13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (2748)

118. mál, raforkulög

Frsm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Ed. Iðnn. tók það fyrir í gær og leggur til, að það verði samþ., en vill vekja athygli á því, að naumast er mögulegt að láta lögin koma til framkvæmda á þessu ári, þar sem raforkusjóði hefur verið ráðstafað fyrir yfirstandandi ár, en frv. þetta gerir ráð fyrir því, að heimilað verði lán úr raforkusjóði til dieselrafstöðva í sveitum, og er það sú eina breyt., sem gerð er á raforkul. frá því, sem nú er, að þessi heimild nái einnig til þeirra. Það er náttúrlega mjög nauðsynlegt, að þeir, sem geta ekki komizt í hið stóra kerfi, en verða að nota dieselstöðvar, geti einhvers staðar fengið hagkvæm lán, því að stofnkostnaðurinn er mikill, þannig að hann getur aldrei orðið undir 12–15 þús. kr. á býli. En með þeim 2 millj., sem lagðar eru í raforkusjóð árlega, er þar ekki um peninga að ræða, a.m.k. ekki ef haldið verður áfram að virkja og dreifa rafmagninu út um sveitirnar á þann hátt, og verður því að koma ný tekjuöflun til. Í l. um Ræktunarsjóð Íslands er ætlazt til, að hann veiti lán einnig í þessu skyni, en peningar hans eru svo takmarkaðir, að hann hefur ekki getað lánað peninga til útihúsbygginga í sveitum. Mætti vera, að það tækist að efla ræktunarsjóð og raforkusjóð einnig í sambandi við þessa breyt., sem nú verður gerð á raforkul., og gera þannig þeim bændum úrlausn, sem nota dieselrafstöðvar í framtíðinni. En það er alveg víst, að verði ekki fjárveiting aukin til sjóðsins frá því, sem nú er, verður aldrei hægt að fullnægja þeirri eftirspurn, sem verður eftir lánum til dieselrafstöðva, eins og nú horfir, því að síðan þetta frv. kom fram, hafa borizt bunkar af umsóknum um lán frá raforkusjóði, í þeirri von, að þetta frv. verði að l. og eitthvað verði til að lána úr raforkusjóði, en n. vill vekja athygli á því, að á þessu ári eru engir peningar til að lána í þessu skyni, þó að frv, verði að lögum. En vegna þess, að málið er í heild sinni gott, vill n. samþ. frv. í trausti þess, að í framtíðinni megi tryggja fé í þessu skyni.