21.10.1948
Sameinað þing: 6. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)
Marshallaðstoðin
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ræða hv. þm. V-Húnv. minnti mig á ræðu hv. 2. þm. Reykv. Í síðari hluta ræðu sinnar talaði hv. 2. þm. Reykv. mjög mikið um það, hversu við hefðum lítillækkað okkur með því að gerast aðilar að þessum samningi, og fór um það sem hörðustum orðum, hvílík óstjórn það hefði verið í landinu, sem hefði leitt til þess. Svo fór hann að ásaka okkur fyrir það, að við hefðum ekki enn þá þegið gjafir. Það var að hans áliti hið mesta glapræði, sem við höfðum framið, að nota samninginn til þess að selja afurðir landsins, og hann kom þar hæst í sinni löngu ræðu, þegar hann skýrði þessa meginfirru, sem við hefðum framið, að þiggja ekki gjafir, heldur láta nægja að greiða fyrir sölu afurðanna. Það er ekki þörf á að fjölyrða um þetta. Þetta eru algerlega rökþrot hjá hv. 2. þm. Reykv. og eðlileg afleiðing þess, hvern málstað hann er að verja. Því verður ekki neitað, að þegar þessi hv. þm. leggur stund á ræðuhöld, þá er honum lagið að verja vondan málstað. En þegar ég sagði það, að hógværar athugasemdir hv. þm. V-Húnv. minntu á þetta, er það vegna þess, .að fram að þessu hafa allir vitað, að hv. þm. V-Húnv. hefur verið sannfærður um það af öllum mætti sínum, hvílíkur ófögnuður nýsköpun atvinnuveganna hefur verið. Við könnumst öll við þetta: Fyrst er spýta, svo er spýta; — ég vil sízt gera lítið úr því, sem þessi hv. þm. með sína víðtæku þekkingu hefur lagt gott til málanna á Alþ. en við gátum skilið afstöðu hans, af því að við vitum, að hann er langíhaldssamasti þm., sem hér á Alþ. hefur setið um áratugi. Þess vegna er ekki óeðlilegt, að honum blöskri, þegar á að taka svona margar spýtur og byggja úr þeim svona mikið. Málflutningur hv. þm. V-Húnv. viðvíkjandi nýsköpuninni minnti of mikið á málflutning hv. 2. þm. Reykv., og ástæðan er sú sama, að þótt maðurinn sé snjall, er málstaðurinn svo göróttur, að hann hlýtur að verða erfiður til varnar. Ég vil nú ekki hafa um þetta mörg orð, en úr því að hv. þm. V-Húnv. fór að blanda umræðum um nýsköpunina inn í þetta mál, sem verið er að ræða hér, þá er sjálfsagt að svara honum eins og rök standa til. Það hefur ekki verið tekin önnur upphæð til nýsköpunarinnar en sú, sem á sínum tíma var tekin frá til þeirra hluta, og raunverulega ekki verið eytt til hennar á þessum árum öðru en þeim milljónum, sem þar voru teknar frá.
Hv. 2. þm. Reykv. lagði mér þau orð í munn, og var það undirstaðan í hans ræðu, að ég hefði sagt, að Íslendingar hefðu haft 85% af verzlunarviðskiptum sínum við þátttökulöndin í viðreisnarsamstarfinu og með þessu samstarfi væri tryggt, að þetta héldi svona áfram, og þar með væri allt í lagi. Ekkert af þessu sagði ég, og minn rökstuðningur er á annan veg. Eins og hv. 2. þm. Reykv. getur lesið, ef hann lítur í pretun af ræðu minni, þá vakti ég athygli á því, að bæði inn- og útflutningsverzlun okkar væri nálægt því að nema 85% við þessi þátttökulönd í viðreisnarsamstarfinu og að það þyrfti ekki að fara mörgum orðum um það, hvílíkur voði væri á ferðum, ef verzlunartengslin við þessi lönd væru slitin. Ég sagði ekki, að allt væri í lagi, þó að þessum tengslum væri haldið áfram, heldur lagði ég áherzlu á það, að voði væri fyrir hendi, ef þau væru slitin. Allir, sem hafa heyrt ræður hv. 2. þm. Reykv., bæði þá löngu í gær og eins aðrar styttri og lengri ræður, bæði að nótt og degi, sumar og vetur, vita, að aðaláhugamál hans er að slíta þessi tengsl, og það án þess, að hann, eins og hv. síðasti ræðumaður benti á, gæti bent á nokkuð annað frambærilegt, sem ætti að koma í staðinn fyrir þau verzlunartengsl, sem hann þannig vill losna við. Hvað væri það annað en að segja, að við hefðum ekki áhuga fyrir áframhaldandi verzlunarviðskiptum við þessar þjóðir, ef við svöruðum tilboði um þátttöku í endurreisnarsamstarfinu með því, að við hefðum ekki áhuga fyrir þessu samstarfi? Það er margtekið fram, að það er verið að ryðja úr vegi óeðlilegum verzlunarhöftum milli þjóðanna og efla eðlileg verzlunarviðskipti þeirra á milli og meðal annars til að koma á eðlilegri verkaskiptingu í uppbyggingu þessara landa. Þetta er allt í þeim samningi, sem ríkisstj. gerði með samþykki forseta Íslands á s. l. sumri, og ef við hefðum neitað að gera þennan samning, þá hefði það verið sama og að segja: „Við viljum ekki efla og tryggja viðskipti við okkur“. Við hefðum slegið á útrétta hönd, og það þarf meira en þriggja tíma ræðu hv. 2. þm. Reykv. til að sannfæra nokkurn mann um það, að slík yfirlýsing hefði ekki jafngilt því að segja, að við vildum ekki viðskipti við þessar þjóðir. —Hv. 2. þm. Reykv. segir, að þessar þjóðir séu að efla fiskveiðar sínar, það sé bara í bili, sem þær þurfi á fiski frá okkur að halda. En þær upplýsingar, sem hann fór með, voru allar úr lagi færðar, og er ekki við öðru að búast vegna þeirrar firru, sem hann hefur haldið fram. Setjum svo, að einhverjar líkur séu til þess, að þessar þjóðir sumar, og kannske allar, vilji efla fiskveiðar sínar, — heldur þá hv. 2. þm. Reykv., að bezta ráðið til þess fyrir okkur að halda mörkuðum hjá þessum þjóðum, sé að neita þeim um fisk, á meðan þær þurfa á honum að halda, og að við getum þá selt hann til þeirra, þegar þær eru búnar að búa sig út til að afla fisksins sjálfar, og þetta er alveg án tillits til þess, hvort við höfum í annað hús að venda, og mun ég víkja að því síðar. Hv. 2. þm. Reykv. kemst ekki fram hjá þeirri staðreynd, að öll hans rök hníga í þá átt, að við slítum verzlunarviðskiptum við þær þjóðir, sem við höfum haft 85% af verzlunarviðskiptum okkar við að meðaltali hin síðari ár eftir stríðið.
