03.12.1948
Sameinað þing: 24. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2081 í B-deild Alþingistíðinda. (2941)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl
Ólafur Thors:
Herra forseti. Ég tel mér skylt að upplýsa það, að ástæðan fyrir því, að ég hef ekki kallað saman fund í utanrmn., er sú, að mér er ekki ljóst, að nein þau mál liggi fyrir, sem utanrmn. þurfi að fjalla um. Hv. 2. þm. Reykv. hefur átt nógu lengi sæti í þeirri n. til þess að vita það, að það er undantekning, ef n. er kölluð saman án þess að um það komi fram ósk frá utanrrh., og er ekki talið, að nefndin hafi annars brýnt erindi á fund, ef enginn nm. fer heldur fram á það. Hv. þm. hefur víst litið sjálfur svo á, að n. ætti ekki brýnt erindi á fund, annars hefði hann snúið sér til mín, þó að hann hafi hins vegar talið ágætt tækifæri að koma hingað með leiktjöld sín. —
Ég man líka svo langt, að þegar ég var utanrrh., féll honum prýðilega, að ég réði þessu, og án þess að spyrja hv. Framsfl. Ég tek því ekki á móti ásökunum í þessu efni. Allir, sem í n. eru, vita, að á því er færi að fá hana kallaða til fundar, ef tilefni þykir fyrir hendi.