17.12.1948
Neðri deild: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (280)
107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil út af umræðum á síðasta fundi deildarinnar um fyrirkomulag á dagskrá þessa fundar leyfa mér að mælast til þess við forseta, að fyrra málið á dagskránni verði tekið út af dagskrá, sökum þess að nál. mitt liggur ekki fyrir ennþá, og hef ég áður greint ástæðuna fyrir því, að það er ekki tilbúið, enda langt frá því, að þingskóp geri ráð fyrir slíku, þar eð 1. umr. málsins lauk ekki fyrr en kl. 3 í nótt. Forseti skilur, að stjórnarandstaðan reynir að hraða nál. sínu eins og framast er unnt að ætlast til, þar sem lofað hefur verið, að það liggi fyrir kl. 5 í dag. Og þetta gerir stjórnarandstaðan, þótt við séum svo ógæfusöm að hafa ríkisstj., sem er svo seint fyrir með höfuðmálin og reynir svo á þolinmæði forseta um að fá nú allt afgreitt með slíkum afbrigðum sem hér eru tíðkuð, enda þátt þingið hafi verið starfslaust fram að þessu. Ég fæ ekki séð, að stjórnarandstaðan hafi tafið fyrir neinu af þeim málum, sem ríkisstj. hefur lagt áherzlu á að koma í gegn, og á þeim fundi, sem var verið að ljúka áðan, voru afgr. tvenn mál, sem eru tekjuöflunarmál fyrir ríkisstj., og ég var frsm. í báðum þessum málum og fór ekki fram á tíma til að skýra frá nál., og umr. urðu ekki það miklar, að þær tefðu afgreiðslu þessara mála. Hins vegar er það mál, sem nú er fyrr á dagskránni, sem fyrir liggur, slíkt stórmál, að mér finnst, ef það fer í n. á annað borð, að manni beri skylda til að útvega þm. þær upplýsingar, sem unnt er, viðkomandi málinu, og ég álít ófært að gefa ekki minni hl. tækifæri til slíks. Og af því að ég veit, að hæstv. forseti lítur alltaf svo á, að honum beri að vernda rétt allra þm. í þeim tilgangi að tryggja, að meðferð hvers máls verði sem bezt, meðan hæstv. forseti ekki álítur, að málið sé tafið óhæfilega, þá vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá, eða þá að þingfundi væri frestað, þegar kemur að því að meta það, þannig að málið yrði ekki tekið fyrir fyrr en kl. 5. Vona ég, að ég verði þá tilbúinn til að taka þátt í umr.