17.12.1948
Neðri deild: 42. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (2986)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Ásgeir Ásgeirsson:

Það er að vísu rétt, að frsm. var ekki viðstaddur, þegar hann var kosinn, en hann hefur fengið tilkynningu um það og hefur ekki mótmælt því við mig. Við höfum þess vegna fulla ástæðu til að halda, að hann sé að undirbúa þetta vandasama nál. og hv. flm. hljóti að hafa misskilið hann að einhverju leyti.