Hv. 2. þm. Reykv. talaði um það langt mál, að ríkisstj. hefði algerlega látið undir höfuð leggjast að minna á það, hverja þýðingu fiskveiðar hefðu fyrir Íslendinga, og einnig að fá því svo skipað í því samstarfi um efnahagsuppbyggingu, sem nú fer fram, að tekið verði tillit til Íslendinga sem fiskveiðiþjóðar. Þetta átti að vera okkar höfuðsök. Ég vil nú minna á það, að raunar var óþarfi fyrir mig og aðra að fara um þetta atriði mörgum orðum að þessu sinni, vegna þess að í umr., sem fóru fram í Sþ. 14. okt. s. l. ár, gat ég þess, að einmitt þetta væri höfuðþátturinn í þessu samstarfi af okkar hálfu, með leyfi hæstv. forseta:
„Umfram allt beindist þó þátttaka Íslands að því að minna þær þjóðir, sem þarna voru saman komnar, á, að Ísland hefði til sölu fisk, sem þær gætu notað. Mun það öllum vera augljóst, að það er lífsskilyrði fyrir Íslendinga, að í áætlunum um endurreisn Norðurálfu sé hæfilegt tillit tekið til fiskveiðanna og séð fyrir, að flestir geti orðið neytendur fisks, bæði sjálfum sér og framleiðendunum til gagns.
Fulltrúi Íslands beindi áhrifum sínum einkum að því að brýna þetta fyrir mönnum. Skal ekki um það sagt, að hverju gagni það kemur. En hitt er ljóst, að ekki hefði okkar hlutur orðið betri, ef fiskurinn hefði alveg fallið niður, þegar rætt var um matarþörf þessara Evrópuþjóða og áætlanir gerðar um fullnægingu hennar.“
Þetta, sem hv. þm. taldi nú vera höfuðsök okkar í þessum efnum, var þannig fyrsta atriðið, sem við lögðum fyrir fulltrúa okkar í þessu samstarfi að minna á, og hv. þm. vissi þetta óskaplega vel. Ég veit að vísu, að hann varð mállaus í umr. í fyrra, en ég hef ekki orðið var við, að hann hafi misst minnið, allra sízt til langframa, enda kom málið aftur, og þá vonandi líka minnið. En ríkisstj. hefur fyllilega gert skyldu sína í þessu efni. Auðvitað var ekki látið við það sitja, sem þá kom fram, heldur hefur okkar starf beinzt að því, að þetta samstarf gæti greitt fyrir sölu okkar afurða, það er margoft tekið fram, og það er gersamlega ástæðulaust fyrir hv. þm. að eyða löngu máli í það að láta svo sem hann viti ekkert um þetta.
Þá var veigamikiil þáttur í ræðu hans tal um það, að við hefðum einnig gert okkur seka um að vanrækja öflun markaða í Austur-Evrópu. Hefðum við gert það vafalaust fyrir áhrif frá þessum Marshalllöndum, áhrif auðjöfranna þar, á sama tíma sem fiskveiðahringirnir í þessum vesturlöndum væru svo bæði að taka undan okkur markaðina í Vestur- og Austur-Evrópu. Hv. þm. minntist þar á sinn gamla vin, Semenoff, og taldi þeim að kenna, hversu hann hefði flekað okkur. Hann hélt líka einu sinni fram, að ég væri hluthafi í Unilever. Því miður hef ég ekki komizt svo hátt í fjármálaheiminum að eiga hlutabréf í svo fínu félagi. Hitt get ég mæta vel skilið, að hv. þm. sé þetta félag mjög hugstætt, þannig að hann getur naumast haldið hér ræðu án þess að minnast á það, því að það lítur út fyrir, að þessi fiskveiðahringur, eða hvað þetta er, hafi náð sambandi við sum ríki í Austur-Evrópu. Ég hef hér í höndum rit, skýrslu frá júlí 1948, og segir þar, að þá nýlega, eftir að kommúnistar brutust til valda í Tékkóslóvakíu, hafi Unileverhringurinn verið gerður agent tékkóslavnesku stj. til að kaupa sérstakar tegundir olíu og feitmetis. Þetta er nú hringurinn, sem hv. þm. er alltaf að hræða okkur með. Íslenzka stj. hefur ekki haft samband við hann fram að þessu. En við megum þá eiga von á því, ef þessi hv. þm. einhvern tíma nær hér völdum, sem ég vona að seint verði, að þá verði það hans fyrsta verk að kalla þessa fornvini sína til að gera þá að einkaumboðsmönnum varðandi alla lýsissölu okkar og feitmetis. Þannig hafa bræður hans í Tékkóslóvakíu farið að, enda þekkjum við, að menn í þessum flokki ávíta aðra mest fyrir þá hluti, sem þeir sjálfir eru staðráðnir í að taka upp. Og það er líka vitað, að margir auðmenn hafa komið sér vel fyrir um samstarf við ráðandi menn í kommúnistaflokkum margra landa. Og flestir limirnir dansa nú eins á þessum slóðum, og þarf vart að efa, að ástin muni einnig ná til íslenzkra flokksbræðra, þótt þeir telji í bili hagkvæmara að skamma þessa menn þar úti.
