05.04.1949
Neðri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1677 í B-deild Alþingistíðinda. (2566)
100. mál, jeppabifreiðar
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Hæstv. samgmrh. benti á í ræðu sinni, að það væri skoðun sin, að leysa mætti þetta mál án þess að til þess yrði skipuð ný n., og benti í því sambandi á viðskiptan. og fjárhagsráð. Jú, það skal játað, að þessar n. eru til, og það hefði mátt fela annarri hvorri úthlutunina, en ekki munu störf þeirra n. minnka við það. En með þeirri skipan, sem hér er lagt til, eru valdir 4 fulltrúar bændastéttar landsins til að úthluta bændum bifreiðum þessum. Það þarf ekki að kosta ríkissjóð nokkurn hlut, því að ég býst ekki við, að þeir fái borgun fyrir starf sitt. Fimmti maður verður kosinn af sameinuðu alþingi. Sá maður mundi kannske fá einhverja þóknun, en þó þarf ekki svo að vera. Ég held, að það sé öruggara, að úthlutunin sé í höndum manna, sem vinna að landbúnaðinum, en í fjárhagsráði eða viðskiptanefnd. Hreppabúnaðarfélögin hafa einnig betra yfirlit yfir þörf, manna fyrir slíkar bifreiðar sem þessar, en þær n. sem hæstv. ráðh. benti á.