og 1/5 til annars og var ekki hægt að gera annað. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði verður að úthluta 41 jeppa til manna þeirra, sem greitt höfðu nýbyggingarráði hluta andvirðisins fyrir árslok 1947. Þar af 21 til bænda og 19 til annarra, ef þeir gangast undir að selja þá ekki á svörtum markaði. Af þessum 19, sem ekki eru bændur, eru 16 hér í Rvík, og ef þeir gangast undir að selja ekki á svörtum markaði, fá þeir úthlutað af þessum 20%, sem ekki fara til landbúnaðarþarfa. Ég veit, að hv. þm. hefðu verið gramir, ef þeir hefðu fengið leyfi fyrir innflutningi jeppabifreiða og greitt hluta andvirðisins 1947, en hefðu ekkert fengið enn þá, og er slíkt ekkert annað, en falsað leyfi. Þeir bílar, sem ætlaðir eru til landbúnaðarþarfa, eru sérstaklega útbúnir til þess, og fram að þessu höfum við aðeins þekkt tvær tegundir, jeppa og Landrovers. Og hafi hv. þm. Barð. þetta í huga, getur hann skilið, að brtt. n. er byggð á því, að n. fái alla slíka bíla, er inn eru fluttir, til ráðstöfunar, en láti 20% til annarra en bænda, en úthluti hinum samkv. 6. gr.

Ég skal sem dæmi um það, hvernig á því stóð, að við hættum við að hafa það sem höfuðástæðu við úthlutun, að hlutaðeigandi ætti erfitt með flutning að og til bús síns, að þá er komið inn á flutningana, en svo er annað, að til eru jarðir, sem hafa brúk fyrir jeppa, þó að spurning sé, hvort þær hafi brúk fyrir flutninga. Ég þekki t.d. jörð, sem hefur víðlent fjalllendi, 40 km á hvern veg, og síðan jeppi kom þangað, er allt smalað á honum. Áður þurfti 4 menn í 10 daga, en nú er miklu skemur verið að smala, svo að sú jörð hafði mikla þörf fyrir jeppa. Þær jarðir, sem hafa vegi alveg við túngarðinn, geta haft miklu meiri þörf fyrir bíl en hinar, þar sem löng leið er að fara á þjóðveg. Það veit ég, að hv. þm. Barð. sér.

Mér er það ekkert áhugamál, hvernig n. er skipuð, þar sem hún er svo bundin af 6. gr., en það svið þrengist nokkuð, þegar athugað er, hve margir eiga að fá bíla samkv. bráðabirgðaákvæðinu, þ.e. 21 bóndi og 19 aðrir, sem ekki eru prestar, yfirsetukonur né læknar, og er þá komið langt upp í töluna, a.m.k. ef bílarnir eru enskir. Ég get ekki fallizt á það með hv. þm. Barð., að þessi úthlutunaraðferð sé til hins verra. Ég skal benda á það, að þegar Pétur Ottesen, Steingrímur Steinþórsson og Bjarni Ásgeirsson úthlutuðu jeppum Búnaðarfélagsins, kostaði það ekkert, en nú má ætlast til, að nokkur kostnaður verði af bréfaskriftum til þeirra, sem úthlutað verður.

Ég vona nú, að hv. þm. Barð. skilji, hvað við eigum við með „bílar til landbúnaðarþarfa“ og sjái, að við erum ekki að seilast til úthlutunar á öllum flutningabílum, eins og hann lét skina í gegn.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson): Herra forseti. Vinur minn, hv. þm. Barð., hreyfði aths. um þetta frv., og hefur hv. 1. þm. N-M. svarað þeim að miklu leyti. Hv. þm. vildi halda því fram, að bílar til landbúnaðarþarfa væri ekki nóg skilgreining. Ég skal því láta athuga þetta og taka fyrir í n. milli umr., þar sem það hefur komið fram, að þetta mætti misskilja.

Þá er ég ekki sammála hv. 1. þm. N-M., að allir bílarnir lendi í sveitum, því að flestir læknar, ljósmæður og prestar eru búin að fá bíla og stunda auk þess landbúnað, svo að mest af 20% fara í kaupstaðina. En ég skal athuga með skilgreininguna á bílunum milli umr.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Dal. fyrir, að hann vill athuga þetta, og vil því fylgja brtt. til 3. umr. eða láta málið afskiptalaust.

ATKVGR.

Brtt. 631,1 (ný 1. gr.) samþ. með 10 shlj. atkv.

2. gr. samþ. með 11 shlj. atkv.

Brtt.631,2 samþ. með 9 shlj. atkv.

— 563 tekin aftur.

— 561 felld með 9 shlj. atkv.

3. gr., svo breytt, samþ. með 11 shlj. atkv.

Brtt. 631,3 samþ. með 9 shlj. atkv.

4. gr., svo breytt, samþ. með 10 shlj. atkv.

5.–6. gr. samþ. með 11 shlj. atkv.

Brtt. 631,4 samþ. með 9 shlj. atkv.

7. gr., svo breytt, samþ. með 10 shlj. atkv.

Brtt. 631,5 samþ. með 10 shlj. atkv.

8. gr., svo breytt, samþ. með 9 shlj. atkv.

9.–13. gr. samþ. með 11 shlj. atkv.

Brtt. 631,6 (nýtt bráðabirgðaákvæði) samþ. með 10:1 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 11 shlj. atkv.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson): Herra forseti. Við 2. umr. minntist ég þess, að n. mundi athuga þetta mál betur á milli umr. og þá í samráði við hv. þm. Barð. eða n. mundi a.m.k. minnast á þetta mál við hann. Og ég hef minnzt á þetta mál við hv. nm., en ekki kallað saman fund í n. um þetta mál, og ég hygg, að hv. nm. séu sammála um það, að mál þetta eigi að fara óbreytt frá þessari hv. d., að undanskilinni ofur lítilli breyt., sem till. kemur fram um síðar. Og við hv. þm. Barð. talaði ég einnig, sem taldi, að hann mundi láta sér það líka, að svo færi. En ég vil fyrir n. hönd sem frsm. gefa þær upplýsingar hér um þetta mál, að við í n. teljum, að vörubifreiðar yfirleitt geti ekki komið undir þennan flokk, jeppabifreiðar til landbúnaðarþarfa. Hins vegar höfðum við Landrowers í huga, sem eru í uppsiglingu, að þeir gætu reynzt eins vel og jepparnir, en að drossíur, stærri eða minni, komi ekki undir þennan flokk.

Ég hef minnzt á það við áhrifamenn, bæði í stjórn Búnaðarfélags Íslands og stjórn Stéttarsambands bænda, um kaup nefndarmannanna, sem úthluta eiga bifreiðunum, og gera þeir ráð fyrir, að nm. þessir taki yfirleitt ekki kaup fyrir þetta starf sitt við að úthluta bifreiðum þessum. En ég tel, að verði eitthvað töluvert um þessar úthlutanir, þá verði af því einhver smávegis skrifstofukostnaður, því að þá verður að senda bréf viðkomandi úthlutuninni og þess háttar, svo að það er ekki hægt að segja, að þetta verði alveg kostnaðarlaust gert. En ég og þeir hv. nm., sem ég hef náð í, erum sammála um það, — ég hef ekki náð í hv. 7. landsk. (GÍG), en hygg, að hann sé á sama máli, — að til þess að það sé enn tryggara, að ekki verði eytt miklu fé í þessi nefndarstörf, verði kosnir varamenn í þessa n., til þess að ef einhver af þessum nm. ætlar að sýna sig í því að vera dýr á vinnu sinni í n., þá sé hægt að gripa til varamanns. Og leyfi ég mér því að bera fram fyrir n. hönd svo hljóðandi till.: „Við 2. gr. Á eftir orðunum „til 2 ára“ bætist: Sömu aðilar kjósa jafnmarga varamenn.“

Þessar jeppabifreiðar skilst mér, að eigi að fara til einnar stéttar til þess að þjóna hagsmunum hennar, bændastéttarinnar, og svo að nokkru leyti til annarra stétta, sem þurfa á þessu að halda, t.d. manna, sem eru í opinberri þjónustu og verða að fara embætta sinna vegna yfir meiri eða minni víðáttu, svo sem læknar og ljósmæður. Og jafnvel getur komið til, að hreppstjóri í sveitarhreppi eigi heima í kauptúni og sé því ekki bóndi, en þurfi á bíl að halda.

Ég óska svo eftir, að frv. þetta verði samþ., eftir að búið er að samþ. þá brtt., sem ég gat um.

Forseti (BSt): Mér hefur borizt skrifleg brtt., sem hv. þm. hafa heyrt. Fyrir þessari brtt. þarf tvöföld afbrigði. Hún er of seint fram komin og auk þess skrifleg.

ATKVGR.

Afbrigði um skrifl. brtt. (sjá þskj. 673) leyfð og samþ. með 11 shlj. atkv.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Út af ræðu hv. frsm. landbn. skal ég gjarna lýsa hér yfir, að ég mun ekki bera fram brtt. við frv. á þessu stigi og ekki tefja framgang þess við afgreiðsluna hér úr þessari hv. d.

ATKVGR.

Brtt. 673 samþ. með 10 shlj. atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 10 shlj. atkv. og endursent Nd.

Of skammt var liðið frá útbýtingu frv. Afbrigði leyfð og samþ. með 21 shlj. atkv.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 16:4 atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 699).

Of skammt var liðið frá útbýtingu frv. Afbrigði leyfð og samþ. með 10 shlj. atkv.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Ég hef beðið fjhn. þessarar hv. d. að flytja þetta frv. samkv. ósk ríkisstj., sem að aðalefni er um hækkun á benzínskattinum. Þessi hækkun er nauðsynleg vegna þess, að ríkissjóð skortir nú tekjur til þess ekki sízt að halda uppi vegabótum og vegagerð. Við urðum ásáttir um að fara þessa leið, að hækka benzínskattinn, bæði vegna þess viðhalds og nýbyggingar vega, sem hér fara fram og kosta árlega stórfé, og eins vegna hins, að benzínverð er tiltölulega lægra hér en annars staðar, þar sem minna þarf að leggja fram til vegaviðhalds tiltölulega. Þegar þessi ákvörðun var tekin, lá hér fyrir d. frv: til l. um breyt. á l. nr. 84/1932, um bifreiðaskatt o.fl., og fjölluðu um framkvæmd bifreiðaskattsins. Það þótti því rétt að gera annað tveggja, að koma þessari viðbót á það frv. sem viðbótartill. eða semja að öðrum kosti að nýju frv., sem innifæli í sér það frv., sem þegar lá fyrir d., og freista þess að fá það lögfest. Þess vegna er þetta frv. þannig, að 1. og 2. gr. eru teknar úr l. nr. 27/1947, um bifreiðaskatt, 3. gr. orðrétt úr frv., sem fyrir lá, að efni til. 4. gr. frv. er shlj. 8. gr. l. nr. 84/1932, sem felld var inn 1947. Ákvæði til bráðabirgða er það sama og í frv., sem fyrir lá. Nýmæli frv. eru því hækkun á benzínskattinum og svo skiptingin, sem fram kemur í 4. gr., og um leið er stofnað til þess, að bifreiðaskatturinn verði framvegis bundinn við almanaksár í stað skattársins, sem áður var, eða frá 1. apríl til 31. marz.

Eins og hv. þdm. taka eftir, er til þess ætlazt, að viss fjárhæð renni í brúasjóð til þess að standa undir byggingu Þjórsárbrúar fyrst, en síðan annarra stórbrúa, því að þótt það sé ekki tekið fram í frv., er þó ætlazt til, að það renni framvegis til stórbrúa.

Þá er ætlazt til þess, að viss hluti fjárins verði með b-lið 4. gr. fastbundinn til viðhalds og umbóta á akvegum, en það viðhald hefur orðið æðimikið, eins og raun hefur borið vitni um og sjá má á þskj. 644, eða:

1944 varð viðhaldskostnaður 6.4 millj. kr.

1945 — — 10.2

1946 — — 11.6

1947 — — 13.9

1948 — — 11.7

Við, þetta bætast svo aðrar framkvæmdir, sem t.d. samkv. fjárlögum þeim, sem nú liggja fyrir Alþ., nema um 7 millj. kr. til nýbyggingar vega og 4 millj. til brúargerða.

Það er talsvert hægt að segja þeirri skoðun til framdráttar, að raunar ætti benzínskatturinn og skattur á gúmmíi að standa undir vegaviðhaldi og raunar líka nýbyggingu vega. Það er ætlazt til þess, að þetta frv., ef það verður samþ., geti hækkað tekjur ríkissjóðs um 51/2 millj. kr., og segir þar um í grg., að áætluð benzínotkun sé um 40 millj. lítrar á ári og benzínotkun fari vaxandi. Hins vegar kæmi það einnig til athugunar, hvað hægt er að hafa mikið af gjaldeyri til umráða vegna benzínkaupa. En það er gert ráð fyrir því, að með þessu gæfi benzíngjaldið 12.4 millj. kr., og er sú upphæð svipuð þeirri, sem varið hefur verið til vegavíðhalds undanfarin ár. Bifreiðaskatturinn og þar með talið gúmmígjaldið er á fjárl. áætlað 3.5 millj. kr., eða alls er þetta 15.9 millj. kr. Frá þeirri upphæð dregst svo 5 aura gjaldið í brúarsjóð, eða 2 millj. kr. Svo liggja 2 millj. kr. milli hluta. Þeirri upphæð er ekki ráðstafað þarna, en rennur í ríkissjóð. En þegar þetta er hvort tveggja dregið frá benzínskattinum og gúmmígjaldinu, eru eftir 11.9 millj., en sú upphæð samsvarar þeirri upphæð, sem fór til vegaviðhaldsins 1948, en hefði hins vegar ekki náð þeirri, sem var 1947. Auðvitað verður að taka tillit til þessarar hækkunar á benzíni, sem verður nú á 96 aura lítrinn; það verður að taka tillit til þessa við ákvörðun taxta fyrir akstur. — Þá hefur einnig komið til mála að afnema skömmtun á benzíni, um leið og verðið verður hækkað, eins og sést af grg. frv.

Ég ætla nú ekki að fara um þetta fleiri orðum, en um þörfina á þessu vita allir. Það er að vísu aldrei ljúft verk að gera hlutina dýrari en þeir eru, og þegar þörfin er jafnmikil nú, hvað snertir vegaviðhald og vegalagningar, og menn vilja vera láta, þá verðum við að horfast í augu við þann veruleika, til þess að geta mætt þessum framkvæmdum með skynsamlegu móti, og það er ekki ósanngjarnt, að benzínnotkunin mæti þeim kostnaði, sem af þessum framkvæmdum stafar.

Að endingu vildi ég svo mælast til, að þessu frv. verði hraðað í gegn. Afvikin eru engin frá því, sem var, nema þau sem ég nefndi í upphafi.

Hermann Jónasson: Herra forseti. Af því að ég er einn af nm., sem flytja þetta mál, vil ég taka fram örfá atriði viðvíkjandi málinu.

N. flytur frv., eða a.m.k. geri ég það sem nm. vegna þeirrar venju, sem skapazt hefur, að neita ríkisstj. ekki um að flytja frv., hvað sem líður skoðun nm. á frv.

Um þetta frv. er það að segja, að fært hefur verið fram af hæstv. fjmrh., að þetta fé eigi að nota til brúa- og vegagerða. En það vita allir í þessari hv. d., að þetta er í raun og veru þannig, að það er verið að afla ríkissjóði tekna almennt vegna þess skorts á fé, sem þar er fyrir hendi sökum þess almenna ástands, sem er í landinu, og þeirrar fjármálastefnu, sem nú ríkir. Það er meira fyrirsláttur, að þetta fé eigi að fara til brúa og vega, því að það framdag hefur hingað til verið greitt af öðrum tekjum ríkissjóðs að verulegu leyti, og þess vegna er þessi uppsetning í grg. ekkert annað, en til þess að láta líta svo út, að þetta fé eigi að fara til þessara mannvirkja og framkvæmda. En þetta út af fyrir sig skiptir ekki svo miklu máli nema að því leyti, að blærinn á frv. með uppsetningu þess í grg. er að nokkru leyti annar en tilgangur frv. er í raun og veru. Það mundi engum koma til hugar að afla tekna á þennan hátt, ef það væri ekki vegna hreinna fjárhagsvandræða ríkissjóðs, og það hefði verið gert áður að afla ríkissjóði á þennan hátt tekna til vega- og brúargerða, ef það hefði þótt fært. Vandkvæðin á þessu hafa þótt svo mikil, að um þessa leið var talað þegar í haust, en hefur ekki þótt fært nema vegna sárustu fjárhagsvandræða ríkissjóðs. Þetta er það rétta í málinu.

Það er rétt, að ríkissjóður þarf tekjur, og einhvern veginn þarf með þessari fjármálastefnu að afla þessara peninga. Það er sagt, að benzín sé selt hærra verði erlendis en hér tíðkast og því ekki eðlilegt, að við getum haldið því verði, sem við höfum, miðað við þær álögur, sem eru hér að öðru leyti. Þetta er rétt, og það eru nokkur rök, en eins og gengur og gerist, bíla þau á ýmsa lund, fyrst og fremst vegna þess, að hér á landi eru bifreiðarnar járnbrautir fólksins, þær eru þau almennu flutningatæki fyrir þungavöru. Í annan stað vitum við, að járnbrautirnar eru þau farartæki, sem mest eru notuð erlendis af almenningi. Bifreiðarnar eru þar aftur á móti notaðar meira af þeim, sem meiri hafa efnin, og þar af leiðandi er þetta ekki hliðstætt nema að nokkru leyti.

Það er líka svo, að þessi skattur, sem hér er lagður á, er að sumu leyti alveg eðlilegur lúxusskattur og réttlátur lúxusskattur að því er snertir sumar tegundir bifreiða, en að öðru leyti er hann mjög varhugaverður skattur, og að þriðja leyti er skatturinn einhver sá allra ósanngjarnasti skattur, sem hægt er að leggja á landsmenn. Það er vegna þess, að það er sanngjarnt að leggja skatt á bifreiðar, sem notaðar eru meira og minna í óþarfa, svo sem einkabifreiðar eru vissulega að verulegu leyti. Það er hins vegar óneitanlega nokkuð varhugavert, þar sem kemur til þeirra bifreiða, sem almenningur notar. Þar er þetta skattur á landslýðinn, sem leiðir af sér hækkun farmgjalda, og þess vegna hefur hann í för með sér þá skrúfu, sem verið hefur einkenni á fjármálum okkar seinustu árin, því að hér er lagður skattur á til að lækka dýrtíðina. Þessi skattur verður síðan til að hækka vöruverð og þar með dýrtíðina, og það verður til þess, að næsta ár verður að leggja á nýja skatta til að mæta þeirri hækkun. En skatturinn er mjög ranglátur að því, er snertir allar heyvinnuvélar bænda. Þær eru nú undantekningarlítið reknar með benzíni. Þessi skattur leggst því þungt á framleiðslu þeirra. Það er hliðstætt því, ef skattlögð væri hráolía, sem aflvélar báta eru reknar með og sjávarútvegurinn hefur við sinn atvinnurekstur. Það er enn fremur vitað mál, að þessi skattur leggst verulega þungt á alla flutninga til bænda og frá, sérstaklega á flutningana frá þeim. Það er ekkert smáræði sá benzínaustur, sem á sér stað í sambandi við vöruflutninga bænda, einkum flutninga á mjólk, t.d. ofan úr Borgarfirði og austan yfir Hellisheiði. Þetta verður á sama hátt og þó enn meira en sú hækkun, sem gerð var á farmgjöldum með strætisvögnum og almenningsbifreiðum. Það verkar þannig, að afurðirnar verða að hækka, og það hefur þau áhrif, sem eru öllum of kunn til að það þurfi að rekja það í þessari d. Og þá verður að leggja á nýja skatta á næsta ári, hækka þessa skatta eða finna einhverja nýja skatta, sem leggjast á framleiðsluna og hækka framleiðsluvörur og svo koll af kolli. Ég segi fyrir mig þykkjulaust og í þeirri einlægni, sem ég á til, að mér er ómögulegt að taka þátt í þessum leik. Með þessum aðgerðum er stefnt að því að gera krónuna verðlausa og koma ríkissjóði út í gjaldþrot. Það er það, sem verið að gera með þessum aðgerðum. Það er hrein og bein kleppsvinna að leggja alltaf á nýja skatta og tolla, sem á að nota til að greiða niður dýrtíðina: Þessir skattar og tollar hafa með sér hækkun á dýrtíðinni, og síðan verður að leggja á nýja skatta til að bera uppi þá hækkun og svo koll af kolli. Því hefur verið skrökvað upp á sjúklingana á Kleppi, að þeir væru látnir bera sand og hvolfa honum í trekt. Sandurinn hryndi niður, en þeir tækju hann þar aftur og bæru hann upp á ný og svo áfram og áfram og þetta ætti að vera nokkurs konar gáfnapróf á þá. Þetta er ósatt, þetta er ekki gert, en þetta er það, sem hér er verið að gera, það er sams konar hringrás. Þessu er ómögulegt að halda áfram, því að hvað á að gera á næsta ári, þegar þessi benzínskattur er búinn að hækka vöruverð og sú hækkun er komin inn í vísitöluna? Hvað á þá að gera annað, en leggja á nýja skatta? Ef halda á áfram sams konar fjármálapólitík, hvar endar þetta? Til hvers á að halda þessu áfram?

Ég vil bara, af því að mér finnst þetta frv., sem er ekki öðruvísi en sum önnur, vera það mikil bending um stefnuna í þessa átt, sem ég hef alltaf verið mótfallinn og er mótfallinn og hef reynt að vara við, láta það koma fram, að mér finnst þetta svo glöggt spor í þessa átt. Mér finnst rétt að taka þetta fram á þessu stigi, þó að það þýði ekki, þetta eigi allt að hafa sinn gang, því að það lítur út fyrir, að það eigi að halda áfram á þessari leið, þangað til ekki verður lengra komizt, og við vitum allir, hvað það er, þegar ekki verður komizt lengra.

Brynjólfur Bjarnason: Ég gat þess við umr. um síðasta tekjuöflunarfrv. hæstv. ríkisstj., hækkun á álagningu á tóbak, að það frv. mundi sennilega vera það skásta í langri röð af tollafrv. og nýjum álögum, sem nú væri verið að leggja fyrir þingið. Ég held, að þetta sé að koma á daginn. Hér kemur annað frv., sem er nú miklu verra. Ég lýsti mig strax andvígan þessu frv. í n., þegar það var sent henni af hæstv. ríkisstj., og lýsti yfir, að ég vildi engan þátt eiga í flutningi þess, enda er það flutt af meiri hl. fjhn. Þetta er eitt hinna mörgu tollafrv., sem komið hafa frá núv. hæstv. ríkisstj. um nýjar álögur á almenning, sem allar stefna í þá átt að rýra kjör almennings og stofna til enn meira fjármálaöngþveitis með sífelldum verðhækkunum og vexti dýrtíðarinnar. Það er framhald af þeim tolla- og skattafrv., sem hæstv. ríkisstj. lagði fram um áramót og þá voru samþ. með einkennilegu nafni: l. um dýrtíðarráðstafanir. Það var boðað þá þegar, að lagt yrði fram slíkt frv. um hækkun á benzíntollinum, og nú er það komið, svo að þetta kemur okkur ekki á óvart, þó að það hafi verið ærið lengi á leiðinni. Það er þáttur í þeirri heildarröð af tilI., sem hæstv. ríkisstj. er nú að leggja fram í sambandi við afgreiðslu fjárl., og sennilega eitt það versta.

Það er tekið fram í þessu frv., að nokkur hluti af þessum skatti skuli renna til viðhalds vega og svo nokkur hluti til brúargerða, og hæstv. ráðh. gerði þetta að aðalatriði í ræðu sinni, og það var á honum að heyra, að frv. væri í raun og veru borið fram í því skyni að fá þetta fé til viðhalds vega, og gat hann í því sambandi um þá kenningu, sem ýmsir hafa haldið fram og mér skildist hann vera fylgjandi, að rétt væri, að ekki aðeins kostnaður vegna viðhalds vega, heldur líka vegna nýbyggingar vega yrði borinn uppi eingöngu af benzínskatti. Ég tel þetta fráleita kenningu. Nýbyggingu og viðhaldi vega á að halda uppi eins og framlögum til annarra almennra þarfa, með almennum sköttum, og það er engin ástæða til að taka það fé endilega með benzínskatti. Það er mál út af fyrir sig, hve mikil nauðsyn er á viðhaldi vega og vegagerð, og hitt er einnig mál út af fyrir sig, hvernig beri að leggja skatta á. Það er hugsanaruglingur að blanda því tvennu saman.

Sannleikurinn er sá, eins og hv. þm. Str. tók greinilega fram í ræðu sinni, að allir hv. þm. vita, að þetta frv. er ekki borið fram í þeim tilgangi, heldur er blátt áfram einn þáttur í þeim fjáröflunarfrv., sem hæstv. ríkisstj. hefur á prjónunum til þess að jafna hinn almenna greiðsluhalla fjárl. á því stigi, sem þau, nú eru.

Þessi skattur verður mjög þungbær skattur. Hann mun koma mjög þungt niður á öllum almenningi vegna hækkaðra flutningsgjalda. Hann mun koma þungt niður á bifreiðastjórum, einkum þeim, sem hafa ekki ákvæði í samningum sínum um, að taxtarnir skuli hækka með hækkuðu benzínverði. Það er tekið fram í grg., að tekið verði tillit til þessarar hækkunar við ákvörðun taxta fyrir bifreiðaakstur, en ekki tilgreint nánar, svo að þetta er mjög óákveðið. Og það kemur í raun og veru líka niður á þeim bifreiðastjórum, sem fá þessa hækkun upp borna með hækkuðum taxta, á þann hátt, að það dregur úr atvinnu þeirra. Það kemur mjög þungt niður á bændum, þeim sem hafa vélar, sem ganga fyrir benzíni, og sennilega kemur það langþyngst niður á þeim af öllum landsbúum, þ.e.a.s. svo lengi sem þeir fá það ekki upp bætt með hækkuðu afurðaverði.

Hæstv. fjmrh. sagði í sambandi við umr. um það skattafrv., sem við ræddum siðast, verðhækkun á tóbaki, að það þýddi ekki að vera að deila um þá fjármálapólitík, sem hefði leitt til þessara álagna, þar væru allir jafnsekir. Ég mun ekki heldur fara mikið út í umr. um það eða nokkrar eldhúsumræður í sambandi við þetta mál. Það er tilgangslaust. til þess verða næg tækifæri á næstunni á öðrum vettvangi. En ég vil aðeins benda á, að það er tilgangslaust fyrir hæstv. ríkisstj. að reyna að velta af sér ábyrgðinni af eigin gerðum, því að það er hún, sem ber ábyrgð á því, að jafnvel hinar mjög svo hóflegu till. fjvn. um lækkun kostnaðar við ríkisbáknið voru felldar við 2. umr. fjárl. Það er henni að kenna og hennar fylgismönnum í þinginu. Ef þær hefðu verið samþ., þó að ekki hefði verið annað gert, þá hefði vissulega verið hægt að fara allmiklu vægara í sakirnar með þetta frv., sem gefur ekki meira það sem eftir er ársins en 51/2 millj. kr. Það er ríkisstj. ein, sem ber ábyrgð á því, að tollar og skattar á almenningi hafa verið lækkaðir um talsvert á annað hundrað millj. kr. síðan hún tók við og vöruverð á ýmsum nauðsynjavörum hækkað þannig fyrir beinar aðgerðir ríkisstj. í allt að 50% og á sumum vörum kannske meira. Hin raunverulega vísitala er komin talsvert á 5. hundrað stig og mun halda áfram að hækka. Ekki hefur stjórnarandstaðan hér á þingi veitt hæstv. ríkisstj. brautargengi til þess að koma þessum dýrtíðarráðstöfunum í framkvæmd. Það er hæstv. ríkisstj., sem ber ábyrgð á, að ýmis útgjöld fjárl. eru. 3–4 sinnum hærri nú en á fjárl. 1946 og heildarupphæð útgjalda 2–3 sinnum hærri eða mun verða, þegar þau verða nú endanlega afgr. Hæstv. ríkisstj. getur sannarlega ekki til þess ætlazt, eins og stundum virðist koma fram, þegar hækkunartill. eru bornar fram af fjmrh., að allir sætti sig við þetta, af því að það vanti fé í ríkissjóð. Hæstv. stj. getur ekki ætlazt til þess, að stjórnarandstaðan taki það fyrir góða og gilda vöru, þegar hún kemur hálfu ári síðar en bar að vera búið að afgr. fjárl. í síðasta lagi og segir: Nú er stór halli á fjárl., nú verður eitthvað að gera, jafnvel þótt súrt sé á bragðið.

Á það hefur verið bent, að allar þessar tollahækkanir eru í raun og veru stórfelld lækkun á íslenzku krónunni. En því meir sem dýrtíðin vex, því meiri verða erfiðleikar framleiðslunnar og því dýpra verður að seilast í ríkissjóð til þess að framleiðslan geti staðið undir sér, sem aftur kallar á nýjar tollaálögur. Á þetta hef ég oft bent, það er ekki fyrst nú, að sýnt er fram á þetta, og það er ekki hægt að mótmæla því.

Mér þykir vænt um að heyra, að hv. þm. Str. tók mjög eindregið undir þessi rök. En það eru takmörk fyrir því, hvað slík svikamylla getur gengið lengi. Maður heyrir á ýmsum, að þeir þykjast sjá, að nú sé það langt komið, að ekki sé um annað að ræða en beina gengislækkun. En ekki heldur hún getur bjargað, því að það fer á sömu leið, þó að sú leið sé farin. Hún getur aldrei orðið annað en gálgafrestur, þar til allt er sokkið aftur í sama fenið. Án þess að sjálfri heildarstefnunni verði breytt, verður engu bjargað.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Það er auðvelt að finna galla á þeirri fjáröflunarleið, sem hér er um að ræða, og kann enginn sér hægara verk að vinna. Hitt liggur samt fyrir, að jafnvel þeir, sem — og á ég þar sérstaklega við hv. þm. Str. — telja tormerki á að hækka benzínskattinn, hafa ekki í sambandi við það fjárlfrv., sem nú liggur fyrir þinginu, slakað neitt til á kröfum sínum fyrir kjördæmi sitt, og ég veit ekki til, að hv. þm. Str. hafi heldur lagt fram neinar till. til sparnaðar, sem gætu þá bjargað þessu ástandi.