En hvað er til í þessum sögum, sem hv. 2. þm. Reykv. er alltaf að segja um það, að ríkisstj. hafi vanrækt að afla markaða fyrir afurðir landsmanna í Austur-Evrópu? Nú er það að vísu alveg eins og þessi hv. þm. sagði, að stundum er vafasamur hagnaður af þessum verzlunarsamningum, þó að viðkomandi lönd kaupi hærra verði, með því að oft verður að greiða hærra verð fyrir þær vörur, sem þaðan eru keyptar. Á þetta er oft bent, og hv. þm., sem síðast talaði, færði að því óvenjulega glögg rök, sem var ágætt að fá fram. Þó verður að hafa í huga, að það er munur á vörutegundum. Og sumar vörur frá þessum löndum hygg ég að séu allt að því samkeppnisfærar, og það réttlætir að nokkru það, sem ríkisstj. hefur verið að gera, að hún hefur þegar lagt allt kapp á og ekkert látið undir höfuð leggjast til þess að ná verzlunarsamningum við þessi austrænu lönd. Ég hef nú gaman af því, að hér í Alþ. flytur hv. 2. þm. Reykv. engar ræður svo um þetta efni, að hann tali ekki um, hversu mikill munur sé á þröngsýni íslenzku stj. og norsku stjórninni, — hún sé ekki hrædd við að skipta við Austur-Evrópu. En sannleikurinn er sá, að norsku kommúnistablöðin segja nákvæmlega það sama um norsku stj. eins og kommúnistar segja hér um mig og aðra meðlimi stj. Eins og drepið var á í umræðum um daginn, eru kommúnistablöðin uppprentun hvert upp úr öðru. Ég las í vor grein, sem birtist 27. marz 1948, um stjórnmálin í Noregi. Mér brá, því að mér fannst þetta allt vera skammir um mig úr Þjóðviljanum. En það var Lange utanrrh. Noregs, sem talað var um. Það var talað um Bandaríkin og yfirráð og einokun og herstöðvar og allt, sem heiti hefur. Og svo var sagt um Lange, eins og mig, að hann vildi ekki skipta við Austur-Evrópu. Og sérstök áherzla var lögð á ríkin í Suðaustur-Evrópu. Orðalagið var það sama og hér er notað, aðeins breytt til um mannanöfn og landa eftir því, sem þurfti á að halda. Þetta er ekki óeðlilegt. Menn eru meir og meir að skilja, að öll skrif og allar kenningar þessara hv. þm., svo glöggir og greinagóðir sem þeir sýnast í daglegri umgengni, þær koma utan frá. Þetta er allt úr einni allsherjar uppsprettu. Þeir verða að taka það, sem að þeim er rétt, hvort sem það er vegna þess, að þeir fá peningana þaðan, sem halda þeim og þeirra flokki uppi, eða eingöngu af trúarlegu ofstæki fyrir kenningunni. Hitt er óumdeilanlegt, að það er nákvæmlega sami söngur, sem þeir kyrja í öllum löndum, alveg án tillits til þess, þótt aðstæður séu ólíkar í hverju einstöku landi, af því að þessir menn hafa ekki frjálsræði til þess að hreyfa sig og ráða ekki nema að sáralitlu leyti, hverju þeir mega halda fram á hverjum tíma. Þetta kemur einnig fyrir æðstu postula í þessum félagskap. Þeir afvenjast að beita sinni gagnrýni. Það var hlegið að því á fundi Sameinuðu þjóðanna, þegar Vishinsky, einn snjallasti og mælskasti maður í heimi, fór að vitna til þess um árásarvilja Bandaríkjanna, að olíufélag í Bandaríkjunum væri búið að gefa út kort um þriðju heimsstyrjöldina, sem átti að heyjast mjög yfir Kyrrahafseyjum. Þegar kortið var skoðað, kom í ljós, að þetta var þriðja stríðskortið, sem var gefið út af þessu félagi. Fyrri stríðskort þess voru annað frá austurvígstöðvunum og hitt frá vesturvígstöðvunum. Þriðja stríðskortið var yfir Kyrrahafsvígstöðvarnar. Öll voru kortin frá árunum 1944 og 1945. En þetta var nú ein af aðalröksemdunum hjá Vishinsky fyrir árásarvilja Bandaríkjanna, að nú væri búið að semja kortið um næsta stríð, og skyldi því til skarar skríða og ráðast á þá friðelskandi Rússa. Þessi saga er ákaflega einkennandi fyrir baráttuaðferð þessara manna. Það sýnist vera einhver allsherjar áróðursvél, sem ryður út ósköpum öllum af upplýsingum. En jafnvel þeir, sem eru meðal þeirra fremstu og snjöllustu og njóta jafnvel alheimsaðdáunar fyrir greind og dugnað í sínu starfi, eins og Vishinsky, þeir hafa enga gagnrýni í sér til þess að vara sig á því, sem úr áróðursvélinni kemur. — Alveg eins er það með hv. 2. þm. Reykv. og flokksbræður hans hér. Þeim hefur verið sagt að halda fram, að við Íslendingar vildum engin skipti hafa við Austur-Evrópu. Það hefur engin áhrif, þó að staðreyndirnar tali allt öðru máli. Væri miklu nær sönnu og fólst jafnvel í rökstuðningi hjá hv. þm., sem síðast talaði — að ávíta stj. fyrir að hafa gert of mikið af clearing-viðskiptasamningum við Austur-Evrópu. En hinu er haldið fram, af því að þessum mönnum er sagt það, þó að stj. hafi ekkert tækifæri látið ónotað til þess að reyna að skipta við þessi lönd, sem og dæmin sýna. Við skulum líta á þessi lönd, sem helzt koma til greina. Árið 1946 var selt til Finnlands fyrir 1 millj., 308 þús. kr. Árið 1947, þegar samningar voru gerðir á mína ábyrgð, fer salan upp í 3 millj., 778 þús. kr. Og 1948, þegar samningar eru enn gerðir á mína ábyrgð, er flutt út þangað í jan. til ágúst fyrir 7 millj., 46 þús. kr. Lýsir þetta ekki ákaflega vel vilja mínum til að hindra viðskipti við Finnland? Lítum þá á Pólland. Árið 1946, þegar hv. þm. Siglf. var ráðh. sjávarútvegsmála og hafði með söluna að gera, var flutt út þangað fyrir 752 þús. kr. Árið 1947, þegar þetta var á minni ábyrgð, var þangað flutt út fyrir 4 millj., 598 þús. kr. Það, sem af er þessu ári til ágústloka, er þangað flutt fyrir 3 millj., 232 þús. kr., eða meir en fjórum sinnum meira en árið 1946, og þó er mikið af vörunum, sem fara eiga til Póllands, ófarið enn þá. Þannig verður enginn vafi, að langhæsta árið verður 1948. Enn má geta í sambandi við Pólland og Finnland, að það hefur verið gengið mjög eftir þeim að taka við sérstaklega freðfiski og þeir lýst yfir, að hann vildu þeir alls ekki kaupa og ekki ísaðan fisk heldur. Þeir hafa fengizt til að gera samning um aðrar afurðir, en ekki þessar fisktegundir. Þetta hefur þeim þó verið margboðið.
