28.04.1949
Neðri deild: 94. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)

188. mál, lögsagnarumdæmi Neskaupstaðar

Frsm. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. N. hefur athugað þetta frv. og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt, enda er hér aðeins um leiðréttingu á gildandi l. að ræða, sem enginn ágreiningur er um.