27.01.1949
Neðri deild: 53. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (2989)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég hef skýrt frá því áður, að n. hefur afgr. frv. um innflutning á einum jeppabíl. N. hefur hins vegar ekki talið sér skylt að reka sérstaklega á eftir því, að frsm., sem kosinn var, hv. 7. þm. Reykv. (JáhH), kæmi með nál. sitt. Í slíku stórmáli er varhugavert að hindra fulla rannsókn, og verður að öðru leyti að vísa til hv. frsm., sem að vísu var svo óheppinn að vera ekki viðstaddur, þegar kosinn var frsm., en er aftur á móti svo heppinn að vera ekki viðstaddur nú.