Þá kem ég að því, sem hv. þm. sagði, að þjóðir Austur-Evrópu, ætluðu ekki að veiða fisk, svo að við þyrftum ekki að óttast, að þær vildu ekki skipta við okkur eftir nokkur ár. Á árinu 1947, um það bil sem hv. þm. Siglf. var að láta af embætti, keyptu Pólverjar togara frá Englandi, til þess að þeir gætu veitt fisk sjálfir. Og það er ekki launungarmál, að Pólverjar eru að falast eftir að fá keypta íslenzka togara. Þeir vilja ekki kaupa af okkur fiskinn, en vilja kaupa af okkur togarana. Við höfum gengið á eftir þeim með grasið í skónum, en þeir hafa ekki viljað fiskinn. Það er öfugt með þá við þjóðir Vestur-Evrópu. Þær vilja kaupa afurðir okkar og hafa samstarf við okkur um að byggja atvinnulífið þannig, að við getum lifað með okkar framleiðslu.
Hv. þm. hefur mikið talað um Tékkóslóvakíu og þann einstaka fjandskap, sem ég eigi að hafá sýnt viðskiptunum við það land. Árið 1946, þegar þessi hv. þm. hafði enn þá áhrif á ríkisstj:, var þangað flutt fyrir 8 millj., 519 þús. kr. Árið 1947 fyrir 14 millj., 161 þús. kr. Og jan.-ágúst 1948 fyrir 22 millj., 651 þús. kr. Og mikið er enn eftir að flytja þangað. Lýsir þetta því, að ég hafi haft mikla andúð á að semja við Tékkóslóvakíu? Ég hef lagt mig allan fram við að finna möguleika til að auka viðskipti víð Tékkóslóvakíu og önnur lönd Austur-Evrópu. Það er einmitt ég og það eru einmitt þeir flokkar, sem nú standa að ríkisstj., sem vilja gera það, sem hv. þm. segist hafa viljað, að skipta við allar þjóðir alveg án tillits til pólitískra skoðana. Og ég vil nú leggja strax eitt dæmi fyrir hv. þm. Hann sagði í gær, að við ættum að skipta við allar þjóðir. Hvað segir hann um það að taka upp viðskipti við Spán? Við skulum sjá, hverjar undirtektirnar verða í Þjóðviljanum. Ég hef gert ráðstafanir til þess, en nauðsynlegt er þá að taka upp diplómatískt samband við Spán. Ég álít ekki fært að neita diplómatísku sambandi við þjóð, sem við hugsanlega getum haft mikil viðskipti við. Þarna fáum við einfalt skóladæmi um það, hvort hv. þm. lætur sér standa á sama, hvaða stjórnarfyrirkomulag er í landinu, sem við skiptum við. Nei, sannleikurinn um þennan hv. þm. er, að hann vill ekki hafa viðskipti við aðrar þjóðir en þær, þar sem hans stjórnmálastefna, kommúnisminn, ræður svo miklu, að við Íslendingar verðum verzlunarlega algerlega háðir fyrirskipunum frá slíkum þjóðum. Það er það, sem fyrir þessum hv. þm. vakir, og ekki neitt annað.
