07.05.1949
Efri deild: 99. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)

207. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Það er viðvíkjandi þessu sama ákvæði, sem hv. 1. þm. Reykv. var að tala um. Þessi sama undanþáguheimild snertir jafnframt benzín til notkunar á landbúnaðarvélum, þ.e.a.s. öðrum tækjum en bifreiðum. Þessi heimild frá 1932 hefur verið notuð, ef ég man rétt, 1933. En þessi undanþáguheimild nær að vísu ekki nema til annarra tækja en bifreiða, þannig að jeppar falla undir þennan skatt, sem hér er verið að leggja á, þó að þeir séu undanþegnir þeim skatti, sem minnzt er á í c-lið þessa frv. Látum svo vera, að þessi undanþáguheimild nái ekki til þeirra, þótt notaðir séu til landbúnaðarstarfa. En ákvæðið í l. frá 1932 er aðeins heimild, og um það hefur verið gerð reglugerð, sem hefur verið framkvæmd til þessa, og gildir sama um þetta atriði og flugvélabenzínið í þessu sambandi. Það, sem á veltur, er því þetta: Verður heimilað að nota áfram reglugerðina frá 1933 áð því er snertir landbúnaðarvélar, eða verður það ekki? Ef ég fengi yfirlýsingu um það, að heimildin frá 1932 verði notuð og reglugerð nr. 75 frá 1933 standi óhögguð, er ástæðulaust fyrir mig að koma með brtt. að því er þetta snertir. Væri því æskilegt að fá um þetta yfirlýsingu frá fjmrh. samhliða því sem hann gefur yfirlýsingu um flugvélabenzínið.