02.05.1949
Efri deild: 92. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í B-deild Alþingistíðinda. (2510)

164. mál, orkuver og orkuveitur

Páll Zóphóníasson:

Þó að ég telji, að þetta mál allt, bæði þær linur, sem í frv. eru, og eins þessi lína, sem hv. þm. Dal. vill koma hér inn, sé óforsvaranlega undirbúið og maður vaði í villi og svima, hvað eigi að gera við þetta, þá vil ég ekki vera meinsmaður þess, að þessi merki séu dregin upp í Dölum, svo að það sé hægt að horfa á þau og skemmta sér við það í nokkur ár, og segi já.

1. gr., svo breytt, samþ. með 13 shlj. atkv.

Brtt. 613,2 samþ. með 10 shlj. atkv.

2. gr., svo breytt, samþ. með 10 shlj. atkv.

3.–4. gr. samþ. með 12 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 12 shlj. atkv.