Varðandi Austur-Þýzkaland er rétt að geta þess, að nú, eftir að okkur hefur tekizt að ná samkomulagi um sölu á ísuðum fiski til Vestur-Þýzkalands, þótti okkur sjálfsagt að reyna að ná samkomulagi líka þangað. Þetta var reynt á þeim tíma þegar hv. þm. Siglf. var sjútvmrh., en kom algert nei við. Síðan hefur lítið í þessu gengið. En nú sendi ég gagngert í sumar sérstakan sendimann til Berlínar til að tala þar við rétt stjórnarvöld um þetta. Það var að vísu sagt, að fyrir væri viss áhugi þar um kaup á ísuðum fiski, en aðeins með vöruskiptum. Og því miður gerðu vörurnar, sem boðnar voru; töluverða erfiðleika á að koma þeim vöruskiptum á. Og við gætum tekið dæmið og velt því fyrir okkur, hvort Þýzkalandssamningurinn, sem nú er í gildi, mundi hafa svipaða þýðingu fyrir okkur, ef hann væri hreinn vöruskiptasamningur. Við höfum ekki einungis óskað eftir að taka upp almenna samninga, heldur einnig boðið fram ákveðnar vörutegundir, t. d. hraðfrystan fisk einan um 8.000 tonn, eða svipað magn og við erum nú að selja fyrir aðstoð viðreisnaráætlunarinnar, en þessu boði var hafnað. Við höfum einnig boðið hvallýsi með fiski og fleira, en svarið hefur alltaf verið nei, þannig að Rússar hafa því miður ekki séð sér fært að skipta við okkur. Þó er rétt að geta þess, að í ágúst og oftar en einu sinni síðar hafa Rússar leitað eftir að kaupa af okkur lýsi, bæði hvallýsi og síldarlýsi, en það var ekki fyrr en séð var, að aflabrestur yrði á sumarsíldarvertíðinni, svo að við mundum ekki einu sinni geta staðið við gerða samninga, hvað þá heldur meira. Þannig gátum við ekki selt þeim lýsið eitt, en eins og ég sagði áðan höfum við boðið hvallýsi með fiski, en því var algerlega hafnað. Nú skal ég játa, að nokkur merki sjást þess, að Rússar vilji þó halda uppi viðskiptatengslum við okkur, því að þeir hafa selt áfengisverzlun ríkisins eitthvað af vodka, og verð ég að segja, að það er gott að halda viðskiptunum við, þótt á mjóum þræði sé. Enn fremur hafa þeir selt KRON og Máli og menningu eitthvað töluvert af blöðum og tímaritum sem ekki hafa farið í gegnum hendur réttra innflutningsyfirvalda og ekki hefur verið veitt gjaldeyrisleyfi fyrir. Ég hef þó ekki gert gangskör að því að rannsaka, hvort þessi innflutningur stæðist íslenzk lög, einmitt af því, að ég hef svo mikinn áhuga á því, að viðskiptatengsl haldist við Rússa, að ég hef ekki viljað brjóta þá litlu brú, sem þeir þannig hafa skotið yfir til okkar, og vona ég, að vegna lipurðar okkar í þessu sambandi verði þeir fúsir til að kaupa okkar fiskafurðir í framtíðinni, og því lofa ég, að við undirbúning á sölu afurða ársins 1949 skal það verða mitt fyrsta verk að senda boð austur til Moskva þess efnis; að við séum reiðubúnir að gera við þá viðskiptasamninga, og ef hv. 2. þm. Reykv. efast um, að boðin komist til skila, þá skal ég biðja hann að koma þeim áleiðis upp í rússneska sendiráðið, ef hann heldur, að við hinir þekkjum ekki leiðina þangað. — Það er annars ákaflega lítið æskilegt að þurfa þannig að standa í fyrirsvari fyrir, að ekki hafi tekizt að ná viðskiptasamningum við Rússa, því að það kynni að mega líta svo á, að í orðum mínum fælust ásakanir í garð þessarar voldugu þjóðar, en því fer víðs fjarri. Ég tel víst, að Rússar hafi gildar ástæður til að hafna viðskiptum við okkur, og þótt þeir hefðu engar ástæður til þess, þá ráða þeir náttúrlega sjálfir gerðum sínum, og í orðum mínum felst ekki snefill af ásökunum í þeirra garð, en málflutningur hv. 2. þm. Reykv. gerir það óhjákvæmilegt, að ég geri grein fyrir því, sem gerzt hefur, en það er eins og ég hef margoft tekið fram, að við höfum hvað eftir annað leitað eftir viðskiptum við Rússa, en þeir hafa ekki treyst sér til að verða við óskum okkar.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það væri öruggt, að eftir stuttan tíma mundum við ekki halda viðskiptum okkar við Vestur-Evrópu, því að skv. blaðafregnum hefðu ríkin þar nú uppi áætlanir um að auka fiskframleiðslu sína um 40–45%, og vildu þessi ríki þannig beita okkur vélabrögðum, svo að við mundum innan skamms enga markaði hafa fyrir fiskinn, ef við bindum viðskipti okkar við Vestur-Evrópu. En hvað gerist í löndunum í Austur-Evrópu? Ég hef hér fyrir framan mig skýrslu, sem birzt hefur í Ægi, þar sem segir frá fiskveiðiáformum Rússa. Skv. 5 ára áætlun þeirra eiga fiskveiðarnar árið 1947 að vera orðnar jafnmiklar og fyrir stríð, og árið 1950 á framleiðsla hinna ýmsu fiskafurða að vera 1,5 sinnum,, 1,8 eða 2 sinnum meiri en fyrir stríð. Það eru, fleiri en þjóðir Vestur-Evrópu, sem ætla að auka fiskveiðarnar. Enn fremur ætla þeir að auka fiskiflotann um 150 togara, byggja 13 fiskvinnsluverksmiðjur og 30 kælihús. Það, sem hv. 2. þm. Reykv. var skv. lauslegum blaðafregnum að ógna okkur með, að mundi verða í Vestur-Evrópu, hafa Rússar sem sagt lögbundið hjá sér, þannig að ef það er hættulegt að treysta á fiskmarkaði í Vestur-Evrópu, hversu hættulegt er það þá ekki í Rússlandi, þar sem ákveðið er að margfalda framleiðslu fiskafurða, og þeir góðu herrar, sem þar sitja að völdum, eru ekki vanir að láta sitja við orðin tóm? Sannleikurinn er sá, að þjóðir Austur-Evrópu vilja auka sína fiskframleiðslu, og ef það er vogunarspil að treysta á Vestur-Evrópu, hversu mikið vogunarspil er það þá ekki, sem hv. 2. þm. Reykv. vill, að hrinda frá sér mörkuðum Vestur-Evrópu, en byggja á mörkuðum Austur-Evrópu, sem við höfum ekki aðgang að og hverra ráðamenn vilja ekki einu sinni við okkur tala? Það er ekki furða, þótt hv. þm. þurfi að tala lengi, og sannast það á honum, að sannleikurinn er stuttorður, en lygin langorð.
