11.05.1949
Neðri deild: 106. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1778 í B-deild Alþingistíðinda. (2761)

208. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. 2. þm. Reykv. (EOl) er það að segja, að það er erfitt að reikna út með nokkurri nákvæmni, hvað mikið þetta muni spara ríkissjóði í útgjöldum. Það er rétt, sem þm. segir, að frv. birtist í þeirri mynd, að þeir, sem hér mundu falla undir, koma til með að fá minni frádrátt. Þeir, sem unnu að þessu frv. fyrir ríkisstj., hafa gert ráð fyrir því, að um það bil helmingurinn af niðurgreiðslunum muni falla niður, ef frv. verður samþ. svona eins og það nú er, en niðurgreiðslur á kjöti hafa numið 20–21 millj. kr., og getur því hv. þm. ályktað af því, hve mikinn sparnað fjmrn. áætlar með þessu.

Kjötniðurgreiðslurnar hafa af mörgum verið litnar skrýtnum augum, og hafa margir innheimtumenn ríkisins, eins og margoft hefur komið fram í bréfum sýslumanna og annarra til rn., álitið, að með því að fara þessa leið hlyti að enda í hreinustu vitleysu. Þeir, sem við niðurgreiðslunum tækju, brostu bara að þeim. Í raun réttri hefði ríkisstj. átt að velta af sér þessum kjötuppbótum og niðurgreiðslum fyrr, því að það er ekki hægt að hafa til peninga til þess að standa svona undir öðrum lögboðnum gjöldum, meðan hver og einn gerir sér það að skyldu að reyta af henni, eftir því sem hann getur.

Hv. þm. spurði að því hér við 1. umr. þessa máls, hvar takmörkin mundu vera í þessu efni, hvar kjötniðurgreiðslur kæmu til greina og hvar ekki. Ég hef látið rannsaka það, og þegar tekjur komast í eftirtaldar upphæðir, fellur niðurgreiðsla niður í þessu efni. Hjá hjónum með 7 börn 52.769 kr., hjónum með 6 börn 47.257 kr., hjónum með 5 börn 41.745 kr., hjónum með 4 börn 36.223 kr., hjónum með 3 börn 30.721 kr., hjónum með 2 börn 25.209 kr., hjónum með 1 barn 19.687 kr., hjónum 14.175 kr. og einhleypum manni rúmar 7 þús. kr.

Það er gefinn hlutur, að þetta og þvílíkt hlýtur að vekja óánægju hjá einhverjum, að fella niður það, sem hér er lagt til í frv., að fellt verði niður. Og hv. 2. þm. Reykv. er svo heppinn að hafa alltaf einhvern hóp óánægðra manna til að forsvara. Hann er ekki maður, sem vill taka gjöld af fólkinu. Hann vill ekki láta benzínið hækka í verði, af því að þá þurfa bílstjórar að borga hærra í sinn rekstrarkostnað. Hann vill ekki minnka kjötniðurgreiðsluna. En vill hann minnka verklegar framkvæmdir? Eða hætta að borga embættismönnum laun? Vill hann minnka fræðslukerfið í landinu? Vill hann klípa af þeim 35 millj. kr., sem fara til fræðslustarfsemi? Nei, hann vill hækka þetta allt, ef hann ætti kost á því. Það er léttur vandi að leysa poka úr bandi. Það er hægt að benda á tekjuöflunarfrv. og taka þá kantana á þeim, sem þykja óviðfelldnir, og stimpla svo frv. í heild sem ranglátt mál af þeim ástæðum. En þegar svo er gert, þá verður það að fara fram á þeim grundvelli, að viðkomandi maður, sem þetta gerir, sé reiðubúinn til þess að minnka þann kostnað, sem ríkið á að standa undir, með skynsamlegu móti. Það er náttúrlega ekki of djúpt tekið í árinni, þó að kjötniðurgreiðslurnar séu minnkaðar um helming. Hvort sem hv. 2. þm. Reykv. hefur hugmynd um það eða ekki, þá verður ekki fært í framtíðinni að halda uppi þeim miklu niðurgreiðslum, sem hingað til hafa átt sér stað.

Hv. þm. talaði um útsvörin, að þau ættu að hækka. Það liggur ekki fyrir þessari samkomu að ákveða það. Það getur verið laukrétt, — það veit hann, — að það hafi verið ákveðið í bæjarstjórn Rvíkur að gera það. Ég geri ráð fyrir, að það standi í sambandi við það, sem þessi hv. þm. leggur hvað mesta áherzlu á, a.m.k. í orði, að þurfi að framkvæma, byggingar og þvílíkt. En ég get sagt þessum hv. þm. það, að tekjuskattstekjur ríkisins munu áreiðanlega minnka á þessu ári frá því, sem hefur verið, og það mikið. Af hverju? Það er sérstaklega sá tekjustofn, sem ég sé hilla undir, að muni verða veikari nú en oft áður, það eru tekjur ríkisins af verzluninni. Höftin eru meiri, og eftir því sem meira vörumagn dreifist yfir á aðila, sem borga ekki tekjuskatt til ríkisins, þá fást vitanlega minni tekjuskattstekjur til ríkisins af verzluninni.

Um Bandalag starfsmanna ríkis og bæja skal það sagt, að þeir hafa náttúrlega, sem í því eru rétt á, eins og hverjir aðrir, að setja fram kröfur sínar og koma óskum sínum á framfæri. En þær eru nú fram settar mest í skjóli þess, að hv. 2. þm. Reykv. og þeir, sem honum fylgja fastast að málum, hafa kynt að því í þjóðfélaginu á undanförnum árum, að alls staðar hafa laun hækkað og kaup hækkað. Og það er sterkasta röksemdin hjá BSRB nú, að þeir benda é. ýmsa hópa manna, sem ekki starfa fyrir ríkið að jafnaði og ekki starfa fyrir bæi að jafnaði, a.m.k. ekki sem fastir starfsmenn, en hafa fengið launauppbætur. Og ég vænti, að hv. 2. þm. Reykv. skoði það ekki sem last um sig, þó að sagt sé, að hann hafi unnið að því dyggilega að kynda undir ,þeirri hækkun launa á undanförnum árum, sem nú er notuð sem sterkasta röksemd af BSRB. Ég þarf ekki að endurtaka það, sem ég hef svo oft sagt við meðferð fjárlagafrv. og þeirra mála, sem standa í sambandi við afgreiðslu fjárl., að það er hreinasta lágmark, sem farið er fram á í sambandi við þau mál til að jafna tekjuhallann á fjárl. Í raun og veru hefði þurft meiri og víðtækari skattstofna. Því að við megum alltaf vera við því búnir, að útgjöldin fari fram úr áætlun. Það hefur orðið sú raunin á, og hún getur sannarlega orðið það eins síðar. Hitt má svo alltaf deila um, hvort rétt er borið niður, hvort það er heldur hér eða þar, sem réttast er að taka þessa tekjustofna. En ef hlutlaus dómur félli um það með tilliti til þess, hvaða kröfur hafa verið gerðar til Alþ. nú í sambandi við tekjur fjárl. eins og þau voru afgr. frá 2. umr. og eins og líkur eru fyrir, að þau verði afgr. við 3. umr., þá mundi sá dómur ekki verða þannig, að talið væri, að freklega væri gengið eftir tekjustofnum.