Skattar og tollar eru oft og tíðum tvíþættir, eins og hann tók fram, að vissu leyti réttmætir og að vissu leyti ranglátir. Á það ekki við um benzínskattinn einan, heldur marga aðra skatta og tolla. Ég held satt að segja, að það hafi oft klingt við, að það væri undarlegt, að benzínskatturinn skyldi ekki vera hækkaður. Það er vitanlega æskilegt að hafa lága skatta, en í litlu þjóðfélagi, sem vill lifa yfir efni fram, eins og við Íslendingar, sem viljum eyða meira, en við öflum, er ekki gott að forðast það að leggja á borgarana óvinsæla skatta og tolla.

Hv. þm. Str. (HermJ) var að tala um fjármálastefnu. Honum verður nú ákaflega tíðrætt um fjármálastefnuna upp á síðkastið, en skyldi hann nú, hv. þm. Str., vera laus við það að hafa 1942 markað þá stefnu í framvindu kaupskrúfunnar, sem er ein orsök vandræðanna í dag. Hv. 4. landsk. þm. (BrB), sem gleðst mjög, sem vonlegt er, af liðveizlu hv. þm. Str., sagði, að þetta væri sama og lækkun á gengi, og vitanlega er öll dýrtíð lækkun á krónunni. Það veit hvert barnið, en núv. ríkisstj. hefur ekki búið til nema fæst af þeim l., sem íþyngja fjárlögum nú og í fyrra og hitteðfyrra. Það er því alveg ranglátt að tala um, að hún hafi einhverja sérstaka ófarnaðarstefnu upp tekið. Hún hefur reynt að verjast stórum áföllum meðan unnt er. Hún er að reyna að koma í veg fyrir það, að framleiðslan stöðvist, en það krefst fórna, eins og allar ríkisstj. mundu komast að raun um. Hv. þm. Str. sagði mig lítinn þátt hafa átt í því að koma með góð ráð í þessum efnum. Ég man nú ekki til þess, að hann hafi komið með neitt úrskerandi í þessum málum, því að ég tel ekki verzlunarmálafrv. hans eða hans hv. flokksbræðra neitt aðalatriði fyrir þjóðarbúskapinn. Það gæti orðið til þess að gera skömmtunina eilífan augnakarl í þessu landi, alveg eins og innflutningshöftin urðu til við að koma á annarri skipun innflutningsmálanna.

Í tilefni af því, að hv. 4. landsk. minntist á það, að þessi ríkisstj. hefði hækkað fjárl. um á annað hundrað milljónir króna, þá skal ég benda á það, að hann á sinn þátt í því, því að um 100 millj. kr. á fjárlagafrv. nú eru beinlínis sökum dýrtíðar, þar af um 20 millj. kr., sem hengdar eru um háls þjóðarinnar af hv. 4. landsk. Fiskábyrgðarl. voru sett án þess að séð væri fyrir eyri til að standa undir þeim. Þar eru 20 millj. kr. og svo 80 millj. kr. í alls konar niðurgreiðslur, svo að sé þetta þannig sem hv. 4. landsk. sagði, þá hefur ríkisstj. aðeins hamlað á móti þeim myllusteinum, sem hv. 4 landsk. byrjaði að hengja um háls ríkissjóðs með fiskábyrgðarl., sem hann bar fulla ábyrgð á. Þegar á að henda öllu þessu á bak núv. ríkisstj., þá verður að minna á þetta alvarlega spor, svo að ef um syndir er að ræða, þá dregst núv. ríkisstj. m.a. með syndir hv. 4. landsk. Og fleira er það, sem hann átti þátt í að hlaða á ríkissjóð, t.d. skólalögin, sem árlega kosta um 35 millj. kr., og geri ég þó ráð fyrir, að fólk liði eins vel án slíkra skólalaga. En þessir menn, sem nú eru að gagnrýna ríkisstj., verða að gæta að því, að hér er um að ræða afleiðingar þeirra eigin gerða, svo að þeir geta ekki sett sig í neinn dómarasess hvað tolla og skatta snertir, því að þeir eiga sinn þátt í útgjöldunum, sem þarf að mæta, og hefði hv. 4. landsk. ekki átt að undrast á þessu frv. því að blað hans boðaði 30–40 millj. kr. skattaálögur, þótt ekki yrði úr því. Þegar ég nú á þátt í því að reyna að halda þessu öllu gangandi og ekki er gert mikið af þeim sterku hér í þá átt, þá er það meðal annars af því, að ég veit, að aðrar leiðir til lausnar á annan veg eru, eins og Alþingi er nú samansett, alveg útilokaðar. Hv. 4. landsk. minntist á gengislækkun. Er hann nú t.d. reiðubúinn að fara þá leið? Vill hann losa fjárlagafrv. við fiskábyrgðina með gengislækkun. Það mætti með gengislækkun og líka lækka tollana. Ég spyr nú hv. 4. landsk.: Mundi hann vilja fara þessa leið? Hún hefur sína kosti og sína ókosti, en ég veit að það eru stórir hópar hér á Alþ., sem mundu reka upp ramakvein, ef slíkt ætti að lögfesta, en það væri gott að fá álit hv. 4. landsk. — Annað er til, og það er, ef öllum verklegum framkvæmdum væri frestað í eitt ár, þá má slaka til sem nemur þeim 30 millj. kr., sem fara eiga til verklegra framkvæmda, sem flestar eru þannig, að þær gætu að skaðlausu dregizt í eitt ár, en ég veit, að stórir hópar manna eru á móti því. Sama yrði upp á teningnum, ef hætta ætti niðurgreiðslunum. Það mundi einnig mæta mikilli andstöðu hér og um allar þessar leiðir má sameiginlega segja, að um þær fæst ekki samkomulag hér á Alþingi. Því verður að reyna að mjaka þessu áfram meðan við erum að átta okkur á því, að við erum á allt annarri bylgjulengd en þjóðirnar í kring. í bréfi frá Sölumiðstöðinni eru tilfærð orð ungs sölumanns, sem var að reyna að selja fiskafurðir austur í Palestínu, þar sem hann segir, að það sé ekki gaman að selja vöru, sem er dýrari en það, sem allir aðrir bjóða. En þetta eigum við nú við að stríða með flestar okkar vörur.

Mér þykir rétt að láta þessar aths. koma fram, því að það er engin ástæða til þess fyrir mig að taka við sérstökum ákúrum um fjármálastefnuna frá hv. þm. Str. og hv. 4. landsk,. án þess að segja nokkur orð til andsvara.

Eiríkur Einarsson: Herra forseti. Ég játa það, að þetta frv. lýtur að máli, sem má kalla stórbrotið, og ef það nær fram að ganga, verða vafalaust mörg orð töluð um rétt þess og þýðingu. Ég skal þó láta mér nægja að segja aðeins örfá orð. Ég vildi aðeins á sérstakan hátt gefa bendingu um það til hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, að hér er um að ræða hækkun á benzíni, sem er töluvert almenn, þar sem lítt kemur til greina, á hvaða benzíni á að hækka skattinn. Því að það er talsvert atriði, að skatturinn komi fyrst og fremst til með að mæða á þeim bifreiðum, sem eru einn þátturinn í hinu sællífa sportlífi Íslendinga, þ.e. drossíunum, sem eru ákaflega margar og þola satt að segja talsvert háan benzínskatt, og þegar þurrð er í ríkissjóði, þá má hækka á þeim. Að því leyti, ef einhver slík flokkun gæti átt sér stað, þá væri ég hlynntur frv. En svo eru önnur farartæki, sem allt annað er um að segja, og á ég þar við þau flutningatæki, sem flytja nauðsynjavörur, og kemur það bæði niður á framleiðendum og neytendum, ef skatturinn er hækkaður á þeim. Ég nefni þar t.d. bíla, sem flytja eina aðalþurftavöru kaupstaðanna, mjólkina. Ef hækka á skattinn á benzíni til slíkra nauðsynlegra farartækja, þá er um alvarlegt mál að ræða og dýrt að fara þessa leið, sem frv. gerir ráð fyrir, og þarf þetta ekki skýringar við. Þá vildi ég spyrja hv. n., sem fær málið til meðferðar og hv. þdm., hvort þeir geti ekki hugsað sér, að skatturinn á benzíni hækki eða lækki eftir því, hvernig farartæki er um að ræða, hvort um er að ræða nauðsynjaeyðslu eða sporteyðslu, og þetta álít ég stórvægilegt atriði, sem varðar mjög dýrtíðina og veldur erfiðleikum fyrir framleiðendur og neytendur, ef skilningur er ekki sýndur á þessu.

Annað atriði er það, að frv. er mýkt með því, að miklu af þessari fjáröflun eigi að verja í brúasjóð og til viðhalds vega, því að hluta skattsins á að verja til þessa samkv. 4. gr. Það, sem á að renna í brúasjóð, mun fyrst og fremst fara til Þjórsárbrúar, enda er nú svo ástatt, að við hana verður að ljúka, og er frv. réttlætanlegt frá því sjónarmiði, þótt ekki verði flokkuð þannig hækkunin, að minna mæði á hinum daglegu pílagrímsferðum um Krýsuvíkurveginn og öðrum slíkum ferðum, en frv. er náttúrlega borið fram af illri nauðsyn, og verða má, að það svari nauðsynlegum tilgangi. — B-liður 4. gr. er afsleppt og þreytulegt orðatiltæki. Vegamálastjóri hefur kvartað undan því, að það skorti fé til viðhalds veganna, en ekki má heldur loka augunum fyrir nauðsyn nýrra vega, þar sem þörf krefur. Hér var einu sinni settur lagabálkur eftir rannsókn fagmanna um samgöngur Rvíkur og Suðurlands, en ekkert hefur úr því orðið nema undandráttur og málseyðing. Þarna eru sem sagt til staffírug l., en ekkert er gert til að framkvæma þau, og svo kemur þetta fry. um viðhald og umbót veganna. Það er treyst á það, að þolinmæði Íslendinga sé svo takmörkuð, að það komi af sjálfu sér, að menn þreytist og andstaðan hverfi. En ég hefði álitið óforsvaranlegt af mér, ef ég minntist ekki á, að þarna er ýmislegt, sem mér þykir auðsætt, að mætti fara betur út í. Ég nefni t.d. b-lið 4. gr. Það væri engu síður þörf á að verja verulegu fé til nýbyggingar á þjóðvegum, eftir því sem nauðsyn krefur. Líku máli gegnir um brúargerð, en óþarft er að taka fram, að það sé í 1. flokki að ljúka við Þjórsárbrú.

Ég lofaði því í upphafi að tala ekki langt mál, og tel skyldu mína að standa við það. Ég mun ekki treystast til annars, vegna þess að frv. er borið fram af illri nauðsyn, en að ljá því fylgi mitt að meira eða minna leyti. En mér er þá ekki heldur sama, hvernig ýmislegt fer þar úr hendi, t.d. í sambandi við undanþágur og hvernig fénu er varið. Við höfum allt of lengi unað svo lífinu, að framkvæmd þessara mála væri eins og hráskinnsleikur og undir tilviljun komið, hvernig starfshögum landsmanna væri háttað. En því færri peningar, því nauðsynlegra að ákveða af viti, hvað á að sitja fyrir og hvað má bíða, og það þarf að ákveða af Alþingi, engu síður en efnalítill og hugall bóndi tekur ákvarðanir um hvað eina að vandlega yfirlögðu ráði, er hann býr sig undir veturinn að hausti til.

Ég skal svo standa við orð mín um að tala ekki lengur og láta máli mínu lokið.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Ég skal nú ekki blanda mér mikið inn í umr. hæstv. fjmrh. og hv. þm. Str., en samt þykir mér rétt að benda þar á einstök atriði í fáum orðum.

Það er dálítið gaman að því, þegar sjálfstæðismenn og sósíalistar eru að brigzla hvorir öðrum um það, að þessum og þessum l. hafi hinir komið á. Hæstv. fjmrh. segir t.d., að sósíalistar eigi fræðslulöggjöfina, en við setningu hennar, eins og annarra slíkra þrætulaga, var samstjórn þeirra að verki, og ekki er vitað, að mikill ágreiningur hafi verið á milli þeirra þá.

Hæstv. fjmrh. sagði, að hin mikla verðhækkun, sem hófst árið 1942, væri hv. þm. Str. að kenna og stefnu hans. Ég vil nú minna hann á, að það var fullkomið samkomulag um það við herstjórnarvöld þau, sem þá voru í landinu, að þau tækju íslenzka menn úr vinnu hjá sér áður en síldveiði og heyskapur byrjaði, svo að þau drægju ekki vinnuaflið frá framleiðslustörfunum og hægt væri að stunda þau eins og venjulega. Sem skilyrði var það sett af herstjórnarinnar hálfu, að íslenzka ríkisstj. fækkaði mönnum við „óprodúktiv“ störf, en þá unnu um 800 manns við störf eins og byggingu kvikmyndahúss á Akranesi og prentsmiðja hér í Reykjavík, sumarbústaða, t.d. í Hvammi í Skorradal og víðar o.s.frv. Og þegar ríkisstjórnin fór að ganga eftir því síðast í maí við hernaðaryfirvöldin, að þau hefðu brugðizt í þessu efni, þá var því svarað til, að ekki hefði verið fækkað af Íslendingum sjálfum í „óprodúktivu“ vinnunni. Og það var Ólafur Thors, sem setti sig á móti því, að það væri gert, og þær afleiðingar, sem það hafði, er því ekki hægt að kenna hv. þm. Str.

Þá vildi ég segja hér svolítið dæmi. Það er nú verið að úthluta í fjárhagsráði þeim vélum — og nú fyrst —, sem landbúnaðurinn þarf að nota í sumar, þar á meðal dráttarvélum af fleiri gerðum. Ein er langbezt og þar að auki nærri 1.000 kr. ódýrari, en hinar tegundirnar af sömu stærð. Þetta er fyrsta flokks tæki, sem hægt er að nota svo að segja við öll störf á heimilinu, jafnvel til þess að skilja mjólkina, með því að setja það með drifinu í samband við skilvindu. En aðeins helmingur þeirra dráttarvéla, sem á að miðla bændum, er af þessari tegund. Hinn helmingurinn er af öðrum gerðum, sem ekki er hægt að nota nema til fárra hluta og eru auk þess frá 1 og upp í 2 þús. kr. dýrari. — Þetta er sem sagt úthlutun fjárhagsráðs. Ef bændur fengju að ráða, mundu þeir ekki líta við þessum vélum. En þörfin er svo mikil, að þeir neyðast til að kaupa þær, þar sem komið er í veg fyrir, að þeir fái aðrar miklu betri. Það var þess vegna ekkert ofsagt í því hjá hv. þm. Str., að enn verði að fá að vera frjálsir að því, hvað þeir kaupa.

Hæstv. fjmrh. talaði um það, að við yrðum að „mjaka okkur áfram meðan unnt væri.“ Það er nú svo, að á meðan stj. fylgir ekki annarri fjármálastefnu, þá verður ekki komizt hjá því að leggja á skatta. Og þessi skattur er sjálfsagður, og ég vil láta í ljós, að ég er þakklátur fyrir, að þetta frv. er fram komið, og ég undrast það eitt, að hæstv. ríkisstj. skyldi ekki sjá nauðsyn þess þegar um áramót. Og það gleður mig, að dm. hafa nú séð það, sem þeir sáu ekki þá, er nafnakall gekk um svipaða till., er þeir töldu óþarfa og felldu. Hins vegar er það vitanlegt, að benzínskatturinn kemur hart niður á framleiðslunni. Hefði frv. okkar 3. landsk. um landsverzlun með benzín og olíu verið samþ. á sínum tíma, hefði verið hægt að lagfæra það. En síðan er búið að láta tugi milljóna í fjárfestingu til þess að dreifa olíum og benzíni um landið frá þremur aðilum, sem allir eiga tanka og geyma á sömu stöðunum, en möguleikar að selja mismunandi litt benzín við mismunandi verði eða hafa mismunandi verð á benzíni eftir því, hvort það fer til óþarfaeyðslu eða til notkunar í þágu framleiðslunnar. Hefði verið horfið að okkar ráði um einkasölu á benzíni, hefði þetta verið vandalaust. En nú standa benzíntankarnir úti um landið, kannske 3 á sumum stöðunum, hver við hliðina á öðrum og allt er skipulagslaust. En e.t.v. mætti láta eitt félagið selja þessa tegundina og annað hina, með því að knýja þau inn í eins konar samlag, það gæti komið til athugunar. En eins og þessu fyrirkomulagi er nú háttað, er ekki hægt að koma við misjöfnu verði. En ég vil þakka ríkisstj. fyrir þá yfirbót, sem hún gerir með ákvæðum þessa frv. fyrir það skemmdarverk, sem Sjálfstfl. og sósíalistar gerðu gagnvart brúasjóðnum, er þeir lögðu hann niður, því að nú er hann tekinn upp aftur, og þá koma möguleikar til þess að koma upp slíkum mannvirkjum, eftir því sem í sjóðinn safnast.

Þá vil ég minna á það, að það var komið svo fyrir tveimur árum, að talið var alveg nauðsynlegt, vegna millilandaflugs hér yfir landið, að hafa annan toll á flugvélabenzíni en því, sem fer til venjulegrar eyðslu í landinu. Það var litið svo á, að flugvélarnar mundu þá velja aðrar leiðir, ef benzín væri miklu hærra, tollað hér en annars staðar. Því var ákveðið, að; hækkun, sem þá var gerð í tollinum um 4–5 aura, skyldi ekki ná til flugvélabenzíns. Afleiðingin hefur orðið sú, að millilandaflugvélar hafa mjög aukið ferðir yfir okkar land. Ég vil því biðja hv. n. að athuga þetta, hvort vogandi. sé að hækka tollinn á flugvélabenzíni vegna millilandaflugsins.

Að öðru leyti mun ég fylgja þessu frv., — en sem sagt, ég tel, að athuga beri þetta með flugvélabenzínið og eins hitt, hvort hægt væri að selja benzín með tvöföldu verði, en þá mætti skatturinn vera meiri og ekki hækka. um 22 aura, heldur um 60–70 aura á benzíni til lúxusbíla. Enn fremur tel ég, að athuga beri af n., hvort möguleikar séu á að selja benzín líkt og áburð með sama verði um land allt. Það væri mjög æskilegt, væri það mögulegt. Það hlýtur að liggja fyrir hjá olíufélögunum, hve mikið benzín hefur verið selt frá hverri stöð og við hvaða verði, og ætti að verð auðvelt reikningsdæmi að leysa, hvaða meðalverð þarf að fá. En með þessu mundi vera mjög létt á vörubílunum fyrst og fremst, sem annast flutninga út um landið, því að verðmunur allur hvílir þyngst á þeim, en með því að jafna verðið, má flytja þungann yfir á fólksbifreiðarnar, sem eru flestar hér í Rvík og benzínið hér ódýrast í landinu.

Þetta þrennt vildi ég benda n. á til athugunar, enda þótt málið sé flutt af n., og vona, að hún taki þetta til athugunar á milli 1. og 2. umr.

Bernharð Stefánsson: Herra forseti. Ég skal ekki lengja mikið umræður um þetta mál. Enda þótt umræður hafi að talsverðu leyti snúizt hér um hið almenna fjármálaástand og hverjir þar beri ábyrgðina, þá mun ég ekki fara út í það að neinu ráði. Hæstv. fjmrh, taldi, að hv. þm. Str. bæri þarna sökina á þeirri þróun, sem hófst árið 1942. Jú, ég man eftir, því, að hv. þm. Str. beitti sér fyrir því árið 1942, að sett voru lög, sem miðuðu að því að stöðva hækkanir á verðlagi í landinu. L. mættu mikilli mótspyrnu, en ég býst við, að hægt hefði verið að halda þeim uppi, ef aðrir stuðningsmenn þeirra hefðu staðið við það, sem þeir höfðu samþ. Og ég býst líka við, að það væri allt annað fjármálaástand nú, ef stefnu hv. þm. Str. hefði verið fylgt.

Þá verð ég að segja, að mér þykir hart að heyra ráðh. úr fyrrv. ríkisstj. deila mjög á núv. ríkisstj. fyrir fjármálastjórn hennar. Það er eins með ríkisstjórnir eins og ábúendur á jörð, þar sem sonur tekur við af föður, að fjármálastjórn hverrar ríkisstj. markast af því hvernig fyrirrennari hennar hefur staðið í stykkinu. Aðstaða hæstv. ríkisstj. nú er svipuð og sonar, sem hefur tekið við af föður sínum, — faðirinn tekið við auð fjár,en eytt honum og sóað og skuldbundið búið við alls konar útgjöld, sem sonurinn á örðugt með að rísa undir, og ekki nóg með það, heldur vanið hjúin þar að auki á ýmislegt, sem ekki er búinu til hagsbóta a.m.k. Svo getum við hugsað okkur að faðirinn komi í hornið hjá syni sínum, og þá lætur hann sig ekki muna um að vera með sífellt nöldur og kenna honum allt, sem aflaga fer. En ég skal nú ekki fara lengra út í þetta.

Hér er til umræðu frv. um bifreiðaskatt, en ekki um almenna fjármálastjórn. Þess vegna hef ég kvatt mér hljóðs til að lýsa því yfir, að þótt við engin fjármálavandræði hefði verið að stríða í svipinn, þá hefði ég verið með frv., sem gengur í þessa átt sökum þess að ég hef enga trú á því, að við Íslendingar höldum uppi góðu vegakerfi nema með því að láta samgöngurnar sjálfar bera nokkurn kostnað af því. Ég hygg það sé víðast hvar svo meðal annarra þjóða. Járnbrautir eru víða gróðafyrirtæki, sem rekin eru af gróðafélögum. Annars staðar eru ríkisjárnbrautir, og eftir þeirri reynslu, sem við höfum af slíkum rekstri hér á landi, er við búið, að þær beri sig ekki eins vel. En þrátt fyrir það, sem sagt, þótt aðrar þjóðir hafi járnbrautir og noti því vegi tiltölulega minna, en hér er gert, þá hafa þær skatt á benzíni og ekki lægri en við. Ég skal játa, að mér er ekki kunnugt um, hvað þessi skattur er hár í dag hjá ýmsum þjóðum. En fyrir nokkrum árum, er ég var í fjhn. þessarar hv. d., lágu fyrir skýrslur um þetta efni, og ég man ekki betur, en þá þegar væri benzínskatturinn í Danmörku 35 aurar á lítra. Nú erum við 30 sinnum færri en Danir, en búum á þrisvar sinnum stærra landi, sem auk þess er mjög fjöllótt og illt yfirferðar. Mér er því óskiljanlegt, hvernig við eigum að geta komizt hjá því að hafa eitthvað hærri toll á benzíni en Danir t.d. Ég get því fyrir mitt leyti tjáð ylgi mitt við þetta frv. í aðalatriðum. Ég álít, að það fyrirkomulag verði að vera, að samgöngur borgi sjálfar vegaviðhaldið, en get hugsað mér, að ríkissjóður greiði nýbyggingu vega með sérstökum framlögum. Þessi skoðun mín byggist á því, að notkunin á veginum skapar viðhaldsþörfina og þess vegna eðlilegt, að notendurnir haldi veginum við.

Ég óska eftir, að athugaðir verði möguleikar á því, að vissar bifreiðar fái undanþágu frá þessum skatti. Þar hef ég í huga bifreiðar, sem flytja vörur fyrir almenning, og slíkri undanþágu væri ég samþykkur, ef hægt væri að koma henni við. Ákaflega mikið af bifreiðaakstri hér er í sambandi við skemmtiferðir. Það má að vísu segja, að það sé ekki óþarfi að skemmta sér, en það er svo margt hér, sem verður að skattleggja, og hvers vegna má þá ekki skattleggja þessar skemmtiferðir eins og annað, t.d. ferðapelann, sem aldrei þykir of hátt tollaður? Og sannleikurinn er sá, að skemmtiferðafólki er ekki svipað því eins tilfinnanlegt að greiða ofur lítinn skatt af benzíninu eins og tollinn af ferðapelanum. (HV: Og kannske jafnhátt.) Það sagði ég ekki. Þessi skattur er ekki heldur svo hár, að hann hafi stórkostleg áhrif á ferðakostnað, því að benzínið er ekki aðalkostnaðurinn við útgerð bifreiða. En hvað sem um þetta er að segja, þá hef ég ekki trú á, að þessi fámenna þjóð fái haldið uppi góðu samgöngukerfi í þessu landi nema hún fái að minnsta kosti viðhaldskostnaðinn greiddan af samgöngunum sjálfum.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Mér datt í hug út af ræðu þm. Eyf., þegar hann talar um, að rétt sé að skattleggja benzín vegna þess, hvað ferðapelinn er hátt skattaður, að ekki væri þá úr vegi að skattleggja bara útsýnið eða vegina sjálfa. Það er t.d. nokkuð algengt í Bandaríkjunum, að brýr séu skattlagðar. Í þessu frv., sem fjhn. hefur flutt eftir beiðni ríkisstj., eins og venja er, án þess að nm. séu bundnir með afstöðu sína til málsins, er ekkert nýtt nema benzínskatturinn. Hins vegar er ég á móti þessum skatti og álít alla skattaaukningu vera ranga fjármálastefnu, því að það er ekki hægt að leggja á skatt öðruvísi ,en þeir komi fram sem aukin dýrtíð. Ég vil því taka undir þau ummæli, að það sé hreint öfugmæli að leggja á aukna skatta til þess að halda niðri dýrtíðinni í landinu. Þessi skattur er, eins og allir aðrir skattar nú upp á síðkastið, lagður á til að halda niðri dýrtíðinni, en í raun og veru er hann ekki annað, en bein — þó að vísu grímuklædd — gengislækkun. Þeir menn, sem kjósa því þessa stefnu heldur en að láta krónuna nú þegar fá eðlilegt gengi, svo að útvegurinn geti staðið undir sér, þeir vita ekki, hvað þeir gera. Ég veit ekki, hvort þessi benzínskattur er í sjálfu sér nokkuð verri en aðrir skattar, og það getur vel verið, að hann sé ekki óeðlilegur, þó að þess verði að gæta, að mikið af okkar benzíneyðslu er af nauðsyn og í beinu sambandi við atvinnuvegi okkar. Hafi benzínskatturinn verið of lágur, hefði átt að vera hægt að lækka aðra skatta um leið og hann var hækkaður, t.d. þá skatta, sem notaðir hafa verið til vegaviðhaldsins eða eru samsvarandi þeim, ef hugmyndin er, að þessi skattur verði notaður til þess.

Annars mun ég ekki setja fótinn fyrir þetta frv., eins og högum er háttað, en taldi rétt að láta þessa skoðun mína í ljós. Hins vegar getur vel svo farið, að ég setji að skilyrði fyrir fylgi mínu við frv., að benzínskömmtunin verði afnumin, því að hún hefur aldrei komið að neinum notum, heldur aðeins verið kostnaður á ríkinu.

Brynjólfur Bjarnason: Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Hæstv. fjmrh. sagði, að það væri ekki hægara verk að vinna, en finna að þessu frv. Þetta er rétt hjá ráðh, og sömuleiðis viðurkenning á því, að rökin, sem fram hafa komið gegn frv., eru rétt. — Hæstv. ráðh. viðurkenndi líka, að þetta frv. væri ekki borið fram vegna vegavíðhaldsins, heldur til þess að afla ríkissjóði tekna til að jafna hallann á fjárl. En sannarlega er þetta frv. ekkert bjargráð fyrir ríkissjóð, því að það verður til þess, að nærri allt verðlag hækkar í landinu og þar með landbúnaðarafurðir líka. Þetta er því ekkert bjargráð, heldur kallar bráðlega á enn nýjar álögur.

Hæstv. ráðh. hélt áfram að afsaka stj. fyrir, hvernig fjárhag landsins er komið og afgreiðslu fjárl., en gat þó ekki mælt á móti neinu atriði, sem sagt hefur verið um þau efni. Hann gat ekki mælt á móti því, að vöruverð hefði hækkað um 50% vegna ráðstafana ríkisstj. Ekki heldur að niðurgreiðslurnar, sem voru 16 millj. í tíð fyrrv. stj., hefðu orðið 56 millj. á síðasta ári og væru nú áætlaðar á fjárl. 75 millj. Þá gat ráðh. ekki mælt á móti því, að kostnaður við ríkisbáknið hefði mjög aukizt í tíð núv. ríkisstj., en þessi hækkun mun nema, miðað við 1947, á stjórnarráðinu um nál. 25%, dómgæzlunni um 12%, opinberu eftirliti um 22%, og áfram mætti telja. Þessar hækkanir hafa allar orðið síðan 1946, en svo hækkar þetta enn meir á árinu 1948. Hver ber ábyrgðina á þessum hækkunum nema núv. ríkisstj.? (BSt: Sumir segja fyrrv. ríkisstj.) Hverjir hafa greitt atkv. með þeim ráðstöfunum, sem núv. ríkisstj. hefur gert? Hæstv. ráðh. hefur talað um, að fjárl. væru svo sem raun ber vitni vegna lagasetninga í tíð fyrrv. ríkisstj. En þetta er algerlaga rangt, því að eins og ég hef sýnt fram á, hafa allar aðgerðir núv. ríkisstj. miðað að aukinni dýrtíð, hvort sem þær hafa átt að gera það eða ekki. — Það er oft minnzt á fræðslulöggjöfina, sem sett var í tíð fyrrv. ríkisstj., sem einhvern gífurlegan lið á fjárl. þessa árs. Það er nú auðvitað ekki að spyrja að því, að fyrst af öllu á að spara skólahald eftir stefnu núv. stj. En allt um það. Sannleikurinn í þessu máli er sá, að allt skólahaldið kostar um 30 millj. Og mér finnst nú satt að segja ofrausn að eigna mér alla fræðslu í landinu, þó að ég hafi átt þátt í fræðslul. 1946, sem ég er mjög ánægður yfir að eiga hlut í. En hækkunin við nýju fræðslulögin er samtals 6 millj. kr., og þess vegna er ekki hægt að segja annað, en það sé einkennileg meðferð á staðreyndum, að þessi löggjöf hafi skapað glundroða í fjármálunum.

