03.12.1948
Sameinað þing: 24. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2077 í B-deild Alþingistíðinda. (2931)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það er misskilningur hjá hæstv. forsrh., ef hann heldur fram, að ég hafi sagt, að hann hafi gert samninga eða samkomulag fyrir Íslands hönd nú fyrir skömmu, er hann var í útlöndum. En hann hafði viðræður við forsrh. annarra ríkja um mál, sem Ísland varða, og hann staðfesti það í sinni ræðu. En það, sem gerði það hins vegar að verkum, að ég minntist á þetta, — án þess að ég ætli að fara að ræða þetta hér, — það er, að mér virðist vera orðin breyt. á yfirlýstri stefnu og það grundvallarstefnu, sem ríkisstjórn Íslands hefur haft í utanríkismálum, að ráðfæra sig við Alþ. eða nefnd frá Alþ., áður en ákvarðanir eru teknar um nefndir til viðræðna og samninga erlendis fyrir Íslands hönd. Mér virðist vera að verða mjög einkennileg breyt. á afstöðu ríkisstj. Þessi stefnubreyt. virðist mér hafa átt sér stað í sambandi við þær utanfarir, sem nýlega hafa átt sér stað, og þau samtöl, sem þar hafa orðið. — Ég fagna því að vísu, að hæstv. forsrh. sagði, út frá því, sem ég beindi til hans, að ríkisstj. hefði ekki frá nokkru að skýra um samningagerðir frá því er hann nýlega var í utanför. Það er gleðilegt, að hann staðfestir, að ekki hafi verið gerðir þá neinir samningar. Hitt út af fyrir sig, að forsrh. Íslands fer til annars ríkis og talar við forsrh. annars ríkis um það, sem Ísland varðar, það þykir á öllum venjulegum tímum tilefni til þess að ræða við utanrmn. um, hvað verði að gera til undirbúnings þess, hvaða hætta geti stafað af slíkum viðræðum og hvaða ráðstafanir verði að gera vegna öryggisins. Og það var þetta, sem gerði það að verkum, að ég fór hér að ræða um þessi atriði, þegar nú eru tveir mánuðir liðnir af þinginu, án þess að utanrmn. hafi verið kvödd saman til starfa.