05.04.1949
Neðri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (2569)
100. mál, jeppabifreiðar
Jón Pálmason:
Herra forseti. Eins og hv. frsm. landbn. hefur lýst, eru þau ákvæði um innflutning jeppabifreiða, sem þetta frv. felur í sér, hér fram borin vegna þess samkomulags, sem náðst hefur milli flokkanna um þetta. Í frv. eru mörg atriði, sem sjálfsagt geta verið nokkuð deildar skoðanir um, og það kann að vera, að ekki þyrfti að skipa sérstaka n. til að sjá um dreifingu þessara vinsælu tækja.
Út af ræðu hæstv. samgmrh. vil ég segja, að það er alls ekki hægt að sætta sig við svipaða niðurstöðu og til þessa hefur verið á úthlutun bifreiða og nú síðast Renaultbifreiðanna, sem þó átti að tryggja, að úthlutað yrði með sanngirni. Það gæti því verið einhver bót að fela úthlutunina t.d. Stéttarsambandi bænda eða þá að sætta sig við þetta samkomulag, sem lagt er til í þessu frv.