Ráðh. varpaði þeirri spurningu til mín, hvort ég væri reiðubúinn að samþ. gengislækkun. Það hefur verið framkvæmd allt að 25% gengislækkun í tið núverandi stjórnar, þó að óbeint sé, og þessari gengislækkun hef ég verið á móti. Ég er líka andvígur beinni gengislækkun, vegna þess að hún er ekki nema gálgafrestur, og mun sækja fljótlega í sama farið aftur, ef ekki er breytt um stefnu. Annars er það mál út af fyrir sig. Sannleikurinn er sá, að fjármálum landsins er svo illa komið vegna stefnu núv. stj. bæði í innanlandsmálum og viðskiptapólitíkinni, sem rekin er við önnur lönd. Það er t.d. mjög einkennileg afstaða hjá ríkisstj., þegar hún gat losnað við dýrtíðarábyrgðina fyrir sjávarútveginn með því að láta útgerðarmenn hafa lítinn hluta af þeim gjaldeyri, sem þeir öfluðu, að hafna því boði og verða nú að greiða stórar upphæðir af þeim ástæðum.

Þm. Eyf. var að hlaupa undir baggann hjá hæstv. ráðh. og verja þetta frv., en ekki gat hann þó gert það nema að halla á fyrrv. ríkisstj., og er því vafasamt, hvort hann gerði ráðh. stóran greiða, þar sem hann var stuðningsmaður fyrrv. stj. En hvað er það, sem þm. Eyf. er að ráðast á hjá fyrrv. stjórn? Eru það kannske kaupin á nýsköpunartogurunum, sem nú afla um 100 millj. kr. í erlendum gjaldeyri? Hvernig væri ástandið nú, ef þeir væru ekki til. Nei, það er áreiðanlegt, að hefði flokkur þm. Eyf. fengið að ráða, þá væri enn verr komið en nú er, því að þá væri skollið hér á bæði atvinnuleysi og kreppa.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 10:1 atkv. og til fjhn. með 7:5 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: BrB, HV, JJós, LJóh, PZ, ÁS, BBen.

nei: GJ, GÍG, ÞÞ, BÓ, BSt.

SÁÓ greiddi ekki atkv.

4 þm. (EE, HermJ, StgrA, BK) fjarstaddir.

4 þm. gerðu grein fyrir atkv.:

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Ef það er almennur deildarvilji fyrir því og það þykir hafa einhverja þýðingu, að málið fari í n., skal ég ekki leggjast á móti því og segi já.

Þorsteinn Þorsteinsson: Þetta frv. er flutt af n., og það er ávallt venja í slíkum tilfellum; að mál séu athuguð af n. á milli umr., ef ástæða þykir til, þannig að þá athugi n. mál, sem hún flytur. Og það mun viðkomandi n. gera í þessu tilfelli, þó að málinu sé ekki með atkvgr. vísað til n. Og það hefur ekki verið venja að vísa til n. málum, sem n. hefur flutt, og ég segi nei.

Björn Ólafsson: Það liggur hér ekkert fyrir nýtt í málinu eftir umr. um það. Það hafa ekki heldur komið neinar brtt. fram við það, og ég sé þess vegna ekki neina ástæðu til þess, að máli þessu verði vísað til n., þegar svona er komið. Enda sé ég ekki, að málinu þurfi að flýta svo mikið, að það sé nauðsynlegt að hafa um það allar umr. hér í hv. þd. í dag og setja það í n., því að ég geri ráð fyrir, að það verði ekki tekið fyrir til meðferðar í hv. Nd. á morgun. Ég segi því nei.

Bernharð Stefánsson: Ég lít svo á, að þó að frv. að vísu sé flutt af meiri hl. fjhn., en ekki n. allri, þá sé sjálfsagt mál, að hv. meiri hl. n. kveðji einnig hv. minni hl. n. til skrafs og ráðagerða, þegar n. athugar málið á milli umr., og sé ég ekki ástæðu til að vísa frv. sérstaklega til n. og segi því nei.

Of skammt var liðið frá 1. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 12 shlj. atkv.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Deildin vísaði þessu máli aftur til n. á síðasta fundi. Að vísu lágu ekki neinar brtt. fyrir við frv., en komið hefur fram frá hv. 1. þm. N-M. (PZ) bending um það, að nauðsynlegt mundi vera að gera breytingu á þessu, vegna þess að engin undanþága væri ætluð fyrir benzín til flugvéla, en eins og kunnugt er, hefur verið gerð undanþága á benzínskatti til flugvéla með tilliti til útlendra flugvéla, sem hér taka benzín á Keflavíkurflugvelli. Það er upplýst í málinu, að samkv. 7. gr. bifreiðal. er til staðar slík heimild í l., og hefur hún ekki fallið niður við þá breyt., sem hér er gerð. Upphaf 7. gr. l. hljóðar þannig:

„Fjmrh. getur með reglugerð sett ákvæði um endurgjald á innflutningsgjaldi af benzíni, ef sönnur eru færðar á, að það hafi ekki verið notað eða verði ekki notað til bifreiða“.

Fjmrh. benti mér á, að þessi heimild væri til staðar og hefði verið notuð í því skyni, sem hér er um að ræða. Af þessari ástæðu og af því, að engar till. lágu fyrir n., skilar n. ekki neinu áliti í þessu sambandi, en óskar gjarna að fá yfirlýsingu um það frá hæstv. fjmrh., að þessi heimild, sem hér er í l., verði notuð í sambandi við undanþágu á skatti fyrir flugvélabenzíni.

Hermann Jónasson: Herra forseti. Það er viðvíkjandi þessu sama ákvæði, sem hv. 1. þm. Reykv. var að tala um. Þessi sama undanþáguheimild snertir jafnframt benzín til notkunar á landbúnaðarvélum, þ.e.a.s. öðrum tækjum en bifreiðum. Þessi heimild frá 1932 hefur verið notuð, ef ég man rétt, 1933. En þessi undanþáguheimild nær að vísu ekki nema til annarra tækja en bifreiða, þannig að jeppar falla undir þennan skatt, sem hér er verið að leggja á, þó að þeir séu undanþegnir þeim skatti, sem minnzt er á í c-lið þessa frv. Látum svo vera, að þessi undanþáguheimild nái ekki til þeirra, þótt notaðir séu til landbúnaðarstarfa. En ákvæðið í l. frá 1932 er aðeins heimild, og um það hefur verið gerð reglugerð, sem hefur verið framkvæmd til þessa, og gildir sama um þetta atriði og flugvélabenzínið í þessu sambandi. Það, sem á veltur, er því þetta: Verður heimilað að nota áfram reglugerðina frá 1933 áð því er snertir landbúnaðarvélar, eða verður það ekki? Ef ég fengi yfirlýsingu um það, að heimildin frá 1932 verði notuð og reglugerð nr. 75 frá 1933 standi óhögguð, er ástæðulaust fyrir mig að koma með brtt. að því er þetta snertir. Væri því æskilegt að fá um þetta yfirlýsingu frá fjmrh. samhliða því sem hann gefur yfirlýsingu um flugvélabenzínið.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Mér hefur verið bent á, að orðalag b-liðar 4. gr. frv. væri ekki nógu ótvírætt, en það hljóðar þannig:

„Til viðhalds og umbóta akvegum skal verja fjárhæð, sem svarar 21 eyris innflutningsgjaldi af hverjum lítra af benzíni og tekjum samkvæmt b-e-lið 1. gr.“

Mér var bent á, að þetta kynni að verða skilið þannig af einhverjum, að til vegaviðhalds og umbóta á akvegum mætti ekki verja meiru, — að það væri takmarkað við þetta. En með því að það var ekki meining mín, þegar frv. var samið, vildi ég umbæta þetta orðalag þannig, að fyrir orðin „skal verja“ komi orðið:

renni. Þá mundi liðurinn hljóða þannig: Til viðhalds og umbóta akvegum renni fjárhæð, sem svarar 21 eyris innflutningsgjaldi af hverjum lítra af benzíni og tekjum samkvæmt b- e- lið 1. gr. — Þá getur enginn misskilið þetta þannig, að aldrei megi yfir þessa fjárhæð fara. Mun ég leggja fram við þetta skriflega brtt., til þess að taka af öll tvímæli í þessu efni.

Eins og hv. frsm. benti á í sambandi við flugvélabenzínið, stendur 7. gr. óhögguð í þessu frv., eða réttara sagt: Þó að þetta frv. verði samþykkt, stendur 7. gr. l., eins og hún hefur verið í l. frá 1932, óbreytt. Og það er ekki tilætlun stj. að breyta neitt til að því er skattlagningu á flugvélabenzín snertir.

Að því er snertir aðrar undanþágur, sem hv. þm. Str. minntist á, vil ég taka fram, að ég get ekki lýst yfir öðru en því, að hafður verður hinn sami háttur á og hingað til gagnvart framkvæmd 7. gr. l. frá 1932. Stendur ekki til að breyta þar neitt um, og sú framkvæmd þeirra laga, sem átt hefur sér stað; mun þess vegna eiga sér stað framvegis meðan ég hef umsjón með þeim málum. — Ég vænti þá, að þeir, sem bera það fyrir brjósti, að flugvélabenzín falli ekki undir þetta, geti látið sér nægja það, sem fram hefur komið í þessu efni, og að d. fallist á þá brtt., sem ég ætla nú að afhenda hæstv. forseta.

Forseti (BSt): Mér hefur borizt svohljóðandi brtt. frá hæstv. fjmrh. við frv. til l. um breyt. á l. nr. 84 6. júlí 1932, um bifreiðaskatt o.fl.:

„Við 4. gr. Fyrir orðin „skal verja“ í b-lið kemur: „renni“.

Þessi till. er borin fram af ráðh., og þarf að því leyti ekki afbrigði, en þar sem till. er skrifleg, verður að veita afbrigði, sem ég leita hér með.

ATKVGR.

Afbrigði um skrifl. brtt. (sjá þskj. 666) leyfð og samþ. með 13 shlj. atkv.

Forseti (BSt): Ég vildi benda ráðh. á, að ég vildi helzt af öllu láta prenta till., áður en hún kemur til umræðu. (Fjmrh.: Ég þakka hæstv. forseta ábendinguna og tel rétt að láta brtt. bíða til 3. umr.)

Eiríkur Einarsson: Ég tel, að maður sé ekki síður skyldugur til þess að leiðrétta sín eigin orð en annarra, ef maður kemst að þeirri niðurstöðu, að þau gætu verið réttari á annan veg, en þau voru mælt. Á ég við það, að þegar ég talaði um þetta mál í gær og talaði um, hvers vegna þetta frv. væri borið fram, komst ég víst svo að orði, að það væri flutt vegna illrar nauðsynjar. Ég sagði það þá og tel það að vísu rétt hvað frv. snertir að nokkru leyti, en ekki að öllu leyti, því að þótt benzínskatturinn sé hækkaður vegna skemmti- og sællífistækja, lúxusbílanna, tel ég það ekkert illa nauðsyn, og ríkissjóður þarf alltaf tekjur, svo að ég álít það ekki illa nauðsyn, þó að benzínskatturinn sé hækkaður þar. En það var hitt atriðið, sem ég minntist á í gær og vil nú aðeins hafa orð á aftur, þó að það verði kannske þýðingarlaust, og það er sá hluti benzínskattsins, sem lendir á nauðsynjatækjum, þ.e. búvélum og flutningavélum og fleiri tækjum, sem flest eru hin mestu nauðsynjatæki, og tek ég t.d. mjólkurflutninga til neyzlu höfuðstaðarbúa. Ég tel það því mjög mikil vandræði, ef ekki er hægt að koma í veg fyrir hækkun á benzínskattinum gagnvart þessum aðilum, því að það bitnar auðvitað á neytendum ekki síður. Ég skal nú ekki eyða fleiri orðum á þetta, en ég vil þó skjóta því til hv. n. og hæstv. ráðh., sem hvort tveggja eru af góðum vilja gerð, hvort ekki sé hægt að flokka þessa skatta nánar. Maður verður vitanlega spurður að þessu af viðkomandi aðilum, og þá er bezt að vita ákveðið, hvort þetta hafi ekki verið athugað og þá, að það sé ekki hægt.

Ég vildi láta þetta koma fram á þessum fundi og helzt að fá svör við því, hvort þetta sé gerlegt eða ekki.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Þegar ég hreyfði flugvélabenzíninu í gær, var það af þeirri ástæðu, að í 1. gr. frv. segir, að hækka eigi benzínskattinn upp í 31 eyri, en ekki sagt annað en að sú hækkun ætti við allt benzín, líka flugvélabenzín. Nú er ekki um neina undantekningu að ræða í reglugerð, svo að hæpið er, að flugvélabenzín geti verið tekið þar út úr. Þannig leit líka Alþingi á 1937, þegar samþ. voru lög um benzínskatt eða hækkun á innflutningsgjaldi af benzíni, því að þá þótti nauðsynlegt að bæta inn í orðunum „öðru en flugvélabenzíni“. Þess vegna hélt ég, að það, sem þótti nauðsynlegt 1947, væri það einnig núna. En nú upplýsir ráðh., að þetta verði nánar tekið fram í reglugerð og þess vegna þurfi ekki upptalningin að vera fyllri, en hún er hér.

Ég bað n. að athuga möguleika á að selja benzín um allt land á sama verði. Það eru nú ekki nema þrír eða ef til vill fjórir aðilar, sem selja benzín í landinu, svo að ekki er í marga staði að snúa sér um upplýsingar. Jafnframt er vitað, að 4/5 af öllum fólksbifreiðum, svokölluðum lúxusbifreiðum, sem við erum allir sammála um að hækka benzíntollinn við, eru í Rvík. Ef því hægt væri að selja benzín á jöfnu verði á öllu landinu, mundi afleiðingin af því verða sú, .að hækkunin kæmi frekar niður á þessum bifreiðum en vörubifreiðunum, sem dreifðari eru um landið. Þetta hefur hv. n. ekki athugað eða hefur a.m.k. ekkert látið frá sér heyra um þetta atriði, sem ég vildi þó gjarnan fá upplýst, hverjir möguleikar eru á.

Þá bað ég einnig hv. n. að athuga, hvort ekki væru möguleikar á að selja benzínið með tveimur lítum, annað handa lúxusbifreiðum og hitt handa þeim bifreiðum, sem við framleiðsluna vinna. Þetta veit ég, að gert er í Englandi og Svíþjóð og hefur gefizt þar vel. Þetta tel ég þó vera hæpnari leið og vil því ítreka hina fyrri.

Að öðru leyti vil ég vísa til þess, er ég sagði í gær, en þó ítreka það, að ég þakka hæstv. ráðh. fyrir að hafa tekið framlag til brúasjóðsins upp aftur. Ég gleðst yfir því, að vonandi hafa allir hv. þm. Sjálfstfl. snúið þar frá villu síns vegar, því að mikil þörf er á að brúa þær mörgu ár og fljót, sem enn eru óbrúuð, og brýr kosta meira en ætla má, að veitt verði á fjárl. eins árs. Ég vil einnig láta í ljós ánægju mína yfir því, að þeir menn, sem ekki vildu í vetur hækka benzínskattinn, eru nú farnir að sjá þörfina á því. En mig undrar jafnframt, að þeir skyldu ekki sjá það í vetur, að þörf væri á hækkun yfir allt árið. — Ég vildi sem sagt fá að vita hjá hv. n., hvort hún hefur athugað þessar leiðir og hvað hún hefur um þær að segja. Einnig væri gott að fá nánar upplýst um flugvélabenzínið.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Mér þykir rétt að gera grein fyrir afstöðu minni til þessa máls nú á þessu stigi. Ég mun fylgja þessu frv. af eftirgreindum ástæðum, þótt ég hefði kosið að hafa það mun ýtarlegra. Í fyrsta lagi tel ég þetta vera mjög réttláta skatta og tel það lýsa smásálarskap og takmörkuðu hyggjuviti að leggjast á móti þeim. Í sambandi við þetta vil ég taka fram, að þótt hæstv. ríkisstj. sæi sér ekki fært að hafa framlagið til vegasjóðs nema 4 millj., en við í fjvn. lögðum til, að það væri 7 millj., þá hefur hún nú hækkað það um 2 millj. og 600 þús. Einnig vil ég benda á, að hæstv. ríkisstj. hefur hækkað framlag til brúasjóðs um 400 þús. kr. Þetta sýnir, að brýn þörf er fyrir þennan skatt, og mér er næst að segja, að hlutaðeigendur fái hann fyllilega goldinn aftur með bættum vegum og fleiri brúm. Ég hygg, að það sé af miklum misskilningi, þegar fulltrúar dreifbýlisins hér á þingi eru að berjast fyrir því, að umbjóðendur þeirra greiði ekki þennan skatt af landbúnaðarvélum. Ég vil spyrja þessa hv. þm., hvort þeir vildu heldur litlar eða engar samgöngubætur í dreifbýlinu og hafa landbúnaðarvélarnar undanþegnar skatti eða samgöngubætur og skattlagt benzín til vélanna? Mér er kunnugt um, að jafnvel hérna á Suðurlandsundirlendinu þurfa margir bændur enn að flytja mjólkina á hestum, stundum langar leiðir, að vegunum. Það er því skammsýni að vilja ekki hækka skattinn á framleiðslunni einnig, því að miklu þægilegra er fyrir bændur að bera töluvert hærri skatt á benzínið sem ætlaður er til vegagerða, heldur en að vera vegalausir. Mér finnst því að þessi skattur eigi að koma jafnt á öll þessi aktæki og tel, að allar þessar tekjur, sem ríkissjóður fær af benzíni, bílum, gúmmíi og þvíumlíku, eigi að renna óskiptar til vega- og brúargerða, en heldur ekki meira. Væri þá ákveðin upphæð, sem ekki þyrfti um að deila, ætluð til þessara þarfa. Það er mjög eðlilegt, að ökutækin sjálf séu látin bera þennan kostnað, því að eftir því sem betri eru vegirnir, þeim mun minna slit á bílnum og minni eyðsla á benzíni. Þetta er gert t.d. í Englandi. Þar hafa þeir byggt upp alla sína steinsteyptu vegi vegna þvílíkra skatta og eru aldrei í vandræðum með framlög til vegabóta.

Hv. þm. Str. lagði að jöfnu að leggja þennan toll á ökutækin eins og farið væri að leggja slíkan toll á hráolíu til bátaútvegsins. Þetta er hinn alvarlegasti misskilningur, því að vegir bátanna sjórinn, verða ekkert sléttari, þótt tollur sé þar á lagður. Alveg það sama gildir um toll á flugvélabenzíni.

Út af þeim orðum, sem féllu við 1. umr. og snerta afgreiðslu fjárl., mætti halda margar og langar ræður. Ég vil aðeins benda hv. þm. Str. á, að þegar atkvgr. fór fram um sparnaðartill. n., voru felldar till. upp á 1 millj. og 550 þús., og var það gert með miklu og öruggu fylgi hv. Framsfl.

Þá hafa þeir framsóknarmenn borið fram kröfur til hækkunar á fjárl., sem nema hátt á aðra milljón. Mér þykir það því næsta hart, að þessi hv. þm. skuli ráðast á afgreiðslu fjárl., þar sem hans menn hafa sannarlega átt sinn drjúga þátt í því, að hækka þarf skatta til þess að koma þeim saman. Mér dettur samt ekki á hug, að hv. þm. Str. vilji láta fjármál þjóðarinnar komast í algert öngþveiti, en er mjög hissa á því, að hann skuli láta háseta sína gera slíkt sem þetta.

Ég vildi þá aðeins benda á út af till. frá hæstv. ráðh., sem að vísu er tekin aftur til 3. umr., þar sem gert er ráð fyrir, að í stað orðanna „skal verja fjárhæð“ komi „renni fjárhæð“, hvort hv. fjhn. vill ekki athuga þetta nánar. Ég mundi fella mig mun betur við, að þessu yrði alveg sleppt, þannig að b-liður 4. gr. yrði þá þannig: Til viðhalds og umbóta akvegum, sem svarar 21 eyri o.s.frv.

Ég skal svo ekki ræða þetta nánar, en ég vil láta það koma skýrt fram, að ég tel rétt, að í framtíðinni verði öllum tekjum, en ekki meiru, af benzíni, bílum, gúmmíi og þvíumlíku varið til viðhalds og uppbyggingar vega og brúa.

Hermann Jónasson: Herra forseti. Ég vil aðeins staðfesta það hjá hæstv. ráðh., frekar en orðið er, að ef þessi lagabreyt. nær fram að ganga, fellur hún að mestu leyti undir reglugerð nr. 43 frá 1943. Hið eina, sem liggur þá á milli hluta, er, hvort jeppabifreiðar eiga að heyra undir hana með lögjöfnun, eins og ég hygg, að ætlazt sé til. En það skiptir vitanlega miklu máli, að 7. gr. l. 84/1932 verði framkvæmd eins og hingað til. Það, sem lá á bak við þau lög, var að íþyngja ekki framleiðslunni. En ef sá skattur, sem hér um ræðir, ætti einnig að koma niður á henni, væru það um 1.000 kr. á hvert heimili.

Ég skal ekki lengja umr. með því að bera saman skyldleika hráolíu til bátaútvegsins og benzíns til ökutækja, en vitanlega er það alveg hliðstætt. En að því, er snertir benzínskattinn og vegina almennt, þá vil ég aðeins benda á, að auðvitað er það, sem tekið er fram í frv. um að skatturinn eigi að ganga til viðhalds og uppbyggingar vega og brúa, ekki annað en átylla, nokkurs konar hulinhjálmur til þess að gera stjórnina ekki óvinsælli en þörf er. Við vitum sem sé allir, að ekki nema örlítið brot, örfá prósent af skattinum ganga til þessara framkvæmda; hitt fer til þess að jafna hallann á fjárl. Þetta er svo ljóst og vitað mál, að ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja það nánar. Ég skal ekki vera langorður um afgreiðslu fjárl. og reyna að láta ekki þau orð falla, sem vakið gætu umr., þótt hv. þm. Barð. gæfi fyllilega tilefni til þess. Þar sem hann talaði um afstöðu mína og sumra flokksmanna minna til núv. hæstv. stj., þá er það vitað mál og hefur síður en svo verið ofaukið, að ég er andvígur þessari stjórn. En skyldi það ekki vera dálítið svipað með okkur báða? Ég hygg að minnsta kosti, að það sé algert einsdæmi, að frá form. fjvn. komi um 150 brtt. við fjárlfrv. hans eigin ráðh. Og ég er aðeins að benda á staðreyndir, en er ekki að deila á hv. þm. Þessi ósköp, sem áttu að fæðast, tóku svo langan tíma, að það er ekki búið að afgr. fjárl., þegar komið er langt fram á árið, sem mun vera einsdæmi hjá nokkurri þjóð í heiminum. Af flokki hv. þm. — en hv. þm. er form. fjvn. Alþ. — er meginið af brtt. fjvn., eftir því sem hann segir sjálfur, kolfellt. Ef hv. þm. drægi nú af þessu réttar ályktanir, — og verður nema ein ályktun af þessu dregin, sú, að það sé ómögulegt að fylgja þeirri stj., sem hann hefur unnið fyrir? Ég veit ekkert um það og skal ekki fara um það fleiri orðum. En að því er snertir þetta verk, þá efast ég ekki um, að hann hefur lagt í það sannfæringu sína. En fjármálastefnan er meginatriðið í l. hverrar löggjafarsamkundu. Og þegar fjvn. er ekki talin vera til og ríkisstj. er búin að búa til nýja fjvn. úr sjálfri sér, þá trúi ég ekki öðru, en að fleirum, en mér, finnist þetta ekki smávægilegt ósamræmi. Og þó að flokksmenn mínir fylgi henni að málum, þá stendur víst ekki ósvipað á fyrir okkur, mér og hv. þm. Barð., um þetta, nema að því leyti, að þetta verður miklu meira áberandi af því að hann er form. aðaln. þingsins. Ég veitti því sérstaka athygli um hina sérstöku afstöðu flokkanna, þegar greidd voru atkv. um brtt., að þá komu einna fyrst nokkuð margar brtt. til atkv., sem snertu stofnanir og embætti, sem Sjálfstfl. virðist gera sér mjög,annt um. Og ég vænti þess, að fleiri hafi tekið eftir því en ég, að Sjálfstfl., alveg undir forustu, sem var áberandi, hjálpaði til að fella flestar sparnaðartill. að því er snerti þessar stofnanir. Þegar þannig er ástatt, er ekki eðlilegt, að aðrar brtt., sem sýnt hafði verið fram á með rökum, að óframkvæmanlegt var að lækka, eins og t.d. framlag til flugmála. væru samþ. Það var engin ástæða til þess, að aðrir flokkar, eftir þá afgreiðslu á brtt., sem á undan var gengin og skipulögð móti form. fjvn., samþ. aðrar sparnaðartill., sem voru á minni rökum reistar. Þetta er nú saga þess máls. Og það er ekki neinn vafi á því, að ef þessi afstaða í flokknum, með form. fjvn. einangraðan og líka hæstv. fjmrh., hefði verið með öðrum hætti, þá hefði sú atkvgr. getað farið öðruvísi. Það er ég líka víss um, að hv. þm. Barð. gerir sér fullkomlega ljóst. Ég veit ekki hvaða brtt. það eru, sem komið hafa fram við frv. síðan frá því var gengið við 2. umr. þess, en hv. þm. Barð. segir, að harðast hafi verið sótt af Framsfl., að mér skildist, í eyðslu. Án þess að ég vilji fara mikið út í að ræða þetta, skal ég segja það, að það voru einstaka liðir á fjárlfrv., eins og það var eftir 2. umr., sem allir gátu séð, að ekki gátu staðizt, t.d. framkvæmd landhelgisgæzlunnar. Út af fyrir sig mundu nú fæstir telja það óþarfa eyðslu.

Ég veit, að í höfuðatriðum er ágreiningurinn milli Sjálfstfl. og Framsfl. fyrst og fremst um það, að við framsóknarmenn viljum undir engum kringumstæðum fella niður eða rýra nauðsynlega starfsemi eins og landhelgisgæzluna, sem er alveg lífsnauðsynleg fyrir flotann, eins og ástatt er á miðunum. Í annan stað viljum við ekki fella niður nauðsynlegar framkvæmdir, — og í því hefur hv. þm. Barð. verið okkur sammála, — eins og að leggja vegi, byggja brýr, leggja sveitasíma og þess háttar. Við álítum, að þessir liðir eigi alls ekki að víkja út af frumvarpinu fyrr en í síðustu lög. Við álítum, að áður en farið er að raska við þessum liðum, mætti benda á margt annað og spara marga aðra liði, sem við höfum bent á. En þegar ekki má einu, sinni fella niður skattdómaraembættið á Akureyri, — en í því er sjálfsagt að ýmsu leyti ágætur maður, sem hefur setið þarna í embættinu í 5 ár og tekið fyrir eitt einasta mál, — þá er ekki von, að vel fari í þessum efnum. Ekki má heldur tala um að fækka sendiherraembættum, sem sett hafa verið upp í sambandi við töku sjálfstæðis okkar, og án þess að fara um það fleiri orðum, er það vitað mál, að þau, eru landi og þjóð til einskis gagns. Þegar ómögulega má ræða um sparnað á þessu, sem ég nú hef nefnt, og fleiru af slíku tagi, þá er það ekkert undarlegt, þó að ráðh. Framsfl., sem ég ætla ekki að fara að svara fyrir, því að þeir munu gera það sjálfir í sambandi við fjárlumr., hafi ekki viljað fella burt þessar tiltölulega litlu framkvæmdir, sem eru nú úti um landið, — þó að við framsóknarmenn viljum ekki fella niður það allra nauðsynlegasta, sem jafnframt er framkvæmt fyrir atvinnulíf fólksins þar og ekki einungis fyrir það, heldur þjóðina í heild, til þess að fólkið haldi áfram að heyja lífsbaráttuna þar, í staðinn fyrir að hrúgast í kaupstaðina, með þeim afleiðingum, sem það hlýtur að hafa.

Ég hef reynt að stilla þessu í hóf, til þess að gefa ekki tilefni til frekari umr.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Ég heyri það, að menn eru farnir að tala um fjárl. og ég býst við, að mönnum fari að leiðast undir slíkum umr. nú. Hér liggja fyrir 3 stórmál, sem d. er að reyna að koma áfram, og ef þessum umr. heldur áfram, þá verður mér ekki rótt í sætinu.

Hv. þm. Barð. var að beina því til mín sem form. n., að athuguð væri milli umr. 4. gr. frv., sem hann tók til, b-liður. N. er búin að afgr. málið frá sér, og þar að auki skildist mér, að ætlunin væri að koma málinu út úr d. í dag, svo að ég get vel gefið skýr svör um það, hvað mig snertir, að ég mun ekki kalla saman fund til að ræða þetta atriði, nema fyrir liggi skrifleg brtt. frá hv. þm. um þetta efni.

Þá er það út af því, sem hv. 1. þm. N–M. (PZ) sagði, að n. hefði ekki látið álit sitt í ljós um tvö atriði. Annað atriðið var um jafnaðarverð á benzíni um land allt, en hitt atriðið var um svokallað benzín með tveimur litum, til þess að hægt væri að hafa betra eftirlit með sölu á benzíni með tvennu verði. Á fyrra atriðið var a.m.k. minnzt í n. Ég get ekki sagt, að það hafi komið mikið til umr., því að n. hefur ekki fundið hvöt hjá sér til þess að koma með till. í þessa átt og um hvorugt atriðið. Ég vil upplýsa það, að í sambandi við jafnaðarverð á olíu í landinu, þá tel ég, að það þurfi ekkert lagafyrirmæli til þess að framkvæma slíkt. Þetta er hrein verðlagsframkvæmd, sem hefur fordæmi í verðlagningu á olíu á undanförnum árum, þar sem t.d. hráolía hefur verið seld með jafnaðarverði um land allt, að vísu með nokkuð mismunandi verði á ýmsum stöðum, en að ákaflega miklu leyti jafnað samt sem áður, eins og þeir vita, sem hafa fylgzt með olíuverðinu, þar sem olíuverðið var hér í höfn 20 aurar, en var selt á Norðurlandi á 51 eyri, ef ég man rétt. Ég álít þetta atriði út af fyrir sig hreint framkvæmdaratriði, sem ekki þurfi að setja sérstaka lagastafi um. Ef ríkisstj. hefur áhuga fyrir því, að slík framkvæmd verði gerð, þá er henni innan handar að koma henni á. Ég verð því að beina því til hv. þm., að ef hann vill, að þessi atriði komi fram, þá verður hann að gera sér grein fyrir því, að þau koma ekki fram í n. og að hann verður að bera fram brtt. um þetta efni, ef hann telur ekki, að þessi skýring, sem ég hef gefið á fyrra atriðinu, sé nægileg.

