06.05.1949
Neðri deild: 102. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (3045)
120. mál, menntaskólar
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti: Það voru nokkur atriði, sem ég vildi taka fram út af ræðum hv. þm. N-Ísf. og hv. þm. Ak. Hv. þm. Ak. undirstrikaði enn á ný, að það væru almennar óskir á Norðurlandi og víðar, að 1. og 2. bekkur Menntaskólans á Akureyri héldust., Það er rétt, að fram hafa verið bornar slíkar óskir, en ég hygg, að þær séu byggðar á misskilningi. Fólk hefur sem sé ekki athugað, hve miklar breytingar hafa orðið síðustu árin á möguleikum til öflunar almennrar fræðslu. Annars ætla ég ekki að fara að þylja upp aftur það, sem ég hef sagt í fyrri ræðum mínum um þetta mál, en nægilegt er að benda á, hve margir skólar hafa verið reistir. Þá minntist hv. þm. Ak., og að vísu hv. þm. N-Ísl. einnig, á hið mikla húsnæði, sem fengist, er hið nýja heimavistarhús væri risið. Um þetta er það að segja, að þeim fjölgar nú óðum, sem landspróf taka, og koma þeir til með að þurfa á allri heimavistinni að halda. Aftur á móti eru sköpuð nægileg skilyrði fyrir þá, sem annars yrðu í 1. og 2. bekk menntaskólans, að stunda gagnfræðanám sitt annars staðar. Þetta er nú það, sem ég vildi aðallega taka fram um. ræðu hv. þm. Ak. Um ræðu, hv. þm. N-Ísf. er það að segja, að ekkert nýtt kom þar fram, en þó vil ég minnast á þrjú eða fjögur atriði í ræðu hans. Hv. þm. sagði, að engin hætta væri á því, að framhaldsskólanemendur fengju ekki rúm í heimavistinni, þótt gagnfræðadeildin héldist. Um þetta getur nú hv. þm. ekkert fullyrt. Heimavistin nýja á mjög langt í land, og aðsókn framhaldsskólanemenda vex stöðugt. Þessi atriði bæði hefur hv. frsm. minni hl. n. tekið mjög skýrt fram, en ég vil þó benda á, að miklar fjárveitingar þarf til þess að fullgera heimavistarhúsið, en til þess eru ekki veittar á fjárlögum nema mjög takmarkaðar upphæðir, svo að búast má við, að langt líði þar til það er fullgert. Þá þarf og mikið fé til þess að breyta gamla skólahúsinu, svo að þar aukist til muna fjöldi kennslustofa. — Þá sagði þm., að það væri ekki haldgóð röksemd að segja, að nemendur misstu ekki mikils í, þótt lagðir væru niður 1. og 2. bekkur. Þetta er þó röksemd, sem stendur, því að það er ekki hægt að halda því fram, að þeir missi mikið, þegar það liggur fyrir, að mjög fáir nemendur úr 1. og 2. bekk hafa að undanförnu fengið heimavist. Í þessu sambandi töluðu þeir báðir, hv. þm. N-Ísf. og hv. þm. Ak., um þá miklu möguleika, sem menn misstu, til að geta komið börnum sínum í skóla, þar sem þeir gætu þá ekki komið þeim í heimavist. En þetta er auðvitað hin mesta rökvilla, því að að undanförnu hafa nemendur 1. og 2. bekkjar ekki getað fengið heimavist, vegna þess að þeir, sem í framhaldsdeildinni hafa verið, hafa setið fyrir húsnæði þar. Þá sagði hv. þm., að ekkert væri að marka, þótt ekki væru nema 10 eða 11 utanbæjarnemendur í 1. og 2. bekk í vetur vegna þess, hve seint var ákveðið að halda þessum deildum áfram. Ég er þarna alveg á öndverðri skoðun. Þetta, að þurfa að taka 14 eða 15 Akureyringa í 1. þekk til þess að fylla deildina, tel ég einmitt vera óræka sönnun fyrir því, hve möguleikar til gagnfræðanáms eru orðnir miklir og því alveg óþarft að halda þessu skipulagi við Akureyrarskólann áfram.
Ég skal svo ekki orðlengja þetta mikið frekar, því að ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það, sem ég hef um þetta sagt í hv. deild áður, og vona, að allir hv. þm. hafi kynnt sér til hlítar það, sem hér liggur fyrir í þessu máli. Ég vil þó taka fram, að ef þetta frv. verður samþ. til 3. umr., mun ég við þá umr. gera tilraun til að fá þetta takmarkað meira en nú er í frv., t.d. að í 1. og 2. bekk séu aðeins teknir utanbæjarmenn og bekkirnir séu óskiptir. En um þetta atriði mun ég ræða nánar við 3. umr.