Ég hef nú rakið það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um afurðasölumálin. Það var flest gamalkunnugt og ekki margt nýtt, hv. þm. heldur gömlu ósannindaræðuna, en ég skýri frá staðreyndum, og með hverjum degi bætist við ný staðreynd, er sannar mitt mál, en hv. þm. verður þá að grípa til nýrra blekkinga, og ég verð að segja það, að ég finn til með honum, jafnvænum manni og góðlátlegum, að hann skuli láta hafa sig í þetta. En það er svo með þennan hv. þm., að hann er ekki sjálfráður gerða sinna. Aðrir segja honum, hvað hann eigi að tala og skrifa. Það er allt saman tilbúið austur í Moskva, svo að það er ekki furða, þótt það komi kynlega fyrir sjónir hér á Íslandi. Menn tala nú um að fljúga til tunglsins eftir svo sem 10 ár. Ég held, að mannskepnan yrði þar seldur framandi og kynni illa við sig fyrst í stað. Eins er þessi austræni áróður hv. 2. þm. Reykv. og hans félaga ákaflega framandi hér, þó að hann gæti verið ágætur austur í Moskva, þar sem bundið er fyrir alla þá, sem ekki eru á sömu skoðun og stjórnarvöldin. Ég neita því ekki, að það er nokkur styrkur í því til að byrja með fyrir hv. 2. þm. Reykv. að geta hagað áróðri sínum eftir fyrir fram gerðri áætlun, og þessi áróður, sem upprunninn er erlendis, kemur hér fyrst mjög ókunnuglega fyrir sjónir, en fer brátt að þekkjast, og þá verður það, sem áður var styrkur, til trafala og niðurdreps.
Hv. 2. þm. Reykv. vildi halda því fram, að samningurinn um Marshallaðstoðina væri ekki löglegur. Fyrir þessu færði hann engin rök, aðeins máttlausar fullyrðingar, enda er samningurinn fyllilega löglegur, gerður af réttum og hlutaðeigandi stjórnarvöldum, enda mun samningurinn ekki lagður sérstaklega fyrir Alþingi, því að það á ekki við eftir íslenzkum stjórnskipunarlögum. — Þá efaðist hv. þm. um, að heimilt hafi verið að taka lán það, sem tekið var skv. viðreisnaráætluninni, og vitnaði þar í bókun sína, er hann mótmælti lántökunni. Sannleikurinn er sá, að bókun hv. þm. hefur ekkert lagagildi, ekki meira gildi en þótt hann færi hérna út á svalirnar og ræki út úr sér tunguna. Ríkisstj. hefur í þessu efni ekki farið út fyrir þá heimild, sem Alþingi veitti henni, enda var vitað, að meiri hluti þingmanna var því fylgjandi, að lánið yrði tekið skv. viðreisnaráætluninni. — Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að hægt hefði verið að fá lán annars staðar. Hér talar hv. þm. um það, sem hann veit ekkert um Þeir, sem þetta mál athuguðu, sögðu lánið ófáanlegt á þann veg, sem leitað var eftir í fyrstu, þannig að ef þau tæki, sem keypt voru fyrir þetta lánsfé, áttu að vera komin til landsins fyrir þá síldarvertíð, sem við vonum, að nú fari í hönd, þá mátti enginn frestur á lántökunni verða, og eins og hv. þm. S-Þ. tók fram áður, þá situr það sízt á hv. 2. þm. Reykv. að fordæma þessa lántöku, því að hv. þm. er einmitt í stjórn þess fyrirtækis, sem byggir tilveru sína á því, að þetta lán fékkst. Ef hv. þm. telur þessa lántöku þjóðhættulega, þá ætti hann að bera fram í stjórn Örfiriseyjarverksmiðjunnar till. þess efnis að endursenda vélarnar, sem fyrir lánsféð voru keyptar. Þá fyrst, ef hann vill þannig standa við orð sín, er hægt að ráða málið alvarlega við hann. — Þá hélt hv. 2. þm. Reykv. því enn fram, að með viðreisnarsamningnum fengju, Bandaríkjamenn fjárfestingarleyfi hér á 1andi. Ég gerði í fyrradag grein fyrir þessum málum, og reyndi hv. 2. þm. Reykv. ekki að hnekkja því, enda ekki hægt, því að Bandaríkin fá ekkert fjárfestingarleyfi og ekkert dæmi hefur verið nefnt um, að þeir gætu öðlast slíka heimild, ekki einu sinni að þeir ættu rétt á að krefjast samningaviðræðna, hvað þá meira. Talað hefur verið um vatnsafl í þessu sambandi. En það er nú svo, að þótt mikið vatnsafl sé ónotað hér, þá er mun meira ónotað vatnsafl í Bandaríkjunum, svo að ekki er því til að dreifa, að Bandaríkjamenn öðlist hér rétt til vatnsvirkjana. Þessu hefur svo verið ruglað saman við það, sem fram hefur komið í blaðagreinum, að nauðsynlegt væri, að vatnsvirkjanir yrðu stórauknar frá því, sem nú er. Það er einmitt sú hugsun, sem kemur fram í þeim drögum að áætlun, sem nú hafa verið lögð fram. Þar er sízt of langt gengið, og væri rétt að athuga, hvort ekki væri hægt að ganga enn þá lengra, því að reynslan hefur sýnt það, að meðan við eigum allt undir svo frumstæðum atvinnugreinum sem sjávarútvegi og landbúnaði, þá erum við allt of háðir ófyrirsjáanlegum sveiflum, og má í þessu minna á aflabrestinn á síldveiðunum undanfarið. Það