Forseti (BSt): Út af ummælum hv. þm. um það, að umr. hefðu farið víðar en þetta frv. beinlínis gefur tilefni til, þá er það rétt, og ég vil óska þess, að menn haldi sér sem allra mest við frv. sjálft, þó að vitanlegt sé, að almennur fjárhagur ríkissjóðs kemur þessu máli við; það er ekki hægt að neita því. Það er þó æskilegt, að það sé frv. sjálft, sem aðallega er rætt um.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Án þess að ég vilji vefengja úrskurð hæstv. forseta, þá verð ég ekki ásáttur honum um það, að ég hafi í ræðu minni farið út fyrir eðli þess máls, sem til umr. er, og vil ég því ekki viðurkenna það, að ummæli hans eigi við mína ræðu. Hvort þau eiga við ræðu hv. þm. Str., um það skal ég ekki segja.

Í sambandi við ummæli hv. 1. þm. Reykv. (BÓ) í síðustu ræðu hans, þykir mér það einkennilegur stirðbusaskapur hjá honum í máli, sem verið er að ræða við hann um sem form. n. Skilur hann ekki, að það fer betur á því, að þessi orð séu felld burt úr frv.? Það er starf n. og sérstaklega form. n. að athuga m.a. orðalag á frv., sem til hans koma. Til hvers heldur þessi hv. þm., að n. séu? Heldur hann, að þær séu bara upp á grín? Hvað eftir annað kemur það fram hjá honum, að hann vill ekki athuga ábendingar, nema þær séu bornar fram skriflega. Ég skal gjarna bera fram skriflega brtt., ef hv. þm. lýsir því yfir, að hann nenni ekki að lesa þessa grein. Það er fyrst og fremst hans verk að athuga, hvort fer betur, og sé það álit hans, að það fari ef til vill ekki betur, þá er það mitt verk að bera fram brtt. Læt ég svo útrætt um þetta.

Ég vil leyfa mér að leiðrétta það, sem kom fram hjá hv. þm. Str., með nokkrum orðum. Það er rangt hjá hv. þm., að form. fjvn. og fjvn. í heild hafi verið einangruð við afgreiðslu fjárl. N. bar fram brtt., sparnaðartill. um lækkun á fjárl., sem nam 1.550.000 kr. Af því var tekið upp aftur 340 þús. kr. til flugmála, sem er aðeins 9 þús. kr. lægra en till., sem felld var. Svo að ummæli hans í sambandi við þetta eru sögð alveg út í bláinn. Auk þess aðeins 55 þús. kr. í sambandi við aðrar till. Það er alveg rangt, sem hv. þm. fullyrti, að ekki væri hægt að komast lægra með landhelgisgæzluna eins og nú væri. Það veltur ekki sízt á því, hvernig þeim málum er stjórnað, hvort hægt er að komast af með minna fé. Það er algerlega rangt, að gerð hafi verið nokkur tilraun til að fella nokkrar till. um framlög til brúa, vega eða sveitasíma. Þær till. voru allar samþ. óbreyttar og kannske langsamlega mest fyrir það, hvað fjvn. hélt utan um þau mál. Það er rangt, að það hafi komið til Alþ. að ákveða, hvort niður skyldi fella skattdómaraembættið á Akureyri eða sendiherraembættin á Norðurlöndum. Svo að flest, sem hv. þm. Str. sagði um afgreiðslu fjárl., var rangfærslur einar, sem sennilega byggjast á því, að hv. þm. hefur hvorki gefið sér tíma til að vera við afgreiðslu fjárl. né lesa þingskjölin.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Aðeins nokkur orð vegna ræðu hv. þm. Barð. (GJ), sem er talsvert mikið fyrir það að gerast siðameistari hér í d. Hann er vafalaust orðinn þingvanur eftir langa þingsetu, enda ber mikið á því, að hann álítur, að enginn kunni að haga sér á Alþ. nema hann. Honum hættir talsvert mikið til þess að tala við aðra þm., bæði mig og aðra, eins og við værum krakkar á skólabekk og hann væri skólameistarinn. Ég ætla að láta hv. þm. Barð. vita það, að ég tek ekki við svona lærisetningum frá honum. Það getur vel verið, að ég sé ekki eins þingvanur og hann og ekki eins þingríkur, en slíkar ákúrur, sem hann gefur mér og gefur yfirleitt hér á Alþ., ætti hann sjálfs sin vegna að leggja niður. Áð ég ekki nenni að lesa? Hvers konar málflutningur er þetta? Ég hef lesið gr. eins vel og hann. Það getur vel verið, að ég leggi annan skilning í hana, en hann gerir. Og að það sé stirðbusaskapur, þó að ég vilji ekki hlaupa til og kalla saman nefndarfund, hvað lítið sem við ber, þó að einhver þm. þurfi að athuga þetta eða hitt atriði í máli, sem n. er búin að skila af sér. Ég skal láta hv. þm. Barð. vita það, að ég tel þessa ábendingu hans ekki þess virði, að hún sé tekin til athugunar í n., og kemur mér því ekki til hugar að kalla saman fund á þessu stigi málsins, meðan ekki liggur annað fyrir en það, sem hv. þm. sagði.

Hermann Jónasson: Herra forseti. Þetta verður aðeins örstutt aths. út af því, sem hv. þm. Barð. sagði um það, að ég hefði farið hér rangt með, að till. hefðu verið felldar fyrir hv. fjvn. Það stóð eitthvað um þetta í blöðum. Þar voru tveir dálkar af till., sem voru felldar. Rétt áðan var hv. þm. að segja, að Framsfl. hefði gengið fram í því að fella sparnaðartill., sem komu fram. Nú segir hann, að aldrei hafi verið felldar sparnaðartill., svo að það er nokkuð erfitt að eiga orðakast við hv. þm. Og ég held satt að segja, að hv. 1. þm. Reykv. (BÓ) segi það satt, að hann sé ekki þingvanur, ef hann ætlar sér að fara að kenna hv. þm. Barð. Ég veit, að hv. 1. þm. Reykv. er kunnur fyrir það að kunna mikið af málsháttum. Hann ætti að kunna þann málshátt, sem gefur í skyn, að ómögulegt sé að kenna honum, svo að hann getur alveg látið það vera.

ATKVGR.

1. gr. samþ. með 12:3 atkv.

Brtt. 666 tekin aftur til 3. umr.

2.–6. gr. samþ. með 11 shlj. atkv.

Ákvæði til bráðabirgða samþ. með 10 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 12 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 2. umr. — Afbrigði leyfð og samþ. með 12 shlj. atkv.

Brynjólfur Bjarnason: Herra forseti. Það hefur verið minnzt á það í sambandi við þetta mál að verði það að l., komi til greina að afnema skömmtun á benzíni, en um þetta hafa þó ekki komið fram skýr svör hjá stj. En það hefur komið fram, m. a. hér í d., að sumir þm. hafa jafnvel gert það að skilyrði fyrir fylgi sínu við málið, að slík yfirlýsing lægi fyrir. Nú er það svo, að afnám skömmtunarinnar hlýtur að draga dilk á eftir sér fyrir atvinnubílstjóra fólksflutningabifreiða, ef ekki eru gerðar frekari ráðstafanir. Félag þeirra, Hreyfill, hefur fyrir skömmu farið þess á leit við borgarstjóra, að hann styddi að því, að sett yrði reglugerð, þar sem fastákveðin væri tala þeirra bifreiðarstjóra, sem á hverjum tíma mættu stunda akstur sem atvinnuveg. Í tilefni af þessu lagði borgarstjóri til, að skipuð yrði n., sem athugaði; hvort það þyrfti löggjöf til þess að setja slíka reglugerð. Þetta varð að ráði, og ákveðið var, að bæjarráð skipaði einn mann í n., félag bifreiðarstjóra einn, og auk þess skrifaði bæjarráð rn. og óskaði þess, að það skipaði einn mann í n. Ég hef ekki heyrt, hvort rn. hefur skipað þennan mann, og vildi í fyrsta lagi spyrja hæstv. ráðh., hvort það hefur verið gert. Í öðru lagi vildi ég spyrja hæstv. ráðh., hvort athugað hefur verið í stjórninni, hvort löggjöf þyrfti til þess að þetta verði gert og í þriðja lagi, hvort athugað hafi verið í stj. að setja slíkar reglur samtímis því, sem skömmtunin yrði afnumin. Þetta er mjög alvarlegt mál fyrir atvinnubílstjóra, því að ef skömmtunin verður afnumin, gizka þeir á, að 300–400 bílar muni bætast við, og það mundi hafa í för með sér tilfinnanlegt atvinnuleysi fyrir stéttina. Ég vil óska þess, að hæstv. ráðh. svari þessu.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Ég er hræddur um, að hv. 4. landsk. þurfi einhvern annan ráðh. en mig til að svara þessu að fullu. Ég veit ekki til, að komið hafi tilmæli í þessa átt í þau rn., sem ég á að sjá um, og það er ekki undarlegt, þó að þeim sé ekki þangað beint. Að öðru leyti get ég ekki leyst úr því í skjótri svipan, hvort hægt er að skipta sól og regni milli þeirra, sem vilja aka, ef þeir hafa lögum samkvæmt rétt til farþegaflutninga. Hitt er mér vel skiljanlegt, að mikil fjölgun er til einskis góðs, hvorki fyrir þjóðfélagið í heild né þá, sem stunda þessa atvinnugrein. Ég geri ráð fyrir því, að kannske nú þegar stundi fleiri farþegaflutninga, en ströng nauðsyn krefði. Mér þykir leitt, að ég get ekki leyst úr spurningum hv. þm., en mér er ekki kunnugt um neina málaleitun í þessu sambandi, enda býst ég við, að fjmrn. eigi hér ekki hlut að máli. Annars var það svo, þegar skömmtunin var sett á, að talið var, að hún væri frekar til óþæginda og leiðinda og álitið, að vinsælt væri að létta henni af, ef benzínið væri látið sinna því hlutverki, er því ber. Ég á við opinberar álögur, en í þá átt er drjúgt spor stigið með samþykkt frv., eins langt og hún er komin. Skömmtunin hefur komið illa út fyrir bifreiðarstjóra og reynt hefur verið að rýmka til, svo að þeir hefðu rýmri skammt, en allir vita, að þeir hafa orðið að drýgja hlut sinn á svörtum markaði. Það er ástæða til að ætla, að þeim hafi verið þetta ógeðfellt, en það hefur stafað af því, að skömmtun hefur verið á benzíni.

Ég skil vel, að hv. þm. sé ekki ánægður með þessi svör, en ég get ekki látið annað í té. Gísli Jónsson: Herra forseti. Hv. 1. þm.

Reykv. (BÓ) óskaði eftir því, að ég bæri sjálfur fram leiðréttingu á 4. gr. Það kom fram, að hann hafði ekki áhuga fyrir því að athuga, hvort það færi betur eða ekki. Ég leyfi mér því að bera fram skriflega brtt. þess efnis, að orðin „skal verja fjárhæð“ í meginmgr. b-liðar 4. gr. falli niður.

Fúkyrðum hv. 1. þm. Reykv. og hv. þm. Str. í minn garð mun ég ekki svara. Ég er orðinn svo vanur því, að kastað sé að mér fúkyrðum, þegar rök brestur, að það er hætt að snerta mig. Síðar gefst ef til vil tækifæri til að ræða við hv. þm. Str. um margendurtekin ósannindi um mig í sambandi við afgreiðslu fjárl. Ég skal ekki fara út í það í dag.

ATKVGR.

Afbrigði um skrifl. brtt. (sjá þskj. 667) leyfð og samþ. með 14 shlj. atkv.

Brynjólfur Bjarnason: Ég heyrði á svörum hæstv. fjmrh., að þetta mál hefur ekki verið rætt í ríkisstj., en mér er kunnugt um það, að tilmælin, sem ég gat um frá bæjarráði, að skipa einn mann í n., voru send til hæstv. samgmrh. Það er því ekki við að búast, að hæstv. fjmrh. geti gefið greiðari svör, þar sem málið hefur ekki verið rætt í ríkisstj., en hins vegar vildi ég biðja hann að sjá til þess, að málið yrði tekið fyrir þar, því að sé svo, að það þurfi lagaheimild til þess að takmarka innstreymi manna í stéttina, þyrfti að veita þá heimild á þessu þingi, og væri eðlilegt, að hún kæmi fram í sambandi við þetta frv. Ég vildi því mælast til þess, að málinu yrði frestað um stund og form. fjhn. kallaði n. saman á meðan til þess að athuga þetta.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Út af ræðu hv. 4. landsk. skal ég taka það fram, að ég skal gjarna verða við tilmælum hans að kalla n. saman, ef það er vilji d. að fresta framgangi málsins, sem mér hefur annars skilizt, að ætlunin væri að koma í gegnum allar umr. í dag. En ég vil þó benda hv. þm. á það, að þetta atriði um atvinnuréttindi bílstjóra á ekki heima í þessum lagabálki, og er fráleitt að binda saman þá hættu, sem atvinnubílstjórar segja, að atvinna þeirra sé í, og afnám benzínskömmtunarinnar. Til þess að verja stéttina fyrir offjölgun þyrfti eilíflega benzínskömmtun. Hins vegar er rétt að athuga, hvað unnt er að gera til þess að verja réttindi þessara manna.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Ég vildi nú leyfa mér að óska þess, að ekki yrði fundið upp á nýjum og nýjum innskotum til þess að tefja þetta mál, sem svo mjög varðar afgreiðslu fjárl., og mér þykir leitt, ef það á að taka upp á öllum mögulegum og ómögulegum ráðum — því að ég kalla þetta ómögulegt — til þess að vefjast þarna fyrir. Það er opin leið á þinglegan hátt að taka fyrir þessa málaleitun hv. 4. landsk. án þess að blanda henni inn í þetta mál. Og ef endilega þarf að taka hana fyrir í sambandi við þetta mál, væri það hægt í Nd. Ég vil því beina því til hæstv. forseta, að þar sem komið er fram að helgi og ætlazt er til, að þing ljúki störfum næstu daga, en fjárlög eru enn óafgreidd, þá er það ósk mín, að ekki verði staðið svo upp frá borðum hér í dag, að málið hafi ekki fengið afgreiðslu.

Brynjólfur Bjarnason: Herra forseti. Mér finnst nú, að svo mikill dráttur hafi orðið á afgreiðslu fjárl., að það skipti nú litlu, þótt þessu máli yrði frestað í 10 mínútur eða kortér. Það ætti því síður að valda neinum hneykslunum, þar sem hér er ekki um neitt hégómamál að ræða, heldur stórmál. Hitt er annað, hvort rétt kynni að vera að flytja það í öðru frv. En sannarlega er takmörkun á innstreymi í bílstjórastéttina ekki óviðkomandi afnámi á benzínskömmtun. Og þurfi til þessa lagaheimild fyrir ríkisstj., þyrfti hún að fást á þessu þingi.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Það var ekki meining mín að leggjast á móti því, að fjhn. fengi hlé til að tala saman stutta stund. En af því að mér þótti vandséð, að fundur yrði þá aftur kl. 5, var ég mótfallinn því, að málið yrði dregið þannig. Hv. 4. landsk. impraði ekki á þessu máli í morgun, er fundur var í n. Honum virðist hafa dottið það í hug þessa klukkustundina, því að í morgun hafði hann tækifæri til að tala um þetta, en lét það ónotað. En sé það nú tryggt, að málið komist áfram í dag, er ég ekki á móti því, að nm. tali saman skamma stund.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Það voru tvö atriði, sem ég vildi minnast á. Ég vildi leiðrétta þann misskilning hjá hv. þm. Barð., að benzínskatturinn hefði áhrif á gerð afleggjara heim að bæjum og flýtti fyrir þeim. Þetta er misskilningur. Þeir eru ekki lagðir af ríkissjóði og koma þessu máli ekki við. Hann talaði og um, að fjöldi bænda þyrfti enn að flytja mjólkina á klökkum að þjóðvegum, og talaði líka um, að benzínskatturinn bætti úr þessu. En þessi skattur gengur aðeins til þjóðvega, og langur tími mun líða, þar til þeir munu ná til allra bæja. Það liggur nú fyrir von um, að skömmtuninni verði aflétt á benzíni, ef þetta frv. verður samþ. nú. Ég tel það þó ekki bundið við frv. Skömmtunin hefur verið þarflaus. Hún hefur aðeins látið menn fá atvinnu við úthlutunina, aðra við að selja benzín á svörtum markaði, en hefur ekki sparað einn lítra. (Samgmrh.: Þetta er of mikil fullyrðing.) Hæstv. ráðh. skal bara athuga benzínskömmtunina fyrr og nú, miðað við bílafjöldann, og hann mun sjá, að meira benzín er nú notað á hvern bíl til jafnaðar en áður var Það liggur beint við, ef þetta er reiknað út. Er því sjálfsagt að afnema skömmtunina. Ástæðan fyrir því að hafa hana er aðeins sú að veita mönnum tækifæri til að selja benzín á svörtum markaði og hinum atvinnu, er við úthlutun þess fást.

Hv. 4. landsk. talaði þá um, að þetta mundi hafa mikil áhrif á atvinnu bílstjórastéttarinnar, gat þess, að takmarka verði, hverjir eigi að fá að aka leigubifreiðum frá stöðvum eða stunda bifreiðakeyrslu sem atvinnu. Þetta er tekið fram í l. Menn þurfa að hafa meira próf o. fl. til þess að öðlast þessi réttindi. Ef á að fara þá leið að meina mönnum með l. að stunda atvinnu, sem þeir hafa aflað sér réttinda eftir öðrum lögum til að stunda, þá er það fjarri öllu viti. Því er ég undrandi yfir till. og hinu, að málinu skuli hafa verið vís- að í annað sinn til n. Það er fjarri öllu lagi. Ég vænti því, hvað sem þessu líður, að benzínskömmtuninni verði aflétt, eins og raunar ber að gera um alla skömmtun, þótt skömmtun á álnavöru sé e.t.v. ekki óþarfi enn sem komið er. Hún er óþörf og aðeins til að auka skriffinnskuna, kostnað, svartamarkað o.fl. Ég vænti þess því, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært, hvað sem bílstjórunum liður, að afnema skömmtunina þegar í stað eða mjög bráðlega.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Fjhn. hélt fund á milli funda til að athuga það mál, sem fram kom frá hv. 4. landsk. (BrB), og enn fremur till., sem hefur komið fram frá hv. þm. Barð. (GJ), og niðurstaða n. er sú, að meiri hl. hennar, 4 nm., vill ekki flytja neina brtt. við þetta mál og eigi heldur mæla með neinni brtt. (GJ: Ekki hæstv. ráðh.?) Hún kom ekki til tals. Ég held, að við höfum litið á hana sem orðabreyt., en enga efnisbreyt.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Það var aðeins vegna þessarar orðabreyt., sem hv. þm. gat nú, að ég tek til máls. Hún segir raunar sama og brtt. hv. þm. Barð. Ég játa, að ég kom með þetta eina orð eftir ábendingu eins af hv. þm. Nd., er kvað hitt geta valdið misskilningi, og það er gert til að forðast árekstur, að ég flyt þessa skriflegu brtt., og eigi vegna þess, að ég álíti hana betri. Þær eru sjálfsagt báðar jafnréttháar. En betra væri, ef hv. þm. vildi taka sína aftur til að forðast árekstur, eigi vegna annars.

Brynjólfur Bjarnason: Herra forseti. Það hefur borizt bréf frá bílstjórafélaginu Hreyfli til Alþ., dagsett þ. 6. maí 1949. Þar mótmælir félagið hækkun á benzínskatti og bendir á hækkun rekstrarkostnaðar, sem af því mundi leiða, 1.909 kr. á bifreið á ári. Muni og hækkun á rekstrarkostnaði leigubifreiða vegna hækkunar á tollum og gjöldum af varahlutum, gúmmíi, ýmissi efnivöru, vegna hækkaðs bifreiðaverðs, söluskatts og viðgerðarkostnaðar og benzínverðs s.l. 2 ár nema kr. 9.896.89. Benda þeir á, að ökugjald, þ.e. byrjunargjald, hafi vaxið aðeins um 50 aura á ökuferð síðan 19. apríl 1943. Einnig benda þeir á, að það dyljist ekki, að verði benzínskömmtunin nú afnumin, sem menn munu fagna, þá mundu falla úr gildi þær hömlur, sem benzínskömmtunin setti um hámarkstölu bifreiða til fólksflutninga, en það mundi hafa í för með sér offjölgun og atvinnuleysi í stéttinni, og fara þess því á leit, að löggjöf verði sett um þetta efni. Nú tókst eigi að ná tali af hæstv. samgmrh., og eigi hefur tekizt að fá svör frá stj. um afstöðu hennar til málaleitunar bifreiðastjóranna. Skilst mér af þessum ástæðum, að meiri hl. n. muni eigi fallast á heimildarákvæði í þessa átt. Ég sé því ekki betur en till. um það yrði felld. Og þar sem það gæti spillt fyrir málinu, mun ég eigi bera slíka till. fram. Býst ég þó við, að upplýsingar muni liggja fyrir um málið, þegar frv. kemur til Nd. Og í trausti þess, að þá liggi fyrir fullnægjandi upplýsingar frá ríkisstj. og að þar verði þær ráðstafanir gerðar, sem duga til þess að fyrirbyggja offjölgun í stéttinni, þegar núverandi hömlur falla úr gildi, mun ég eigi bera fram brtt. í þá átt á þessu stigi málsins.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Út af óskum hæstv. fjmrh. um, að ég taki mína skriflegu brtt. aftur, þar sem hans till. feli í sér þær breyt., sem ég legg til, en sé hins vegar vænlegri til samkomulags, þá skal ég verða við þeirri ósk. Hvorug till. er efnisbreyt., heldur aðeins breyt. á orðalagi, og svo mikill stuðningsmaður ráðh. er ég, að mér er ljúft að verða við þessum tilmælum hans, ef það er honum einhver styrkur. Skrifl. brtt. mín er því tekin aftur.

Við umr. um þetta mál benti ég á, að benzínskatturinn kæmi til hjálpar þeim, sem enn verða að flytja afurðir sínar og aðdrætti á klökkum. Þeim orðum, sem 1. þm. N-M. (PZ) lét falla út af þessum ummælum mínum, vil ég algerlega mótmæla. Vegakerfið heim að mörgum þeim býlum, sem svona er ástatt um, mætti lagfæra, svo að það yrði fært allt árið með auknu viðhaldsfé. En auk þess liggja fyrir beiðnir um nýja akvegi, svo að skiptir hundruðum og jafnvel þúsundum km.

ATKVGR.

Brtt. 667 tekin aftur.

Brtt. 666 samþ. með 9:3 atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 12:2 atkv. og afgr. til Nd.

Of skammt var liðið frá útbýtingu frv. Afbrigði leyfð og samþ. með 25 shlj. atkv.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Þetta mál, sem hefur fengið afgreiðslu í Ed., er flutt fyrir hönd fjmrh. af fjhn. þeirrar d. Efni frv., sem er breyt. frá l., er um hækkun á benzínskatti í 31 eyri hvern lítra, eins og segir í 1. gr. — 4. gr. ákveður, hvernig verja skuli þeim tekjum, sem með þessu er aflað, þannig að viss hluti rennur í brúasjóð og hitt í viðgerðir og umbætur á akvegum. — 1. og 2. gr. eru samhljóða og í l. nr. 27 frá 1947. 3. gr. fjallar um innheimtu á bifreiðaskatti, eins og segir í aths. með frv. eins og það var upphaflega lagt fyrir Alþ. — 4. gr. frv. er samhljóða 8. gr. í l. nr. 84 frá 1932, en hún var felld niður með lagabreyt. 1947. — Þá er ákvæði til bráðabirgða, sem kveður svo á, að næsta bifreiðaskattsár sé frá 1. apríl 1949 til 31. des. 1949, að báðum dögum meðtöldum. Fyrir því verður skatturinn á þessu skattári aðeins þrír fjórðu af því, sem það er venjulega. Eins og kunnugt er, greiðist bifreiðaskatturinn eftir á og er því innheimtur 1. apríl frá næsta 1. apríl á undan.

Ástæðan fyrir þessari hækkun er fyrst og fremst þörf ríkissjóðs fyrir fjármagni og ekki hvað sízt hin vaxandi þörf fyrir fjármagn til viðhalds á vegum, sem hefur vaxið mjög við aukinn fjölda ökutækja. Skatturinn 4–5 aurar nam á s.l. ári krónum 3.596.336,71 og mun benzínnotkun þá hafa verið um 40 milljón lítrar. Þar sem innflutningur benzíns fer nú vaxandi, má gera ráð fyrir, að benzínskatturinn nemi um 12,4 millj. árlega, þegar búið er að hækka hann. Þá er gert ráð fyrir í fjárlfrv., að bifreiðaskattur, þar með talið gúmmígjald, nemi 3,5 millj., eða samtals 15,9 millj. Þar frá dragast 2 millj. í brúasjóð og 2 millj., sem enn er óráðstafað. Þá verða eftir 11,9 millj., sem samsvarar nokkuð viðhaldskostnaðinum, en hann fer nú vaxandi, eins og segir í grg., og var mestur 1947, 13.9 millj., en 11,7 millj. 1948. Nú var gert ráð fyrir 9 millj. þegar fjárlfrv. var lagt fyrir, en vegna þeirrar reynslu, sem fengizt hefur, liggur fyrir brtt. um að hækka það framlag um 2 millj., svo að það verður alls 11 millj. og er það ekki of mikið í snjóavetrum, en þá vex viðhaldið mikið. Þegar svo horfir, að vegaviðhald vex svo og framlag til nýbyggingar vega, þá eru engin undur, þó að hækkað sé verð á benzíni, þar sem benzíneyðsla stendur í beinu sambandi við slit á vegum. Og ef nú þessar 11 millj. kr. bætast við fé það, sem ætlað er til lagningar nýrra þjóðvega, þá er þar um 18 millj. kr. að ræða í vegaviðhald og vegalagningar. til slíkra framkvæmda sem hér um ræðir þarf mikið fé, og eru þó brúargerðir ekki taldar hér með. Á það hefur verið bent, að benzínverð er lægra hér, en í nálægum löndum, sem hafa þó járnbrautirnar sem samgöngutæki auk bílanna. Þeir hafa nokkuð til síns máls, sem segja, að skatturinn ætti að standa undir viðhaldi veganna og að einhverju leyti undir lagningu nýrra vega. Brúarsjóður var numinn úr gildi árið 1947, en nú er aftur ætlazt til, að nokkur hluti af benzínskattinum renni til brúasjóðs.

Skal ég svo ekki fjölyrða meira um þetta, en vænti þess, að þdm. skilji, hvílík nauðsyn ríkissjóði er á fé til slíkra framkvæmda og leyfi því, að málið nái fram að ganga.

Sú aths. var gerð við þetta í Ed., hvernig færi með undanþágu til flugvéla, en lög nr. 84 frá 1932 eru ekki hreyfð með þessu frv. Í þeim l. eru, ákvæði um það, að skatturinn skuli greiddur aftur, ef sannað er, að benzínið sé ekki notað til bifreiða, en framkvæmdin á þessu hefur verið sú, að skatturinn hefur aldrei verið innheimtur af flugvélabenzíninu, og þannig mun það verða framvegis. Af flugvélabenzíni er aftur á móti goldinn tollskrárskattur og svo sérstakur flugvallarskattur, er flugráð innheimtir, en um það er ekki getið hér.

Ég mælist svo til þess, að hv. þd. flýti þessu máli, þar sem ég þykist þess fullviss, að meiri hl. þdm. vilji gera frv. að 1., því það er ætið svo, að þegar hækka á skatt á vöru, sem brúkuð er daglega, er bezt að flýta því sem mest, svo að menn geti ekki safnað að sér óeðlilega miklum birgðum af vörunni. Ég vænti þess svo, að umr. sé lokið um málið og að því verði vísað til 2. umr. og fjhn.

Einar Olgeirsson: Herra forseti. Hér er um að ræða mál, sem hefur verið alllengi í undirbúningi hjá hæstv. ríkisstj. og átti að verða fyrsta tekjuöflunarleiðin eftir að sýnt var, hvernig afgreiðsla fjárl. yrði.

Ég hef tvennt við þetta frv. að athuga. fyrsta lagi hækkar þetta mjög álögur á bílstjóra. Það verður lagður sérstakur skattur á þessa stétt. Ég þykist vita, að í þessu sambandi verði bílstjórum leyft að hækka taxtann og velta þessu þannig yfir á almenning. Fyrir fólksbíla er það mjög mikið spursmál, hvort sú taxtahækkun þýðir ekki minnkandi akstur sökum minnkandi kaupgetu almennings. Ef verðlagseftirlitið yrði við þeirri ósk að hækka taxtann, er þessu velt yfir á almenning, og þessi skattur hlýtur því að lenda á bílstjórum eða almenningi, en það er engin tilraun gerð til þess að láta sjálfa olíuhringana bera þetta, enda mundi víst þurfa róttækar ráðstafanir til þess að knýja þá til þess.

