22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (2584)
100. mál, jeppabifreiðar
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég hef ekki fjallað um málið í stj., en mér finnst frv. verða þýðingarlítið, ef hægt á að verða að úthluta utan við það. Ég held nánast, að það yrði þýðingarlaust, og tel eðlilegt, að tekið sé fram í því sjálfu um meðferð allra innfluttra jeppa. Það er vitað, að jepparnir munu verða leyfðir sem landbúnaðarvélar. Og ef taka á út úr og segja, að þetta og þetta séu eigi landbúnaðarvélar, þá finnst mér, að grafið sé undan megintilgangi frv. Áður var úthlutunin í höndum nýbyggingarráðs, Búnaðarfélagsins o.fl. aðila. Nú á að koma í veg fyrir þennan tvískinnung. En eigi að tiltaka lítinn hluta jeppanna, sem koma á undir stofnunina, þá verður tilgangurinn með frv. lítill. Ég vil því hvetja hv. þm. N-Þ. til að flytja brtt. sína, því að mér finnst hún vera bæði eðlileg og sanngjörn, og mun greiða henni atkv.