er því nauðsynlegt að efla fleiri atvinnugreinar, því að það er ljóst, að það er beinlínis erfitt að halda uppi ríkisskipun þegar við fáum margar vertíðir eins og undanfarið. Fjárhagur ríkisins þolir það ekki, framkvæmdir áætlaðra framkvæmda truflast, og erfitt er að halda uppi nauðsynlegu embættismannakerfi. Það þarf því gaumgæfilega að athuga, hvort ekki muni unnt að stórauka raforkuframkvæmdirnar, jafnvel enn meira en drög áætlunarinnar gera ráð fyrir, enda þótt með henni sé svo stórt spor stigið, að stórum dregur úr þeirri atvinnuóvissu, sem verið hefur. Menn sjá, hve mikinn fjárfestingarrétt Bandaríkin fá við þessar framkvæmdir, sem áætlunin gerir ráð fyrir, og ekki eykst hann, þátt lengra sé gengið, þegar svo dyggilega er búið um af Íslands hálfu sem raun ber vitni. Hér er aðeins um að ræða drög að áætlun, sem þarf að endurskoða frá ári til árs, en bak við þessa áætlun liggur hugmyndin um það, að Ísland verði í framtíðinni frjálsara og óháðara, en ekki, að Ísland verði hneppt í ánauð, eins og hv. 2. þm. Reykv. lét hafa sig til að segja. — Hv. þm. gerði einnig mikið úr því, að við hefðum heldur átt að þiggja gjöf, en selja afurðir okkar. Allt, sem hann sagði um þetta, stangaðist, eins og ég sagði í upphafi, en í þessu sambandi get ég ekki látið hjá líða að benda á, hvílíkt ósamræmi það er hjá hv. þm., þegar hann býsnast yfir því, að við megum ekki þiggja gjafir skv. Marshallaðstoðinni, en þótti hins vegar ekkert varhugavert við það, þegar Bandaríkjamenn héldu uppi láns- og leigulögunum eða þegar UNNRA starfaði. Í sambandi við þetta, þegar hann fordæmir, að Íslendingar skuli selja vörur sínar fyrir aðstoð viðreisnaráætlunarinnar, má minna á, að í allmörg ár seldum við skv. láns- og leigulögunum vörur okkar til Bandaríkjanna, svo að ef það er óviðeigandi nú að selja skv. viðreisnaráætluninni, þá er það ekki ný óvirðing, og minna má einnig á það, að það fé, sem við fengum fyrir afurðir okkar seldar skv. láns- og leigulögunum, var einmitt undirstaða nýsköpunarinnar. Enn fremur var selt á vegum UNNRA, og þótti ekki óvirðing að því, og þar sem það sama er raunverulega gert nú, er fróðlegt að íhuga, hvers vegna hv. 2. þm. Reykv. lofar láns- og leigulögin og UNNRA annars vegar, en fordæmir viðreisnaráætlun Norðurálfunnar hins vegar. Það stendur þannig á því, að láns- og leigulögin voru þannig, að Bandaríkin gáfu Rússum gífurleg hergögn. Kommúnistum fannst vitanlega allt í lagi með þá aðstoð Bandaríkjanna. Alveg eins var það með UNNRA. Vörunum, sem UNNRA sendi til Júgóslavíu, var haldið frá almenningi, og þær voru notaðar til að vígbúa stóran her. Þá þótti þjóðunum, sem stóðu að UNNRA-hjálpinni, nóg komið. Það voru ekki aðeins Bandaríkin, sem ákváðu að leggja UNNRA niður, þótt þau stæðu að mestu leyti undir þessari hjálp, og það sýndist ákaflega einkennilegt, að þau og önnur ríki legðu hart að sér til að hjálpa þjóðum Austur-Evrópu til að vígbúast. En þegar það kom á daginn, að Bandaríkjamenn vildu stofna til enn þá víðtækari hjálpar, en áður var um að ræða, til sannrar viðreisnar eingöngu, þá er það sem hv. 2. þm. Reykv. og hersingin frá Moskva ærast. Þannig er þá með samræmið hjá kommúnistum um afstöðu þeirra til láns- og leigulaganna og UNNRA, og svo til Marshallaðstoðarinnar.
Því hefur verið haldið fram hér í umræðum um þetta mál, að nær væri að gefa öðrum þjóðum gjafir en okkur og við ættum ekki að þiggja gjafir til þess að taka slíka hjálp frá öðrum þjóðum, sem hefðu ríkari þörf fyrir hana. Þetta er nú bæði rétt og ekki rétt túlkun. Íslendingar urðu fyrir miklu manntjóni og eignatjóni á stríðsárunum, eins og öllum er í fersku minni, og ísland er tiltölulega fátækt land, t. d. fátækara en Noregur og Danmörk. Þar að auki er hér um misskilning að ræða, því að þær þjóðir, sem njóta Marshallaðstoðarinnar, skipta á milli sín framlagi Bandaríkjanna, hvað skuli renna til hverrar um sig, og féllu 11 milljónir dollara í okkar hlut í ár. Síðan tekur viðreisnarstofnunin í Washington ákvarðanir um, hvernig þessu framlagi til hverrar þjóðar skuli varið, í hvaða formi það skuli vera, lán, gjöf eða fyrir seldar afurðir, þannig að þó að við fengjum framlög án endurgjalds, værum við ekki að taka neitt frá öðrum þjóðum, ef aðstoðinni verður framvegis hagað eins og gert er á þessu ári. Að meginstefnu til eru það Bandaríkin, sem ákveða, hvernig framlögum til hverrar þjóðar skuli háttað, eftir að búið er að skipta heildarframlaginu milli þátttökuríkjanna, og það gera þau sjálf.