Í öðru lagi verður þetta til þess að hækka vöruflutninga. Benzín er orðinn þó nokkur liður í flutningum hér á landi, t.d. landbúnaðarafurða. Bændur nota vélknúin tæki við framleiðsluna meira en nokkru sinni áður. Vélar bænda og flutningstæki krefjast benzíns, og þessar álögur mundu því þýða hækkun á rekstrarkostnaði í sveitum, bæði við framleiðslu og flutninga. Slík vaxandi útgjöld verða reiknuð með við ákvörðun verðs landbúnaðarafurða. Þetta þýðir því vaxandi dýrtíð í landinu og er skattur á bændur og allan almenning. Það má segja, að það sé rétt, að þetta fé fari til vegaviðhalds, en alveg eins er hægt að segja; að það fari í dýrtíðarráðstafanir, því að hætt er við, að þetta fé haldist ekki sér, þegar það er komið í ríkiskassann. Þannig er þetta ein hringrás. Ríkisstj. aflar sér fjár til dýrtíðarráðstafana og eykur með því dýrtíðina, og þannig heldur þessu áfram meðan ríkisstj. tekur ekki féð af þeim tekjustofnum, sem ekki geta velt því af sér yfir á almenning.

Ég hef gert fsp. til ríkisstj. um það, hvernig hún hafi notað sér tekjustofn, sem hún lögum samkvæmt á kost á, en það eru tollar og skattar af innflutningi á Keflavíkurflugvöllinn. Ég hef fengið ógreið svör, en í þeim upplýsingum kom í ljós, að ríkisstj. hefur ekki notað sér þennan tekjustofn. Það kom í ljós, að um 4.000 tonn af alls konar varningi ásamt áfengi og tóbaki hefur verið flutt til vallarins. Samkv. samningnum á að greiða skatt af öllu þessu nema þeim varningi, sem Bandaríkin þurfa að nota handa herflutningaflugvélunum, sem fara til Þýzkalands. Allur annar rekstur, sem fram fer á Keflavíkurflugvellinum, er tollskyldur. Nú er umferðin um Keflavíkurflugvöllinn til Þýzkalands ekki nema 1/10 af allri umferðinni, og væri því eðlilegt, að það gilti eins um skatta og tolla, þannig að borgað væri af 9/10 af öllum innflutningnum: Um þetta eru ótvíræð lög, og það hefur komið fram bæði í þeirri n., sem um þetta mál fjallaði, og eins hér í fjhn. Alþ., að menn leggja þennan skilning í málið. Hér er því um að ræða tekjustafn, sem skiptir millj. kr., sem ríkissjóður gæti hagnýtt sér, en þrátt fyrir ítrekaðar umr. um þetta mál hefur það ekki verið gert. Mér finnst hart, að meðan ríkum útlendum félögum er hlíft við þeim sköttum og tollum, sem þeim lögum samkvæmt ber að greiða, þá er verið að hlaða sköttum á íslenzkan almenning. Ég get ekki betur séð en lög séu brotin við innheimtu þessara tolla, og ég vil benda ríkisstj. á, að næst þegar hana vantar tekjur, skuli hún innheimta þessa tolla samkv. l.

Að öðru leyti skal ég svo ekki ræða fjármálastefnu stj., þótt vissulega væri tilefni til þess. Þessi hringrás leiðir til síversnandi aðstöðu, og ef á að stoppa á þessari braut, verður að taka einhvern þeirra tekjustofna, sem auðmenn nú græða á, handa ríkinu. Meðan ríkisstj. vill það ekki, verður ekki horfið af þessari braut. — Annars ætla ég ekki að tefja þetta mál og fer því ekki lengra út í þessa sálma.

Viðvíkjandi beiðni hæstv. fjmrh. um að flýta frv., þá vil ég segja það, að enda þótt d. sé óánægð með frv., þá býst ég við, að hún flýti því meira, en ríkisstj. hefur gert. Ef Alþ. hefði sama hraða á afgreiðslu mála og hæstv. ríkisstj., þá mundu ekki vera mörg mál, sem fengju afgreiðslu. Það er opinbert leyndarmál hér á Alþ., að þetta hefur verið í undirbúningi í 5 mánuði. Þegar ræddar voru hér þær álögur, sem lagðar voru á um nýárið, kom það fram, að þessi skattur átti að vera einn liðurinn í þeim álögum. Ríkisstj. hafði rætt það þá, og einn þm., Sigurður Bjarnason, ljóstraði því upp, að þessi skattur væri í aðsigi. Ef hv. þd. verður ekki fljótari en hæstv. ríkisstj. við afgreiðslu þessa máls, er hætt við, að af því verði nokkur tekjumissir fyrir ríkissjóð. Það mun vera reiknað með, að þessar tekjur nemi 8,8 millj. kr. á ári, en að tekjurnar verði það, sem eftir er af þessu ári, 5.5 millj. kr. Þetta þýðir það, að með því að komast ekki að samkomulagi um þetta í vetur, hefur hæstv. ríkisstjórn orðið af röskum 3 millj. kr. Ég skil því vel, að hæstv. fjmrh. sjái eftir tímanum, en vona samt, að hann taki það ekki of alvarlega, þótt málið kunni að dragast í 2–3 daga enn þá.

Ég veit, að mál þetta fer til n., sem ég á sæti í, og ræði það því ekki meira að sinni. Ég lýsi aðeins andstöðu minni við þetta frv., þar sem nýr skattur er lagður á almenning og einstakar stéttir, en sérréttindastéttum og sérréttindaþjóðum er hlíft.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Út af ræðu hv. 2. þm. Reykv. (EOl) vil ég taka það fram, að tollinnheimta ríkisins hefur farið eftir l., sem Alþ. og ríkisstj. hafa gert, og á þetta einnig við um innflutning til Keflavíkurflugvallarins. Þetta er því algerlega óréttmæt ásökun á tollinnheimtu ríkisins.

Um dráttinn á þessu máli er ég sammála hv. þm. Ég tel hann of mikinn, en það bætir ekki úr að hafa hann enn lengri. Það var vitað mál, að fé til vegaviðhalds og vegalagninga yrði að koma niður á benzíninu. En hv. þm. veit, að um slík mál sem þetta verður að vera samkomulag og að fjmrh., þó að hann jafnvel viti, að þörfin sé mikil, þýðir ekki að rasa með frv. af þessu tagi fyrr en fullvíst er, að þingmeirihlutinn hefur skilið það, og tryggt sé, að það nái fram að ganga.

Að öðru leyti skal ég ekki fara frekar út í umr. að þessu sinni. Hv. þm. gaf ekki tilefni til að svara frekar, og læt ég því staðar numið.

Jón Gíslason: Herra forseti. Þetta frv., sem er á þskj. 644, er til breyt. á eldri lögum, aðallega um hækkun á benzíni eða skatti á því um 22 aura lítrann. Ríkissjóð vantar nú tekjur, og fyrir því er gripið til þessa ráðs. En ég tel, að á þessu sé mikill galli, því að þetta komi svo misjafnt niður á landsmenn. Vitanlega nota allir landsmenn benzín, en þó misjafnlega mikið, og fer það aðallega eftir staðháttum. Sumir verða að byggja alla aðflutninga sína á benzíni, og kemur þetta því mjög hart niður á þeim. Þannig er það t.d. í mínu kjördæmi. Ég hef að gamni mínu gert yfirlit yfir það, hverju þessi skattur mundi nema hjá okkur Vestur-Skaftfellingum, og tek 3 bíla, sem eru í keyrslu fyrir Kaupfélag Skaftfellinga. Mundi þessi skattur nema sem hér segir:

Hjá Z–10 kr. 3.330.00, Z–15 kr. 3.735.00 og Z—30 kr. 3.007.00 beinn útgjaldaauki.

Að meðaltali er þessi útgjaldaauki 3.660 kr. Þeir, sem reka fleiri bíla við svipaðar aðstæður, verða því mjög tilfinnanlega fyrir þessum útgjöldum. T.d. félag, sem rekur 10 bíla, mundi þurfa að greiða aukin útgjöld, sem nema um 3.342 þús. Nú fylgist það einnig að, að benzín hjá okkur er dýrara, en annars staðar á landinu, því að í yfirliti Olíufélagsins, þar sem getið er um benzínverð á landinu, sést, að í Rvík er það selt á 72 aura lítrinn, en hæst er það hjá okkur, eða 91 eyrir lítrinn. Þetta sýnir, að Olíufélagið miðar verðið við lengdina, þannig að þangað sem erfiðast og lengst er að koma því, þar er það dýrast, og það er hjá okkur. Til þess að draga nokkuð úr þessu misrétti, hef ég leyft mér að flytja brtt. á þskj. 669, þar sem ég legg til, að aftan við 2. gr. bætist ný málsgr., svolátandi:

„Af innflutningsgjaldi því, sem um ræðir í 1. gr. a-lið, skal endurgreiða eigendum vöruflutningabíla 10 aura á hvern lítra benzíns, sem þeir færa sönnur á að hafa keypt til rekstrar vörubíla sinna á þeim útsölustöðum, þar sem benzínverð er hærra, en lægsta útsöluverð benzíns á landinu á sama tíma.

Endurgreiðslan skal þó aldrei vera meiri en svo, að benzínverðið, að frádreginni endurgreiðslunni, verði jafnt verðinu á þeim útsölustöðum, þar sem það er lægst.“

Þetta er spor í rétta átt til þess að leiðrétta það misræmi, sem er í benzínverði landsins, og vona ég, að þm. sjái sér fært að verða við þeirri ósk minni að samþ. þessa brtt.

Einar Olgeirsson: Herra forseti. Aðeins örfá orð út af aths. hæstv. fjmrh. út af einu atriði í ræðu minni. Það er misskilningur, að sú tollahækkun, sem hér er um að ræða, hækki alla tolla, sem á benzíninu eru. Sú grein Keflavíkursamningsins, sem fjallar um þetta, er 9. gr. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Eigi skal leggja neina tolla eða önnur gjöld á efni það, útbúnað, nauðsynjar eða vörur, sem inn er flutt til afnota fyrir stjórn Bandaríkjanna eða umboðsmenn hennar samkvæmt þessum samningi eða til afnota fyrir starfslið það, sem dvelur á Íslandi vegna starfa, sem leiðir af framkvæmd samnings þessa. Útflutningsgjalda skal heldur eigi krefjast af útflutningi téðra vara.“

Þetta vísar svo aftur til samningsins í 4. gr., sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Flugförum þeim, sem rekin eru af Bandaríkjastjórn eða á hennar vegum í sambandi við framkvæmd þeirrar skyldu, er Bandaríkin hafa tekizt á hendur, að hafa á hendi herstjórn og eftirlit í Þýzkalandi, skulu áfram heimil afnot af Keflavikurvellinum. Í þessu skyni skal stjórn Bandaríkjanna heimilt að halda uppi á vellinum á eigin kostnað, beinlínis eða á eigin ábyrgð, þeirri starfsemi, þeim tækjum og því starfsliði, sem nauðsynlegt kann að vera til slíkra afnota. Taka skal tillit til sérstöðu flugfara og áhafna þeirra að því er varðar tolla, landvistarleyfi og önnur formsatriði. Engin lendingargjöld skal greiða af slíkum flugförum.“

Allur samningurinn byggist á flutningum til Þýzkalands, en að svo miklu leyti, sem um almenna notkun er að ræða, civil Aircraft, sætir hún ekki sérréttindum. Á þessu vakti ég athygli þegar í upphafi, og þegar það var til umr. í fjhn., vakti ég athygli á því í mínu nál., sem var nr. 174 það ár, en þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Eðlilegast er, að tollur sé greiddur af öllum þeim vörum, sem fluttar eru til ameríska starfsliðsins, og síðan sé tollurinn endurgreiddur af þeim vörum, sem íslenzk yfirvöld úrskurða, að fluttar séu inn til afnota fyrir starfsliðið samkv. 9. gr. samningsins. Með því móti yrði helzt hindrað smygl og svartur markaður í sambandi við starfslið þetta. En um þetta þarf lagaákv.“

Og sú n., sem sat þá fyrir Íslendinga við þessa samninga, telur í nál. sínu, sem birt var í október 1947, að það sé algerlega óframkvæmanlegt nema að leggja toll á allar vörur og greiða svo aftur til baka. Það var bent á þetta í upphafi, og það var eina ráðið til þess, að hægt væri að komast hjá nokkru svindli, að láta greiða toll af öllum vörum, sem fluttar voru inn, og greiða svo til baka aftur það, sem lagt hafði verið á þær vörur, sem tollfrjálsar áttu að vera samkvæmt samningnum. Með þessu hefði verið hægt að koma í veg fyrir smygl og svartamarkaðsbrask á Keflavíkurflugvellinum, og þetta átti að gera. Hitt er svo annað mál, að l. eru brotin, hvort sem það er gert samkvæmt einhverjum leynisamningi eða smyglað utan frá, það skal ég ekkert um segja. En þess vegna vildi ég aðeins leiðrétta þetta, að ég held, að um misskilning hafi verið að ræða hjá hæstv. fjmrh. Hins vegar er það alveg rétt, að tollstjóri og tollverðir hafa fullan vilja á að rækja starf sitt.

Viðvíkjandi málinu annars skal ég ekki ræða meira við þessa umr. Ég skil það vel, að hæstv. ríkisstj. eigi mjög erfitt með að verja þessa stefnu, sem hún hefur tekið í fjármálunum, enda er nú svo komið, að helztu rökin í þessu máli eru eins og þegar tóbakið var hækkað, að verðlagið hefði hækkað almennt, en verð á tóbaki og benzíni hefði dregizt aftur úr og sem beina aflleiðingu af því þyrfti að hækka það núna. Sem sé, í stað þess að halda dýrtíðinni í skefjum, er allt gert til þess að auka hana.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Út af brtt. á þskj. 669 vil ég benda hv. n. á það, að ef hún yrði samþ., yrði allstórt skarð höggvið með því. Hér er um að ræða marga, sem þættust kaupa benzínið hærra verði og hefðu keypt, ef þetta gat væri skilið eftir í l. Og ég vil benda hv. flm. á það, að með þessu. frv. er ætlazt til þess að fá ákveðnar tekjur í ríkissjóð, þó að seint komi, og með þessum tekjum á að standa undir gjöldum úr ríkissjóði, sem þessir flm. eru samþykkir, að greidd séu. Og það er ekkert samræmi í því, þegar þeir viðurkenna, að þeir vilji eyða svo og svo miklu í þetta eða hitt, og svo hinu, að þegar búið er að koma með till. um tekjur til þess að geta gert það, sem þeir æskja eftir, að gert sé, að fleygja þá fram brtt., sem gera þetta ónýtt.

Þessi skattur, þó að hár sé, gerir ekki betur en að fylla nokkuð af því, sem vantar til þess, að fjárl. standi. Það hefur verið stungið upp á verðjöfnunarleið, en ég held, að þetta sé ekki rétta leiðin, og þess vegna er ég því mótfallinn, að till. verði samþ. Það væri miklu betra að fara og tala við stjórnir olíufélaganna og vita, hvort þær geta ekki bætt úr þessu.

Mér hefur skilizt, að hækkunin ætti að vera meiri, en hún í raun og veru er, einkum þegar þess er gætt, hvaða verkefni henni er ætlað að sinna.

Hv. 2. þm. Reykv. (EOl) var að tala um vaxandi dýrtíð, sem ég veit, að á sér stað í dag og átti sér stað í gær, en hún átti sér ekki síður stað, þegar hann og flokkur hans fór með völd í landinu. Hitt má með sanni segja, að ríkisstj. hefur ekki tekizt að stöðva þessa hringrás dýrtíðarinnar, en hún á rætur sínar dýpra að rekja, en hv. þm. vildi vera láta. Í blaði hans var frá því skýrt, að ríkisstj. væri nú með 30–40 millj. kr. nýjar skattaálögur. En það, sem skeð hefur er, að tóbak og brennivín er hækkað. Allt í einu er þessi flokkur orðinn á móti því, að tekjurnar séu teknar af þessum vörum. Ég játa það, að ég hef ekki haft neina sérstaka ánægju af því að hækka þetta, en það var nauðsynlegt. Sama er að segja um benzínið. En hvaða skatta er hægt að leggja á án þess að þeir snerti einhvern? Hann minntist á olíufélögin; við hefðum farið þá leið að láta ekki olíufélögin, sem hefðu af nógu að taka, bera þetta, heldur almenning. Ef verðlagsyfirvöldin inna sína skyldu af hendi og eru fær um það, þá ætlast ég til, að olíufélögunum sé ekki hlíft við þessum skatti og sé ekki leyft að selja með svo ósvífnu verði. Ég vil að minnsta kosti ekki gera ráð fyrir því að óreyndu. Og þó að þetta kunni að koma þungt niður, kemur það a.m.k. ekki of þungt niður í sumum tilfellum. Það ætti hv. þm. að vita, sem talað hefur manna mest um lúxusbíla og lúxuskeyrslu, bæði í blöðum og hér í þingsalnum. Nei, benzínskatturinn er miklu réttlátari, en margt annað. Annars þætti mér það náttúrlega kærast að þurfa ekki að koma með neinar till. um skatta, en þá yrðu líka hv. þm. að koma með einhverjar till. til lækkunar á útgjöldum fjárl., því að þá væri hægt að láta kyrrt liggja að gera tolla- og skattahækkanir. En meðan hv. þm. gera það ekki, er það leiðinleg, en óhjákvæmileg skylda að koma með einhverjar tekjuleiðir til þess að mæta útgjöldunum.

Jón Gíslason: Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur nú talað á móti brtt. okkar hv. þm. V-Húnv. (SkG) og talaði um, að þar væri hróflað við ákveðnum tekjustofni og vildi gera mikið úr því, hve þessi till. rýrði þennan stofn. Ég lít hins vegar svo á þetta mál, að þetta yrði ekki til þess að rýra þennan stofn sérlega mikið, því að mikið af benzíni og mestur hluti þess er keyptur í Rvík og annars staðar, þar sem verð er það sama og þar, og mér er kunnugt um það, að lúxusbílar fara með mikið benzín, og kemur ekkert af þessu til frádráttar. Það er hins vegar alveg rétt, að þetta mundi rýra tekjurnar um nokkra tugi þúsunda, en það er þó ekki nema réttlætismál, þar sem um mikinn aðstöðumun er að ræða.

Hæstv. fjmrh. minntist á, að það kæmi til tals að semja við olíufélögin um verðjöfnun, en ég lít svo á, að úr því geti ekkert orðið, að þau taki upp hjá sér verðjöfnun, því að ef ég hefði átt von á því, hefði ég ekki borið upp þessa brtt., og þrátt fyrir till. hefðum við orðið að borga 10 aurum meira fyrir benzínið hjá okkur, en þeir hérna á lúxusbílana sína hérna í Rvík, en till. er blátt áfram spor til verðjöfnunar.

Einar Olgeirsson: Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera örstutta aths. við það, sem hæstv. fjmrh. sagði. Ég vil leiðrétta það, að Sósfl. hafi farið með völdin og enn fremur það, að hann eigi sök á dýrtíðinni. Ég held, að dýrtíðin hafi vaxið með hægasta móti meðan sósíalistar áttu sæti í ríkisstj., en þá fyrst kom kraftur í þann vöxt, þegar núv. ríkisstj. tók við. Og ég verð að segja það, að núv. ríkisstj. er sérstaklega fundvís á álögur, sem sleppa þeim auðugustu í landinu, en kemur í staðinn niður á þeim fátækustu. Ég treysti ekki verðlagseftirlitinu, þegar í baráttuna er komið við olíuhringana, en það hefði þurft harða baráttu við olíuhringana, til þess að þeir gengju ekki á hlut almennings í landinu.

Hæstv. ráðh. sagði, að það væri rétt að hækka benzíntollinn. Þá komum við að því, á hvern álagningin eigi að vera. Benzínskatturinn er nú lagður á bændur, sem nota bíla til að flytja afurðir sínar, og á atvinnubílstjóra, sem lifa á því að flytja fólk og vörur. Hins vegar væri hægt að hafa skattana þannig, að þeir hittu þá, sem eiga lúxusbílana. Það er ekkert hægara, en að leggja á bifreiðaskatt, sem er hæstur á dýrustu og fínustu bílategundunum og því hærri skatt, því nýrri sem þeir eru, svo að þeir, sem fá nýjar bifreiðar og nota þær til að leika sér, beri mjög háan bifreiðaskatt, en skatturinn lækki, því eldri sem bifreið er og að miklu minni skattur sé á litlum bílum og öðrum slíkum, sem ekki er hægt að telja lúxusbíla. Það er vel hægt að koma bifreiðaskatti þannig fyrir, að hann lendi fyrst og fremst á þeim, sem ríkastir eru, ef hæstv. stj. hefði hugsað um það, en hún bara vill ekki gera slíkt. Hún hugsar þetta ekki nema sem álögur á almenning.

Svo vildi ég að síðustu segja nokkur orð út af þeim brtt., sem liggja hér fyrir og því, sem hæstv. ráðh. sagði í því sambandi. Ég vil vekja athygli á einu, sem ég álít, að hér verði að athuga. Það er vissulega hægt að framkvæma jöfnun á verðinu, en aðeins af hálfu verðlagseftirlitsins með verðjöfnun á þann hátt, að leyft sé að leggja á í Rvík meira en sem nemur skatthækkuninni, en minna út um sveitir, en það er hlutur, sem ekki mætti gera, það er óréttlátt. Það mundi þýða það, að þessi skattur yrði enn þá hærri, en ætlazt er til í þessu frv. á þeim, sem nota benzín í kaupstöðum, t.d. í sambandi við flutning á fiski og öðrum vörum, svo að ég álít, að ef svona till. yrði samþ., þyrfti að setja þá brtt. inn í frv., að það væri bannað að hækka benzínverð á nokkrum stað um meira en það, sem nemur skatthækkuninni, því að það væri óréttlátt og það sama og að ýta skattinum yfir á bæina. Ef það ætti að gefa eitthvað sérstakt eftir í þessu sambandi, t.d. bændum, sem erfiðasta og lengsta leið eiga að sækja og hafa því við mesta erfiðleika að stríða, þá verður ríkið að gera það sem slíkt og minnka þá tekjur sínar að sama skapi. Það gengur ekki að láta þá, sem nota benzín í bæjunum almennt, borga slíkt. Ég mun athuga það í sambandi við framhald málsins, ef samkomulag fengist um slíka brtt., ef sú till. yrði samþ., sem fram er komin.

ATKVGR.

Frv. vísað til 2. umr. með 18:3 atkv. og til fjhn. með 22 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 1. umr. og útbýtingu þskj. — Afbrigði leyfð og samþ. með 18 shlj. atkv.

Frsm. meiri hl. (Axel Guðmundsson): Herra forseti. Fjhn. d. hefur tekið málið fyrir og athugað það, en gat ekki orðið sammála og klofnaði. Mælir meiri hl. með því, að frv. verði samþ., en einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til þess að koma fram með brtt., og mun þeim væntanlega verða lýst síðar.

Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta mál sérstaklega fyrir hönd meiri hl. Hann leggur sem sagt til, að frv. verði samþykkt.

Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson): Herra forseti. Það er ekki búið að útbýta enn þá nál. minni hl. Kom ég því þó til skila, strax og fundi lauk hjá okkur í fjhn., þannig að það er ekki mín sök, þó að það sé ekki komið. Þykir mér slæmt, að málið skuli vera tekið fyrir áður en það er komið, því að ég lét prenta sem fylgiskjöl álit, sem komu til Alþ. frá félögum bifreiðaeigenda í landinu viðvíkjandi þessu máli. — Ég vil þá í fyrsta lagi gera að umtalsefni afstöðu mína til þessarar hækkunar, sem farið er fram á og ég minntist á við 1. umr. málsins.

Um það er í fyrsta lagi það að segja, að þessi hækkun, sem ríkisstj. leggur hér til, að framkvæmd verði á innflutningsgjaldi af benzíni, kemur óhjákvæmilega til með að lenda að miklu leyti á almenningi í landinu. Það er vitað, að kostnaður við atvinnurekstur, kostnaður við landbúnaðarframleiðslu og flutning á mjólk og ýmsu öðru kemur til með að hækka við þessa álagningu. Og verði þá þeir einstaklingar, sem fyrst koma til með að borga þennan skatt, bílstjórar, bændur og aðrir, ekki látnir bera byrðarnar, verður þeim velt yfir á almenning í landinu, sem verður svo til þess að skapa vaxandi dýrtíð. Það er augljóst, að með þessu er verið að auka dýrtíðina í landinu, þvert á móti því, sem ríkisstj. hefur lýst yfir, að hún ætlaði að vinna á móti dýrtíðinni. Þar sem ég hef gert þetta áður ýtarlega að umtalsefni, að ríkisstj. reki ranga fjármálapólitík með þessari hækkun á skattinum og þyngi þannig álögur á almenning í landinu, ætla ég ekki að gera það frekar að umtalsefni, en vil taka fram, að það er fyrsta ástæðan til þess, að ég er á móti þessu frv. og legg til, að það verði fellt.

Að öðru leyti kemur þessi skattur, að svo miklu leyti sem hann leggst ekki á almenning, til með að lenda tilfinnanlega á einstökum stéttum hinna vinnandi manna í landinu. Bændur, sem hann kemur vafalaust til með að lenda hart á, eiga hér sína fulltrúa, sem ég býst við, að komi með kröfur frá þeirra hálfu, og mundi ég álíta þau mótmæli eðlileg. Hins vegar hafa þeir lakari aðstöðu til þess, en aðrar stéttir vinnandi manna að mótmæla í krafti sinna samtaka slíkri álagningu. Það hafa hins vegar þær stéttir, sem ég gat um sérstaklega, gert. Það lágu fyrir n. og liggja fyrir Alþingi sameiginleg mótmæli frá félögum bifreiðaeigenda. Ég vil leyfa mér, fyrst málið er tekið svona snemma fyrir, að lesa hér nokkuð upp úr því áliti, sem bifreiðastjórafélagið Hreyfill segir um þetta mál. Eftir að hafa lýst þeirri hækkun, sem nú þegar hefur verið framkvæmd í tíð núv. stj. á rekstrarkostnaði fólksbifreiða vegna laga, sem sett hafa verið af Alþ. s.l. tvö ár, segir, að þessi rekstrarkostnaður nemi:

„Vegna lagasetningar á árinu 1947 kr. 3.000.00 Vegna lagasetn. í ársbyrjun 1949 — 4.834.89 Vegna fyrirhugaðrar hækkunar nú — 1.909.00“ Þetta gerir hvorki meira né minna en kr. 9.743,89 á hverja fólksbifreið.

Og síðar segir félagið í þessu sambandi: „Bifreiðarstjórafélagið Hreyfill telur það hina mestu óhæfu, að þegar skattar eða tollar eru hækkaðir, þá skuli hækkanirnar alltaf vera látnar verka þannig, að þær komi þyngst niður á launþegunum, sem hafa takmarkaðar tekjur, svo og, að þegar slíkar hækkanir eru gerðar, skuli þær ávallt koma þyngst niður á atvinnubifreiðarstjórum og á tekjur þeirra með fimm- til sexföldum þunga, miðað við aðrar stéttir. Þetta á þó alveg sérstaklega við um leigubifreiðastjóra á mannflutningabifreiðum, en þeim er nú gert að greiða hærra gjald af bifreiðainnflutningi en til dæmis vörubifreiðastjórum og innflytjendum jeppabifreiða. Bifreiðastjórafélagið Hreyfill telur þetta vera hámark þeirra aðgerða ríkisvaldsins, sem virðast miða að því að útrýma atvinnubifreiðastjórum sem stétt, og vítir Hreyfill harðlega þau sjónarmið ríkisvaldsins að mismuna þegnunum eftir því, hvar í stétt þeir standa. Félagið telur, að við slíkt verði ekki öllu lengur unað, því að með slíku fyrirkomulagi er atvinna leigubifreiðastjóra algerlega dauðadæmd, vegna þess að ekki er nokkur leið til þess, að þeir geti haft kaup í þessari vinnu, sem nokkuð nálgast laun annarra stétta og þeim ber með hliðsjón af kaupi og kjarasamningum bifreiðarstjóra, sem bein laun taka.“

Síðar ræðir félagið í þessu áliti nokkuð um það, að frv. gerir ráð fyrir hækkuðu ökugjaldi, og segir um það á þessa leið:

„Enda þótt frv. þetta geri ráð fyrir, að atvinnubifreiðarstjórum skuli tryggðar með auknu ökugjaldi tekjur, sem beri uppí þessar auknu álögur, þá telur Bifreiðastjórafélagið Hreyfill það ekki rétta leið með tilliti til dýrtíðarinnar í landinu og að hætta muni vera á því, að atvinna þeirra minnki við það og tekjurnar rýrni að sama skapi.“ Og síðar segir: „Enn fremur skorar Bifreiðarstjórafélagið Hreyfill á Alþingi að sjá svo um, að gerðar verði ráðstafanir til þess, a.m.k. til bráðabirgða, að leigubifreiðum til mannflutninga fjölgi ekki, vegna hins gífurlega atvinnuleysis, sem í stéttinni er um þessar mundir.“

Af þessu má sjá, að þetta félag mótmælir þessum nýju álögum mjög harðvítuglega og álítur, að þær verði til þess að rýra verulega kjör þeirra bifreiðastjóra, sem hafa af þessu atvinnu. Þeir kvarta nú þegar undan því, að atvinnuleysi sé mikið í þessu landi og að ekki megi velta þessu yfir á almenning, eins og dýrtíðin í landinu sé orðin mikil.

Þá eru hér mjög ákveðin mótmæli frá vörubílstjórafélaginu „Þrótti“. Segir þar m. a.: „Atvinnuleysi er nú þegar mjög mikið í stéttinni, og hækkun á leigugjaldinu mundi siður en svo bæta úr því, auk þess mundi sú hækkun ófrávíkjanlega auka almenna dýrtíð í landinu, sem að sjálfsögðu mundi bitna á vörubílstjórum engu síður en öðrum þegnum þjóðfélagsins.

Vörubílstjórar mótmæla því eindregið framkomnu frv. um hækkun á benzínskattinum og telja, að lífsafkoma atvinnubílstjóra hafi nú þegar verið rýrð það freklega með tollum og sköttum á nauðþurftir til bifreiða, að þar sé ekki á bætandi.“

Félag vörubifreiðastjóra hefur þess vegna líka samþykkt mjög eindregin mótmæli gegn benzínskattinum. Sýnir sig þess vegna, að tvö af þeim félögum starfandi manna í landinu, sem sérstaklega hafa atvinnu sína af bifreiðaakstri, hafa mjög eindregið mótmælt þessari aðferð, sem ríkisstj. leggur til, að höfð sé, með tilfinnanlegum álögum á þessa starfsgrein. Telja bæði félögin, að þetta mundi rýra lífsafkomu þeirra og auka atvinnuleysi í stétt þeirra, ef þeim væri gefið tækifæri til að velta þessu á aðra, þannig að hvernig sem að yrði farið, mundi það hafa í för með sér tilfinnanlega kjararýrnun fyrir þessar stéttir, ef skatturinn yrði hækkaður.

