14.03.1949
Neðri deild: 80. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2085 í B-deild Alþingistíðinda. (2949)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er ekki að ófyrirsynju, að umr. urðu um þetta mál, utan dagskrár. Viðvíkjandi því, sem hæstv. forsrh. sagði um utanrmn., er því að svara, að hún er sú eina n., sem sérstaklega er mælt fyrir um í l., að ekki skuli aðeins lögð öll utanríkismál fyrir meðan þing stendur yfir, heldur líka á milli þinga. Það er alveg sérstaklega til þess ætlazt og n. sérstaklega til þess stofnuð af Alþ., að Alþ. gegnum utanrmn. geti haft eftirlit með embættismönnum ríkisins — í þessu tilfelli ráðuneytinu — viðvíkjandi utanríkismálum. Viðvíkjandi yfirlýsingu, hæstv. forsrh. nú vil ég aðeins taka það fram við hann, að ég veit ekki til þess, að búið sé að lögleiða herskyldu á Íslandi. Ég veit ekki til þess, að Íslendingar eigi að fara að berjast, og ég veit ekki til þess, að íslenzka ríkið sé búið að upphefja sína hlutleysisyfirlýsingu eða hafi á nokkurn hátt hugsað sér að berjast með eða móti, ef til stríðs kæmi, eða að það hafi tekið á löglegan hátt nokkra ákvörðun um slíkt. Hins vegar þótti mér mjög vænt um, að hv. þm. S-Þ. skyldi koma hér fram sem sjálfboðaliði fyrir hönd ríkisstj. Mér finnst, að einmitt í þessu máli sé það eðlilegt og sjálfsagt, að í hvert skipti sem ríkisstj. þurfi eitthvað að segja viðvíkjandi því, sem hún hugsar, þurfi hún ekki annað en að skírskota til þess, sem hv. þm. S-Þ. segir, vegna þess að hann segir það miklu berar og ótvíræðar en ríkisstj. og venjulega nokkrum árum áður en hún þorir að segja það. Hv. þm. S-Þ. hefur frá því áður en lýðveldi var stofnað á Íslandi byrjað áróður fyrir því að útvega erlendu stórveldi herstöðvar á Íslandi. Hann hefur haldið uppi þessum áróðri árum saman til þess að reyna að undirbúa hugi manna hér undir það að gefa erlendu stórveldi íhlutun og fangastað á íslenzkri grund. Honum hefur verið hjálpað til þess af erlendu stórveldi, sem þvingaði Alþ. til þess að ganga að nauðungarsamningi og braut hann síðan. Ég á við Bandaríki Norður-Ameríku, sem settu. Íslendingum úrslitakosti þann 24. júní 1941 og þvinguðu þá til þess, með 24 stunda fyrirvara, að ganga að þeim úrslitakostum, rufu þann samning og frömdu pólitíska innrás í okkar land og þvinguðu meiri hl. Alþ. til að láta af hendi Keflavíkurflugvöllinn 1946 með hótun um að fara ekki á brott með herinn. Hv. þm. S-Þ. hefur dyggilega stutt þetta herveldi, sem er eina stórveldið, sem hefur beitt Íslendinga nauðung í seinni tíð, rofið á okkur samninga og skert yfirráð okkar yfir okkar eigin landi, og hv. þm. hefur öðru hvoru tekizt að fá meiri hl. Alþ. til að standa með sér í þessari árás á Ísland. Þm. má hins vegar eiga þökk fyrir þá hreinskilni, að hann segir venjulega frá því, sem hugsað er að gera, nokkrum árum áður en stj., sem fetar svo í fótspor hans, þorir að gera það opinbert. Hv. þm. S-Þ. vill hafa opinberar herstöðvar á friðartímum á Íslandi, en stj. er enn hrædd við að feta í fótspor meistara síns. Hv. þm. S-Þ. hefur enn fremur lýst því yfir, að hann álíti, að Íslendingar eigi að koma á herskyldu. Ríkisstj. er enn þá hrædd við að ganga inn á það mál. Ég býst við, að öll ríkisstj. verði að fljúga til Ameríku um það leyti, sem fyrirmæli koma um það atriði í samræmi við óskir hv. þm. S-Þ.

Að síðustu viðvíkjandi því, sem hv. þm. S-Þ. minntist á útreikning hæstv. utanrrh. á styrkleika Sósfl. hér á Íslandi, má hann manna bezt vita, m. a. af sínum eigin skrifum, að það munu ekki aðeins vera hinir þjóðhollu borgarar,sem eru í Sósfl., sem eru á móti Atlantshafssáttmálanum, heldur líka drjúgur hluti þess flokks, sem hv. þm. telur sig til. Þar er mjög ákveðin andstaða gegn Atlantshafssáttmálanum, og jafnvel þó að hv. þm. hafi tilhneigingu til að kalla þá menn alla kommúnista, sem eru á móti sáttmálanum, þá býst ég ekki við, að hann vildi gefa þau atkv. við kosningar. Enn fremur veit ég ekki betur, hvað Alþfl. snertir, en að hæstv. forsrh. sé í miklum vandræðum, meira að segja með þá menn, sem eru í framboði fyrir Alþfl., og jafnvel með þm. flokksins, út af þessu máli. Ég veit ekki betur en flokksmenn utanrrh. séu einnig í þeirra hópi, og ætti hæstv. fjmrh. að geta gefið nánari upplýsingar um suma þeirra.

Ef forsrh. vill fara út í pólitískar umræður um þetta mál, þá skal ekki standa á mér, en hann ætti að athuga, að það er þjóðin sjálf, sem mótmælir aðförum ríkisstj. og mótmælir þátttöku í hernaðarbandalagi. Víðs vegar að af landinu rignir yfir Alþingi mótmælum gegn þátttöku í hernaðarbandalagi, en ekki ein einasta samþykkt hefur Alþingi borizt því til stuðnings. Þegar um er að ræða jafnstórt mál sem hér er á ferðinni, þá er ríkisstj. skylt að leggja það fyrir utanrmn. Það er margt, sem þm. vilja vita um, áður en samningar eru hafnir við erlent stórveldi. Þess vegna mótmæli ég meðferð þessa máls í nafni Alþingis og íslenzku þjóðarinnar.