26.10.1948
Sameinað þing: 8. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (2900)

Marshallaðstoðin

Gylfi Þ. Gíslason:

Hv. 2. þm. Reykv. eyddi alllöngum kafla sinnar löngu ræðu til þess að svara ræðu, er ég flutti um þetta mál.

Ég ætla fyrst að ræða nokkuð þann ágreining, er hann taldi vera í Alþfl., en það er efni, sem hv. Sósíalistaflokksmenn láta sér tíðrætt um, sérstaklega framboðið í Reykjavík við síðustu kosningar. Hv. þm. talaði um það eins og einhverja nýjung, að ágreiningur væri um framboðslista við kosningar. Hv. þm. veit þó vel, að það er nær undantekningarlaust, að ágreiningur verður í þessum efnum. Þetta hljómar líka því kjánalegar af vörum þessa hv. þm., þar sem hann ætti manna bezt að vita, að það var fjarri því, að samkomulag væri um lista Sósfl. Hvernig var það með hv. 4. landsk.? Var hann á listanum? (SigfS: Er hann formaður flokksins?) Hann er formaður flokksins inn á við, eins og það heitir. Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að formaður Alþfl. hefði verið rekinn í útlegð, en var þá ekki hv. 4. landsk. líka rekinn í útlegð? Hann bauð sig fram í Vestmannaeyjum, en það var ekki samkvæmt óskum kjósenda þar, svo kunnugur er ég í Vestmannaeyjum síðan ég var þar í framboði, heldur af innanflokksástæðum í Reykjavík. Framboð hv. 4. landsk. vakti ekki sérstaka hrifningu í Vestmannaeyjum.

Að því er snertir ágreining í Alþfl. vil ég segja það, að við erum frjálsir menn og drögum ekki dul á skoðanir okkar, enda höfum við frelsi til að láta þær í ljós og búum ekki við austrænt stjórnarfar í flokknum. Mér er því nær að halda, að allt þetta tal byggist á öfund yfir frjálslyndi Alþfl. En sömu sögu er ekki að segja úr herbúðum flokks hv. 2. þm. Reykv. Í öllum kommúnistaflokkum heimsins er nú ágreiningur um afstöðuna til Sovét-Rússlands og Kominform. Í öllum kommúnistaflokkum Vestur-Evrópu er opinber ágreiningur um deilur Kominform og Titos. Það er bara einn flokkur, þar sem ekki er opinber ágreiningur, og sá flokkur er íslenzki kommúnistaflokkurinn, af því að hann er aumastur allra kommúnistaflokka í Vestur-Evrópu. Hvort þetta stafar af því, að stjórn flokksins hafi hér ströngust tök á flokksmönnunum, eða af aumingjaskap fylgismannanna, veit ég ekki, en hvort tveggja væri flokknum til jafnlítils sóma. Margir meðlimir Sósfl. eru ósammála málflutningi Þjóðviljans í verulegum atriðum, en þeir láta aldrei orð frá sér heyra opinberlega. Annað hvort eru þeir þrælkúgaðir eða svo aumir, að þeir eru ekki menn til þess. Það er því hlægilegt, þegar hv. 2. þm. Reykv. gerir sér tíðrætt um ágreining í Alþfl.

Hv. 2. þm. Reykv. gerðist býsna barnalegur, þegar hann fór að reyna að stríða mér með því. að hv. þm. S-Þ. væri mér sammála í þessu máli! Ég skal játa, að mér er engin ánægja að því. En hv. 2. þm. Reykv. hefur oft verið á sama máli og hv. þm. S-Þ., t. d. í skilnaðarmálinu, og ég er ekki það barn að detta í hug að gera slíkt að umtalsefni. Ég skal líka játa, að mér er engin ánægja að því, að hv. þm. Barð. skuli vera mér sammála, en hv. 2. þm. Reykv. hefur líka orðið að þola þá raun að hafa hv. þm. Barð. sammála sér. Hv. þm. Barð. studdi manna mest „nýsköpunina“ við hlið hv. þm. Reykv. Þurfi ég að skammast mín fyrir hv. þm. Barð. sem samherja, þá ætti hv. 2. þm. Reykv. að vera búinn að skammast sín í mörg ár.