Félag sérleyfishafa tekur líka fram, að það sé mjög andstætt þessum álögum, og segir þar meðal annars:

„Svo sem augljóst má vera af því, sem að framan er sagt, getur þess ekki orðið langt að bíða, að sérleyfishafar neyðist til þess að hætta þessum atvinnurekstri vegna hinna þungu skatta og tolla, sem á hann eru lagðir.

Með tilvísun til þess, sem áður segir, leyfir Félag sérleyfishafa sér að mótmæla þessum síauknu álögum á stéttina.“

Í sömu átt fara ummæli Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, þannig að það er alveg auðséð, að þau félög í landinu, sem sérstaklega eru málsvarar þeirra manna, sem þessi skattur er fyrst og fremst lagður á, hafa sent mjög eindregin mótmæli, og býst ég þó ekki við, að ríkisstjórnin geti borið því við, að þessi mótmæli séu að einhverju leyti runnin undan rifjum stjórnarandstöðunnar hér, því að það er vitað, að stjórnin hefur ekki síður átt ýmsa fylgjendur í þessum félögum, þannig að ég býst við, að ríkisstj. verði að líta svo á, að þegar mótmæli koma frá svona félögum, sé það rödd þjóðarinnar, sem mótmælir, án tillits til flokka og hvar sem menn hafa staðið fram að þessu.

Ég minntist á það við 1. umr. þessa máls, hvort ríkisstj. hefði hugsað sér að gera nokkrar ráðstafanir til þess, að olíufélögin tækju að einhverju leyti á sig eitthvað af þeirri álagningu, sem hér er um að ræða. Það er auðséð á frv. ríkisstj., að hún gengur út frá því, að þessari byrði verði sem heild velt á þá, sem benzínið kaupa, og almenning að svo og svo miklu leyti. Það hefði verið hægt að gera ráðstafanir til þess að láta olíufélögin að einhverju leyti bera þetta, en mun litið þýða að koma fram með till. um slíkt, þar sem það fær sjálfsagt ekki góðar undirtektir hjá ríkisstj. Hitt hafði ég hugsað mér, að óþarfi væri að láta olíufélögin beinlínis græða á þessari hækkun á benzínskattinum. Það er svo, að svo framarlega sem þetta frv. verður samþ., mun að öllum líkindum bætast þar við sölugjald, þar sem líklegt er, að tilhneiging verði til þess að leyfa að einhverju leyti álagningu á menn vegna þess, að olíufélögin mundu leggja út fé vegna hækkunar skattsins og reikna kostnað sinn út frá því. Ég hef þess vegna leyft mér að leggja fram brtt. á þskj. 700, sem er á þá leið, að aftan við 1. gr. komi ný mgr., svo hljóðandi: „Vegna þessarar hækkunar á innflutningsgjaldi má hvergi á landinu hækka benzínverð um meira, en þessari hækkun nemur.“ Ég sé, að e.t.v. væri heppilegt að orða þetta öðruvísi, vegna þess að 1. gr. hljóðar ekki bara um hækkun, heldur er ákveðið þar, hvernig innflutningsgjaldið skuli vera nú. Verður líklega að breyta þessari till. þannig, að segja: Vegna þeirrar hækkunar á innflutningsgjaldi, sem felst í þessari gr. samanborið við fyrri lög, má hvergi á landinu hækka benzínverð um meira en þessari hækkun nemur. — Ef þessi till. mín yrði samþ., mundi það í fyrsta lagi þýða það, að olíufélögin mættu ekki hækka benzínverð um meira en það, sem nemur hækkun á innflutningsgjaldi, sem er 22 aurar, og þess vegna mætti ekki leggja þar á neina hækkun í viðbót. Það mundi þýða, að olíufélögin græddu, ekki á þessu innflutningsgjaldi og söluskatturinn mundi að minnsta kosti koma á þau. Í öðru lagi mundi þessi till., ef samþ. yrði, hafa það í för með sér, að ekki væri hægt að hækka benzín í kaupstöðum, t.d. í Rvík og öðrum stöðum við sjávarsíðuna, um meira en næmi þeirri hækkun, sem nú yrði framkvæmd til þess að setja verðið lægra annars staðar. Ef vilji væri fyrir því að hafa það lægra annars staðar, yrði það beinlínis að vera á kostnað ríkissjóðs. Það er líka komin fram till. frá hv. þm. V-Sk. (JG) um það, að bændum í erfiðustu héruðum landsins verði gert kleift að fá benzín við lægra verði. En ég álít, að ef menn vilja verða við þeirri sanngjörnu kröfu, eigi það að verða á kostnað ríkissjóðs, en ekki, að því verði jafnað niður á bæjarbúa með því að hækka benzínið enn meira þar og auka kostnað við mjólkurflutninga og annað slíkt og auka þannig dýrtíðina í landinu. Ef ég þess vegna fengi fyrirheit frá hæstv. ríkisstj. eða stuðningsmönnum hennar um það, að framkvæmd þessarar till., ef samþ. væri, yrði á kostnað ríkissjóðs, gæti ég verið með þessari till.

Það hefur einu sinni áður tekizt að velta hækkun á benzínskatti algerlega yfir á olíufélögin. Það var hægt, þó að þau kvörtuðu. Það er enginn búmaður nema sá, sem kann að berja sér. Þau eru voldug og hafa komið ár sinni vel fyrir borð, en svo framarlega sem reynt er til þrautar, er hægt að láta þau bera nokkurn hluta skattsins og ef til vill allan, en ég vil vita, hvaða undirtektir brtt. fá, einkum till. á þskj. 700. Þá er hér till. á þskj. 697, en ég veit ekki, hvort mælt hefur verið með henni, þar sem ég heyrði ekki alla ræðu hv. 3. þm. Reykv. (AG: Ég mælti ekki fyrir henni.) Þá vil ég fara nokkrum orðum um hana. Það hefur komið fram ósk frá bílstjórafélaginu Hreyfli, að gerðar verði ráðstafanir til að bílum til fólksflutninga fjölgaði ekki frá því, sem nú er, vegna atvinnuleysis í stéttinni. Og í bréfi frá Hreyfli segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Bifreiðastjórafélagið Hreyfill telur það hina mestu óhæfu, að þegar skattar eða tollar eru hækkaðir, þá skuli hækkanir alltaf vera látnar verka þannig, að þær komi þyngst niður á launþegunum, sem hafa takmarkaðar tekjur, svo og, að þegar slíkar hækkanir eru gerðar, skuli þær alltaf koma þyngst niður á atvinnubifreiðastjórum og á tekjum þeirra með fimm- til sexföldum þunga, miðað við aðrar stéttir. Þétta á þó alveg sérstaklega við um leigubifreiðastjóra á mannflutningabifreiðum, en þeim er nú gert að greiða hærri gjöld af bifreiðaflutningi en t.d. vörubifreiðastjórum og innflytjendum jeppabifreiða. Bifreiðastjórafélagið Hreyfill telur þetta vera hámark þeirra aðgerða ríkisvaldsins, sem virðist miða að því að útrýma atvinnubifreiðastjórum sem stétt, og vítir Hreyfill harðlega þau sjónarmið ríkisvaldsins að mismuna þegnunum eftir því, hvar í stétt þeir standa. Félagið telur, að við slíkt verði ekki öllu lengur unað, því að með slíku fyrirkomulagi er atvinna leigubifreiðastjóra algerlega dauðadæmd vegna þess, að ekki er nokkur leið til þess, að þeir geti haft kaup í þessari vinnu, sem nokkuð nálgist laun annarra stétta og þeim ber með hliðsjón af kaupi og kjarasamningum bifreiðastjóra, sem bein laun taka.“

Og síðar í bréfinu: „Enn fremur skorar Bifreiðastjórafélagið Hreyfill á Alþingi að sjá svo um, að gerðar verði ráðstafanir til þess, a.m.k. til bráðabirgða, að leigubifreiðum til mannflutninga fjölgi ekki, vegna hins gífurlega atvinnuleysis, sem í stéttinni er unz þessar mundir. Hins vegar er að taka til starfa nefnd, skipuð af bæjarráði, Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli og væntanlega af ríkisstj., sem á að gera till: um skipulag bifreiðaaksturs á leigubifreiðum til mannflutninga.“

Meiri hl. fjhn. hefur því viljað, að aftan við 3. gr. bættist ný gr., svo hljóðandi:

„Enn fremur er ríkisstj. heimilt að setja reglur um atvinnuréttindi bifreiðastjóra samtímis því, sem benzínskömmtun væri afnumin.“

Í grg. ríkisstj. er minnzt á að afnema benzínskömmtunina, og þetta félag hefur bent á vissa annmarka á afnámi hennar, ef ekkert er gert til að takmarka innstreymið í þessa stétt. Það má vera, að hæstv. ríkisstj. hafi í huga breyt. í þá átt að afnema benzínskömmtun, en meiri hl. n. þótti rétt, ef svo færi, að skömmtunin væri afnumin, að fá heimild til að verða við kröfum Hreyfils, að gerðar yrðu til bráðabirgða ráðstafanir til að hindra offjölgun í þessari stétt, svo að ekki komi til tilfinnanlegs atvinnuleysis. Að tilhlutun félagsins og bæjarstjórnar Rvíkur mun verða hafinn undirbúningur að reglugerð, og er ætlazt til þess, að hæstv. ríkisstj. taki þar þátt í.

Ég vísa síðan til þess, sem ég sagði áðan, og væri æskilegt, að hv. nm. athuguðu það. Ég hef nú gert grein fyrir brtt. þeim, sem ég flyt eða stend að. Ég segi, að ég er á móti frv., og legg til, að það verði fellt, en bar þessar brtt. fram til að laga það, ef það yrði samþ.

Ingólfur Jónsson: Herra forseti. Ég vildi segja hér nokkur orð um frv. um nýjan benzínskatt, þar sem lagt er til, að skatturinn hækki um 22 aura, úr 9 aurum í 31 eyri pr. lítra. Það, sem talið er, að réttlæti þetta, er, að ríkissjóð vanti fé og að þessi skattur sé lægri hér, en annars staðar. Ég efa ekki, að ríkissjóð vanti tekjur, en held, að hægt hefði verið að ná þeim með hagfelldara móti og svo, að hann hefði ekki íþyngt framleiðslunni svo mjög. Hæstv. ríkisstj. var ljóst, hvaða leið hún vildi fara, og gekkst ekki inn á aðrar leiðir. Það má vel vera, að svo sé búið um, að ekki þýði að andmæla eða bera fram brtt. af þeim ástæðum, að þingmeirihluti sé fyrir þessu. En þó að svo sé, ætla ég að leyfa mér að bera fram brtt., sem miðar að því að létta á skattinum á allri framleiðslu., ef till. verður samþ. Brtt. er við 2. gr. og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Við gr. bætist: Einnig skulu eigendur vörubifreiða, sem notaðar eru til aðdrátta og flutninga á framleiðsluvörum landbúnaðarins frá stöðum, sem eru 50 km eða meira frá höfn, fá endurgreidda 20 aura á lítra af sannanlegri benzíneyðslu við slíkan akstur.“

Ástæðan til þess, að ég tilgreini aðeins þær bifreiðar, sem eiga 50 km eða meira til hafnar, er sú, að þessi skattur er tilfinnanlegastur á bifreiðum, sem langt eiga til hafnar, svo sem mjólkurflutningabílum. Ef þetta er látið miðast við takmarkað svæði, rýrist tekjustofninn minna, en ef miðað væri við alla vörubíla. Ég hef því ekki treyst mér til að leggja það til, því að sigurvænlegra er að fá þetta fram en ef um víðtækari till. væri að ræða. Hins vegar flutti ég í fyrra till. ásamt hv. þm. N–Ísf. (SB) um tvenns konar verð á benzíni, en hún þótti svo fráleit, að hún fékk engan byr og hæstv. ríkisstj. vildi ekki líta við henni og þess vegna var hún ekki endurvakin. Hins vegar liggur í hlutarins eðli, að réttlátt er að láta óþarfaeyðslu borga meira en það, sem eytt er til gagns, þó að þessi till. okkar fengi engan byr í fyrra. Ef frv. verður samþ., hefur það í för með sér hækkun á mjólk og einnig framleiðsluvörum landbúnaðarins, þar sem flutningur á áburði og fóðurbæti hækkar og þetta hækkar landbúnaðarvísitöluna, þegar hún verður reiknuð út. Annaðhvort hækkar því dýrtíðin eða niðurgreiðslur aukast. Þess vegna flyt ég þessa till., sem mundi draga úr, að þessar vörur þyrftu að hækka, ef hún yrði samþ.

Mér hefði ekki fundizt óeðlilegt, að hæstv. ríkisstj. hefði um leið og hún bar þetta fram reynt að gera ráðstafanir til, að strandferðirnar bæru sig. Ríkissjóður gefur nú árlega með þeim stórfé. Þetta gat gengið meðan ríkið hafði nógar tekjur, en þegar fjárhagurinn er eins og hann er nú, finnst mér tímabært að afnema þessar meðgjafir og ekkert réttlæti í því að skattleggja flutninga á landi, en gefa stórfé með strandferðunum. Samtímis og benzínskattur er hækkaður, ætti því að hækka skatt á olíu til strandferðaskipanna og hækka flutninga og fargjöld með þeim, ef samræmi ætti að vera. Þeir, sem flytja vöru sína sjóleiðis, ættu að búa við það sama og þeir, sem flytja hana á landi. En það er ekkert gert til að reyna að losa ríkið við tap af strandferðunum eða reyna að græða á olíu til skipa. Ég vænti þess því, að till. mín verði samþ. og frv. þannig lagað, ef á að samþ. það. En ég er á móti frv., jafnvel þótt till. mín verði samþ.

ATKVGR.

Afbrigði um skrifl. brtt. (sjá þskj. 705) leyfð og samþ. með 18 shlj. atkv.

Skúli Guðmundsson: Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. gerði grein fyrir nál. á þskj. 687, en á þskj. 697 er einnig brtt. frá meiri hl. fjhn., þar sem sagt er, að ríkisstj. megi setja reglur um atvinnurétt bifreiðastjóra. Ég vil taka fram, að það er ekki sá sami meiri hl., sem stendur að þessari till. Að till. á þskj. 697 standa hv. 2. þm. Reykv. (EOl) og 2 aðrir hv. nm., og vil ég mæla gegn því, að sú brtt. verði samþ. Það er viðkvæmt mál, þegar um atvinnuréttindi stétta er að ræða, og er ég á móti að setja ákvæði um það í frv. Ef til þess kæmi, að slíkt væri talið nauðsynlegt, þá yrði það tæplega gert nema með sérstakri löggjöf.

Samgmrh. (Emil Jónsson): Ég skal ekki lengja mikið umr. um þetta mál, en mér þykir hlýða að segja nokkur orð um það. — Það hefur oft verið rætt um það áður, að benzínskattur væri hér lágur miðað við það, sem tíðkaðist í öðrum löndum, en útgjöld af vegagerð óeðlilega há, bæði fyrr og síðar, en sérstaklega á síðustu árum. Það var því ekki undarlegt, þegar ríkisstj. fór að skyggnast um eftir auknum tekjum, að benzínskatturinn yrði fyrir valinu. En eins og ég sagði áðan, er þessi skattur lægri hjá okkur, en nágrannaþjóðunum. Þetta stafar af því, að þar gildir sú regla, að benzínskattur er lagður á það hár, að hann nægi til að standa undir nýbyggingu og viðhaldi á vegum, en þar er hægara um vik, þéttbýli meira og fleiri bílar, enda komið lengra í því að byggja vegakerfi. Samkv. grg. frv. er gert ráð fyrir, að þegar búið er að draga frá það, sem fer í brúasjóð, verði ekki meira eftir en það, sem fer til viðhalds á vegunum, en það er frá 10–14 millj. kr. á ári, en það er svo gífurlega mikið, að varla verður staðið undir því nema að fá öruggar tekjur í því skyni. Í grg. frv. er sagt, að viðhaldskostnaður 1948 hafi lækkað niður í 11,7 millj., en þetta er ekki rétt nema að nokkru leyti, því að nokkur hluti þess, sem var unnið síðari hluta árs 1948, fékkst ekki greiddur þá, en var fluttur yfir á 1949, þannig að viðhaldskostnaður 1948 er raunverulega yfir 13 millj. kr., þegar öll kurl koma til grafar.

Ég get ekki verið hv. 2. þm. Rang. (IngJ) samþykkur, að hækka beri olíu til skipa, því að ríkissjóður ver miklu meira fé til vegagerðar og viðhalds á vegum, en til strandferða. Það er eðlilegast, að benzínskatturinn standi undir viðgerð og nýbyggingu vega, en þegar búið er að draga frá það, sem fer í brúasjóð, þá er aðeins eftir fyrir viðhaldi.

Aðalástæðan til, að ég stóð á fætur, var till. sú, sem hv. 2. þm. Reykv. stóð að á þskj. 697. Hann hefur ásamt fleiri þm. borið fram till. um að heimila ríkisstj. að setja reglur um atvinnuréttindi bifreiðarstjóra samtímis því, sem benzínskömmtunin kynni að verða afnumin. Það kemur úr hörðustu átt frá hv. 2. þm. Reykv., að gera þurfi gagnráðstafanir til þess að vega á móti afnámi skömmtunarinnar, því að þessi þm. og flokksmenn hans hafa aldrei þreytzt á því að halda þeirri skoðun fram á Alþingi, að benzínskömmtunin hafi í einu og öllu verið til bölvunar landi og lýð, og kemur því undarlega fyrir sjónir, að þegar afnema á skömmtunina„ kemur í ljós, að hún hefur á þennan hátt orðið til þess að viðhalda starfi þessarar atvinnustéttar í landinu á þann veg, að nú þarf að gera aðrar ráðstafanir, ef þessi skömmtun verður afnumin. Ég hef ekkert við þessa skoðun að athuga. Hún kemur mér ekkert á óvart, og þess vegna undrar mig ekkert, þó að eitthvað þurfi að gera, ef atvinna þessarar stéttar á ekki að verða fyrir skakkaföllum, sem geti orðið öllum til óþurftar. Að þessu leyti get ég sætt mig við það efni, sem í brtt. felst. En mér finnst, að eins og þessi brtt. er sett fram, sé hún ærið óljós. Hún segir raunar, að ríkisstj. sé heimilt að setja reglur um atvinnuréttindi bifreiðastjóra samtímis því, sem benzínskömmtunin væri afnumin. Viðkunnanlegra hefði mér nú þótt, að þess hefði verið getið í till., í hvaða átt þessar reglur ættu að fara. Að vísu hefur því verið lýst yfir af frsm. þessa meiri hl., en eðlilegra hefði verið að taka það fram í till., á hvern hátt þetta bæri að gera.

Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson): Herra forseti. Þá er komin fram fyrsta yfirlýsingin frá einum af þeim mönnum, sem á undanförnum árum hafa haft sérstaklega með verð á landbúnaðarvörum að gera og ekki hafa stundum verið smeykir við að hækka þær, þ.e. hv. 2. þm. Rang. (IngJ), um það, að þessi benzínskattur muni óhjákvæmilega leiða til þess, að mjólk hækki í verði. Ég minntist á það í ræðu minni áðan, að svona hlyti að fara. Og nú hefur sá stuðningsmaður hæstv. ríkisstj., sem er allra þm. einna kunnugastur verðlagningu landbúnaðarafurða, lýst því yfir, að það sé óhjákvæmilegt, að mjólk hljóti að hækka í verði, eftir að þessi skattur hefði verið lagður á, og hefur lýst því yfir, að hann sé fyrir sitt leyti á móti frv. Nú liggur mjög nærri að spyrja hæstv. ríkisstj., sem ég býst ekki við, að efist um réttmæti þess, sem hv. 2. þm. Rang. hefur sagt, hver sé hennar hugmynd og hvort hún hugsi þá ekki neitt fram á þann tíma, að mjólk muni hækka í verði og fleiri vörur og dýrtíðin aukast. Býst ríkisstj. kannske við, að hún muni sitja lengi úr þessu? Eða lætur hún sér nægja að gera þessar ráðstafanir núna, vitandi það, að afleiðing þeirra verður vaxandi dýrtíð og gerir enn þá erfiðara að ráða við dýrtíðina á eftir? Ég býst við, að eina hugmyndin, sem vaki fyrir ríkisstj. í þessu sambandi við þessar ráðstafanir, sé þessi: Ja, við fáum þó alltaf peninga í bili í tóman ríkissjóðinn með þessum hætti, og mjólkurhækkunin kemur ekki fyrr en ofurlítið seinna, og við vinnum þá tíma á meðan. Ég býst við, að ef hæstv. fjmrh. hafa ekki verið ljósar afleiðingar þess, ef þetta verður lögfest, þá hafi hann nú fengið staðfestingu á því hjá einum sérfræðingnum í verðlagningu landbúnaðarafurða, að hans ágæti stuðningsmaður vilji nú ekki fylgja honum í þessu máli. Ég skil þetta ákaflega vel. Það er ákaflega erfitt fyrir þá menn, sem hafa með það að gera að verðleggja landbúnaðarafurðir, að greiða atkvæði með svona till. eins og hér liggur fyrir. Menn hljóta að sjá, að hér eru á ferðinni ráðstafanir, þar sem aðeins er tjaldað til einnar nætur. En það versta er þó það, að þessar ráðstafanir gera allar úrbætur erfiðari seinna meir og eru til þess eins, að ríkisstj. geti haldið áfram á sinni vitlausu braut nokkrar vikur eða mánuði enn. Og þó hefur maður það á tilfinningunni, þegar þetta frv. er rætt, að sem allra flestir úr stjórnarflokkunum vilji skorast undan ábyrgðinni. Þetta tekjuöflunarfrv. er ekki flutt sem stjfrv. Að minnsta kosti er gefið til kynna, að ekki hafi verið neitt 100% samkomulag um frv. Það er flutt af meiri hl. fjhn., eins og oft kemur fyrir, en strax og þetta frv. kemur til Ed., rís einn af formönnum stjórnarflokkanna upp á móti því, og þegar það kemur til Nd., eru fulltrúar bænda úr Sjálfstfl. og Framsfl. ýmist búnir að koma fram með brtt., sem ýmsar mundu skerða þetta verulega, eða lýsa sig algerlega andstæðinga sjálfs málsins. Það er auðséð, að farið er að hrikta í og að þeir stjórnarflokkar sem þykir þetta koma harðast niður á sínum umbjóðendum, vilja gjarnan koma sér undan ábyrgð. Mér þótti mjög vænt um þessa yfirlýsingu hv. 2. þm. Rang., því að hún staðfestir það, sem ég hef haldið fram í þessu máli, og er ein ástæðan til þess, að þm. ættu að athuga vel sinn gang. Og ef þeir væru viðstaddir hv. 1. þm. Rang. (HelgJ) og hv. 1. þm. Árn. (JörB), hefði ég mjög mikla ánægju af að heyra þeirra skoðun á þessu máli, því að ef að vanda lætur, hefur það áhrif á þá, þegar svona eindregin mótmæli koma fram eins og þau, sem komu frá hv. 2. þm. Rang.

Þá minntist hv. 2. þm. Rang. (IngJ) á það, að hægt hefði verið að hafa aðra aðferð um álagningu benzínskattsins. Hann hefur sjálfur komið hér fram með till. um mismunandi verð á benzíni. Af einhverjum var sagt þá, að þetta tíðkaðist í Rússlandi og væri því óhæfa hérna. Og ég vil líka minna á það, að ég minntist á það við 1. umr. þessa máls, að líka væri hægt, ef menn vildu láta þennan skatt koma fremur á lúxusbílana, að hafa hann hærri á þeim bílum, sem notaðir eru, til skemmtunar. En þetta hefur hvort tveggja litlar undirtektir fengið, og mundi víst lítið þýða að koma fram með brtt., sem færu í þessa átt. Væri þó hægt að haga þannig bifreiða- og benzínskattinum, að hann kæmi meira niður á þeim, sem eyða til óhófs, svo framarlega sem hæstv. ríkisstj. vildi hafa þann hátt á um sína skattlagningu. Nú eru komnar hér fram tvær till., önnur frá hv. 2. þm. Rang. og hin frá hv. þm. V-Sk. (JG) og hv. þm. V-Húnv. (SkG), sem báðar ganga að nokkru leyti út á það að undanþiggja bændur þessu gjaldi. Ég vil segja það, að ef fara á að greiða bændum til baka af því gjaldi, sem á að leggja á þá, fer að verða athugandi líka, hvort ekki eigi einnig að borga þeim, sem eiga vörubíla og vinna við fiskframleiðslu og fiskflutninga, einmitt þá framleiðslu, sem allt benzín er keypt fyrir.

Ég býst ekki við, að höfuðatriðið, sem nú veldur því, að ríkisstj. hefur afnumið benzínskömmtunina, sé það, að ríkisstj. áliti okkur svo miklu ríkari af gjaldeyri, en við vorum 1947. Ef það hefði verið skoðun ríkisstj., þegar þessi reglugerð var sett, hefði hún varla farið svona í þetta. Ég býst við, að höfuðástæðan fyrir afnámi skömmtunarinnar sé ekki og geti ekki verið gjaldeyrissparnaður, heldur hitt, að benzínskömmtunin hefur ekki borið árangur, og svo mun hæstv. fjmrh. vanta meira fé. Ég held því, að þessi ósk frá Hreyfli um slíka reglugerð til bráðabirgða, á meðan bæjarráð, ríkisstjórn og Hreyfill undirbúa reglugerð, sé mjög sanngjörn og sé eðlilegt að verða við þeirri ósk, og ég álít, að hún hafi jafnmikla stoð í l. og ákvæði reglugerðarinnar frá 1947. Og ég efast um, að þörf sé á að útskýra tilgang þeirrar reglugerðar nánar, þar sem það, að þetta skuli vera sett samtímis og benzínskömmtunin er afnumin, gefur til kynna, að tilgangurinn sé sá sami og með reglugerðinni frá 23. sept., sem kemur fram í ósk Hreyfils. Hitt er rétt, sem hæstv. samgmrh. sagði áðan, að þessi mál um atvinnuréttindi eru alltaf viðkvæm mál, en ef þetta mál yrði útkljáð í haust og reglugerð sett þangað til, þá væri tryggt, að búið yrði að útkljá málið áður en Alþingi færi að fjalla um það.

Það er ekkert undarlegt, þótt komi hljóð úr horni hjá vissum félögum, þegar benzínskömmtunin er afnumin, og í rauninni er það ekki vegna sjálfrar benzínskömmtunarinnar, heldur vegna 7. gr. reglugerðarinnar, sem bifreiðastjórafélagið Hreyfill setur fram þessar óskir. Ég vil nú minnast á það hér, þó að það sé þessu máli óskylt, að úr því að ríkisstj. vill fara að afnema skömmtun, hvort hún sér sér þá ekki fært að afnema skömmtunina á kaffinu. Það yrði ábyggilega enginn mótfallinn afnámi þeirrar skömmtunar. En þetta er nú bara innskot. Heildarafstaðan til þessa skatts finnst mér raunar vera á þann veg hér í d., að hann eigi hér fáa formælendur, enda er þessi skattálagning óréttlát, þung og gagnslítil til þess að vinna á móti dýrtíðinni eða gera rekstur ríkisbáknsins heilbrigðari, en nú er.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Út af brtt. hv. 2. þm. Rang. (IngJ) vil ég láta í ljós sama álit mitt og viðvíkjandi till. hv. þm. V-Sk. (JG). Ég tel ekki hægt að skerða þessar tekjur, sem nú eru orðnar minni, en orðið hefði, ef benzínskattsbreytingin hefði verið gerð fyrr. Þeir hv. þm., sem ekki geta fellt sig við þetta, ættu heldur að koma með sparnaðartill. en að höggva skarð í þessar tekjur, sem allir viðurkenna þó, að fara til viðhalds vega og til brúabygginga. Það er út af fyrir sig mjög eðlilegt, að stjórnarandstaðan reyni að fleyga frv. sem mest með brtt., og er ekkert við því að segja, enda vissi maður alltaf, á hverju var von úr þeirri átt. Ég hygg þó, að öllum sé ljóst, að ekki verður komizt hjá að auka tekjur ríkissjóðs, og því ættu allir, sem vilja, að fjárl. fái sómasamlega afgreiðslu, að sjá sóma sinn í því að flytja ekki brtt., sem eyðileggja þetta frv. að meira eða minna leyti.

ATKVGR.

Brtt. 700 felld með 21:9 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: HelgJ, HermG, IngJ, KTh, LJós, SigfS, SG, ÁkJ, EOI.

nei: EystJ, FJ, GÞG, HÁ, AG, JG, JPálm, JS, JörB, PÞ, PO SB, SEH, SK, SkG, StJSt, StSt, StgrSt, ÁÁ, EmJ, BG.

JóhH greiddi ekki atkv.

4 þm. (GTh, JJ, ÓTh, BÁ) fjarstaddir.

4 þm. gerðu grein fyrir atkv.:

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson): Verðlagseftirlitið á að hafa í hendi sér, hvert benzínverðið er. Í trausti þess, að það leyfi ekki meiri hækkun á benzínverðinu, en brýn nauðsyn krefur, segi ég nei. Ég vil ekki rígbinda það á þennan hátt.

Gylfi Þ. Gíslason: Með skírskotun til grg. hæstv. menntmrh. segi ég nei.

Jón Sigurðsson: Með skírskotun til yfirlýsingar hæstv. menntmrh. segi ég nei.

Skúli Guðmundsson: M.a. af þeim ástæðum, að ég tel sanngjarnt, að meiri verðjöfnun verði gerð á benzínverðinu á ýmsum útsölustöðum á landinu, en það mundi ekki verða leyft, ef þessi brtt. væri samþ., þá segi ég nei.

