14.05.1949
Efri deild: 109. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (3070)
120. mál, menntaskólar
Forseti (ÞÞ):
Hv. þm. hefur snúið máli sínu til mín. Ég get svarað því, að það er ekki á mínu valdi að draga hv. frsm. hingað undir ræðu hv. ræðumanns. Hann ræður sér sjálfur, og ég get ekki sótt hann hingað með lögregluvaldi. En ég álít heppilegast nú, að umr. þessum sé hætt í þetta skipti, og mun ég þá fresta atkvgr. þangað til á mánudag, en vil þá, ef ég á kost á því, lofa þm. að leiða hesta sína saman við 3. umr., ef frv. lifir þangað til. Ætti þá hvorugur að draga af sér, en auðvitað sýna hófsemd og snyrtimennsku. Ef annars ræðumaður vill halda áfram, er þetta aðeins hlé á ræðu hans.