07.05.1949
Efri deild: 100. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1720 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)
207. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Það hefur verið minnzt á það í sambandi við þetta mál að verði það að l., komi til greina að afnema skömmtun á benzíni, en um þetta hafa þó ekki komið fram skýr svör hjá stj. En það hefur komið fram, m. a. hér í d., að sumir þm. hafa jafnvel gert það að skilyrði fyrir fylgi sínu við málið, að slík yfirlýsing lægi fyrir. Nú er það svo, að afnám skömmtunarinnar hlýtur að draga dilk á eftir sér fyrir atvinnubílstjóra fólksflutningabifreiða, ef ekki eru gerðar frekari ráðstafanir. Félag þeirra, Hreyfill, hefur fyrir skömmu farið þess á leit við borgarstjóra, að hann styddi að því, að sett yrði reglugerð, þar sem fastákveðin væri tala þeirra bifreiðarstjóra, sem á hverjum tíma mættu stunda akstur sem atvinnuveg. Í tilefni af þessu lagði borgarstjóri til, að skipuð yrði n., sem athugaði; hvort það þyrfti löggjöf til þess að setja slíka reglugerð. Þetta varð að ráði, og ákveðið var, að bæjarráð skipaði einn mann í n., félag bifreiðarstjóra einn, og auk þess skrifaði bæjarráð rn. og óskaði þess, að það skipaði einn mann í n. Ég hef ekki heyrt, hvort rn. hefur skipað þennan mann, og vildi í fyrsta lagi spyrja hæstv. ráðh., hvort það hefur verið gert. Í öðru lagi vildi ég spyrja hæstv. ráðh., hvort athugað hefur verið í stjórninni, hvort löggjöf þyrfti til þess að þetta verði gert og í þriðja lagi, hvort athugað hafi verið í stj. að setja slíkar reglur samtímis því, sem skömmtunin yrði afnumin. Þetta er mjög alvarlegt mál fyrir atvinnubílstjóra, því að ef skömmtunin verður afnumin, gizka þeir á, að 300–400 bílar muni bætast við, og það mundi hafa í för með sér tilfinnanlegt atvinnuleysi fyrir stéttina. Ég vil óska þess, að hæstv. ráðh. svari þessu.