17.05.1949
Neðri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1900 í B-deild Alþingistíðinda. (3110)

193. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þær breyt., sem gerðar voru í Ed., eru eingöngu orðalags- og formsbreytingar, og brtt. voru fluttar í samráði við mig. 1. og 2. gr. voru felldar niður úr frv., en inn í 3. gr. sett ákvæði í stað sjálfstæðrar 1. gr. — Ég legg svo til, að frv. verði samþ. óbreytt.