1. gr., a samþ. með 20:9 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: SB, SEH, SK, SkG, StJSt, StSt, StgrSt, ÁÁ, EmJ, EystJ, FJ, GÞG, HÁ, AG, JóhH, JPálm, JS, JörB, PÞ, BG.

nei: SG, ÁkJ, EOl, HermG, IngJ, JG, KTh, LJós, SigfS.

HelgJ, PO greiddu ekki atkv.

4 þm. (BÁ, GTh, JJ, ÓTh) fjarstaddir.

2 þm. gerðu grein fyrir atkv.:

Sigurður Kristjánsson: Hv. þdm. er kunnugt um það, að ég hef margsinnis mótmælt því, að lagðar væru á nýjar álögur, og ég hef þess vegna krafizt þess, að jöfnuði yrði komið á fjárl. með því að skera niður útgjöld. Hæstv. Alþ. hefur ekki aðhyllzt þessa skoðun, og með því að stofna til mikils greiðsluhalla á fjárl. hefur það neytt mig til þess að fylgja þessari ólyfjan, og segi ég já.

Pétur Ottesen: Ég tel, að það sé ekki rétt að farið samkv. venju að bera 1. gr. upp eins og nú er gert, og þess vegna tek ég ekki þátt í atkvgr. um hana og greiði ekki atkv.

Forseti (BG): Eftir mínu áliti er fullkomlega heimilt að bera frvgr. upp í fleiri en einu lagi, ef svo vill verkast, ef kröfur liggja fyrir um það og það getur staðizt efnislega. (PO: Ég fer eftir minni skoðun bara.) Já, ég fer einnig eftir minni skoðun.

1. gr., b.–e. samþ. með 24:5 atkv.

Brtt. 705 felld með 22:6 atkv.

Brtt. 669 felld með 18:11 atkv.

2. gr. samþ. með 18:1 atkv.

3. gr. samþ. með 19:1 atkv.

Brtt. 697 (ný gr., verður 4. gr.) samþ. með 19:6 atkv.

4.–6. gr. (verða 5.–7. gr.) samþ. með 19:2 atkv.

Ákvæði til bráðabirgða samþ. með 18 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 21:6 atkv.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Á þskj. 716 hef ég leyft mér að flytja brtt., svo hljóðandi: „Við 1. gr. Aftan við a-lið bætist: og tekur gjald þetta einnig til benzínbirgða innflytjenda, sem til eru í landinu, þá er lög þessi ganga í gildi, og sömuleiðis til birgða einstakra manna eða félaga, en undanþegnir hækkun þessari skulu þó vera 300 lítrar hjá hverjum eiganda.“ Þessi till. er flutt til þess, að skýrt og ótvírætt sé, að gjald þetta skuli ná til þeirra benzínbirgða, sem til eru í landinu. Þetta ákvæði var í l. frá 1932, og má ef til vill segja, að óþarfi hafi verið að endurtaka það hér, en til þess að taka af öll tvímæli er það gert, enda nauðsynlegt til þess að l. nái tilgangi sínum, ef samþ. verða.

Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson): Herra forseti. Ég ætla ekki að fara út í umr. um þetta mál nú. Það var rætt svo rækilega við 2. umr., að greinilega kom fram, hvað meiri hl. ætlar að gera og tilgangslaust að reyna að hafa áhrif á þá fyrirætlun eins og nú er komið. Hitt vildi ég aðeins minnast á, hvort ekki sé vilji til að koma í veg fyrir, að allur þessi skattur komi fram sem verðhækkun á benzíninu. Að vísu flutti ég hér brtt., sem var felld, en hún var þess efnis, að hvergi á landinu mætti hækka benzínverðið um meira, en skatthækkuninni næmi. En vera má, að málið horfi öðruvísi við, ef fellt væri úr till. orðin „hvergi á landinu“. Það sýnist ekki nema réttlátt, að olíufélögin beri einhvern hluta af þeirri hækkun, sem frv. fer fram á. Ég mun samt ekki flytja brtt. um þetta atriði, nema það fái einhverjar undirtektir í hv. d., en taldi rétt að vekja máls á þessu til að vita, hvort þm. vilja sporna við, að þessum skatti verði öllum velt yfir á almenning. — Ég vil líka benda á, að ekkert ákvæði er í frv. um það, hvað benzínverðið má vera, og sömuleiðis ekki minnzt á það í brtt. fjmrh. varðandi þær birgðir, sem til eru í landinu, heldur er aðeins talað um, að skatturinn skuli vera 31 eyrir.

Þetta þykir mér rétt að láta koma fram, ef þdm. sjá ástæðu til að setja ákvæði um þetta í frv.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Ég held, að það sé ástæðulaust að misskilja þetta frv. og þess vegna ekki þörf á að flytja nýja brtt.

ATKVGR.

Brtt. 716 samþ. með 18 shlj. atkv.

Of skammt var liðið frá 3. umr. í Nd. — Afbrigði leyfð og samþ. með 11 shlj. atkv.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Þetta mál er gamall kunningi hér í hv. d. og hefur nú fengið afgreiðslu hv. Nd., og var þar samþ. brtt. á þann veg, að þar var sett inn ákvæði um það, að skatturinn skuli gilda fyrir þær benzínbirgðir, sem til væru í landinu, þegar l. tækju gildi. Svo var og sett inn í frv. breyt., sem hafði komið til orða hér í hv. d. af einum hv. þm., sem þó ekki flutti um það brtt. Nú, það hefur sem sagt komið fyrir, að sú breyt. var sett inn í frv. í Nd., að þar var bætt inn nýrri gr., 4. gr., sem er á þá leið, að ríkisstj. er heimilt að setja reglur um atvinnuréttindi bifreiðastjóra samtímis því, sem benzínskömmtun væri afnumin. Ég vil leyfa mér að leggja til, að hv. d. samþ. þær breyt., sem hv. Nd. hefur gert, þannig að málið nái lögfestingu á þann veg.

Forseti (BSt): Þetta mál hefur nú ekki komið fyrir hv. fjhn., og geri ég ekki ráð fyrir, að n. þyki þær breyt., sem á frv. hafa orðið, svo mikilvægar, að hún óski að taka þær sérstaklega til meðferðar.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Mig langaði aðeins til þess að fá upplýsingar um 4. gr. Hér stendur: ,,Enn fremur er ríkisstj. heimilt að setja reglur um atvinnuréttindi bifreiðastjóra samtímis því, sem benzínskömmtunin væri afnumin.“ Á þetta að skoðast þannig, að það sé á valdi að setja hvaða reglur sem er um þetta, t.d. hvað margir menn megi vera í atvinnugreininni, eða setja þeim einhver skilyrði, sem ekki eru nú í l.? Svo er talað um að þetta megi gerast samtímis því, sem benzínskömmtun sé afnumin. En mér skilst á gr., að þetta gildi þó ekki, þótt skammturinn sé aukinn takmarkalaust, þannig að engin raunveruleg skömmtun verði, og er þá auðvelt að komast fram hjá þessu ákvæði. Ef skammturinn væri t.d. aukinn tifalt frá því, sem nú er, þá hefði þessi gr. enga þýðingu. En ef ráðh. á að hafa í sínu valdi að setja um atvinnuréttindi bílstjóra hvaða reglur sem er, þá þykir mér það nokkuð viðtækt vald, og vildi ég þá gjarnan heyra, undir hvaða ráðh. þetta ætti að heyra. Það fer nokkuð eftir því, hvort ég get staðið með frv. eða ekki. Það væri hægt fyrir viðkomandi ráðh. að svipta svo og svo marga bifreiðastjóra atvinnuréttindum með því að ákveða tölu atvinnubifreiðastjóra lægri eða með því að setja hin erfiðustu skilyrði, en svo getur gr. orðið einskis virði, ef benzínskömmtunin verður aldrei afnumin, en skammturinn bara aukinn. Ég verð að segja, að ég undrast, að hæstv. ráðh. skyldi taka við þessari gr. inn í frv.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson): Herra forseti. Viðvíkjandi fyrirspurnum hv. þm. Barð., þá vísa ég til hæstv. samgmrh. um það atriði, því að það mun aldrei í hlut míns ráðuneytis koma að skipta sér af atvinnuréttindum bifreiðastjóra.

Samgmrh. (Emil Jónsson): Herra forseti. Þegar fjárhagsráðsl. voru sett og heimiluð skömmtun m.a. á benzíni, þá varð það að ráði, að fjárhagsráð semdi reglugerð, þar sem gert var ráð fyrir því, að ákveðinn fjöldi bifreiðastjóra yrði starfandi með hliðsjón af skömmtuninni. Var þá ákveðið, að þeir skyldu vera jafnmargir og þeir voru, þegar skömmtunin var upp tekin, og þannig hefur þetta verið síðan. Nú þegar það kvisaðist, að skömmtunina ætti að afnema, þá skildi þessi stétt, að skömmtunin hefði þó ekki verið henni einskis nýt og bar þá fram erindi um það við ríkisstj., að ráðstafanir yrðu gerðar til þess að stéttin yfirfylltist ekki af nýjum mönnum, svo að stórskertist atvinna þeirra, sem fyrir væru. Sams konar erindi munu atvinnubifreiðastjórar hafa sent bæjaryfirvöldunum. Komið hefur til orða, að eimhver samvinna yrði milli Reykjavíkurbæjar og ríkisstj. um það, hvernig heppilegast væri að setja reglur um þetta. Till. sú, sem liggur til grundvallar 4. gr., var borin fram af hv. 2. þm. Reykv. og fleirum í Nd. Innti og flm. eftir því, hvernig skilja bæri till., því að ég var ekki á því hreina með það og óskaði eftir, að hún væri ákveðnar formúleruð. Fékk ég þau svör, að ætlazt væri til, að þetta yrði í svipuðu horfi og verið hefði til þessa dags, og geri ég ekki ráð fyrir, að ég mundi framkvæma þetta á annan hátt, en halda svipaðri tölu og verið hefur, þangað til niðurstöður hafa fengizt af viðræðum bæjarstjórnar Reykjavíkur og ríkisstj. um þetta.

Björn Ólafsson: Herra forseti. Út af þessari nýju 4. gr., sem Nd. setti inn í frv., þá álit ég hana þess eðlis, að rétt væri að láta frv. ganga aftur til n. til athugunar. N. heldur fund í fyrramálið og getur þá athugað málið. Ég sé ekki, að það sé rétt að binda saman skömmtun eða að henni verði aflétt og atvinnuréttindi og akstursreglur bifreiðastjóra. Það er óeðlilegt og gæti orðið til þess að hæstv. ráðh. sæi sér ekki fært að létta af skömmtuninni vegna þess vanda, sem skapaðist vegna þessarar 4. gr., því að þó það sé æskilegt að hafa reglur um atvinnuréttindi bifreiðastjóra, þá virðist það vera krafa bílstjóra, að stéttinni sé lokað, og það kemur hæstv. ráðh. í vanda að ráða fram úr slíku máli. Áður en núverandi skömmtun var sett á, gátu menn keypt benzín án hindrunar, en þá var ekkert slíkt á döfinni hjá bílstjórum, að loka þyrfti stéttinni á þeim tíma. Þess vegna tel ég, að taka verði því með varúð, þegar sú stétt, sem mest var á móti skömmtuninni, telur nú, að ekki megi létta henni af, af því að frjáls sala á benzíni eyðileggi atvinnu hennar. Hitt er það, að ég skil vel, að það sé hagur fyrir mennina í þessari stétt, að henni sé lokað, því að þá fá þeir auðvitað einkarétt á þessari vinnu, en ég tel mjög viðsjárvert að fara inn á slíka braut og hætt við, að slíkt dragi dilk á eftir sér.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Þegar umr. var frestað áðan, þá var ég búinn að biðja um orðið og ætlaði að minnast á 4. gr., sem er ný gr. sett inn í Nd. Hæstv. ráðh. var spurður um það áðan, hvernig hann mundi nota þessa heimild, og hann svaraði því á þá leið, að með reglugerð, sem sett var um skömmtunina, hefðu þeir bílstjórar, sem þá keyrðu frá stöð og eru atvinnubílstjórar, fengið stærri benzínskammt en hinir. Ég skildi hann svo, að ef til þess kæmi, að þessi atvinnuréttindi bílstjóra væru takmörkuð, þá hugsaði hann sér eitthvað svipað áframhald, þ.e.a.s., að atvinnubílstjórar, sem keyra frá stöð, héldu áfram, en aðrir kæmu þar ekki til greina. Hann talaði um bæjaryfirvöldin í Rvík, til þeirra hefðu þessir menn snúið sér. Ég vil benda á það, að þegar maður tekur meirapróf í bílkeyrslu, er hann búinn að fá réttindi til að keyra bíl og selja öðrum flutning, en minna próf veitir ekki réttindi til að flytja farþega fyrir borgun, en meiraprófið gerir það. Mér er óskiljanlegt, hvernig hæstv. ráðh. hugsar sér að fá heimild í l. til að setja reglugerð, sem upphefji landslög. Mér er líka óskiljanlegt, hvernig hann hugsar sér að fara að semja við bæjarstjórnina í Rvík um að setja reglugerð, sem á að gilda fyrir bifreiðastjóra um allt landið. Ætlar hann að fara að semja við bæjaryfirvöldin í Rvík um það, hvað atvinnubílstjórar megi vera margir úti um landið? Ég held, að það sé fjarri lagi. Þess vegna vil ég vænta þess, þó að 4. gr. verði látin standa, svo að ekki verði farið að senda málið milli d., að hæstv. ráðh. noti alls ekki heimildina. Hitt gæti komið til mála, að athuga til haustsins, hvort á að herða á kröfunum, sem veita mönnum þau réttindi nú, að mega vera atvinnubílstjórar og selja mönnum flutning í bílum. En meðan það er ekki gert með l., tel ég, að ekki komi til greina að fara að setja einhverja reglugerð eftir heimild í öðrum l. um það, að ekki fleiri en svo og svo margir menn megi stunda þessa atvinnu. Þess vegna vil ég vænta þess, þó að þetta verði samþ., að hæstv. ráðh. láti sér ekki koma til hugar að setja neinar reglur um þetta. En hitt kæmi til mála, að láta athuga, hvort ekki væri rétt að herða á þeim kröfum, sem nú eru, ef mönnum þykir nauðsynlegt að tryggja betri menn í starfið eða á einhvern hátt betri þjónustu, en nú er. Þá gæti þurft slík skilyrði, en það á að undirbúa með sérstökum l., en ekki að breyta með reglugerð í öðrum l., sem mér finnst stappa nærri broti á stjórnarskránni.

Björn Ólafsson: Herra forseti. N. hefur átt tal um þetta mál og orðið sammála um að skila munnlegu áliti. Meiri hl. n. er mjög hikandi við það að samþ. 4. gr. eins og hún er. Hann telur, að gr. eins og hún er gefi of víðtækt og ákveðið vald um að setja reglur um atvinnuréttindi bílstjóra og svona lagasetning geti skapað illt fordæmi. Hins vegar er meiri hl. n. það ljóst, að ekki sé heppilegt, að málið fari milli d., eins og komið er, og hefur því orðið ásáttur um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, ef hæstv. samgmrh. telur sér fært að gefa yfirlýsingu um það, að þetta ákvæði 4. gr. verði aðeins notað til bráðabirgða, ef nauðsyn krefur, en hins vegar að undirbúin verði löggjöf um atvinnuréttindi bílstjóra og frv. um það verði lagt fyrir næsta þing og þá verði sett löggjöf um þetta efni, en þessum málum verði ekki til frambúðar skipað með reglugerð, sem samin verði að meira og minna óathuguðu máli um leið og benzínskömmtunin verður afnumin. Ef hæstv. ráðh. sér sér fært að gefa yfirlýsingu í þessa átt, vill meiri hl. n. mæla með, að frv. nál fram að ganga gegnum d. óbreytt. En einn nm., 4. landsk. (BrB), lýsti sig mótfallinn frv., einn nm. var fjarverandi, og hefur n. ekki leitað hans álits.

Hannibal Valdimarsson: Ég get verið sammála þeim hv. þm., sem hnotið hafa um 4. gr. Ég fæ ekki skilið, að hægt sé að verða við þeim óskum bílstjóra, sem nú óttast offjölgun í stéttinni, ef benzínskömmtunin verður afnumin. Ég fæ ekki séð, að hægt sé að setja slíkar takmarkanir um fjölgunina með reglugerð. Ég er mjög í efa um, að hægt sé að setja um þetta almenna löggjöf, og ég er enn sannfærðari um það, að hvaða viðleitni sem sýnd væri til þess og hvaða aðferðum sem beitt yrði við að reyna að binda það með lagavaldi, að í þessari stétt mætti ekki starfa nema ákveðin tala manna, t.d. 300, að það væri ekki hægt að hindra menn, sem hafa réttindi, með reglugerð í því að reka atvinnu sína. Og þó að málið færi fyrir dómstólana, get ég ekki séð annað, en það færi á sömu leið. Ég held því, að það sé ekki aðeins óþarft að setja um þetta reglugerð, heldur væri það ólögleg athöfn, þótt það væri lögfest, eins og hv. frsm. n. taldi áðan. Það er áreiðanlega í óefni komið, ef farið væri inn á slíka braut, að setja reglur um, að í þessari stétt mættu vera 300 manns, í annarri t.d. 600 og í sjómannastéttinni t.d. 5.000 menn og þar fram eftir götunum. Hvað er þá orðið af atvinnufrelsinu, og hverjum ætti þetta að bjarga við? Ég held, að bílstjórarnir mundu sansast á þetta, ef þeim væri sýnt fram á það í hreinskilni, að þetta mundi leiða til ófrelsis í þjóðfélaginu, sem ekki er hægt að una við og heimilast varla af nokkrum lagalegum rétti. Hitt væri annað mál, þó að þetta væri ef til vill þolað, ef einhverjar brýnar ástæður væru til þess og þeir beittu þessu sem stéttarlegri ákvörðun til þess að vernda sinn hag, og í því formi gæti ég helzt sætt mig við það, að þeir beittu samtökum sínum til að stöðva í bili offjölgun í stéttina eða starfsgreinina, og væri það gert, þá meira valdi í því framvegis. Ég fæ ekki séð, að ríkisvaldið geti með reglugerð eða á annan hátt tekið í taumana og skammtað í stéttirnar, þessa töluna í þessa stétt og hina töluna í hina stéttina eða starfsemina, og væri það gert, þá er ég viss um, að þeir, sem yrðu fyrir barðinu á þeirri takmörkum, hlytu að líta svo á, að á þeim væri brotinn réttur til atvinnufrelsis í landinu.

Samgmrh. (Emil Jónsson): Eins og ég skýrði frá í upphafi þessa máls, þegar hv. þm. Barð. (GJ) bar fram þá fyrirspurn hér áðan, hvernig skilja bæri 4. gr., þú spurði ég flm. málsins í Nd., hvernig þeir hugsuðu sér þessa framkvæmd og þá fékk ég í rauninni ekki nema óljós svör. Ég skýrði líka frá því, hvernig ég að athuguðu máli hefði hugsað mér, að þetta yrði framkvæmt, ef samþ. yrði, þ.e.a.s. á þann hátt, að þetta yrði eitthvað svipuð málsmeðferð og nú hefur átt sér stað að undanförnu. Málið hefur borið þannig að, að bílstjórasamtökin hér í Rvík hafa sent erindi til yfirvaldanna í Rvík og n. í Nd., sem fór með þetta mál þar, um að sett yrðu í l. ákvæði um atvinnuréttindi bílstjóra, nánari en nú er gert. Hv. 1. þm. N-M. (PZ) hélt því fram í ræðu sinni áðan, að ég hefði haft einhver samráð við bæjaryfirvöldin í Rvík um það, hvernig þessar reglur yrðu framkvæmdar, en það var vissulega ekki það, sem ég sagði, þó að ég hins vegar geti hugsað mér að hafa það hvað Rvík snertir. En það, sem ég sagði, var það, að til þessara tveggja aðila hefði verið leitað viðvíkjandi Rvík. Ég get vel gengið inn á, að það geti verið nauðsynlegt að setja einhver nánari ákvæði, en nú eru í gildi um atvinnuréttindi leigubílstjóra. Það hefur farið svo með vörubílstjóra, að þeir eru orðnir miklu fleiri en þægilegt og gott er, og ég býst við, að þeir ættu þá ósk helzta nú, að til hefðu verið einhver ákvæði á sínum tíma, sem hefðu hindrað offjölgun í stéttinni, þeim öllum til óþurftar, sem nú gegna þessum störfum, svo að það er ekki fráleitt að hugsa sér einhver ákvæði um þessa stétt. En það, sem fyrir mér vakti með að koma þessu inn í Nd., var, að þetta tímabil frá því að þingi slítur og til næsta þings verði notað til þess að semja um þetta frv., sem verði svo lagt fyrir næsta Alþ. til ályktunar og ákvörðunar. Það, sem bílstjórarnir óttast á þessu tímabili, frá því að benzínið yrði gefið frjálst og þangað til slík löggjöf yrði sett, er það, að offjölgun yrði í stéttinni, sem ómögulegt yrði að útiloka, þegar löggjöfin kæmi til framkvæmda. Það er þetta, sem þessu bráðabirgðaákvæði frv. er ætlað að útiloka. Þess vegna get ég tekið undir það, sem hv. 1. þm. Reykv. (BÓ) fór fram á, að ég lýsti yfir, að mín meining er vissulega ekki að ráða neinu endanlega til lykta um þetta, heldur halda til bráðabirgða því ástandi, sem nú er, þangað til gengið er frá þessari löggjöf eða gengið ekki. Ef til þess kæmi, að löggjöf yrði um þetta sett, að þá yrði þessi millibilstími ekki til þess að eyðileggja framkvæmdina á grundvelli þeirrar löggjafar, sem þá yrði sett. Þetta hefur verið framkvæmt þannig samkv. reglugerðinni, að í Rvík hefur þessu verið haldið í föstum skorðum hvað tölu bílstjóra snertir og í flestum stærri bæjum. Hins vegar, þegar um minni kaupstaði og kauptún hefur verið að ræða, hefur venjulega verið farið eftir óskum sýslumanna um fjölda bílstjóra, og þannig býst ég við, að þetta mundi verða einnig nú í framkvæmdinni fram á næsta haust, svo að væntanlega ætti það ekki að verða að tjóni, þó að sömu reglur, sem gilt hafa, yrðu framkvæmdar til haustsins, þó að benzínskömmtunin yrði afnumin. Náttúrlega yrði að ganga út frá því, þar sem reglur yrðu um þetta settar á grundvelli þessara l., að það færi ekki í bága við stjskr. eða bryti í bága við almenn mannréttindi. Ég segi fyrir mig, að mig langar ekki til að standa í því og geri ráð fyrir, að ég mundi leita mér upplýsinga um það fyrst, hvort nokkur hætta væri á því, og ef svo væri, væri víst ekki hægt að stemma stigu við þessu nema með því að halda benzínskömmtuninni áfram, því að það er ekkert í l., sem skyldar að afnema hana. Ég vildi nú vona, að til þess þyrfti ekki að koma, að skömmtuninni yrði haldið áfram af þessum sökum. En út frá því verður gengið, að ekki yrði þannig farið með þessar ráðstafanir á neinn hátt, að það að fróðustu manna yfirsýn gæti talizt brjóta í bága við stjskr.

Ég sé ekki ástæðu til þess að gefa frekari upplýsingar í sambandi við þetta mál og ætla, að það liggi ljóst fyrir, hvernig þessi framkvæmd yrði, ef þetta yrði samþ. svona og kæmi til minna kasta að framkvæma það.

ATKVGR.

Frv. samþ. með 11:3 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: JJós, LJóh, PZ, SÁÓ, ÞÞ, BBen, BK, BÓ, EE, GJ, GÍG.

nei: StgrA, ÁS, BrB. HV greiddi ekki atkv.

2 þm. (HermJ, BSt) fjarstaddir.

3 þm. gerðu grein fyrir atkv. á þessa leið:

Lárus Jóhannesson: Í trausti þess, að heimildin í 4. gr. verði ekki notuð og benzínskömmtunin afnumin, segi ég já.

Björn Ólafsson: Með tilvísun til grg. hv. þm. Seyðf. segi ég já.

Gísli Jónsson: Í trausti þess, að heimildin í 4. gr. verði ekki notuð, segi ég já.

Frv. of seint fram komið. — Deildin leyfði með 19 shlj. atkv., að það yrði tekið til meðferðar.

Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson): Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, er að vísu ekki stórfrumvarp, a.m.k. ekki hvað snertir álögur á ríkið. Því er þannig komið fyrir, að ríkið þarf ekki að leggja fram fé fram yfir það, sem áður hefur verið lagt til raforkusjóðs, heldur er aðeins heimilað að jafna muninn milli þeirra, sem í strjálbýlinu búa, og hinna, sem búa í þéttbýlinu og eru þegar farnir að njóta góðs af stærri raforkuverum eða eru þannig settir, að tiltölulega auðvelt er fyrir þá að ná í raforku. Svo eru aftur heil héruð, þar sem erfitt er að koma upp stærri raforkuverum og vonlítið um rafveitur í náinni framtíð. En því er þannig farið nú orðið á heimilum í sveitum, eins og annars staðar, að það er orðin tízka að nota rafmagn og tæplega er hægt að komast af án þess að nota það að meira eða minna leyti, að talið er. Og það er a.m.k. ekki hægt, ef einhver þægindi eiga að vera á heimilinu, og það er nauðsynlegt að hafa þau. Hér er hvorki ætlazt til né gert ráð fyrir geysilegri rafmagnsnotkun, en hitt er það, að gott er að fá rafmagn til að elda við, og þá ekki síður fyrir þvottavélar og önnur slík tæki, sem létta undir með húsfreyjum í fólksleysinu, auk þess sem húsfreyjur ganga ekki ætið heilar til skógar.

Einnig er þannig ástatt víða í sveitum, að bændur hafa orðið að kaupa smámótora til mjalta, og ekki síður til súgþurrkunar, og til fleiri nauðsynlegra hluta. En ég tel réttara að taka stærri vélar, sem koma að meira gagni, en þurfa ekkert meiri pössun en smávélar, og geri ég það að skilyrði fyrir styrkjum og lánum í frv. mínu, að stöðvarnar séu ekki minni en 4 kílówatta. En þessar stærri vélar eru líka dýrari. 4–6 kw. stöðvar kosta sjálfar líklega 8–10 þús. kr., en vitað er, að allar lagnir og annar kostnaður við uppsetningu þeirra nemur annarri eins upphæð, þótt ekki séu reiknuð með þau áhöld, sem þyrftu að fylgja. En eins og ég tek fram í greinargerð frv. míns, eru nú margir bændur búnir að tæma fé sitt í byggingarframkvæmdir á jörðum sínum á undanförnum árum, svo að nauðsynlegt er að styðja þá í þessu efni á einhvern hátt. Ég játa, að mikið vantar á, að þetta frv. komi að fullu gagni, því að betur má, ef duga skal. Það væri því þegið með þökkum að minni hálfu, ef einhver vildi gera hér meira og ganga lengra. Ég vildi leita hér fyrir mér, hver vilji þingsins væri. Ég veit raunar, að hann er ekki nema góður, en það skortir fjármunina, og þó að fé væri fyrir hendi, þá mundi skorta erlendan gjaldeyri.

Hv. þm. Barð. er í iðnn., og skil ég ekki í öðru, en að hann leggi hér orð í belg, þar sem um gott mál er að ræða. Ef ég þekki hann rétt, þori ég að fullyrða, að hann gerir það. En ég vil taka fram, ef ég má leiðbeina n., að verið getur, að lánstíminn sé tiltekinn of langur og fleira þurfi að athuga, og bið ég n. þá að gera það.

Nú er það þannig orðið, að stærri mótorstöðvar hafa rétt til styrkja eða lána, en ekki hinar minni. En mér er tjáð, að hæstv. atvmrh. hafi látið falla orð í þá átt hér í þinginu, að hann væri velviljaður því að lána einnig til minni stöðva. En þar sem engin lög eru til um það, er nauðsynlegt að setja þau. Ég hef borið mig saman um þetta frv. við ýmsa flokksmenn mína hér, og þeir hafa verið sömu skoðunar og ég, að þetta sé upphaf að öðru meira, og vona ég, að svo verði.

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson): Herra forseti. Eins og þm. er kunnugt um, hafa aðgerðir Alþingis á undanförnum árum í því að auka útbreiðslu rafmagns í landinu verið bundnar þeim framkvæmdum, sem fram hafa farið í vatnsvirkjunum. Nú hafa raforkulögin komið til framkvæmda undanfarin ár, og hefur verið veittur styrkur úr raforkusjóði til þess að leggja línur frá stórum aflstöðvum út um sveitirnar. En það hefur þegar sýnt sig, að það er miklum erfiðleikum undirorpið að koma rafmagni í byggðir landsins og einkum þangað, þar sem byggð er ekki þétt - við skulum segja, þar sem byggð er mjög dreifð á íslenzkan mælikvarða. Þetta hefur reynzt mjög örðugt, og mun það sýnilega taka marga áratugi að koma raforkunni út um byggðir landsins með þeim hætti að kosta línulagnir um sveitirnar. Það hefur því oft komið til tals að leita annarra ráða til þess að ýta undir, að rafmagn komist í sveitirnar, en að leggja línur frá stærri orkuverum. Það hefur m. a. verið samþ. till. til þál. um að rannsaka þetta. Eftir að ég tók við embætti, fól ég stofnun, sem er á vegum atvmrn., — en þessi stofnun hefur haft á vegum sínum vel menntaða raffræðinga, — sérstaklega að athuga dieselrafstöðvar, sem gætu komið að notum á sveitabæjum. Forstjóri Landssmiðjunnar kynnti sér gaumgæfilega þessi mál og athugaði margar gerðir ljósastöðva og nýjungar á þeim sviðum. Hann mældi sérstaklega að lokinni athugun sinni með einni gerð, sem er framleidd í Englandi. Ég fól honum að útvega nokkrar svona ljósastöðvar til reynslu. Þessi tegund hefur verið mjög mikið endurbætt. Um leið og fyrsta ljós er kveikt, fer vélin í gang, en er síðasta ljós er slökkt að kveldi, drepur vélin á sér. Fjárhagsráði var skrifað um þetta í haust, og var þess óskað, að ráðið veitti innflutningi slíkra ljósavéla samþykki sitt. Síðan þetta gerðist hafa nokkuð mörg heildsölufirmu farið fram á að fá að flytja inn ljósastöðvar af svipaðri gerð, og tel ég það sjálfsagt að leyfa innflutning nokkurra gerða af þessum vélum og láta síðan reynsluna skera úr um það, hvað bezt reynizt. Ég hef þegar falið rafmagnsstjóra að fylgjast með þessu máli og hafa eftirlit með notagildi þessara véla, er þær verða teknar í notkun í sveitunum.

