18.12.1948
Neðri deild: 46. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (251)
66. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Einar Olgeirsson:
Ég sagði ekki, að þingsköp hefðu verið brotin, heldur þingvenjur. Okkar þingfyrirkomulag byggist jafnvel meira á venjum, en lögum og þess vegna verður að ganga út frá, að þær venjur séu haldnar. Og venjurnar hafa eins mikla þýðingu í þessu atriði og þau skráðu þingsköp eða lög. Ég vil standa fast á því í þessu sambandi, að það sé haldið fast við þær venjur, sem hér hafa tíðkazt. — Viðkomandi því, sem hæstv. forseti sagði, vil ég taka fram, að það er fjarri mér að bera á hann, að hann hafi brotið þingsköp. Síður en svo. En það vil ég aðeins taka fram um það, sem hann minntist á, að hann myndi eftir, að það hefði komið fyrir, að mál hafi gengið í gegn án nefnda, þá er vitað, að það er til, en slíkt er ákaflega sjaldgæft. Hitt er miklu algengara, að mál gangi fram án þess, að umsögn nefnda um þau liggi fyrir. En af því að mér kom það óvænt, að ætlað var að vísa hér stóru tekjuöflunarmáli til 2. umr., án þess að slíkt mál færi í nefnd, — því að ég man ekki eftir, að það hafi tíðkazt um eitt einasta stjfrv. þann tíma, sem ég hef átt sæti í fjhn., — þá óska ég eftir því hér, að málið fari í n., en get gengið inn á, að málið fari til fjhn. á milli 2. og 3. umr. En ég vil ekki ganga inn á það án frekari átölu, að svona mál séu látin ganga hér í gegnum hv. þd., án þess að þeim sé vísað til nefndar.