09.11.1948
Efri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (31)

26. mál, happadrættislán ríkissjóðs

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég flutti þessa brtt. vegna þess, að mér virtist það rétt hjá hv. 1. þm. N-M., að ef frv. er samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir, þá er erfitt að skilja það á annan veg heldur en þann, að þessi eign eigi að halda áfram að vera undanþegin eignarútsvari ætíð meðan hún finnst, ekki aðeins fyrsta árið, heldur ætíð. Það er að vísu rangt, sem mér skildist á hans orðum, að tekjur af þessu ættu að vera undanþegnar sköttum. Ég hef aldrei skilið frv. svo, að eignin ætti að halda áfram að vera útsvarsfrjáls ætíð meðan hún finnst, og ég efast um það, þrátt fyrir ummæli hæstv. fjmrh., að honum hafi dottið sú skýring í hug. Þess vegna finnst mér aths. hv. 1. þm. N-M. að þessu leyti á fullum rökum reist og nauðsynlegt sé að breyta frv. í þetta horf. Hins vegar sé ég ekki ástæðu til að gera hér upp á milli ríkis og sveitarfélaga. Það er nú vitað mál, að eignarútsvar er yfirleitt ákaflega lítið hvarvetna á landinu. Ég held, að það fái ekki staðizt, að það sé 6% nokkurs staðar á landinu, og trúi ég varla, að það yrði talið útsvar á eign, þó að það væri sérstaklega tilbúið af þessu tilefni. Það yrði þá að liggja fyrir líka, að slíkur eignarskattsskali hefði verið settur og honum fylgt af viðkomandi sveitarfélagi, ekki aðeins í þessu eina tilfelli, heldur almennt. Ég get þá ekki séð, að þetta sé varhugavert, ef menn eru sammála um, og ég held, að allir séu sammála um, að þetta komi inn í eignarskattsgreiðslur, bæði hjá ríki og bæjum, eftir fyrsta árið. Annað er óframkvæmanlegt, að ætla að fara að halda þessari eign sérskilinni, og sé ég þá ekki, að það muni neinu, þó að það komi undir eignarskattsframtalið á fyrsta ári. Það stendur ekki til, að hér sé um að ræða almenna útsvarsálagningu, heldur aðeins eignarútsvar, og venjulega er það aðeins brot úr 1% og hefur ekki neina þýðingu til þess að fæla einn einasta mann frá að kaupa þessa hluti, eða til hins, að hægt sé að líta á það sem svik eða brigðmælgi við nokkurn mann. Það er aðeins eðlilegt, að sveitarfélögin verði jafnrétthá og ríkið, og það væri aðeins hæverska af ríkinu að gera sig sjálft réttlægra, heldur en að svipta sveitarfélögin þeim rétti, sem ríkið æskir til handa sjálfu sér. Mér finnst þess vegna sú aths. hv. 1. þm. N-M. rétt, að ef ekki er fyrirvari um þetta í frv., þá verði afleiðingin önnur en til var ætlazt, sem sé sú, að það eigi að halda þessari eign sérskilinni hjá þessum aðilum, og ekki megi leggja á hana útsvar. Þetta hlýtur að enda í glundroða, og verður að finna leið gegn því. Ég er mjög ásáttur með, að málinu verði frestað og n. fái það til athugunar aftur. Ég held ekki fast við orðalagið á brtt. minni, ef menn komast að annarri leið, sem mér finnst betri, og skal ég þá með ánægju draga hana aftur, en mér finnst eðlilegt, að hún gangi til hv. n. að svo komnu máli með frv.