Þá er hin hlið málsins, að ekki er fyrir heimild í l. að veita mönnum aðstoð til kaupa á slíkum ljósavélum. Löggjöfin hefur fyrst og fremst miðað að því að lyfta undir það, að byggðar væru vatnsrafstöðvar. En það er ekki víða, sem möguleikar eru á því að koma upp smárafstöðvum við læki eða ár. En þrátt fyrir það verður að halda áfram að vinna að því að koma raforkunni út í byggðir landsins, og er ekki nema eðlilegt, að það sé athugað, hvort ríkisvaldið geti ekki létt eitthvað undir með þeim, er koma vilja sér upp rafstöðvum, einir eða með öðrum í félagi, þó að þar sé ekki um vatnsvirkjanir að ræða. Og það hefur sýnt sig í sumum kaupstöðum, sem ekki höfðu aðstæður til að koma sér upp vatnsaflsstöðvum, að Alþingi samþ. að verja allt að 1/4 milljón kr. til stuðnings þessum bæjum til að koma sér upp dieselstöðvum. Það væri því eigi úr vegi að athuga að veita þeim mönnum stuðning, sem hafa í hyggju að koma upp slíkum stöðvum í dreifbýlinu, og þá fyrst og fremst þeim, sem þurfa að sjá sér farborða sjálfir með lán. En eins og menn vita, þá er nú mjög erfitt að fá lán til þess að stofna slíkar stöðvar, en það er nú gert ráð fyrir, að raforkusjóður aðstoði bændur með lán til þess að koma sér upp einkarafstöðvum.

Ég er ánægður með það, að þetta frv. er hér fram komið. Ég skal ekki segja um þær leiðir, sem lagt er til í frv. þessu, að farnar verði, en sú n., sem fær málið til athugunar, mun að sjálfsögðu finna ráð til úrbóta í þessum efnum. En vonandi mun rafmagnið halda innreið sína í sveitirnar engu siður, en í bæina og þorpin, sem hafa notið þeirra gæða, sem rafmagnið er. Það þarf fyrst og fremst að vera til ljósa og ef hægt er að nokkru leyti til suðu. Um hitun geri ég ráð fyrir, að þurfi að fara aðrar leiðir.

Það var þetta, sem ég vildi láta koma fram af minni hálfu við 1. umr. málsins.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Það má slá alveg föstu, að eftirspurn eftir rafmagni í dreifbýlinu er og verður mikil. Nú hefur ríkissjóður stuðlað að því á undanförnum árum, með ábyrgðum og öðrum leiðum, að komið hefur verið upp vatnsaflsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu og að taugar yrðu leiddar frá þeim um nærliggjandi héruð. Bein fjárframlög ríkisins til þessa hafa verið óskapleg, og hefur svo farið, að ríkissjóður hefur orðið að borga mikinn hluta af því rafmagni, sem héruð þessi hafa fengið, og má hér nefna virkjanirnar í Borgarfirði, Siglufirði og Sauðárkróki til þess að finna þessum orðum stað. En þessi fyrirtæki þurfa að geta staðið sem bezt undir sér og geta borgað það fé, sem lagt hefur verið í þau. Þetta vil ég biðja hv. fjhn. að athuga, að þessi héruð, sem hafa fengið þennan mikilsverða forgangsrétt með raforkuna, að þau ættu að standa undir því að vera þessara þæginda aðnjótandi.

Nú vil ég segja nokkur orð viðvíkjandi því, sem hæstv. ráðh. sagði. Þó að svona verði haldið áfram, þá er það gefinn hlutur, að viss hluti dreifbýlisins mun ekki fá rafmagn í tíð okkar, sem erum komnir á sjöunda áratuginn. Það er nauðsyn að reyna að flýta fyrir rafmagninu í sveitir landsins með því að fara aðrar leiðir en farnar hafa verið undanfarið, eins og fólst í fyrirspurn, sem ég gerði til ráðh. í vetur. Ég skal ekki segja um lánið, en ákvæði í þá átt eru brýn. Hæstv. ráðh. vill flytja þessar vélar inn og selja þær hverjum sem er út um landið, og hv. flm. frv. leggur til, að öllum þeim, sem hafa í hyggju að koma sér upp dieselrafstöð, verði gefinn kostur á að fá lán til þeirra framkvæmda. Þó að eftirlit væri nú gott með þessum vélum, þá er mjög óheppilegt að dreifa þeim út um allt land. Vélamenning okkar er stutt, og lítil er kunnátta manna við að umgangast vélar. Allan þorra manna í sveitum landsins brestur kunnáttu til að fara með þær. Þess vegna væri eðlilegt að taka aðeins lítil svæði fyrir í einu, en tryggja um leið, að kunnáttumaður verði í héraðinu, sem geti tekið að sér viðgerðir véla, ef biluðu, jafnframt því sem hann leiðbeindi um meðferð þeirra. Ef frv. þetta verður að l., ætti að láta diselstöðvarnar ganga yfir landið í öldum og þá fyrst og fremst þangað, sem ekki eru fallvötn til virkjunar. Og ég vildi verja ríflegum styrk úr ríkissjóði til þess að koma upp viðgerðarverkstæðum fyrir þessar vélar, og það munu margir gera, heldur en að þurfa að bíða hver veit hvað, ef vél bílar. Ég vil undirstrika þetta, og ég legg mikla áherzlu á þetta, að það sé hv. þm. ljóst, að menn hafa ekki þekkingu til að fara með þessi tæki og enn síður þekkingu til að bera til að geta gert við þau, ef eitthvað færist úr lagi. Það eru aðeins fáir staðir á landinu, þar sem hægt er að fá aðstoð með viðgerð rafvéla, og þeir eru þar, sem raforkan er útbreiddust.

Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson): Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka báðum, hæstv. atvmrh. og hv. 1. þm. N-M., fyrir þær undirtektir, sem þetta mál hefur fengið að þeirra hálfu. Ég verð nú að segja, að það er nokkuð annað hljóð í hv. þm. en verið hefur.

Ég hef raunar litlu hér við að bæta, en ekki get ég fellt mig við þá hugmynd að takmarka innflutning ljósavélanna í viss héruð. Ætli það kæmi ekki kurr í Austfirðinga, ef Vestfirðingar yrðu látnir ganga fyrir með tækin? En ég er ekki á móti því, að stuðlað yrði að því að koma upp viðgerðarverkstæðum. En eins og ég sagði áðan, þá ætla ég ekki að teygja lopann, en þykir vænt um, að málinu er vel tekið. Nú hafa verið pantaðar 30–40 vélar hjá landssmiðjunni, en 60–70% þeirra umsókna, sem borizt hafa, bera það með sér, að óskað er eftir 6 kw. stöðvum. Það virðist því benda til þess, að heppilegast yrði að flytja inn þessa stærð stöðva.

Að lokum — ég gleymdi því víst áðan vil ég óska þess, að málinu verði vísað til hv. iðnn. að umr. lokinni.

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson): Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í sambandi við ræðu hv. 1. þm. N-M. Hann sagði, að ríkið hefði orðið fyrir stórkostlegum fjárútlátum vegna vatnsvirkjana þeirra, sem framkvæmdar hafa verið undanfarið. Hann nefndi í þessu sambandi Andakílsárvirkjunina og virkjunina fyrir Siglufjarðarkaupstað. Kostnaður við þessar virkjanir fór langt fram úr því, sem allar áætlanir gerðu ráð fyrir, og hafa þessi fyrirtæki ekki getað staðið undir sér, það sem af er. Er nú verið að reyna að bæta úr þessu með því, að ríkið ábyrgist lán til viðbótarvirkjunar, og hefur það verið gert til þess að losa ríkið við þennan bagga, og er eini möguleikinn að fullnota ,þá orku, sem stöðvarnar geta framleitt. Með því einu móti að auka orkuframleiðslu þessara virkjana eru möguleikar á því, að þessi fyrirtæki geti staðið undir sér, og þegar þessar nýju virkjanir hafa verið framkvæmdar og orka stöðvanna eykst, er von til þess, að ríkið geti losnað við þann bagga, sem það hefur haft af þessu. Það er eini möguleikinn til þess, að fullnotað verði það vatn, sem stöðvarnar hafa möguleika til að hagnýta.

Varðandi till. hv. 1. þm. N-M. um að flytja inn diselstöðvar, sem seldar yrðu aðeins innan ákveðinna héraða, þá held ég, að slíkt sé óframkvæmanlegt. Það er ekki hægt að skipa einum að kaupa, en synja svo öðrum um kaup, sem hefði í hyggju að koma sér upp rafstöð, aðeins sökum þess, að hann byggi í öðru héraði en hinn. Hitt er svo annað mál, hvort ekki skuli athuga, að þeir gangi fyrir með fyrirgreiðslu í þessu efni, þar sem sýnilegt er, að ekki eru möguleikar á að fá raforku frá öðrum orkustöðvum. Og það hefur verið venja hjá þeim mönnum, sem leiðbeina um þetta, að þeir hafa gert áætlun nokkuð fram í tímann, sem næst að ætla mætti, að gæti komið til greina. Og þeir hafa bent mönnum á, sem ætluðu að hefja smávirkjun, að það muni ekki koma til greina, að slíkar framkvæmdir verði styrktar.

Þá fann hv. þm. að því, að ég teldi sjálfsagt að flytja inn fleiri en eina tegund þessara véla fyrst um sinn, og má að vísu vitanlega fara of langt í því efni, en ég tel ekki rétt, þar sem ekki er enn fengin meiri reynsla hér á landi fyrir slíkum tækjum, að binda sig fyrir fram við eitt einasta tæki, þótt álitlegt sé. Ég vil, að það séu möguleikar fyrir því að flytja inn fleiri slík tæki nú fyrstu árin, en hins vegar er sjálfsagt, að látin verði fara fram rannsókn á, hvert þessara tækja er hentugast fyrir okkur, og þegar slík reynsla er fengin, er fyrst tími til kominn til að beina þeim kaupum í ákveðinn farveg. En hitt er svo alveg rétt hjá hv. þm., að samhliða því, að aukin yrði útbreiðsla á slíkum tækjum, dieselvélum, til ljósa, þá er nauðsynlegt að koma upp leiðbeiningastarfsemi og viðgerðastarfsemi á þessum tækjum, og það er mál, sem fyllilega er tímabært að taka til athugunar.

Hannibal Valdimarsson: Herra forseti. Ég fagna því, að þetta frv. er fram komið. Ég hygg, að það sé alveg rétt hjá flm., að þó að slíkar stöðvar kosti ekki meira en 8–10 þús. kr. sjálfar, þá sé kostnaðurinn samfara því að byggja slíka stöð á meðalsveitaheimili, þegar línan hefur verið lögð og tæki keypt, kominn upp í 30 þús. og þá sé um slíka upphæð að ræða, að full þörf sé fyrir flesta bændur að fá einhverja aðstoð til þess að koma slíku mannvirki upp.

Það hefur verið af hæstv. atvmrh. vikið að því hér, að rafmagnseftirliti ríkisins hefði verið falið að kynna sér vélar til slíkra stöðva, til þess að geta leiðbeint mönnum um val slíkra véla, sem helzt kæmu til greina.

Þeir eru orðnir margir bændurnir, sem hafa snúið sér til alþm. og beðið um upplýsingar viðvíkjandi þessum vélum. Ég hef fengið nokkur slík bréf frá bændum, og hef ég snúið mér af þeim ástæðum til rafmagnseftirlits ríkisins, þar sem vissulega eru hvergi eins margir sérfræðingar á því sviði saman komnir, og spurzt fyrir um, hvaða vélar þeir teldu helzt koma til greina fyrir sveitaheimill. En svör þessara manna eru á þann veg að helzt lítur út fyrir, að það sé alveg af sérstökum ástæðum gert, að þeir vilja ekki mæla með einni tegund frekar en annarri. Má vera, að þeir telji það rétt vegna nauðsynlegs hlutleysis gagnvart þeim, sem selja vélarnar. Ég er hræddur um, að það verði hending eða tilviljun, hvaða vélar menn yfirleitt kaupi, og það verði áður en langt líður svo mikill urmull af vélum til slíkra nota, að slíkt geti valdið óþægindum, vegna þess að illa er séð fyrir varahlutum til slíkra véla. Þess vegna hefði ég haldið, að heppilegra væri að binda þessar tilraunir, sem ég hygg, að megi kalla svo, á næstu árum við 2–3 vélategundir og helzt ekki fleiri keyptar í þessu skyni, ef það t.d. væri álit mótorfræðinga, að einhverjir sérstakir mótorar væru heppilegastir með tilliti til rekstrar og ganghraða.

En það er í sambandi við þetta mál eitt atriði, sem mig langar að vekja athygli á, og það er, að um fleiri möguleika er að ræða, en að byggja stórar rafstöðvar og diesel- og benzínmótorrafstöðvar. Að vísu er gert ráð fyrir því í raforkul., en ég er hræddur um, að það gleymist, þegar opnaðir eru slíkir möguleikar sem þessir, sem hér er um að ræða, ef þetta verður samþ., en það má að minni hyggju ekki ganga fram hjá góðum virkjunarskilyrðum vatnsafls á sveitaheimilum. Það eru kannske ekki að öllu leyti fjárhagsörðugleikarnir, sem valda því, að fyrr er hugsað um að fá mótorvélar, en að hugsað sé til þess að virkja á eða bæjarlæk, sem rennur við túngarðinn, heldur hitt, að erfitt er að undirbúa slíka framkvæmd fyrir sveitabóndann. Ég tek dæmi til skýringar. Fyrir hálfum mánuði síðan barst mér bréf úr Norður-Ísafjarðarsýslu um það að grennslast eftir, hvaða vélar væru tiltækilegastar og beztar fyrir rafstöðvar á 5 eða 6 sveitabæi. Ég hóf rannsókn í málinu, talaði við SÍS, rafmagnseftirlit ríkisins, landssmiðjuna o.fl. fyrirtæki, sem bjóða þetta fram. En meðan ég var að safna þessum gögnum, þá skrifaði ég og benti á, að hjá túnfætinum rynni á, sem hafði verið hugsað að virkja fyrir nærliggjandi þorp, en reyndist þó ekki nægilega vatnsmikil til þess. Þarna er um 6 bæi að ræða eða 6 bændur, því að tvíbýli mun vera á tveimur, sem liggja báðum megin árinnar, og eru þess vegna möguleikar á því að virkja þessa á með góðum árangri fyrir þessi 6 bændabýli, en nú virðast allir helzt hugsa sér að fá sér sína dieselmótorvél til raforku, en gleyma ánni. Hvað vantar bændur, til þess að athygli þeirra beinist fyrst og fremst að ánni? Þá vantar sérfróða leiðbeinendur um slíka hluti, hvort virkjun árinnar hentar þeim, hvort hægt er að virkja 25–30 hestafla stöð og hvort kostnaðurinn við slíka virkjun verður meiri, en að fá 5–6 mótorrafstöðvar á þessa bæi. Ef þeir ættu kost á, að þessi sérfræðilega athugun yrði framkvæmd með viðráðanlegum kostnaði eða þeim að kostnaðarlausu, þá hygg ég, að þarna væri miklu betri lýsing hugsanleg fyrir alla þessa bæi heldur en þó að þeir allir fengju sér mótorrafstöðvar. Það er ekki aðeins gagnvart þessu frv., sem ég vildi leiða þetta inn í umr., ég vildi minna á það, að við megum ekki verða svo ginnkeyptir að hugsa eingöngu um þær vélar, sem brenna gjaldeyri á hverju ári og hafa lítið rekstraröryggi, en ganga svo fram hjá möguleikum, sem kannske eru til í landareign sveitabæjanna, ef rétt aðstoð væri veitt af hendi ríkisvaldsins. Ég álít, að það mannafl, sem er í þjónustu ríkisins hjá rafmagnseftirlitinu, sé svo mikið, að hægt væri að sjá af, þótt ekki væri nema einum manni, og væri þá mjög vel varið hans vinnu til að athuga, hvort möguleikar séu fyrir hendi til virkjunar á vatnsafli á sveitabæjum, og væri þess vissulega full þörf, áður en keyptir eru mörg hundruð mótorar fyrir sveitirnar. Ég tel það t.d. sjálfsagt, að áður en farið væri að útvega þessum 6 bændum, sem ég nefndi, lán eða styrk til mótorrafstöðva, að senda þeim mann frá rafmagnseftirliti ríkisins til þess að athuga þessa á, Dvergasteinsá í Álftafirði. Mér dylst það ekki, að þar sem hægt er að leysa þessi mál fyrir einstök sveitaheimili með virkjun vatnsafls, þá sé það að öllu leyti bezta leiðin, miklu meira rekstraröryggi, miklu minni rekstrarkostnaður og minni gjaldeyriseyðsla við áframhaldandi rekstur. Ég vil gjarna, að það verði athugað af þeirri n., sem fær málið til athugunar, t.d. hvort ekki sé rétt að breyta raforkul. á þann veg, að sett yrði inn ákvæði, sem ýtti undir, að rafmagnseftirlit ríkisins hefði forgöngu um að athuga jafnframt, hvað henti bezt fyrir sveitaheimili. Væri hægt að koma upp slíkri stöð á sveitabýli, mundi stofnkostnaðurinn vissulega verða eins mikill og mótorstöðvar koma til með að kosta, en þá sjá allir, að það væri mikill munur með rekstrarafkomuna, sem yrði beinn hagnaður.

Það, sem ég vildi sérstaklega leggja áherzlu á í sambandi við þetta, er, hvort ekki væri hægt að gera mönnum miklu auðveldara fyrir að fá athuganir um slíka hluti framkvæmda af sérfróðum mönnum án endurgjalds fyrir bændur. Annars er ég þakklátur flm. fyrir þetta frv. og tel, að það mundi í mörgum tilfellum bæta úr fyrir sveitaheimilum, þar sem annars kostar er ekki völ, og mundi leysa úr brýnni raforkuþörf margra sveitabæja, sem annars fengju ekki þessa orku. Það má segja, að það sé enn brýnni þörf nú en áður fyrir bændur að fá rafmagn, þar sem fólkseklan er orðin svo mikil, að varla er hægt að gera ráð fyrir búskap í framtíðinni, nema heyið verði verkað annaðhvort með súgþurrkun eða í turnum, og þetta kostar hvort tveggja mótorafl. Og þegar það mótorafl er komið, þá vilja menn hafa raforku til fleiri hluta, enda þörfin mikil fyrir það.

Eiríkur Einarsson: Það þarf engan að furða á því, að þetta frv. er fram komið, því að þörfin úti um hinar dreifðu byggðir landsins er svo mikil, að um það er ekki hægt að efast, hvað hér er til umr. og hver áhugi fylgir máli. Af því að þetta er mikilsvert mál, verðskuldar það velvilja þeirra, sem eiga um það að fjalla, og því meira liggur á, að vel sé um alla hnúta búið, ef það kemst svo langt að verða að lagasetningu, og ég segi fyrir mitt leyti, að ég á erfitt með annað en að ljá því atkvæði mitt.

Ég vildi leyfa mér að beina orðum mínum til þeirrar n., sem fær málið til athugunar. Eftir aðalgr. eru þetta heimildarl., að veita eins og þar getur. En í niðurlagi gr. segir, að ráðh. ákveði lán og styrki, að fengnum till. raforkun. Ég skil það svo að, að hve miklu leyti á að ganga á möguleika raforkusjóðs til þessara aðgerða muni ákveðið af viðkomandi ráðh. að fengnum till. raforkun. Mér finnst, að það væri öruggara að hafa þetta lögfest, því að reynsla, sem þegar er fengin, er í mörgum tilfellum mjög dýr. Þó að menn hafi verið að leggja í þann kostnað að raflýsa hjá sér, þá hefur það oft orðið skammvinn og dýr þægindi vegna vöntunar á leiðbeiningum um val vélanna. Ég staðhæfi, að þetta hefur átt sér stað, því er verr. En ef ætti að gera þessa úrlausn almennari, en verið hefur til þessa, og fullnægja fleiri mönnum þjóðfélagsins en verið hefur, þá þarf að treysta sem bezt, að svo mætti verða, og það ætti að koma fram í lagasetningunni sjálfri. Ég álít mjög nauðsynlegt, að áður en farið er að leggja í það að kaupa vélar til raflýsingar og leggja þannig í mikinn kostnað, þá þurfi að vera fengin reynsla fyrir þeim vélum og þar sé farið eftir áliti hinna sérfróðu manna, en ekki að menn kaupi vélar, sem lítil eða engin reynsla er fyrir, jafnvel þó að kaupgeta sé fyrir hendi. Það þarf að útiloka það, að menn kaupi köttinn í sekknum. Það er talað þarna um lán til 15 ára, og veit ég, að hv. flm. meinar allt vel með því, og kann ég vel að meta þann hug, sem liggur þar á bak við. En þá þarf um leið að vera trygging fyrir því, að þær vélar endist í 15 ár. Ég segi þetta bara í varúðarskyni. Ég vona, að hv. flm. taki það vel upp og hv. n., sem fær málið til athugunar, athugi það vel. Eins og tekið var fram áðan, hefur rafmagnseftirlit ríkisins yfir mikilli þekkingu að ráða á þessu sviði, og ætti það að geta gefið þær ráðleggingar, sem kæmu að hinum beztu notum.

Gísli Jónsson: Ég hafði ekki ástæðu til að vera við, þegar hv. 1. þm. N-M. talaði. Mér hefur verið sagt, að hann hafi talað um það hér, að það hafi legið fyrir fjvn. beiðni um stórkostleg fjárframlög handa ýmsum rafveitum, sem ekki gætu sjálfar staðið undir vöxtum og afborgunum. Ég skal í þessu sambandi benda á, að í fyrsta lagi hefur ekki komið til kasta ríkissjóðs að greiða þetta fyrr en þá á þessu ári eða neitt til kasta fjvn. að ákveða neitt um það, hvort veitt væri til slíkra útgjalda. Það hefur fyrst nú legið fyrir fjvn. nokkur upphæð, sem sett er inn á fjárlagafrv. og ætluð er til þess að mæta vangoldnum vöxtum og afborgunum frá ýmsum fyrirtækjum í landinu, sem ríkissjóður er í ábyrgð fyrir, m.a. nokkrum rafveitum, en einnig nokkrum höfnum, og þetta er í fyrsta skipti, sem fjvn. hefur haft með slík mál að gera, og hún hefur rætt um það í alvöru, hvort ekki sé rétt, þegar svo stendur á eins og hér er nú komið á daginn, að setja slík fyrirtæki undir opinbera stjórn. Og hefur n. hugsað sér að láta þessi erindi ganga til félmrn. og rætt nokkuð við skrifstofustjóra þess ráðuneytis, sem hefur verið að nokkru leyti á þeirri skoðun, að í hvert skipti, sem ekki væru greiddar slíkar skuldir, vextir og afborganir af lánum, sem ríkissjóður væri í ábyrgð fyrir, þá sé horfið að því ráði að hafa eftirlit með viðkomandi fyrirtækjum. Hér getur verið að ræða um margt annað, en rafveitur, það er ýmislegt fleira, en fjvn., Alþ. og jafnvel ekki ráðuneytið hefur ekki nokkur tök á því að geta fylgzt með, hvort yfirleitt þær tekjur, sem koma inn til þessa eða hins fyrirtækisins, séu notaðar beinlínis til að borga útgjöld þess fyrirtækis eða teknar beint inn í sveitarsjóðinn, auk þess sem ekki er heldur tækifæri til að fylgjast með, hvort greiðsluþolið er notað til hins ýtrasta í sambandi við álagningu útsvara. Þess vegna þykir rétt að taka þegar upp þá stefnu yfirleitt, að fyrirtæki, sem rekin eru þannig með ábyrgð ríkissjóðs eða hann hefur gengið í ábyrgð fyrir að allt að 85% af kostnaðarverði, fái það aðhald, sem ég hef rætt um. Ég hygg, að þetta verði athugað síðar.

Hv. þm. er kunnugt um það, að ríkissjóður er í ábyrgð fyrir hundruðum milljóna króna hingað og þangað hjá bæjar- og sveitarfélögum, og hljótast af því áreiðanlega vandræði, ef ekki er tekið strax í taumana í sambandi við þau mál.

Í sambandi við málið sjálft vil ég leyfa mér að benda á, að málið fer í n., sem ég á sæti í og er formaður fyrir, og ég mun taka málið fyrir eins fljótt og hægt er, og skal ég láta taka til athugunar öll þau atriði, sem hér hefur verið minnzt á.

Ég vil ljúka máli mínu með því að benda á, að þetta er ekki nýtt mál, heldur mjög rætt í iðnn., þegar l. voru sett, einmitt í sambandi við 35. gr. og þá af raforkumrh., sem setti sig algerlega á móti þessu máli þá. Það var að vísu annar maður en nú er, núverandi viðskmrh. En af því að ráðh. setti sig á móti því, fékkst það ekki samþ., þegar l. voru samþykkt. Þetta ber ekki að skilja svo, að ég sé andvígur málinu, heldur skýri ég aðeins frá því, hvernig það hefur gengið áður.

Rafveitumálunum er skipt þannig, að það eru Rafmagnsveitur ríkisins annars vegar, þar sem ríkið leggur til allan stofnkostnað, og fær úr rafveitusjóði árlegan styrk til að greiða rekstrarhalla, þar til veiturnar fara að bera sig. Það er aldrei veitt úr ríkissjóði á annan hátt en í rafveitusjóðinn samkvæmt l., en úr honum til rafmagnsveitna ríkisins, sem áætlað er, að verði að veita hverri veitu fyrstu 3 árin, en fari svo minnkandi og féð verði síðan endurgreitt í sjóðinn aftur. Þetta gera héraðsrafveitur ekki. Og þessi kostnaður er mér sagt, að sé 15–20 þús. kr. á býli. Nú teldi ég sjálfsagt, ef þessi brtt. yrði samþ., að gera stóran greinarmun á því, sem fer til þess að leggja lagnir um hús, og gæta þess, að þær séu lagðar þannig, að rafmagnseftirlit ríkisins taki þær gildar fyrir raforku, sem kynni að koma frá raforkuverum síðar meir. En þá vaknar sú spurning: Er meiri ástæða til þess, að ríkissjóður taki að sér að greiða eða styrkja eða lána til þess að koma fram þessum hluta framkvæmdanna, þeim hluta, sem bændur verða að borga hvort sem er, þó að bændur hafi að öðru leyti allan kostnaðinn? Mér finnst þá síður en svo útilokað, að til þess gæti komið, að sams konar kjör yrði að gefa hinum öðrum bændum, sem verða sjálfir að kosta tengingargjaldið í hús sin, og sé ég ekki, að hægt sé að fara inn á þessa braut nema opna leið til þess, að þessir menn fái sömu aðstoð. Að því er snertir hina staðina, þar sem héraðsrafveitur eru og héruðin sjálf byggja veiturnar, t.d. á Siglufirði, þar fá viðkomandi aðilar engan styrk, en hins vegar 80% ábyrgð á kostnaðarverði til þess að koma þessu á hjá sér, en á þessum stöðum verða bændur og aðrir að borga allan innlagningarkostnað sjálfir, og hafa þessar stöðvar ekki fengið neinn styrk frá ríkinu, nema ef það kemur til nú, að þeir þurfi að fá hjálp til þess að komast yfir erfiðleika fyrstu áranna, eins og rafveitur ríkisins, og fyndist mér það ekkert óeðlilegt. Það yrði þá endurgreitt ríkinu, ef stöðvarnar gætu borið sig.

Þetta þótti mér rétt að láta koma fram. Sumar þessar héraðsrafveitur hafa orðið að kaupa stóra, dýra dieselmótora, og á s.l. ári var samþ. að skipta á fjárl. 250 þús. kr. milli þessara stöðva sem láni með hagkvæmum kjörum. Þessu var skipt milli nokkurra stöðva, og varð nokkur ágreiningur um það í rn., því að hér vildi rn. ekki fara lengra niður i vaxtabyrði en 4%, og fékkst um það samkomulag. Bentu þeir á þessi rök og sögðu: Bændur og aðrir, sem fá rafmagn frá aðallínunum, verða sjálfir að bera uppi allan kostnað við tengingu og innlagningu. Og þó að þessir hreppar eða héruð verði sjálf að koma upp sinni rafstöð, teljum við ekki óeðlilegt, að þeir beri af því sanngjarna vexti. — Þetta vildi ég láta koma fram.

Í sambandi við það, sem hv. 3. landsk. sagði, vil ég taka fram, að hann byggir þetta á misskilningi. Það er skýrt kveðið á um það í l., að úr raforkusjóði á að greiða þennan kostnað, sem hann talaði um. Rafmagnseftirlit ríkisins er skyldugt að framkvæma þetta og taka það gjald úr raforkusjóði. Og mér er kunnugt um það, að raforkumálastjóri hefur ekki verið neitt tregur til að láta þessa þjónustu í té. En það er annað, sem hann hefur haldið fram og kannske með réttu. Hann hefur sagt: Okkar byrjunarstig er það, að við viljum senda skýrar og góðar leiðbeiningar til viðkomandi aðila, til þess að þeir geti sjálfir látið fara fram mælingar á þessum vötnum og lækjum, sem vara að minnsta kosti eitt eða tvö ár. En margir bændur hafa ekki þolinmæði til þess að láta þessar athuganir fara fram, og auðvitað er útilokað fyrir rafmagnseftirlit ríkisins að hafa um allt land lið manna til þess að hafa slíkar mælingar með höndum, en þessar mælingar eru grundvallaratriði þess, að hægt sé að virkja.

Allt skal þetta verða athugað í n. og leitað upplýsinga frá viðkomandi aðilum, sem svo að sjálfsögðu verður skýrt í nál., þegar þar að kemur.