28.10.1948
Sameinað þing: 9. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (2919)

Marshallaðstoðin

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Af því að hæstv. forsrh. er fjarverandi, en hv. 4. þm. Reykv., sem hefur átt hér nokkur orðaskipti við hv. 4. landsk., hefur talað sig dauðan, vildi ég, án þess að blanda mér frekar í þessar umr., leiðrétta þá missögn, sem fram kom hjá 4. landsk. út af framboði hv. 4. þm. Reykv. Hv. 4. landsk. fullyrti, að hv. 4. þm. Reykv. hefði sett Alþfl. úrslitakosti um, að hann mundi sprengja Alþfl., ef hann fengi ekki að verða hér efsti maður á lista við síðustu alþingiskosningar í Reykjavík, vegna þess hefði svo forseti Alþfl., núverandi forsrh., boðið sig fram í Eyjafjarðarsýslu. Mér er vel kunnugt um, að þessi ummæli hv. 4. landsk. eru bein ósannindi. Mér er vel kunnugt um það, að það var að eigin ósk hæstv. forsrh., að hann var í kjöri í Eyjafjarðarsýslu við síðustu alþingiskosningar, og lá þar ekki til grundvallar nein ósk frá nokkrum í Alþfl. og sízt af öllu frá hv. 4. þm. Reykv. Mér er ljúft að staðfesta þetta, af því að ég tók mikinn þátt í kosningaundirbúningnum hér. Ég skil ekki, hvers vegna hv. 4. landsk. er að hefna sín á Alþfl. með þessari lygasögu, þó að hann hafi orðið fyrir því óláni hjá sínum flokki að vera hrakinn til Vestmannaeyja og bíða þar hið mesta afhroð, á sama tíma og forsrh. jók fylgi Alþfl. í kjördæmi því, sem hann fór í. — Ég skal svo að öðru leyti ekki blanda mér í þessar umr., en vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir það, að hann lét ekki stranda á því, að hér yrði komið upp stórkostlegum tækjum til síldarvinnslu, þó að hann yrði að taka til þess Marshalllán. Ég, eins og margir aðrir, tel, að á þessum framkvæmdum hér við Flóann geti beinlínis oltið með fjárhagslegt sjálfstæði landsins nú á þessu ári og næstu árum. Ég tel þess vegna, að hæstv. fjmrh. eigi þakkir skilið fyrir sína frammistöðu í þessu máli, en ekki ásakanir, svo sem hér hefur verið til hans beint. Auk þess er rétt að upplýsa það, að leitað var samþykkis þm. úr stjórnarflokkunum fyrir þessari breytingu, og ég hygg, að fyrir hafi legið fullkominn meiri hluti, þegar þessi breyting var gerð. Þeir einir geta veitzt að ríkisstj. og fjmrh. fyrir þessa breytingu á lánskjörum, sem vilja, að fjárhagur Íslands og atvinnulíf leggist í rústir. Þeir einir geta álasað ríkisstj. fyrir þessa breytingu, sem eru til þess fengnir af erlendu valdi að koma atvinnulífi Íslendinga á kné. Þeim hefur svo farið eins og fávitanum, sem vilja vinna það fyrir vinskap erlendrar þjóðar, að fella ofan af sjálfum sér húsið, þó að þeir verði þá einnig undir rústunum.

Það, sem ég hef hlustað á af þessum umr., er mjög svipað þeim umr., sem fram fóru á þingi Sameinuðu þjóðanna vegna Marshallaðstoðarinnar í þær 3 vikur, sem ég sat þar, af Rússum og þeirra leiguþýi. Það er sama platan, sem hv. 2. þm. Reykv. og hans nótar hafa spilað hér, og Rússar hafa haldið uppi undanfarnar vikur á þingi Sameinuðu þjóðanna. Sú plata er ekki einungis spiluð á þingi Sameinuðu þjóðanna og Alþingi Íslendinga, heldur er líka sami tónninn í öllum blöðum kommúnista um allan heim. Það er sama mótbáran, Vestur-Evrópu. má ekki endurreisa. Það má ekki halda áfram nýsköpun íslenzks atvinnulífs, vegna þess að Rússar eru mótfallnir því. Það er leitt til þess að vita, að hér á Alþ. skuli svo margir fulltrúar hafa gert sig bera að því að reka erindi erlendrar þjóðar. — Ég mun ekki ganga út fyrir fundarsköp með því að halda langa ræðu, en vil endurtaka það, að sú gagnrýni, sem fram hefur komið hér á Alþ. um Marshallsamninginn, er nákvæmlega sama gagnrýnin og á þingi Sameinuðu þjóðanna, það er sú gagnrýni, sem lýðræðisunnendur telja sig ekki hafa ástæðu til að svara, af því að hún er tilbúin í landi, sem hefur tekið að sér að vinna þau verk, sem Hitler sálugi og Göbbels höfðu með höndum.