06.05.1949
Efri deild: 98. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (2626)
207. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Þorsteinn Þorsteinsson:
Þetta frv. er flutt af n., og það er ávallt venja í slíkum tilfellum; að mál séu athuguð af n. á milli umr., ef ástæða þykir til, þannig að þá athugi n. mál, sem hún flytur. Og það mun viðkomandi n. gera í þessu tilfelli, þó að málinu sé ekki með atkvgr. vísað til n. Og það hefur ekki verið venja að vísa til n. málum, sem n. hefur flutt, og ég segi nei.