19.11.1948
Sameinað þing: 19. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (2966)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Í sambandi við þessar fyrirspurnir vildi ég minnast á það, að ég hef orðið þess var, að menn undra sig á því, hve mikið af tíma þingsins fer í þær. Það er kunnugt, að á þingum erlendis er sérstakur tími ætlaður til fyrirspurna. Ég vildi nú skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki megi binda fyrirspurnir við þrjár stundir í viku, og að þá verði þeim fyrirspurnum svarað, sem unnt er að svara, en hinar látnar mæta afgangi þar til næst.