Ég vil í þessu sambandi nota tækifærið til þess að andmæla því, sem hv. þm. Barð. sagði, að Marshallaðstoðin væri framhald Keflavíkursamningsins. Það er furðulegt, að jafnaðsópsmikill stuðningsmaður stj. skuli taka undir bull hv. 2. þm. Reykv. um þetta. Ef þetta er rétt, hvaða Keflavíkursamning hafa þá Noregur, Danmörk og Svíþjóð gert og yfirleitt þau 16 lönd, er að þessu standa? Hvar eru þeir samningar? Þetta ætti að vera nægilegt svar við þessari furðulegu röksemd.

Hv. 2. þm. reyndi að andmæla því, sem ég sagði, að viðskiptin við clearinglönd hefðu í rauninni jafngilt gengislækkun. Hann sagði, að það skipti ekki máli þótt verðlagið á vörum, sem við keyptum í þessum löndum, væri hærra en á vörum frá sterlings- og dollaralöndunum, ef þau greiddu jafnmiklu meira fyrir vöru, sem við seldum þeim, en sterling- og dollaralöndin, það gerðu þau, og vegna þess væru viðskipti við clearinglöndin þjóðhagslega jafnhagstæð og viðskipti við dollara- og sterlinglöndin. Ég vil taka fram, að það var engan veginn tilætlun mín í fyrri ræðu minni að andmæla því, að nokkrir viðskiptasamningar væru gerðir við hin svokölluðu clearinglönd. Ég tel þvert á móti rétta þá stefnu hæstv. ríkisstj. að gera samninga við þessi lönd, bæði til þess að afla nýrra markaða og eins til þess að selja vörur, sem ekki er hægt að selja í sterling- eða dollaralöndunum. En það, sem ég átti við, var það, að viðskipti við þessi lönd gætu ekki komið að öllu leyti og jafnvel ekki að verulegu leyti í staðinn fyrir viðskipti við dollaralöndin, auk þess sem við, með því að fara inn á þá braut, beittum sömu aðferðum til lausnar vandamálunum og hingað til hefur verið kallað gengislækkun. Það ætti að vera hverjum manni auðskilið, að ef ekki er talið fært að selja til t. d. sterlinglanda vegna þess, að verðlagið er talið of lágt, en hins vegar talið hægt að selja til clearinglanda, vegna þess að verðlagið þar sé hærra, þótt verðlagið á innfluttum vörum sé líka hærra þaðan, þá hefði auðvitað eins mátt breyta genginu á pundinu, svo að útflutnings- og innflutningsverðið í viðskiptunum við sterlinglöndin hefði orðið það sama og verðið í viðskiptunum við clearinglöndin. Að hverfa frá viðskiptum við sterlinglönd og taka upp viðskipti við clearinglönd, þar sem útflutnings- og innflutningsverð er hlutfallslega jafnmiklu hærra en í sterlinglöndunum, jafngildir þess vegna algerlega því, að krónan hefði verið lækkuð gagnvart sterlingspundi. Auðvitað eru slík clearingviðskipti ekkert óhagstæðari þjóðhagslega séð en sterlingviðskiptin, en eins má að sjálfsögðu segja, að sterlingviðskiptin séu ekkert óhagstæðari, eftir að krónan hefur verið lækkuð, en þau voru áður. Það, sem ég hef sagt, er, að það að taka upp clearingviðskipti með hærra verðlagi í stað t. d. sterlingviðskipta, jafngildir því að lækka krónuna gagnvart sterling, og þetta er rétt, hvort sem menn skilja það eða ekki og hvort sem menn vilja játa það, þótt menn skilji það, eða ekki.