Það er fyrst og fremst matsatriði, sem við verðum að gera upp sjálfir, hvort við þurfum meiri aðstoð en svarar afurðasölu okkar hverju sinni eða hvort við ætlum að ráðast í slíka hluti, að sú sala nægi ekki til að standa straum af þeim, og taka þá við gjöfum til viðbótar. Eins og margir hv. þingmenn hafa tekið fram, er ekki rétt að fara fram á gjafir nema til sérstakra framkvæmda, að því undanskildu, að um aflabrest eða algert efnahagslegt öngþveiti væri að ræða, svo að við ættum ekki um annað að velja. En ég vil benda hv. þingmönnum á, að þótt við fengjum framlög án endurgjalds í formi neyzluvöru, gæti það jafnvel gert mögulegt að kaupa kapítalvörur, sem við ella hefðum ekki efni á að fá. Því stoðar ekki að líta á það, í hvaða formi framlagið er hverju sinni, heldur hvort það gerir okkur fært að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir, sem við gætum ella ekki ráðizt í. Menn eru yfirleitt enn að átta sig á þessum miklu möguleikum. Ég álít síður en svo varhugavert að taka við framlögum án endurgjalds, ef við gætum með því móti byggt upp atvinnulíf okkar betur en ella væri kostur á.
Ég vil vekja athygli á því, að framkvæmd þeirrar fjögurra ára áætlunar, eða frumdrátta að áætlun, sem hér hefur verið lögð fram, byggist að meira eða minna leyti á framlögum án endurgjalds, eða svo kynni a. m. k. að fara, því að ekki er víst, að venjulegur útflutningur nægi til að standa straum af þeim nytsömu framkvæmdum. Hér er ekki um neina nýjung að ræða, þessar fyrirhuguðu framkvæmdir hafa ýmist verið lögfestar eða mjög um þær rætt af áhuga á undanförnum árum, en þær hafa stöðvazt vegna fjárskorts. Og ef menn vilja hrinda þeim áfram, verða menn að vera við því búnir að taka við framlagi án endurgjalds. Bandaríkjunum er vitaskuld engin þökk í því að troða upp á okkur gjöfum, þau vilja auðvitað heldur kaupa af okkur vörur sem framlaginu nemur, svo að viðskiptin geti komið tveimur þjóðum að gagni. Við megum ekki halda það, að Bandaríkin séu neitt áfjáð í að gefa okkur. Það erum við sjálfir, sem verðum að gera upp okkar dæmi, hvort við getum byggt upp íslenzkt atvinnulíf af eigin afrakstri og eigin rammleik eins og nauðsynlegt er eða ekki og hvort við getum aflað okkur nægra dollara á sama hátt. Ég hef komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé nóg að leysa dollaravandamálið, heldur verði að byggja upp atvinnulífið jafnframt, og hér sé um einstakt tækifæri til þess að ræða, tækifæri, sem við eigum ekki að hafna. Og nú verðum við sjálfir að gera upp okkar dæmi. Stj. hefur ekki tekið fram fyrir hendur hv. Alþ. í þessu efni, heldur aðeins farið eftir fyrirmælum þess og látið sér nægja þá aðstoð að fá greitt fyrir sölu afurða í sambandi við viðreisnarstarfið. Ef Alþ. telur það miða til góðs að ráðast í 4 ára áætlunina, er það þess að óska eftir, að framlaga sé aflað til þeirra hluta.
Hv. 2. þm. Reykv. fór um það mörgum fögrum orðum í ræðu sinni, hvílíka ógnar ógæfu hálfs annars árs vera mín í ríkisstj. hefði leitt yfir landið. Ég óska hv. þm. til hamingju með mælskutilþrifin í þeim kafla ræðu hans, þar tókst honum vissulega bezt upp. Ég get ekki gert að því, að mér flaug í hug, hvað maður einn sagði í sambandi við umræður um lagningu landssímans á sinni tíð. Hann sagði, að hafís, hungur, bóla og eldgos væru ekki neitt í samanburði við þá ógæfu, sem landssíminn leiddi yfir þjóðina. Eins var það hjá hv. 2. þm. Reykv., engin ógæfa á að jafnast á við stjórnardvöl mína, ekki einu sinni heimsstyrjöld, sem geisað hefur yfir öll byggð ból í 5–6 ár. Ég samgleðst hv. þm. yfir þessum glæsilegu lýsingum og tilþrifum í ræðu hans og ætla aðeins að taka til mín „komplimentið“, því að það er hreint ekki lítið að jafnast á við öll stórveldin, þegar þau eru í vígahug, til að gera sem mest illt af sér.
Ég ásamt öðrum á töluverðan þátt í að sýna þjóðinni fram á, hvílíkur óheillaflokkur flokkur hv. 2. þm. Reykv. er. Og það er nú svo, að ég hef, kannske öðrum fremur, reynt að kynna mér framferði kommúnista í öðrum löndum. Þær athuganir gerðu mér fært, fyrr en ýmsum öðrum, að átta mig á kommúnistum hér á landi og starfsaðferðum þeirra. Og vegna þess sá ég ýmislegt fyrir í pólitík þeirra, sem fleiri en ég eru nú farnir að skilja, og ég skil vel, að hv. 2. þm. Reykv. telji mig mikinn bölvald fyrir stefnu sína, og er það vel. Ég álít, að hv. 2. þm. Reykv. sé í eðli sínu mesti sómamaður og vilji í rauninni allt hið bezta. En ógæfa hans er sú, að hann hefur gengið á hönd erlendri stefnu, sem hefur að lokum teygt hann svo langt, að hann veit ekki, hvert hann er kominn. Við vitum því, að öll andstaða hans við góð áform er beint eftir skipun æðri manna í Kominform, eins og Sdanoffs sáluga, sem gaf út skipun til kommúnista um öll lönd í fyrrahaust um að vera á móti Marshallaðstoðinni, enda rauk hv. 2. þm. Reykv. þá þegar upp hér á Alþ. Því miður er sá góði maður, Sdanoff, kominn á æðra tilverustig, sökum þess að hann er fallinn frá á bezta aldursskeiði. Það er síður en svo, að ég óski hv. 2. þm. Reykv. dauða og að komast í æðri tilveru, en þess óska ég, að hann litist nú um eftir betri lærimeistara og snúist til hins íslenzka málstaðar.