28.10.1948
Sameinað þing: 9. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (2912)

Marshallaðstoðin

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Hv. þm. Siglf. beindi þeirri fyrirspurn til mín, hvort ríkisstj. hefði óskað eftir vörum frá Rússlandi á seinni árum, sem hún hefði ekki keypt við fyrstu samninga. Ég get nefnt þetta strax, af því að ég man það: Kornvörur, sem við fengum ekki fyrr en við höfðum ítrekað tilkynnt, að við værum reiðubúnir að kaupa þær í mjög verulegum stíl frá Rússlandi. Ég er hissa á hv. þm., að hann skyldi ekki, þegar hann var ráðh. og hafði með sölu sjávarútvegsins að gera, beita sér fyrir kornvörukaupum frá Rússlandi, ef hann hefði talið, að kaup frá Rússlandi hefðu jafnmikla þýðingu og nú. Vitað var, að Rússar hafa öll þessi ár haft korn til sölu. Við munum, að fyrir síðustu þingkosningar í Frakklandi sendu þeir korn til Frakklands, einn eða tvo skipsfarma. Að vísu varð lítið framhald á því. Og þeir sendu líka korn til Tékkóslóvakíu í stórum stíl rétt fyrir byltinguna í vor. Og fleiri dæmi má nefna, sem sýna, að korn er þeim ærið útfalt, — á vissum tímum a. m. k. Og íslenzka stj. hefur einmitt óskað eftir að fá korn frá Rússlandi, en ekki fengið. Ég geri ráð fyrir, að við þyrftum ekki að fá í kaupið það, sem fylgir með sums staðar annars staðar.

Hv. þm. Siglf. sagði, að ég hefði sagt, að ekkert ætti að kaupa frá Ráðstjórnarríkjunum. Þetta sagði ég aldrei. Ég tók undir það, sem hv. þm. sagði, að varhugavert væri að byggja viðskipti landsins einungis eða að mestu leyti upp af viðskiptum við þau lönd, þar sem hætt væri við, að með einu pennastriki yrðu viðskiptin útilokuð. Og ég er þessu fyllilega sammála. En sú hætta er fyrst og fremst fyrir hendi í einræðisríkjunum, þar sem einræðisherrarnir hafa það í hendi sér, ekki aðeins stjórnmálin og utanríkismálin, heldur einnig verzlunina. Það var nánari útskýring á því, sem hv. þm. Siglf. sagði, sem ég gaf. Hins vegar lýsti ég yfir, að ég er — þrátt fyrir einræði í þessum ríkjum — mjög hvetjandi þess, að áfram sé skipt við þau ríki, eftir því sem atvik standa til og mögulegt er hverju sinni, þó að ég vildi ekki eiga viðskipti við þau ein. Annars finnst mér þessar umræður hafa haft mjög gleðilegan árangur, ef það er komið fram — ef má marka ummæli hv. þm. Siglf., þar sem hann segir, að viðskipti okkar ættu aðallega að vera við okkar gömlu viðskiptalönd, og fyrst og fremst ættum við að skipta við Bretland og þar næst við Þýzkaland. Það er einmitt það, sem ríkisstj. hefur gert undanfarið og er verið að undirbúa áfram með þátttöku í Marshalláætluninni. Og við erum svo fyllilega sammála, að það eigi einnig að þreifa fyrir sér til frekara öryggis, og meira en þreifa fyrir sér, — afla til frekara öryggis nýrra markaða, en umfram allt að byggja á þeim gömlu, meðan nýrra er ekki aflað. Það er einmitt þetta, sem er verið að gera með Marshallsamstarfinu. Það er fullkominn misskilningur, að ég hafi amazt við því að selja til Austur-Evrópu. Ég hef margtekið fram, að það er ætlazt til, að þvílík viðskipti haldi áfram. Það er meira að segja játað af öllum aðilum, að það er forsendan fyrir því, að Marshallsamstarfið nái tilætluðum árangri, að eðlileg viðskipti eigi sér stað milli allra landa í Evrópu. En það er greinilegt, að hv. þm. Siglf. gerir sér ljóst, að einhliða áróður þeirra flokksbræðra fyrir viðskiptum aðeins eða að langmestu leyti við Austur-Evrópu hefur ekki hljómgrunn. Og þess vegna hefur hann hörfað inn á sömu grundvallarskoðun í þessu eins og ég og aðrir hafa haldið fram undanfarna mánuði í mjög harðri andstöðu við hv. þm. Siglf. Hv. þm. Siglf. segir kannske enn þá: En utanrrh. vill ekki selja Rússum. En ég segi bara: Lítið á reynsluna. Þegar gerðir voru samningar við Rússa fyrir um 97 millj. kr. verzlun, hver bar ábyrgð á þeim hæstu samningum af því tagi, sem gerðir hafa verið við Rússland? Var það ekki einmitt ég? Hver hefur sýnt betur, en ég í verki, að ég vil eðlileg viðskipti við Rússland? Mér nægir að vitna í reynsluna og get líka vitnað í það, sem ég sagði í upphafi gagnvart því, að við vorum sagðir ekki vilja kaupa aðrar vörur, en við keyptum í fyrra af Rússum. Við fórum fram á fleiri vörutegundir og vildum efla viðskiptin eftir föngum. Allt er þetta sannað og vitað, hv. þm. veit það eins og aðrir. — Hv. þm. Siglf. telur það algera fásinnu, að við skulum hafa selt þessar vörur fyrir dollara og þannig eytt gjöfunum. Við höfum báðir ráðh. sýnt fram á mótsögnina í þessu hjá honum og hv. 2. þm. Reykv. En hv. þm. Siglf. klifar nú á því æ ofan í æ, að það sé ekki hægt að byggja neitt upp hér fyrir það, sem selt sé með venjulegum hætti. En hann var einmitt að segja það, hv. þm., að með hinum nýju tækjum væri hægt, ef við seldum afurðirnar, að halda áfram hér stórkostlegri nýsköpun. Það er einmitt það, sem við höfum verið að gera. Við höfum selt afurðirnar með þeim hagkvæmasta hætti, sem hægt er. Hv. 4. þm. Reykv. sýndi glögglega hér á dögunum, að vörur frá clearinglöndunum væru í mörgum tilfellum, sérstaklega iðnaðarvörur, 50% dýrari, en vörur frá Bretlandi. Það er vitað mál, að vörur frá Bretlandi eru yfirleitt dýrari, en vörur frá Bandaríkjunum þannig að menn mundu heldur kaupa frá Bandaríkjunum, ef þeir hefðu dollara. Síðasta sala hraðfrysta fisksins, sem við seldum til Rússlands, varð fyrir 9 pence. Nú seldum við fisk fyrir dollara, og var verðið 12½ pence, — mun hærra verð, og auk þess eru dollarar okkur hagkvæmur gjaldeyrir. Þannig er það gefinn hlutur, að þetta samsvarar því, að við hefðum selt vöruna fyrir helmingi hærra verð heldur en ef selt hefði verið í clearinglöndum. Það er alveg ljóst, að slík vörusala hlýtur mjög að ýta undir og gera mögulegri meiri nýsköpun hér á landi, en ef fylgt hefði verið ráðum hv. þm. og selt í clearinglöndum, jafnvel þótt selt væri á venjulegum markaði. En gallinn er sá, sem skiptir öllu máli í þessu sambandi, að það var ekki hægt að selja í clearinglöndum, þótt ítrekaðar og stöðugar tilraunir hafi verið gerðar til þess allt árið, eins og ég sýndi glögglega fram á í ræðu minni á dögunum.